Morgunblaðið - 10.07.1986, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
AP/Stmamynd
Maradona heiðursborgari
9 Argentínski knattspyrnusnillingurinn, Diego Armando Mara-
dona, var á þriðjudaginn útnefndur sem heiðursborgari Buenos
Aires. Maradona tekur hór við viðurkenningunni úr hendi Julio
Saguier, borgarstjóra.
Mjólkurbikarinn:
Sigurmark á
elleftu stundu
— Keflvíkingar skoruðu á
síðustu mínútunni í Garðinum
ALLT ÚTLIT var fyrir að framlengja þyrfti leik Víðis, Garði og Keflvík-
inga í mjólkurbikarnum sem fram fór í Garðinum í gærkvöldi. A sfðustu
mínútu íeiksins náðu Keflvíkingar hins vegar að skora eina mark leiks-
ins og tryggja sér sæti í 8 liða úrslitum og var þar að verki Valþór
Sigurðsson.
Keflvíkingar léku undan vindi og
sól í fyrri hálfleik og sóttu meira
til að byrja með en fljótlega jafnað-
ist leikurinn. Strax á 3. mín. komst
Ingvar Guðmundsson einn inn fyr-
ir vörn Víðis, skaut föstu skoti rétt
innan vítateigs sem Gísli mark-
vörður Víðis náði að verja. Hann
hélt ekki boltanum sem hrökk aftur
til Ingvars. Ingvar hafði nægan
tíma til að leggja knöttinn fyrir sig
en í stað þess skaut hann strax
og boltinn fór yfir markið. Tíu
mínútum síðar komst Grétar Ein-
arsson einn inn fyrir vörn Keflvík-
inganna eftir góðan samleik
Víðismanna en Þorsteinn Bjarna-
son kom vel út á móti honum og
varði glæsilega.
Er líða tók á fyrri hálfleikinn
sóttu Víðismenn öllu meira ef frá
eru skildar síðustu 5 mínútur hálf-
leiksins en þá pressuðu Keflvíking-
ar mjög stíft. Hvorugu liðinu tókst
þó að nýta sóknarlotur sínar í
þessum hálfleik.
Víðismenn sóttu síðan mun
meira allan síðari hálfleikinn en
Keflvíkingar áttu hættulegar
skyndisóknir öðru hvoru. Á 63.
mín. fékk Ingvar Guðmundsson
knöttinn frír á markteig Vfðis-
manna eftir góðan samleik Keflvík-
inga en skot hans sleikti stöngina
utanverða. Tíu mínútum síðar átti
Grétar Einarsson hörkuskalla frá
markteig að marki Keflvíkinga en
Þorsteinn varði glæsilega. Hann
hélt þó ekki knettinum sem hrökk
til Helga Bentssonar sem skaut
hörkuskoti að marki Víðis en Þor-
steinn gerði sér lítið fyrir og varði
aftur og í þetta skiptið hrökk knött-
urinn frá honum til Guðjóns
Guðmundssonar sem skaut rétt
framhjá. Víðismenn geta nagað sig
í handarbökin fyrir að hafa ekki
skorað úr þessari orrahríð. Á
síðustu mínútu leiksins skorar Val-
þór Sigurðsson fyrir Keflvíkinga
eins og áöur sagði. Eftir mikla
• Valþór Sigurðsson skoraði
sigurmark ÍBK gegn Víði í gær-
kvöldi.
pressu að marki Víðis barst knött-
urinn til Valþórs sem átti ekki i
erfiöleikum með að renna honum
í markið því Gísli markvörður var
kominn út í miðjan teig í öllum lát-
unum og markið því autt.
Dómari í þessum leik var Eyjólf-
ur Ólafsson og komst hann vel frá
erfiðum leik. Hann sýndi fjórum
mönnum gula spjaldið, þeim Helga
Bentssyni Víði, Sigurjóni Sveins-
syni ÍBK, Gunnari Oddssyni ÍBK
og Skúla Rósantssyni ÍBK.
Þorsteinn Bjarnason var lang-
bestur í liði ÍBK en þeir Valþór og
Einar voru traustir í vörninni fyrir
framan hann. Að öðru leyti var lið-
ið nokkuð jafnt.
Hjá Víði átti Daníel Einarsson
langbestan leik en einnig áttu þeir
Mark Duffield og Grétgar Einars-
son ágætan leik.
Morgunblaðið/Júlíus
• Atvik sem þetta einkenndi leik KR gegn Þór í gærkvöldi. Á myndinni er Gunnar Gíslason í dauðafæri
en honum tókst ekki að skora.
Mjólkurbikarinn:
Sigur KR síst of stór
Fjölmörg góð marktækifæri fóru forgörðum
KR VANN Þór örugglega 3:0 á
aðalleikvanginum í Laugardal í
gærkvöldi í 16 liða úrslitum mjólk-
urbikarkeppninnar. Yfirburðir
KR-inga voru miklir í leiknum.
Samt sýndu þeir engan stórleik,
þrátt fyrir að mörkin hefðu getað
orðið mörgum sinnum fleiri, en
þetta var sannkallaður leikur
hinna glötuðu tækífæra að þeirra
hálfu. Þórsarar áttu tvö skot að
KR-markinu, spiluðu lítið sem
ekkert og spyrntu knettinum
mest út í loftið.
