Morgunblaðið - 10.07.1986, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
V estur-Þýskaland:
Saga Rauðu herdeild-
arinnar blóði drifin
MUnchen, AP.
SÍÐUSTU 15 árin hafa hryðjuverkamenn á vegum Rauðu herdeildar-
innar einkum beint spjótum sínum að ráðamönnum á sviði stjórnsýslu,
viðskipta og hermála í Vestur-Þýskalandi.
Fráfarandi forseti Austurrikis, Rudolf Kirchschlaeger, afsalar sér völdum i hendur nýkjörins forseta
landsins, Kurt Waldheim, sem sór embættiseið á þriðjudaginn.
Austurríki:
Waldheim hyggst ekki
ferðast fyrsta árið
Vln, AP.
KURT Waldheim, forseti Aust-
urríkis, hyggst ekki ferðast til
útlanda fyrsta árið sem hann
gegnir embætti. Kveðst hann
ætla að einbeita sér að innan-
landsmálum og ferðast síðan til
nágrannalandanna, einkum
þeirra sem hlutlaus eru. Wald-
heim segist ekki munu leggjast
gegn því að nefnd rannsaki þær
áskanir sem fram hafa verið
bornar á hendur honum um aðild
hans að striðsglæpum nasista.
A fréttamannafundi sem boðað
var til eftir að Waldheim hafði svar-
ið embættiseið sem forseti Aust-
urríkis ítrekaði hann þá ósk sína
að honum mætti takast að stuðla
að sáttum þjóða í millum.
Aðspurður kvaðst hann ætla að
halda sig heima við fyrsta árið en
síðan ferðast til nágrannaríkjanna
auk Bretlands og Bandaríkjanna. í
Sviss hefúr Waldheim verið gagn-
rýndur harðlega og Júgóslavar birtu
fyrst áskanir á hendur Waldheim
árið 1947. Hann sagðist ekki hafa
áhyggjur af því að nafn hans væri
á lista yfir grunaða stríðsglæpa-
menn í Bandaríkjunum og bætti við
að hann vænti þess að sendiherra
ísraela í Austurríki myndi brátt
snúa aftur þangað.
Waldheim kvaðst staðráðinn í að
beijast gegn gyðingahatri, en nokk-
uð hefur borið á því í Austurríki í
kjölfar ásakana Heimssambands
gyðinga gegn honum.
Chemobyl:
Ibúamir
snúa aftur
Veður
víða um heim
Lœgst Hsst
Akureyri 10 súld
Amsterdam 13 18 skýjað
Aþena 22 34 heiðskírt
Barcelona 23 skýjað
Berlfn 9 vantar
Brussel 19 skýjað
Chicago 17 19 skýjað
Dublin 12 17 skýjað
Feneyjar 24 léttskýjað
Frankfurt 11 20 skýjað
Genf 14 20 skýjað
Helsinki 16 21 heiðskfrt
Hong Kong 27 32 heiðskfrt
Jerúsalem 13 26 heiðskírt
Kaupmannah. 10 18 heiðskírt
Las Palmas 22 skýjað
Lissabon 18 30 heiðskfrt
London 11 20 skýjað
Los Angeles 17 29 heiðskírt
Lúxemborg 17 skýjað
Malaga 25 þokum.
Mallorca 29 léttskýjað
Miami 25 30 skýjað
Montreal 16 28 skýjað
Moskva 20 31 skýjað
New York 26 34 heiðskfrt
Osló 9 21 skýjað
Parfs 12 17 skýjað
Peking 20 30 skýjað
Reykjavík 10 skýjað
Ríóde Janeiro 10 22 heiðskírt
Rómaborg 18 32 heiðskfrt
Stokkhólmur 17 skúrir
Sydney vantar
Tókýó 22 27 skýjað
Vfnarborg 14 23 skýjað
Þórshöfn 12 skúrir
Moskvu, AP.
BJÖRGUNARSVEITIR hafa lok-
ið störfum sínum í a.m.k. sjö
smábæjum í nágrenni Chemobyl
og að sögn Pravda, málgagns
sovéska kommúnistaflokksins,
geta íbúamir nú snúið aftur til
síns heima, þar sem geislun er
ekki lengur yfir hættumörkum.
Ekki var sagt hvaða þorp hér er
um að ræða né heldur hversu
margir íbúamir em.
Fréttir hafa borist um að mörg-
um íbúum borga og bæja í nágrenni
Chemobyl hafi verið fundinn nýr
dvalarstaður til frambúðar og full-
yrt hefur verið að hinir 52.000 íbúar
borgarinnar Pribyat muni líkast til
aldrei geta snúið aftur.
Rúmlega 200.000 manns vom
fluttir á brott í kjölfar slyssins í
Chemobyl 26. apríl síðastliðinn.
Að undanfömu hefur skipulag
hjálparstarfsins verið gagnrýnt í
Pravda en nú brá svo við að blaðið
lauk lofsorði á þá sem annast hafa
matvæladreifingu til þeirra sem
neyddust til að yfirgefa heimili sín.
Hins vegar vom yfirvöld í viðkom-
Fiiippseyjar:
Uppreisnar-
mönnum
sýnd vægð
Manila, AP.
CORAZON Aquino, forseti
Filippseyja, mun hafa í hyggju
að fyrirgefa Arturo Tolentino
og öðrum leiðtogum þeirra upp-
reisnarmanna, sem gripu til
aðgerða gegn stjóra hennar um
helgina. Skýrði Jovito Salonga,
talsmaður stjórnarinnar frá
þessu í gær.
