Morgunblaðið - 10.07.1986, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
49
kringum sig og strauk toppinn út
á hlið, það þýddi að nú var hann
þægur strákur.
Kaffið var lútsvart. Gústi vildi
ekki vindil, hann sagði mér að það
væru uppþornaðir alkóhólistar sem
ættu þennan stað og að þetta væri
fræg krá í Danmörku. Ég púaði
sterkum reyknum út í loftið. Þetta
var ekkert sérstakt á bragðið, ég
sem hafði hugsað svo mikið um að
fá mér vindil. Oft byggir maður
falskar myndir í huga sér. Sumir
leita að einhvetju sem reynist svo
bragðlaust. Ég drap í vindlinum
áður en hann var hálfur. Hálft í
hvoru kveið ég fyrir að fara að
sofa úti undir berum himni.
Þegar við komum aftur út í kol-
svart kvöldið var enn hitamolla. Við
vorum síðustu gestirnir. Nú fyrst
klæddi ég mig í buxur. Kaffið var
hressandi en mér var hálf flökurt
af helvítis vindlinum. Það brakaði
í möl er bíll tók af stað hlaðinn
upppússuðum bændum. En við hin-
ir hjóluðum út í nóttina.
Nú var Gústi orðinn óþolinmóður
og vildi finna stað til að sofa. Við
komum að tjaldstæði fyrir ferða-
menn. Ljós var í nokkrum hjól-
hýsum og lágar raddir heyrðust.
Keðja var fyrir innkeyrslunni og
allt slökkt í afgreiðslunni. Á verð-
miða sást að það var rándýrt að
tjalda. Þeir hefðu örugglega rukkað
okkur vel fyrir það undarlega uppá-
tæki að sofa undir berum himni.
Þar fyrir utan hefði mér aldrei ver-
ið leyft að kveikja bál, svo við
hjóluðum áfram.
Við brunuðum eftir malarvegi í
gegnum skóg og flugur skullu á
andlitum okkar. Maður hafði á til-
fínningunni að hús væru falin á bak
við hvem runna. Skyndilega sá ég
héra á miðjum veginum. Hann byrj-
aði að hlaupa á undan okkur. Ég
stökk af hjólinu og hljóp á eftir
honum, auðvitað. Hérinn stökk út
af veginum og reyndi að hoppa i
gegnum vírgirðingu en möskvamir
voru of litlir. I fjarska heyrðist
hundsgelt og hérinn þorði ekki
lengra í þá áttina. Ég læddist í
grasinu meðfram girðingunni, fann
að fætur mínir voru fímir og hljóð-
látir. Hjartað í mér sló hratt og
ákaft og ég fann kjötbragð í munn-
inum. Hérinn kúrði sig saman er
ég nálgaðist, brúnleitur og stór;
feitur. Fullt af safaríku kjöti. Ég
var tilbúinn að gripa hann og snúa
úr hálsliðnum, líkt og svartfugl eða
lunda. En þegar ég átti ekki eftir
nema metra að honum, stökk hann
af stað og skaust fram hjá mér.
Ég þeyttist á eftir en hann hvarf á
harðaspretti. Ég þóttist skjóta hann
með rifli.
„Sástu kjötið,“ sagði ég móður.
Andlit Gústa var fölt; hann var
stórhneykslaður. í Danmörku eiga
allir að vera góðir við dýrin.
(Framhald síðar)
Vantar
fyllíngu
í líf þítt?
Sprungur í vcgg lokast ckki af sjálfu sér.
Það veistu.
Lausnarorðið er Thoríte. Efnið sem
fagmennirnir kalla demantssteypu.
Harkan og endingin — þú skilur.
Thoríte viðgerðarefníð hefur góða viðloðun. Þú notar
það jafnt á gamla steypu sem nýja.
Mótauppsláttur er óþarfur: eftír 40—60 mínútur er
veggurinn þurr, sléttur og tilbúinn undir málningu.
Iðnaðarmenn þekkja Thoríte af langri reynslu.
Nú er komíð að þér.
Thoríte fæst í litlum og stórum umbúðum með
íslenskum leíðbeiningum.
Spurðu eftír Thorite í næstu byggingarvöruverslun.
Þeir þekkja nafníð.
IS steinprýði
BHB stórhöfða 16, Reykjavík - S. 83340/84780
Útsölustaðir:
BYKO • B.B. Byggingarvörur • Húsasmiðjan • Skapti,
Akureyri • Málningarþjónustan, Akranesi • G.E.
Sæmundsson, ísafirði • Baldur Haraldsson, Sáuðár-
króki • Dropinn, Keflavík • Kaupfélag Vestmannaeyja
• Kaupfélag A-Skaftfellinga, Hornafirði.
BOMANITE BOMANITE BOMANITE A höfuðborgarsvæðlnu
AKUREYRI HAFNARFIRÐI / GARÐABA KEFLAVÍK / SUÐURNESJUM notum vlð elngöngu steypu
Magnús Glslason Bjöm Ámason Einar Traustason frá ÓS.
Múraramelstari Múrarameistarl Múrarameistari WTÆrm STEYPA SEIVI STEtSJST
Lerkllundi 28 Hjallabraut 13 Hafnargötu 48
S. 96-21726 S. 53468 S. 92-3708
MUNSTUR NO. 1
DCXDC
□□□
DODC
□□□
MUNSTUR NO. 2
MUNSTUR NO. 3
MUNSTUR NO. 4
MUNSTUR NO. S
MUNSTUR NO. 6
MUNSTUR NO. 7
§omfiníle
Á ÍSLANDI
SMIÐJUVEGi lle
S. 641740
mldos auglýslngaÞjónusta, s. 685651
ORD/MYND