Morgunblaðið - 10.07.1986, Page 50
50
Mary Higgins Clark:
The Cradle will fall
IJtg. Fontanabooks
Maiy Higgins Clark er mörgum
lesendum hér kunn og að minnsta
kosti ein bóka hennar hefur verið
þýdd á íslenzku, „Hvar eru börn-
in?“ í þessum dálkum var og fyrir
nokkrum mánuðum fjallað um enn
aðra bók Higgins, „Still Watch",
sem ég held að ég fari rétt með
að sé næstsíðasta bókin hennar.
Katie De Maio, ung og aðlað-
andi kona, lögfræðingur og ekkja
þarf að dvelja nætursakir í sjúkra-
húsi vegna smámeiðsla. Hún verð-
ur vitni að dularfullu atviki, gæti
hafa verið framið morð? Þó áttar
hún sig engan veginn á þessu í
fyrstu, enda er martröðin rétt
hafin. Á þessu merka sjúkrahúsi
er verið að gera einhveijar
skuggalegar tilraunin þegar kona
leitar eftir fóstureyðingu er fóstrið
að vísu numið brott, en því er
komið fyrir í einhverri annarri
konu. Þessu fylgir ýmis áhætta
og það er grunsamlegt hversu
margar konur hafa látizt í sjúkra-
húsinu á tiltölulega skömmum
tíma.
Margt verður til að vekja grun-
semdir Katie de Maio og lögreglu-
foringjans Richards, en það er
engu iíkara en þau reki sig hvar-
vetna á vegg og málinu miðar
hægt og eru þó framin fleiri morð
sem eiginlega er augijóst að tengj-
ast hinu fyrsta. Læknirinn gjörvu-
legi dr. Highly.xSem er elskaður
og dáður af sjúklingúm sínum,
kemur heldur betur við sögu og
það er margt sem bendir til þess
að hann hafi ekki alveg hreint
mjöl í pokahominu.
Mary Higgins Clark er meistari
í því að halda lesendum sínum í
spennugreipum. Þó var mér farið
að blöskra duggulítið undir lokin
hvað seinlega gekk að upplýsa
málið og bjarga Katie frá yfírvof-
andi bráðum bana undir handar-
jaðri hins dáða og virta læknis.
En svo leysist þetta allt að lokum.
Og þá er maður dálítið óhress
yfír því að hafa flýtt sér þessi
ósköp að lesa söguna. Að minnsta
kosti þangað til maður krækir í
aðra eftir Higgins.
Evelyn Anthony:
The Occupying Power
Útg. Arrow Books
Það þykir mér kostur við bækur
Evelyn Anthony, þótt góður af-
þreyingarhöfundur sé, að ég get
lesið bækumar hennar oftar en
einu sinni og orðið jafn undrandi
og spennt í hvert skipti. Ekki
vegna þess að þær séu svona djúp-
ar og bókmenntalegar nema síður
væri. Ég er komin vel á veg með
næsta lestur — nokkrum árum
síðar að vísu — þegar ég uppgötva
að ég hafí líkast til lesið bókina
áður.
Sögusviðið er St. Blaize, frið-
sæll lítill franskur bær á stríðsár-
unum. Greifínn í bænum hefur
valið þann kostinn að sýna nazist-
um samstarfsvilja, að því er hann
segir sjálfur, til að hlífa íbúunum
við ógnum og hefndaraðgerðum.
En þetta kostar greifann ástir
konunnar hans, Louise de Bernard
bandarískrar ættar. Bandamenn
ákveða að senda út af örkinni
mann til að eyðileggja stórkost-
lega hættulegt gas sem er í fram-
leiðslu hjá nazistum í grenndinni
við st. Blaize og meiningin er að
nota til að útiýma bandamönnum
þegar Þjóðveijar hefli innrás í
Frakkland. Louise neyðist til að
grípa til örþrifaráða til að hjálpa
sendimanninum, hún verður sem
sé að eiga næturstund með þýsk-
um herforingja sem hefur verið
búsettur hjá þeim upp á síðkastið.
En-atvikið dregur dilk á eftir sér
og nazistar ákveða að drepa öll
böm í þorpinu í hefndarskyni.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
Hvaða bækur eigum við að lesa
í sumarleyfinu?
JÓHANNA KRISTJÓNSDÓnTR
Síðar vitjar fortíðin Louise de
Bemard á miskunnarlausan hátt
en allt fellur í Ijúfa löð að lokum.
Sheila Ortiz Taylor:
Faultline
Útg. The Women’s Press Fic-
tion
Hvemig stendur á því að ís-
skápurinn er bezti staðurinn til
að geyma handrit í? Og hver er
munurinn á kanínu og kanínum?
