Morgunblaðið - 10.07.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
Alltaf sami töffarmn
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Kvikasilfur (Quicksilver). Sýnd í
Stjörnubíói. Stjömugjöf: * lfa
Bandarísk. Leikstjóri: Tom
Donnelly. Handrit: Tom Donnelly.
Framleiðendur: Michael Rachmil og
Daniel Melnick. Tónlist: Tony Bans.
Flytjendur tónlistar: Roger Daltrey,
Ray Parker, jr. of.I. Klipping: Tom
Rolf. Kvikmyndataka: Thomas Del
Roth. Helstu hlutverk: Kevin Bac-
on, Jami Gertz og Paul Rodriquez.
Norman Mailer sagði að töff
gæjar dönsuðu ekki. Ein af mörgum
undantekningum frá þeirri reglu
var Kevin Bacon í myndinni Foot-
loose. Hann var stórborgartöffari
í smábæjarkríli og þegar honum
fannst eitthvað bjáta á, smábærinn.
Allir geta leikið töffara: maður
fer bara í leðutjakka, ypptir öxlum
og lætur eins og maður eigi heim-
inn. En það er ekki eins auðvelt
að leika persónuna á bak við töff-
arann.
Annars má segja Bacon til vor-
kunnar að hann hefur ekki úr miklu
að moða í myndinni Kvikasilfur.
Hann leikur mann (maður fær strax
á tilfinninguna að hann sé of ungur
fyrir hlutverkið þrátt fyrir asnalegt
yfirskegg sem hann er látinn bera),
sem er snillingur í verðbréfavið-
skiptum en tapar aleigunni og
verður að fá sér almennilega vinnu.
Einn daginn er hann milli, þann
næsta á hann ekki fyrir bót á rass-
inn á sér. Hann fær ekkert betra
en sendilsstarf og geysist um stór-
borgina á reiðhjóli hraðar en allir
aðrir. Jami Gertz leikur fallegustu
stelpuna í sendlahópnum og hún
og Bacon hrífast hvort af öðru.
Búið.
Eða næstum því. Inní þennan
heldur ómerkilega söguþráð er bætt
nokkrum smásögum: Hector er
Mexíkani sem dreymir um að kaupa
pysluvagn og verða ríkur; sígauninn
er dópsali sem notar Jami til að
flytja dóp og hótar að drepa hana
þegar hún vill ekki vinna meira
fyrir hann.
Kvikasilfur hefur ekki uppá neitt
að bjóða sem ekki hefur verið sýnt
þúsund sinnum í öðrum bíómynd-
um. Það er ekki til frumleg hugsun
í henni og það er sjaldséður góður
leikur. Tónlistin er ansi fjörug en
það er ekki nóg. Bacon fær ekki
að dansa eftir henni.
Stöllurnar Erla Kristín Jónsdóttir og Sigrún Snorradóttir
efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkjunn-
ar. Þær söfnuðu 420 krónum.
Kevin Bacon sýnir listir sínar
með kvenmann á hjólinu sínu.
þrengja að sér, dansaði hann og
sýndi þannig hvað í huga hans bjó.
í myndinni Kvikasilfur (Quick-
silver), sem sýnd er í Stjömubíói
er hann ennþá sami töffarinn en
hann hefur engan dans til að túlka
tilfinningar sínar með. Hann er
bara sendill á reiðhjóli og það er
svolítið erfitt hlýtur að vera, að
sýna mikinn tilfínningahita á reið-
hjóli. Sem betur fer rejmir Bacon
það ekki. Því miður reynir hann það
þegar hann stígur af baki og geng-
ur illa. Bacon er enginn skapgerðar-
leikari, hann er bara töffari,
öruggur og ánægður með sig, en
þegar hann ætlar að veita tilfínn-
ingum sínum útrás, sem hann gerði
svo vel í dansinum í Footloose,
fínnur hann ekki farveg fyrir þær
og maður fær á tilfínninguna að
annaðhvort hafi hann ekki æft sig
nógu vel fyrir hlutverkið eða hann
geti ekki betur. Hann er svo meðvit-
aður um að hann er að leika að
hann kemur varla út úr sér setning-
unum.
Aðrir leikarar á hans aldri eins
og Timothy Hutton eða Sean Penn
geta byggt upp sterkar persónur
með vönduðum og öguðum leik.
Bacon á erfítt með það: hann er
ósannfærandi á sama hátt og
krakkamir í sjónvarpsmynda-
flokknum Fame em ósannfærandi.
Lambakótilettur Hinriks IV
Fyrir fjóra:
8—12 tvöfaldar kótilettur
450 g Sól djúpfrystar grænar baunir
450 g Sól djúpfryst rósakál
salt, hvítur pipar
5 msk Blái Borðinn
4 nýir tómatar, kartöílur
Bernaisesósa:
250 g Blái Borðinn
3 eggjarauður
5 korn hvítur pipar, marin
> 2 msk fínt saxaður laukur
<Ð 2 msk hvítvínsedik
œ ný stcinselja
1 msk þurrkað dragon
eða einn pakki pk. Knorr Bernaisesósa
Tími til undirbúnings: 5—10 mínútur.
Tími til matreiðslu: u.þ.b. 30—45 mínútur.
Látið baunirnar og rósakálið þiðna. Snyrtið kótiletturnar,
skerið bláendann af og gerið skurði í fitulagið svo þær
aflagist ekki við steikingu. Skerið stcinseljukvistina í litla
bita. Skerið kross í tómatana.
Matreiðsla:
1. Setjið tómatana inn í 175°C hcitan ofn í 20—25 mínútur.
2. Sósan. Setjið vínedik, lauk, piparkorn og steinselju-
kvisti í lítinn pott og sjóðið þar til hclmingur vökvans er
eftir. Bræðið (brúnið ekki) 250 g af Bláa Borðanum. Látið
suðu koma upp á vatni í stórum potti, setjið lítinn pott þar
ofan í og hrærið eggjarauðurnar í honum. Sigtið vínedik-
löginn og þeytið hann saman við eggjarauðurnar í jafna
sósu. (Notið rafmagnsþeytara, mcðalhraða). Hellið Bláa
Borðanum í mjórri bunu saman við og þcytið vel á