Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
67
MorgunblaÖiÖ/Bjarni
• Sveinbjörn Hákonarson skoraði þrennu fyrir Skagamenn gegn Hvergerðingum f gœrkvöldi. Hér er
eitt þeirra í uppsiglingu. Hveragerði, sem leikur f 4. deild, kom á óvart með baráttu sinni og héldu hreinu
í fyrri hálfleik.
Hvergerðingar héldu
fvið Skagamenn
í fyrri hálfleik
Sanngjarnt
á Eskifirði
— FH-ingar komust í 2:0
f fyrri hálfleik
LEIKUR Austra og FH á Eskifirði
í gærkvöldi í mjólkurbikarkeppn-
inni var jafn og spennandi og var
þó nokkuð um marktækifæri, en
svo fór að lokum að FH-ingar
unnu 2:1 og komust þar með
áfram f 8 liða úrslit.
FH-ingar léku undan vindi í fyrri
hálfleik, höfðu sólina í bakið og
léku mun betur.
Fyrra mark FH kom á 5. mínútu
eftir þóf inni í vítateig Austra.
Kristján Gíslason skoraði af stuttu
færi og virtist markvörður Austra
hafa blindast af sólinni.
Stundarfjórðungi síðar skoraði
Ingi Björn Albertsson seinna mark
FH með bananaskoti af 35 metra
færi og í þetta skiptið var mark-
vörður Austra illa staðsettur og
verður að skrifa markið á hans
reikning.
Austri sótti mun meira í byrjun
síðari hálfleiks og á 50. mínútu
skoraði Sigurjón Kristjánsson eina
mark þeirra í leiknum. Hann lék
þá á tvo varnarmenn og markvörð
FH og skoraði síðan auðveldlega.
Austri fékk nokkur marktæki-
færi á næstu mínútum, en síðan
náðu FH-ingar yfirhöndinni aftur
og fengu m.a. tvö mjög góð mark-
tækifæri undir lok leiksins. En
• Ingi Bjöm Albertsson er helsti
markaskorari FH og skoraði eitt
mark í gærkvöldi gegn Austra.
mörkin urðu ekki fleiri og FH vann
sanngjarnan sigur.
Ingi Björn Albertsson var bestur
í liði gestanna, en Sigurjón Krist-
jánsson hjá heimamönnum.
Enn sigrar
Edwin Moses
— Sveinbjörn
SKAGAMENN sem leika í 1. deild
þurftu heilan hálfleik til að ná
tökum á Hvergerðingum sem
leika í 4. deild, f 16-liða úrslitum
Mjólkurbikarsins í Hveragerði f
gærkvöldi. Staðan í leikhléi var
0:0. í seinni hálfleik yfirspiluðu
Skagamenn heimamenn og skor-
uðu fimm mörk og réðu lögum
og lofum á vellinum.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn og
sóttu liðin á víxl. Hvergerðingar
áttu þó hættulegri marktækifæri
er þeir komust tvívegis í dauða-
færi, sem ekki nýttust. Skagamenn
áttu aðeins eitt marktækifæri í
hálfleiknum.
Skagamenn tóku svo leikinn í
sínar hendur í seinni hálfleik og
skoraði Júlíus Ingólfsson fyrsta
markið eftir aðeins tvær mínútur.
Hann fékk sendingu innfyrir vörn
Hveragerðis frá Sveinbirni Hákon-
arsyni, en vargreinilega rangstæð-
ur en dómarinn lét leikinn halda
áfram og skoraði hann með því
að leika á markvörðinn. Annað
markið kom á 57. mínútu. Árni
Sveinsson tók þá aukaspyrnu rett
utan vítateigs, renndi út á Svein-
björn sem skoraði með þrumuskoti
í bláhornið. Fallegt mark.
Guðbjörn Tryggvason skoraði
þriðja markið á 60. mínútu. Hann
fékk þá laglega sendingu inn í víta-
teiginn frá Heimi Guðmundssyni,
tók knöttinn niður og skoraði með
þrumuskoti upp við slá. Átta
mínútum síðar bætti Sveinbjörn
við sínu öðru marki. Guðbjörn óð
þá upp að endamörkum og gaf vel
fyrir og skoraði Sveinbjörn frá víta-
punkti.
