Morgunblaðið - 10.07.1986, Side 39

Morgunblaðið - 10.07.1986, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 39 Bara eftir að landa. Frá Langá á Mýrum, en þar hefur verið sannkölluð mokveiði undanfarna daga. Elliðaár: Mikil ganga, sæmileg veiði Mikill lax er genginn í Elliða- ámar og var svo raunar strax er áin var opnuð til veiða, 10. júní síðastliðinn. Síðan hefur geysilegt magn bæst við, en veiðin verið minni en efni hafa staðið til þrátt fyrir að hún hafí verið sæmileg og betri en á sama tíma í fyrra. Komnir munu nærri 300 laxar á land og hefur dagveiðin frá mán- aðamótum verið þetta 10—16 laxar. Frá mánaðamótum hefur verið veitt á 6 stangir, en á 4 fram að því. Þetta er því varla meira en reytingsafli miðað við það mikla laxager sem þama er. Teljarinn hefur skráð um 1.500 laxa og hundmð físka em ekki enn orðnir svo frægir að synda í gegn um mannvirkið mikla. Ein samanburðartala: Um mánaða- mótin vom 188 laxar komnir úr ánni, en á sama tíma í fyrra vom 126 komnir á land, þó vom göng- ur góðar snemma eins og nú. Suma daga að undanfomu hafa 100—150 laxar farið um teljarann á hveijum sólarhring, aðallega í skjóli „myrkurs" sem varla er kallandi því nafni á þessum árs- tíma. Pyrir nokkm hefur það hins vegar gerst, að (axinn hefur tekið að ganga grimmt upp fyrir Ár- bæjarstíflu, en lengi vel var engu líkara en hann ætlaði að una sér í stórgrýtinu þar fyrir neðan í allt sumar. Fyrir vikið er nú farið að veiðast á fallegum fluguveiðistöð- um efra í ánni og em það góð tíðindi fyrir marga sem eiga hálf- daginn sinn enn eftir. Við þetta má bæta, að einhvem veginn hefur tugum laxa tekist að troða sér inn í skurðinn við gamla rafveituhúsið og þar æða þeir um ljónstyggir. Em þetta fískar af öllum stærðum, þar á meðal sá stærsti sem nokkur telur sig hafa séð í ánni í sumar. Ekki veiðist bikarlaxinn inni í skurðin- um, svo mikið er víst og væri ráð að smala út úr skurðinum og reyna að koma í veg fyrir að lax- inn komist aftur inn, en hann virðist einmitt sækjast mikið eftir því að vera í skurðsvatninu. Mishitt á Arnar- vatnsheiði Fyrir nokkm var vegurinn inn á Amarvatnsheiði opnaður og talsverð umferð hefur verið í Fiskivötnin eins og endranær framan af sumri. Sumir hafa veitt vel, en öðmm hefur gengið mið- ur, eins og gengur í veiðiskap. Þeir óheppnustu hafa lent í snjó- komu og mddakulda, þeir heppnu í hita, miklu mýi (!) og góðri veiði. Sagt er að einn hópur hafí tekið 700 físka í Amarvatni Stóra, en hópinn skipuðu líka á þriðja tug manna. Mun minni hópur veiddi 140 físka á tveimur dögum, hér og þar á Heiðinni, þar á meðal í Réttarvatni, sem ku standa fyrir utan veiðifélagið og nýtt af sveita- mönnum einum svo og vinum þeirra sem í fylgd kunna að vera. Þrír úr hópnum sem um ræðir tóku 95 físka á dagstund úr vatn- inu og þótti tíðindum sæta, að þeir lögðu net á meðan þeir dorg- uðu með stöngum, fengu einn smátitt í það, en drógu 94 físka á stöng án þess að hreyfa sig af þægilegum þúfum sínum. Færð telst góð þama fram frá, en mikið vatn hefur verið í Norðl- ingafljóti á stundum og það gruggugt vegna sólbráðar úr jökl-, inum. Hefur það gert hið erfíða Helluvað enn leiðinlegra viðfangs. Mokstur í Langá „Það er ótrúleg ganga, miklu meiri en sú stóra í fyrra og veiðin hefur verið hreint ótrúleg. Síðan á föstudagsmorgun og til hádegis í dag hafa 212 laxar verið dregn- ir á land á fímm stangir. Fyrst veiddust 32 laxar, þá 38 laxar, síðan