KR-ingar tóku leikinn strax í
sínar hendur og fengu nokkur
sæmileg marktækifæri, en ekkert
varð úr neinu fyrr en á 25. mínútu.
Gunnar Gíslason tók þá langt inn-
kast frá hægri, Loftur Ólafsson
náði að skalla að markinu og knött-
urinn skoppaði fram hjá varnar-
mönnum Þórs í stöngina og inn.
Annars var fyrri hálfleikur
tíðindalítill, nema hvað á 44.
mínútu að félagarnir frá gamalli
tíð, Gunnar Gíslason og Nói
Björnsson, voru ekki sáttir hvor við
annan, Nói sló Gunnar niður og
var vísað af leikvelli.
KR byrjaði með knöttinn í síðari
hálfleik og eftir 30 sekúndur lá
hann í marki Þórs. Hálfdán Örlygs-
son fékk knöttinn út á vinstri kanti,
lék nær endamörkum og gaf síðan
Mjólkurbikarinn:
Sanngjarn
sigur UBK
BREIÐABLIK komst í gærkvöldi í
8 liða úrslit bikarsins með því að
sigra ÍBV 2:0 í Eyjum.
Eyjamenn voru mun atkvæða-
meiri í fyrri hálfleik, sóttu mjög
stíft, en gekk illa að skapa sér
marktækifæri. Blikarnir áttu í erfið-
leikum með að komast inn í leikinn.
Á 29. mínútu varði Þorsteinn
Gunnarsson í marki ÍBV glæsilega
gott skot frá Gunnari Gylfasyni.
Besta færi ÍBVfékk ÓmarJóhanns-
son á 35. mínútu. Var þá einn með
knöttinn á markteig, en steig á
knöttinn og þar með fór það færi
forgörðum. Staðan því 0:0 í hálf-
leik.
I síðari hálfleik voru þeir Breiða-
bliksmenn sem komu mun ákveðn-
ari til leiks og náðu þeir oft að
byggja upp hættulegar sóknir.
Eyjamenn misstu niður allan takt
og var sóknarleikur þeirra ákaflega
tilviljunarkenndur og ómarkviss.
ÍBV átti þó fyrsta marktækifærið á
49. mínútu, en Sveinn Skúlason
varði þrumuskot frá Jóhanni Ge-
orgssyni.
Á 57. mínútu kom svo fyrra
mark UBK. Gunnar Gylfason fékk
þá góða sendingu frá Jóhanni Grét-
arssyni óvaldaður í vítateignum
fyrir miðju marki og hann renndi
knettinum stystu leið í netið.
Síðara mark UBK kom síðan á
75. mínútu. Þá komst markakóng-
ur UBK, Jón Þórir Jónsson, einn
upp gegn Elíasi Friðrikssyni og Jón
Þórir kom knettinum fram hjá hon-
um og Þorsteini markverði í netið.
Vel að verki staðið.
Fátt markvert gerðist eftir þetta
og leikurinn fjaraði rólega út.
Sveinn Skúlason varð þó að taka
á honum stóra sínum á 81. mínútu.
Varði þá hörkufast skot Sighvats
Bjarnasonar.
Sigur Breiðabliks var sanngjarn,
leikmenn liðsins höfðu mun meiri
sigurvilja. Sveinn Skúlason mark-
vörður og Jón Þórir Jónsson voru
bestu menn liðsins.
ÍBV byrjaði leikinn ágætlega en
virkaði áhugalítið og baráttulaust
í síðari hálfleik. Elías Friðriksson
var langbesti maður ÍBV, barðist
vel allan tímann. Sighvatur Bjarna-
son lék sinn fyrsta leik fyrir ÍBV
og styrkir hann liðið.
hkj
góða sendingu fyrir markið þar
sem Willum Þór Þórsson var óvald-
aður fyrir opnu marki og skoraði
örugglega 2:0.
■ Nú hófst skotæfing Vestur-
bæinganna fyrir alvöru og hver á
eftir öðrum reyndi að skora í upp-
lögðum færum, en enginn hitti
markið, þó það virtist mun auð-
veldara á stundum.
Björn Rafnsson skoraði þriðja
og síðasta mark leiksins á 83.
mínútu eftir sendingu frá Ásbirni
Björnssyni. Björn var á auðum sjó
og skoraði örugglega framhjá
Baldvini Guðmundssyni, mark-
verði.
KR-ingar sköpuðu sér mörg
marktækifæri í leiknum, en voru
hinir mestu klaufar þegar mest á
reyndi. Bestir voru Hálfdán Örlygs-
son og Ágúst Már Jónsson, en
þeir voru einu útileikmennirnir í lið-
inu sem ekki skutu á Þórsmarkið.
Þórsliðið olli vonbrigðum. ( liðinu
eru margir léttleikandi menn, en
þeir sýndu ekki sínar bestu hliðar
og leikur þeirra einkenndist af kýl-
ingum út og suður. Hlynur Birgis-
son var þeirra bestur, en heildin
var slöpp.
S.G.
Mjólkurbikarinn:
Einn leikur
í kvöld
í KVÖLD verður siðasti ieikurinn
í 16 liða úrslitum mjólkurbikar-
keppninnar. Grindavík og Valur,
Reykjavík, leika í Grindavík.
Grindavík er í næst neðsta sæti
í A-riðli 3. deildar, en Valur í 2.
sæti í 1. deild. Leikurinn hefst
klukkan 20.