Hvemig má það vera að jarð-
skjálfti geti breytt tilfínningalíf-
inu og afstöðunni til lífsins al-
mennt? Og því í ósköpunum yfír-
gefur sex bama móðirin eigin-
mann sinn, sem í þokkabót svipar
til Williams Holden, til þess að
setja saman bú með ástkonu sinni?
Faultline er i sjálfu sér súrreal-
ísk saga og ýmsir eru þar til frá-
sagnar. Þegar maður hefur
komizt að því eftir dijúgan lestur
að höfundur er í raun og veru að
skopast að öllu mögulegu:
kvennabaráttunni, ógnuninni við
gölskyldulífíð, fer að verða bara
gaman áð lesa þessa skrýtnu bók.
Þó stefnir hún öll að sama ósi:
að leiða þær Alice og Arden
saman og réttlæta samband
þeirra án teljandi skýringa.
Sheila Ortiz Taylor fæddist í
I/>s Angeles en býr nú í Flórida,
þar sem hún „kennir grunnskóla-
’Mlalitmare cktravaganza,
grlpslikeforccps’
OnHKVIR
'“Cradle
WillFall
l*t AKYHlGGirSSCLAKfr
nemendum og þeir mér og ég el
upp bömin mín tvö og þau ala
mig upp“. Mér er ekki kunnugt
um hvort hún hefur skrifað fleiri
bækur. Þótt Faultline sé ekki stór
bók og auk þess skiptist hún niður
í stutta kafla er hún ótrúlega
seinlesin. En lesandi fær þegar
fram í sækir töluvert fyrir snúð
sinn.
Richard Bach:
The Bridge Across Forever
Útg. Dellbooks 1984
Richard Bach varð heimsfræg-
ur þegar hann sendi frá sér bókina
um Jónatan Livingstone máv. Sú
bók var gefín út á íslenzku nokkru
síðar og vakti athygli hér sem
annars staðar. Síðan hefur Bach
svo ég viti skrifað þtjár bækur,
þar af hefur einnar verið getið í
þessum dálkum, „There Is No
Such Place as Faraway". Nú
kemur hér ein „flugbókin" enn
og er hún þó ákaflega ólík Jónatan
mávi, því að hér er fjallað um
manneskjur, þau Leslie og rit-
höfundinn Bach, sem hefur
<z>
R0BINC00K
MINDBEND
THt«I MEDiMl THRU.ER 0T THE TEAR.. “GRIPPING,
TfHHirYtwr. «RT.panrn<iiKPPMRrr-wnwYonK iiMrit
skyndilega orðið frægur og ríkur
fyrir síðustu bók sína.
Hugsanir og hugmyndir Ric-
hards Bach um samskipti manna
í milli komast vel til skila í þessari
bók. Hann skrifar með ákveðna
dul á bak við orðin, næmi hans
er skarpt og hann hikar ekki við
að lýsa óttanum. Og gerir það á
óvenjulega listrænan hátt. Og
kímnigáfa höfundar og ritleikni
er óviðjafnanleg. Það varð mér
eiginlega eftirminnilegra úr bók-
inni en söguþráðurinn sjálfur. Það
er fágæt og óvenjuleg upplifun
að lesa þessa bók, hvort sem
menn vilja nú túlka hana sem
ástarsögu eins og hún er kynnt
eða bara fallegan lestur.
Robin Cook:
Coma
Útg. NAL — Signet Book
Sagan gerist í Memorial sjúkra-
húsinu í Boston. Þetta hefur verið
virtur spítali, en nú taka að gerast
einkennilegir atburðir. Sjúklingar
sem þurfa að gangast undir minni
háttar skurðaðgerðir með svæf-
ingu — vakna ekki aftur. Þeir
falla í dásvefn og eftir öllum sólar-
merkjum að dæma dánir heila-
dauða þótt hjartað slái enn um
hríð. Þessir sjúkiingar eiga það
sameiginlegt að vera ungir og vel
á sig komnir líkamlega. Svo að
þetta er í meira lagi dularfullt.
Hefur eitthvað farið úrskeiðis í
svæfingunni og þá hvað? Menn
hafa af þessu þungar áhyggjur
Ljós aríanna
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Ryszard Kapuschinski:
Shah of the Shahs.
Útg. Picador 1985.