kvótinn, 40 stykki, þá 38 aftur og kvótinn aftur, 40 fískar á þriðjudaginn. í morgun veiddust 24 laxar, þannig að ekkert lát er á veiðinni. Þó taka veiðimenn lífínu með ró, em varla byijaðir að veiða fyrr en hálfníu á morgn- ana,“ sagði Runólfur Ágústsson, veiðivörður við Langá á Mýmm, í gær. Þetta er smálaxaganga, áttatíu prósent af aflanum er 4—6 punda fískur, svo nokkrir niður í þijú pund og nokkrir 7—8 punda. Mik- ið af laxinum er merktur fískur, allt að 20 prósent aflans, að því er Runólfur taldi. Einn og einn stórlax veiðist enn, í fyrradag var 15 punda hrygnu landað og var það merktur fískur af Þverárkyn- inu. Það em Spánveijar sem sitja að þessari laxaveislu vestur á Mýmm og nota þeir eingöngu f.ugu, mest Hairy Mary, Black Sheep og Rauðu Frances, stærð- imar 8 og 10. Vatnið er mjög gott, áin hætt að minnka fyrir tilstilli vatnsmiðlunarinnar. Runólfur sagði að reitingsveiði hefði verið á miðsvæðunum en hafði engar tölur þar um. Lítil veiði hefur enn sem komið er ver- ið á efstu svæðunum, fyrir löndum Grenja og Litla Fjalls. Ólafsfjörður: Kristinn G. Jóhanns- son með sýningn Akureyri. KRISTINN G. Jóhannsson sýnir nú um helgina á Ólafsfirði. Á sýningunni verða um 50 verk unnin í olíu og vatnsliti, dúkrist- ur og teikningar. Sýningin er haldin í tengslum við norrænt vinabæjarmót sem haldið er á Ólafsfirði um heigina. Þótt Kristinn hafí áður sýnt oft og víða er þetta í fyrsta sinn sem hann efnir til einkasýningar á ÓI- afsfírði þar sem hann var skóiastjóri um árabil. Sýningin verður opnuð á föstu- dagsmorgun og verður síðan opin frá morgni til kvölds fram á sunnu- dag. Stúlkan sem hvarf í Noregi: Leit hefur enn engan árangnr borið LEITIN að stúlkunni sem hvarf frá hóteli í Noregi, þar sem hún starfaði, hefur enn engan árang- ur borið. Stúlkan fór frá hótelinu í Bale- strand í Sognfírði aðfaranótt 17. júní sl. og skildist félögum hennar að hún kæmi fljótt aftur. Síðan hefur ekkert til hennar spurst, en víðtæk leit hefur farið fram. Um næstu helgi ætla kafarar enn á ný að leita í Sognfírði, en erfítt er um vik vegna þess hve djúpur og straumharður fjörðurinn er. Stúlkan heitir Guðný Tulinius og er 19 ára gamall Reykvíkingur. Kristinn G. Jóhannsson „Opið hús“ í Norræna húsinu: Fyrirlestur um Sögu- staðiá Suðurlandi ÁRNI Böðvarsson, cand. mag., heldur fyrirlestur í Norræna húsinu í kvöld klukkan 20:30 í „opnu húsi“, sem er hluti af sumardagskrá Norræna húss- ins fyrir ferðamenn. í fyrirlestri sínum mun Ámi flalla um sögustaði á Suðurlandi. Fyrirlesturinn verður á norsku. Eftir kaffihlé verður sýnd kvik- mynd Osvaldar Knudsen, „Eldur í Heimaey", með dönsku tali. Aðgangur er ókeypis. Metsölublad á hverjum degi! atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Heimilistækja- verslun — afgreiðslustarf Okkur vantar sem fyrst glaðlynda konu sem hefur gaman af að selja heimilistæki. Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir fyrir 14. júlí merkt: „20-40 ára - 5973". Tækjamaðurá steypudælu Tækjamaður með meirapróf óskast á steypu- dælu. Viðkomnadi þarf að vera reglusamur og stundvís. Upplýsingar gefur Magnús Karlsson í síma 33600. Steypirhf. Fiskvinnslustörf Nú er mikið að gera hjá okkur við fiskvinnslu og þess vegna vantar okkur nokkra starfs- menn ekki seinna en strax. Við erum með verbúðir og ágætis mötuneyti. Fiskiðjuver KASK, Höfn, Hornafirði, sími97-8200.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.