Morgunblaðið - 10.07.1986, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
SÆTSÚR KJÚKLINGUR
SIGRÚN GUÐNADÓTTIR
1 kjúkimgur (hlutaður sundur, vængir,
læri í tvennt, bringa í 4 hluta,
hryggur notaður í soð.)
1 egg
1 msk. vatn
1 dlmaísmjöl
1 tsk. salt
1/2 tsk.pipar
olía til að steikja úr.
Egg og vatn slegið saman, bitunum velt upp úr því og
síðan úr maísmjöli og djúpsteikt uns bitarnir verða Ijós-
brúnir.
Sósa:
2 laukar
1 grænpaprika
1 gul paprika
1 stórgulrót.
Brytjið og sjóðið í ca. 5 mín. Látið síga af því.
1 dleplaedik
1 dl púðursykur
2 msk. sherry
2 msk. soyasósa
1 1/2 msk. maísmjöl
3 dl soð, t.d. kjúklingateningur í
soðnu vatni, eða soðió sem hrygg-
urinn varsoðinn úr.
Hráefninu (utan grænmetis) blandað í pott og soðið uns
það þykknar og verður glært. Þá er grænmetinu bætt út í
og sósunni hellt yfir heita kjúklingabitana.
ísfugl
Sími: 666103
Gon-noui
OGÓDÝRT
I Kjúklingur er holiur, góður og síðast en ekki síst
Iódýr matur.
Við viljum að allir borði kjúkling að minnsta kosti
einu sinni í viku og velji sér kjúklingadag.
Hér birtist spennandi uppskrift úr samkeppni
ÍSFUGLS, veldu þér kjúklingadag og reyndu
uppskriftina.
NÝTT SlMANÚMER
69-11-00
Auglýsingar 22480 • Afgreiðsla 83033
Flytja íslensk o g spænsk
þjóðlög á kaffikonsert-
um víðsvegar um
Söngkonan Viktoría Spans og Simon H. ívarsson gítar-
leikari eru nú að leggja af stað í tónleikaferðalag um
landið. Þau munu halda sk. ..kaffikonserta“ á um 10
stöðum.
„Kaffíkonsertar eru nýtt form
af tónleikum sem er til dæmis
orðið mjög vinsælt í Hollandi,"
sögðu þau Viktoría og Símon í
samtali við Morgunblaðið. „Það
er frábrugðið hinu hefðbundna
formi þar sem fólk kemur, hlustar
og fer heim. Á kaffíkonsertum
geta menn rabbað saman yfír
kaffíbolla og haft það notalegt.
Tengslin milli tónlistarinnar og
flytjendanna verða meiri með
þessu móti, þar sem flytjendur
setjast hjá áhorfendum eftir tón-
leikana og þeir geta skipst á
skoðunum og rætt um tónlistina.
„Við verðum með mjög ódýrt
kaffí á boðstólum á tónleikunum.
O. Johnson & Kaaber hafa gefið
allt kaffið svo að það er einungis
þjónustan á hveijum stað sem
kostar. Á ísafírði sér t.d. tónlistar-
félagið um kaffísöluna. Það er að
safna fyrir tónlistarhúsi og ágóð-
inn af sölunni rennur í þann sjóð.
Tónleikaferðalagið hefst á
Kópaskeri 9. júlí. Síðan verða tón-
leikar á Húsavík þann 10.,
Akureyri þann 12. og á Ólafsfírði
sama kvöld þar sem þau koma
fram í sambandi við vinabæjamót.
Á Isafírði verða þau 14. júlí, fyrsta
uppákoman á nk. „listahátíð" sem
bærinn heldur vegna 200 ára af-
mælis síns, síðan fara þau til
Bolungarvíkur 15. júlí. Viktoría
er ættuð þaðan, en þetta verður
fyrsta heimsókn hennar þangað,
síðan verða þau á Flateyri 16. og
Patreksfírði 17. Ekki er enn end-
anlega ákveðið hvort haldnir
verða tónleikar í Hveragerði en
ef svo verður, verða þeir haldnir
á Hótel Örk þann 19. júlí. Tón-
leikaferðalaginu lýkur svo í
Norræna Húsinu í Reykjavík 21.
júlí en þá verður jafnframt gerð
útvarpsupptaka.