Ótal bækur hafa verið skrifaðar
um valdatíma Reza Pahlavi írans-
keisara. Nokkrar honum til dýrðar
meðan hann sat að völdum, en flest-
ar eftir að hann var hrakinn úr
valdasessi. Höfundum er það sam-
merkt að reyna að skilgreina á djúp-
hyglislegan hátt orsakir og afleið-
ingar og hafa leitað ótæpilega á
vit sögunnar. Þetta hafa verið stór-
ar og þykkar bækur og sumar hafa
borið með sér að þær hafí verið
unnar af mikilli vandvirkni að
undangenginni gagnasöfnun. Samt
hef ég ekkert lesið um keisaratíma-
bilið í íran, sem kemst í hálfkvisti
við þessa litlu bók - 152 blaðsíður
í fremur litlu broti - eftir pólska
blaðamanninn Kapuschinski. Það
skal tekið fram, að hún er ekki alveg
ný af nálinni, mun hafa verið gefín
út 1982 en ekki þýdd á ensku fyrr
en á sl. ári.
Höfundúr setur bókina á svið,
ef svo má að orði komast af miklum
einfaldleika en fími. Sú aðferð
höfundar er áhrifarík, að síðan still-
ir hann upp á sviðið einni einstakri
mynd í einu og við skoðum hana
undir leiðsögn hans. Og smáma
saman hefur lesandi fengið tilfínn-
ingu fyrir því að keisaraliðið hafí
verið að leika það sem því fannst
meistaraverk í viðurvist áhorfenda,
sem sátu þögulir undir sviðssetn-
ingunni. Keisaraflölskyldan og þeir
sem næstir henni stóðu gerðu sér
ekki grein fyrir að það sem fólst í
þögninni var ekki andagtug hrifn-
ing, heldur vanmáttug reiði sem
og málið er rannsakað — Eið því
er virðist — og það liggur engin
skýring á lausu. En það er eitt-
hvað mikið bogið við þetta. Ungur
læknanemi, Susan Wheeler, sem
er að koma til þjálfunar í Memor-
ial-sjúkrahúsinu, hættir lífí sínu
til að reyna að fínna skýringuna.
Og hún fínnst og er þá býsna
hryllileg en í sjálfu sér rökrétt sem
slík. Það er út af fyrir sig ekki
ástæða til að rekja sögulokin en
þetta er óumdeilanlega spennandi
bók og heldur athygli lesanda frá
því fyrsta en fullmikið „lækna-
mál“ er á köflum á bókinni og ég
ber ekki nægilegt skyn á þau mál
til að vita hvort sá þáttur er vel
úr garði gerður.
Danielle Steel:
Secrets
Útg. Dell 1985
Það er ekki lengur fréttnæmt
þótt bækur Danielle Steel ijúki
upp í fyrsta sæti metsölulistanna
jaftiskjótt og þær koma út. Næst-
síðasta bók hennar, Family Al-
bum, var nýdottin út þegar hún
sendi frá sér Leyndarmálin.
Bókin segir frá því að það á
að fara að taka upp nýjan banda-
rískan sjónvEirpsmyndaflokk og
leikstjórinn Melvin Wechsler er
að velja í hlutverkin. Þessi fram-
haldsmyndaftokkur á að slá við
öllum fýrri slíkum, hvort sem þsið
er Dallsis eða Dynasty. Og því er
um að gera að vanda valið á leik-
urunum. Danielle leiðir persón-
umar fram eina af annarri og
segir á þeim nokkur deili — ekki
öll, því að allar eiga þær sín leynd-
armál, misjafnlega þungbær og
misjafnlega afdrifarík verða þessi
leyndarmál þegar ffEim í sækir.
Ég man þegar ég las fyrst bók
eftir Danielle Steel fyrir allmörg-
um árum að mér fannst hún
afþreyingarhöfundur á heldur
lágu plani. En hún hefur færzt í
aukana síðan, tilfínningEiseminni
er stillt í hóf og meira raunsæis
gætir í seinni bókum hennar.
Meira að segja gerð virðingarverð
tilraun til persónusköpunar. Fyrir
utan það sem auðvitað ræður
mestu um vinsældir bóka hennar:
hún hefur alveg pottþétta upp-
skrift hvemig metsölubók á að
vera. Og nær að fylgja uppskrift-
inni, svo að það er út af fyrir sig
til sóma.
smám saman fékk útrás svo að einn
af öðmm tíndust áhorfendur upp á
sviðið og náðu að lokum athygli
áhorfenda - nánast án þess að
keisarastofnunin vissi hvað var að
gerast.
Kapuschinski hefur komist að
kjamanum í orðsins fyllstu merk-
ingu, ekki með vandlætingu eða
predikunum heldur með því að leiða
fram staðreyndir á undra hófsaman
hátt og vinna úr þeim.
Höfundur er búsettur í Póllandi,
en hefur ferðast mikið í Þriðja
heiminum og segist hafa á einn eða
annan hátt fylgst með á fjórða tug
byltinga og umbrota. Hann hefur
skrifað a.m.k. eina aðra bók, um
Haile Selassie Eþíópíukeisara og
valdaferil hans.