Morgunblaðið - 27.07.1986, Síða 9

Morgunblaðið - 27.07.1986, Síða 9
08ei LIUl .TS JTJOACTUiíJÍUa ,GiaA.iaHTjaíK>M- _ f MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1986 9 HUGVEKJA I „Svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum“ eftir EINAR J. GÍSLASON I„Enginn var sterkari en Jesús. Hvernig hann gat fyrirgefiÖ og beÖ- iÖ fyrir þeim, er sýndu honum hiö illa“. „Svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum." Hér vandast málið. Jesús talar um tvo menn í Matt. 18., versin 21-35. Símon Pétur spyr hversu oft hann eigi að fyrir- gefa bróður sínum. Allt að sjö sinnum? Svarið var ekki sjö sinnum heldur „allt að sjötíu sinnum sjö“. Þá kemur frá- sögn um mann er var svo skuldum vafinn og hafði ekk- ert að borga með. Bað hann um biðlund. Þá mundi hann borga allt. Það er ávallt mjög mikilvægt fyrir skuldara að tjá sig og greina frá aðstæðum sínum, en fara hvorki í flótta eða í felur. Þessi skuldari fékk uppgjöf og útstrikun á öllum sínum skuldum. Enda konung- ur í himnaríki, sem var annar aðilinn. Nú hittir þessi starfs- maður einn af vinnufélögum sínum. Sá skuldaði honum lítil- ræði. Rukkar hann nú með harðri hendi og krefst greiðslu þegar í stað. Hvorki miskunn eða biðlund var nú til staðar. Konungur himnaríkis fréttir um þessar aðfarir og kveður hinn miskunnarlausa fyrir sig: „Bar þér ekki vera miskunn- samur við sámþjón þinn, eins og ég var miskunnsamur við þig?“ Þunnt var um svör. Hvað gerði konungur himnaríkis? Fyrirgefningin var tekin til baka og öll skuldasúpan var lögð á herðar hans að nýju. „Þannig mun einnig minn him- neski faðir breyta við yður, ef þér fyrirgefið ekki hver og einn af hjarta bróður yðar.“ Missætti og harður hugur og hatur er hið mesta mein, sem hrjáir mannlíf. Djúpvitur maður hér sunn- anlands fann að endadægur hans nálgaðist. Fékk hann skiptaráðanda til að deila eig- um sínum jafnt milli barna hans. Þetta var allt stórlynt fólk. Sín á milli töluðu systkin- in um að þau vildu fá þetta og hitt. Voru þau mjög ósam- mála og stefndi til sundrungar þeirra á milli. Eftir andlát húsföðurins, sem sat í óskiptu búi eftir eig- inkonu sína, þá kallaði skipta- ráðandi erfíngjana alla saman. Dyrum var lokað. Innsigluð erfðaskrá var opnuð. Þar stóð svart á hvítu eigin vilji og ákvörðun húsföður til barn- anna. Andrúmslofið var lævi blandað. Búast mátti við sundrungu og ósætti milli systkinanna. Svo var síðasta málsgrein erfðaskýrslunnar lesin upp. Hún hljóðaði svo: „Hafi nokkurt bama minna, við þessa arfleiðsluskrá að at- huga, þá fellur niður algjör- lega erfðaréttur viðkomandi og skal skiptast milli hinna, er samþykkja ákvörðun mína.“ Allar væringar féllu niður, sátt og samlyndi og samhugur ríkti meðal systkinanna. í stað óefni og sundrungar, sem virt- ist blasa við. Enginn var sterkari hér en Jesús. Hvemig hann gat fyrir- gefíð og beðið fyrir þeim er sýndu honum hið illa. Þegar hann var kysstur af Júdasi, með svikakossi, þá var ávarp- ið: „Vinur, hví svíkur þú mannssoninn með kossi?" Þegar þrælaliðið lagði Jesúm flatan niður á harðan krossinn og teygði út hendur hans og fætur og negldi hann fastan á höndum og fótum. Ekki var miskuninni fyrir að fara, því höfuð hans var þymum krýnt og gaddamir gengu inn í höf- uð hans. Þá bað hann þeim fyrirgefningar fyrir misgjörð þeirra og illræðisverk. „Þeir vita ekki hvað þeir gjöra." Öll píslarganga Jesú Krists er samfelld fyrirbæn fyrir þeim er hrjáðu hann og kvöldu. „Lausnara þínum lærðu af, lundemið þitt að stilla. Hóg- værðardæmið gott hann gaf, nær gjöra menn þér til illa.“ (H.P.) Dæmin em mýmörg í Biblí- unni um fyrirgefningu, sem svar við misgjörð. Davíð Ísaí- son bað fyrir Sál og hvernig var það með son hans Ab- salom. Hvílíkur kærleikur, sátt og fyrirgefning. Slíkt bræðir mann algjörlega, þegar lesið er um þvílíkt manngildi og þroska. „Fyrirgefum vomm skuldunautum." Akranes — Akranes Til sölu er húseignin nr. 22 við Skólabraut á Akra- nesi. Húsið er tvær haeðir ásamt bifreiðargeymslu. Á efri bæð er ibúð en verslunarhúsn. á neðri Hæð. Húsið er vel staðsett í miðbæ Akraness og stendur á eignarlóð. Allar uppl. gefa undirritaðir: Gísli Kjartansson hdl. sími 93-7700. Birgir Þórðarson sími 93-2661. V^terkurog ^3 hagkvæmur auglýsingamiðill! Jföetgaistííla&ifc Jörð til sölu í Skagafirði Á jörðinni er gott íbhús, góð útihús, 35 ha tún. Skipti á fasteign í Reykjavík eða á Akureyri koma til greina. Bústofn og vélar geta fylgt. Laus eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 95-6067. FJARFESTINGARFEIAGIÐ VI :RC IB •R :e F Al M IAI Rl KA Ðl Jl Rl IR IN Genaiðídaa 27. JÚLÍ 1986 Markaðsfréttir Veðskuldabréf - ver&trygg& Veðskuldabréf - óverðtr. Lánst. 2afb. ááii Nafn- vextir HLV Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- Lánst. 1 afb. áári Sölugengi m/v. mism. nafnvexti kröfu 20% HLV 15% 12% 14% 16% 89 84 85 1 ár 4% 95 93 92 2ár 81 72 76 2 ár 4% 91 90 88 3 ár 74 63 68 3ár 5% 90 87 85 4ár 67 56 61 4ár 5% 88 84 82 5ár 62 50 56 5ár 5% 85 82 78 KJARABRÉF 6 ór 7ár 5% 5% 83 81 79 77 76 73 Gengi pr. 25/7 1986 = 1,637 Bár 5% 79 75 71 Nafnverð Söluverð 9ár 5% 78 73 68 10 ár 5% 76 71 66 5.000 8.185 50.000 81.850 Avðxtun íslenskur fjármagnsmarkaður Óskum eftir öllum tegundum verðbréfa í umboðssölu. < fjármál þín - sérgrein okkar Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Revkjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.