Sveinbjörn innsiglaði síðan stór-
sigur Skagamanna er hann skoraði
sitt þriðja mark tveimur mínútum
fyrir leikslok. Alexander Högna-
son, sem lék nú sinn fyrsta leik
með meistaraflokki lA, gaf góða
Hákonarson skoraði þrennu
sendingu upp í hornið á Guðbjörn
sem gaf síðan fyrir og þar kom
Sveinbjörn og skoraði af stuttu
færi.
Hveragerði fékk tvö marktæki-
færi í seinni hálfleik, sem Birkir
varði vel. Hvergerðingar komu
mjög á óvart í fyrri hálfleik og börð-
ust vel en í seinni hálfleik áttu
þeir við ofurefli að etja, enda þrjár
deildir á milli liðanna.
Mikil stemmning var á vellinum
í Hveragerði og var slegið nýtt
aðsóknarmet, 450 áhorfendur sáu
leikinn. Lúðrasveit lék og var hálf-
gerð hátíðarstemmning í bænum.
Mörg þekkt andlit voru á meðal
áhorfenda og mátti meðal annars
sjá Graham Turner, framkvæmda-
stjóra Aston Villa, en hann er
góðkunningi Jim Barron, þjálfara
IA og voru fagnaðarfundir er þeir
hittust.
Bestir í liði ÍA voru Birkir, mark-
vörður, Sigurður Lárusson, Svein-
björn Hákonarson og Guðbjörn
Tryggvason. Hjá Hveragerði báru
þeir, Stefán Halldórsson, þjálfari,
Ólafur Jósepsson og Páll Leo Jóns-
son, nokkuð af.
S.S./Val.
— Ben Johnson sigraði Carl Lewis
EDWIN Moses frá Bandaríkjun-
um sigraði í 400 metra grinda-
hlaupi á Friðarleikunum f Moskvu
í gærkvöldi, á 47,84 sekúndum.
Sigur Moses var 111. sigur hans
á ferlinum. Ben Johnson frá Kan-
ada sigraði f 100 metra hlaupi á
9,95 sekúndum. Carl Lewis varð
þriðji á 10,06 sek.
Edwin Moses hefur einokað 400
metra grindahlaupið í nokkur ár.
Hann varð Olympíumeistari í þess-
ari grein 1976 og 1984 og á
heimsmetið, sem er 47,02 sekúnd-
ur. Alexander Vasiliev frá Sov-
étríkjunum varð annar í hlaupinu í
gær tæpum metra á eftir Moses.
Þriðji varð svo Bandaríkjamaður-
inn, Dave Patrick.
Tími Ben Johnson í 100 metrun-
um er sá besti sem náðst hefur í
loftslagi niður við sjávarmál.
Johnson, sem varð þriðji á síðustu
Olympíuleikum, hefur sannað að
hann er sá sprettharðasti um
þessar mundir. Jimmy Hines frá
Nígeríu var annar í gærkvöldi eftir
að hafa leitt hlaupið í byrjun á
10,04 sek. og Carl Lewis í þriðja
eins og áður segir.
Morgunblaðið/Bjaml
• Mikil stemmning var meðal áhorfenda á leiknum í Hveragerði og var slegið nýtt aðsóknarmet á vellin-
um. Alls komu um 450 manns til að sjá leikinn f frábæru veðri.
Blak:
Kínverskir
þjálfarar
tilHKog
Víkings
TVEIR kfnverskir þjálfarar í blaki
munu starfa hér á landi næsta
vetur. HK og Víkingur hafa ráðið
til sín þjálfara f gegnum kínverska
sendiráðið og munu þeir væntan-
legir til landsins á næstunni.
Kínverjinn sem kemur til HK
mun þjálfa þar meistaraflokk karla
og kvenna og aðstoða við þjálfun
yngri flokkanna.
Með komu þessara tveggja
þjálfara munu fjórir kínverskir þjálf-
arar starfa hér á landi í vetur.
Áður hafa verið tveir Kínverjar
starfandi, hjá fimleikafélaginu
Björk í Hafnarfirði og hjá Bad-
mintonfélagi Reykjavíkur.