Fyrri hluti allra tónleikanna
verður helgaður spænskri tónlist
en hún er mikið áhugamál Vikt-
oríu. M.a. verða flutt sönglög sem
eiga rætur sínar að rekja til
spænskra gyðinga á 11. og 12.
öld, lög frá endurreisnartímanum,
þjóðlög í útsetningu Garcia Lorca,
landið
einleikur á gítar eftir Albeniz og
sjö vinsæl lög eftir De Falla þar
sem hann notar mikið hið spænska
dansform. Ekki er vitað til þess
að þau hafí verið flutt hér á ís-
landi áður.
Eftir hlé verður flutt íslensk
tónlist. Frumflutt verður gítarverk
eftir John Speight og flutt verkið
Völuspá. Það var upphaflega sam-
ið fyrir hörpu af Hollendingnum
Ank van Campen en Símon Ivars-
son hefur útsett það fyrir gítar.
Einnig verða flutt lög eftir Gunn-
ar Reyni Sveinsson, Emil Thor-
oddsen og Pál ísólfsson.
Símon Ivarsson hóf gítamám
sitt 19 ára hjá Tónskola Sigur-
sveins. Að loknu burtfararprófí
hélt hann til Vínarborgar og var
þar í 5 ár við framhaldsnám.
Hann kenndi síðan í Sviss í eitt
ár áður en hann hélt heim og hóf
gítarkennslu hjá Tónskóla Sigur-
sveins. Þar hefur hann nú kennt
undanfarin 5 ár.
Viktoría Spans er fædd í
Reykjavík, móðir hennar er
íslensk en faðir hollenskur og
fluttu þau til Hollands er Viktoría
var fímm ára gömul. Hún hefur
stundað söngnám bæði á íslandi
hjá Kristni Hallssyni og í Hol-
EINSTAKLINGAR
Minni heimili
Þetta er örbylgjuofninn fyrir ykkur
TOSHIBA ER5210
Verð aðeins 12.900 stgr. útb. 5.000.- eft-
irstöðvar á 6 mánuðum.
íslenskar leiðbeiningar og uppskriftir fylgja
og kvöldnámskeið án endurgjalds.
— Kynntu þér ofninn strax í dag —
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI I699S
Blái
fuglinn
— ný kvenfataverslun
í Pósthússtræti 13
OPNUÐ hefur verið ný kven-
fataverslun, sem fengið hefur
nafnið Blái fuglinn og er hún til
húsa í Pósthússtræti 13, á horni
Pósthússtrætis og Kirlyustrætis.
Eigendur eru hjónin Hanna Elí-
asdóttir og Ingvar Sveinsson.
Verslunarstjóri er Kolbrún
Skaftadóttir.
Blái fuglinn hefur umboð fyrir
bandaríska vörumerkið Maidenform
í undirfatnaði og einnig hefur versl-
unin umboð fyrir danska hönnuðinn
Bitte Kai Rand. Hún hefur getið
sér gott orð víða í Evrópu og ætlar
að réyna fyrir sér á Bandaríkja-
markaði með vörur sínar, að sögn
Hönnu. „Fatnaður hennar er úr
léttu prjónaefni og séreinkenni
þessarar vöru er að auðvelt er að
setja flíkumar saman á' mismun-
andi hátt, hvort sem um er að ræða
buxur, peysur, kjóla, pils, slétt og
felld, eða boli.“
Verslunin hefur umboð fyrir
breska skó af gerðinni Gina, sem
eru úr handgerðu leðri, gjaman
tvílitir og hægt er að fá veski í stfl.
Boðið er upp á náttkjóla úr silki
og öðrum efnum svo og létta kjóla,
spari- og samkvæmiskjóla frá
Frakklandi, Englandi og Þýska-
landi. Þá munu í haust koma kjólar
í stærri númerum en vant er að
fáist í verslunum.
Blái fuglinn verslar einnig með
brúðarkjóla frá Bretlandi og Dan-
mörku sem kosta frá 4.900 krónum
og allt upp í 20.000 krónur, að
sögn Hönnu. Hún bætti því við að
verslunin myndi senda myndalista
af brúðarkjólum út á land til þeirra
sem þess óskuðu og hægt yrði að
panta eftir þeim.
Hanna sagði að nafn verslunar-
innar væri gamalgróið í fjölskyldu