Salonga sagði þó, að það værí
skilyrði, að Tolentino og sam-
herjar hans myndu sveija stjórn-
arskrá landsins hollustueiða.
andi hémðum gagnrýnd fyrir að
veita íbúunum ekki tæmandi upp-
lýsingar um hreinsunarstarfið og
áhrif geislavirkni á
mannslíkamann.
I febrúar árið 1985 var Emst
Zimmermann, sem var fram-
kvæmdastjóri fyrirtækis sem
framleiðir þotuhreyfla fyrir Atlants-
hafsbandalagið, skotinn til bana á
heimili sínu. Rauða herdeildin lýsti
ábyrgðinni á hendur sér.
Árið 1977 myrtu hryðjuverka-
menn Rauðu herdeildarinnar þá
Siegfried Buback, rikissaksóknara,
Júrgen Ponto, formann bankaráðs
Dresdner bankans, og Hans Martin
Schleyer, formann vestur-þýska
Vinnuveitendasambandsins.
Rauða herdeildin hefur einnig
látið til skarar skríða gegn hemað-
armannvirlqum og starfsmönnum
Bandaríkjahers í Vestur-Þýska-
landi. í ágústmánuði árið 1985
sprakk sprengja í bíl fyrir utan flug-
stöð Bandaríkjhers í nágrenni
Frankfurt. Tveir bandarískir her-
menn létu þar lífíð og um 20
særðust. Nokkrum klukkustundum
áður en sprengjan sprakk höfðu
hiyðjuverkamenn myrt banda-
rískan hermann og notuðu þeir
nafnskírteini hans til þess að kom-
ast inn á herstöðvarsvæðið.
GENGI
GJALDMIÐLA
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR styrktist
töluvert gagnvart gjaldmiðlum i
Evrópu í gær, vegna ummæla hátt-
setts hagfræðings i fjármálaráðu-
neyti V-Þýskalands, mn að ekki
væri hagstætt að hann félli meira
í verði en hann hefur gert undan-
farna daga. Þá hækkaði gull yfir-
leitt í verði.
Gengi dollarsins var annars á þann
veg að fyrir hann fengust 2,1780
v-þýsk mörk (2,1650), 1,7808 svissn-
eskir frankar (1,7683), 6,9925 fransk-
ir frankar (6,9525), 2,4570 hollensk
gyllini (2,4465), 1.493,50 ítalskar lírur
1,3815 kanadískir dollarar (1,3793)
og 161,93 japönsk yen (161,65).
Verð einnar gullúnsu var 348,00
dollarar (347,00).
Rauða herdeildin er einnig talin
bera ábyrgð á tilræði við Frederik
Kroessen, yfirmann Bandaríkjahers
í Evrópu, árið 1981. Handsprengju
var varpað að bifreið hans en hann
slapp án teljandi áverka.
Rauða herdeildin var uppruna-
lega hluti Baader-Meinhof hryðju-
verkasamtakanna, sem létu mjög
til sín taka á sjöunda og áttunda
áratugnum.
För Sir Georges
Howe tii Afríku:
Kuldalegar
móttökur
í Zambíu
Lusaka, Zambíu, AP.
ÞAÐ þótti kenna kulda í móttök-
unurn, er Kenneth Kaunda,
forseti Zambíu, tók á móti Sir
Geoffrey Howe, utanríkisráð-
herra Bretlands, í gær. Sagði
Kaunda, að afstaða brezku
sljórnarinnar „ylli áhyggjum".
„Látið okkur ekki halda, að þið
grípið þá fyrst til ráðstafana, er
þið sjáið hvita menn þjást, en
hikið, þegar um svarta menn er
að ræða,“ sagði Kaunda.
Howe svaraði með því að segja,
að það væri „blekking“ að halda
því fram, að eftiahagsþvinganir ein-
ar saman gætu orðið til þess að fá
stjómvöld í Suður-Afríku til þess
að afnema aðskilnaðarstefnuna,
eins og sumar Afríkuþjóðir hafa
staðhæft.
Howe er kominn til Afríku í
umboði allra 12 aðildarríkja Evr-
ópubandalagsins. Hann hefur lýst
yfir þeirri von sinni, að P.W. Bot-
ha, forseti Suður-Afríku, muni senn
láta lausan Nelson Mandela, helzta
leiðtoga blökkumanna í landinu.
Eitrað ský stígur hátt til himins eftir að jámbrautarlest fór út af sporinu I grennd við Miamisburg i Ohio
í Bandaríkjunum. Flytja varð 17.000 manns burt frá bænum af ótta við eitrun.
17.000 fluttir á brott
vegna eiturskýs í Ohio
Miamisburg, Ohio, AP.
Jámbrautarvagn sem innihélt
efni sem notað er við framleiðslu
rottueiturs, fór út af sporinu og
steig 300 metra hátt eiturský í
Ioft upp. Rúmlega 140 manns
meiddust lítillega og um 17.000
íbúar í nágrenninu vora fluttir á
brott.
Eldur kom upp í jámbrautar-
vagninum og við það kviknaði í
efninu, sem rejmdist vera hvítur
fosfór. Fjölmargir þurftu á aðhlynn-
ingu lækna að halda sökum sviða
í augum og andþyngsla. íbúar í
nærliggjandi byggðarlögum vom
hvattir til að halda sig innan dyra
og neyðarþjónusta var skipulögð í
skólum
Talsmaður umhverfismálaráðs
Ohio-fylkis segir að til frekari brott-
flutnings íbúa kunni að koma ef
vindátt breytist.
Hvítur fosfór er m.a. notaður við
framleiðslu rottueiturs og flugelda.