Morgunblaðið - 27.07.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1986
IÞROTTIR UNGLINGA
Vorum ákveðnir
í að vinna mótið
um að kannski œtti ég mögu-
leika,u sagði Georg sjálfur um
þessa nafnbót.
Georg hefur æft fótbolta frá
því hann var 5 ára en þá var
hann í knattspyrnuskóla. Árið
eftir fór hann síðan að æfa með
6. flokki Víkings og hefur gert
þaö síðan en hann er nú 10 ára.
Um árangurinn á Pollamótinu
sagði Georg: „Sigurinn í Polla-
mótinu er besti árangurinn sem
við höfum náð en í fyrra unnum
viö haustmótið. Við vorum
ákveðnir í að vinna Pollamótið,
þjálfararnir voru búnir að segja
við okkur að við gætum það al-
veg. Erfiðasti leíkurinn var við
KR. Fyrir leikinn bjóst ég við að
hann yrði jafntefli en svo unnum
við 2:1. Við æfðum vel fyrir mót-
ið og það bar árangur."
Næsta sumar mun Georg
keppa í 5. flokki og sagði hann
að það gæti orðið erfitt að fara
að keppa á stórum velli en var
þó ákveðinn í að láta slíka smá-
muni ekki á sig fá og halda
ótrauður áfram aö æfa og keppa
í fótbolta.
og Bjössi
„Ég bjóst als ekki við þessu
og varð ofboðslega hissa þegar
þetta var tilkynnt," sagði Sig-
urður Elvar Sigurðsson Víkingi
um viðurkenningunna besti
sóknarmaður A-liða á Pollamót-
inu sem fóll honum f skaut.
Sigurður sýndi mjög góða leiki
á mótinu og skoraði mörg glæsi-
leg mörk og í sjálfum úrslitaleikn-
um skoraði hann „hat trick" sem
er jú draumur allra sóknarmanna.
Þrátt fyrir þetta vildi Sigurður
ekki gera of mikið úr eigin ágæti
en taldi að sigur Víkinga væri
fyrst og fremst sigur liösheildar-
Það kom fáum á óvart að I er mjög sterkur leikmaður sem
Georg Ómarsson, Vfkingi skyldi er sívinnandi og ósérhlrfinn. „Ég
verða valinn besti varnarmaður bjóst nú ekki við þessu en þeg-
í A-flokki á Pollamótinu. Hann I ar við unnum KR fór ég að hugsa
• Sigurður Elvar Sigurðsson
Gaggi góður
í vörninni
frammi
innar. „Viö spiluðum vel, mórall-
inn er góður, svo höfum við æft
vel og höfum frábæran þjálfara.
I liðinu eru líka margir mjög góð-
ir strákar, Goggi er mjög góður
í vörninni og Bjössi frammi,"
sagöi hann til að undirstrika það.
Sigurður var ánægður með
mótiö og sagði að lið sitt hefði
ekki tapað leik en KR-ingarnir
hefðu veríð erfiðastir. Auk leikj-
anna var strákunum boðið upp á
ýmsar veitingar og ekki spiilti það
gleði Sigurðar meö mótið sem
hann á örugglega ekki eftir aö
gleyma í bráö.
Sverrir Þ. Viöarsson
Morgunblaðlð/Börkur
• „Kysstu hann Goggil" hrópuðu félagar Georgs þegar þeim þótti
hann ekki sýna bikarnum nægilega virðingu þegar hann tók viö
honum úr hendi skipherrans, Ágústs Jónssonar. Goggi lét ekki segja
sér þetta tvisvar og líkt og Maradona rak hann blkamum rembings-
koss.
Reyndum alltaf
að spila boltanum
KR-ingurinn Sverrir Þ. Viðars-
son var kosinn besti sóknar-
maöur B-liða á Pollamótinu og
getur hann verið ánægður með
mótiö þvf auk viðurkenningar-
innar bar lið hans sigur úr
býtum f B-liöa keppninni.
„Við reyndum alltaf að spila
boltanum og þess vegna held ég
að okkur hafi gengið svona vel.
Annars ;var erfiðasti leikurinn í
mótinu á móti UBK í undan-
keppninni en hann endaði með
jafntefli, 2:2," sagði Sverrir til
skýríngar á þessum góða ár-
angri.
Sverrir var ao vonum ánægður
með gengiö í fótboltanum og
sagðist ákveöinn í að halda
áfram að stunda þá íþrótt, at-
vinnumennska værí takmarkiö
og stefndi hann að því að verða
jafn góöur og Ásgeir Sigurvins-
son. Með mikilli og góðri æfingu
taldi hann að það gæti tekist og
blaðamaður er einnig sannfærö-
ur um það.
MorgunblaðiA/Ámi Johnson
• Þessi hópmynd af helmamönnum í Hörgalanda- og Kirkjubœjarhreppum ásamt Vestmanneyingum, var tekin á milli lota f fríálsíbrötta-
keppninni, en meö á myndinni eru fararstjórar Eyjamanna og forystumenn heimamanna í mótinu.
Skaftfellingar
og Eyjamenn
kepptu ffrjálsum
YNGSTU félagarnir í frjálsíþrótta-
deild Ungmennafélagsins
Ármanns i Vestur-Skaftafells-
sýslu háöu skemmtilega frjáls-
íþróttakeppni við jafnaldra sína (
frjálsíþróttadeild Iþróttabanda-
lags Vestmannaeyja á Kirkjubæj-
arklaustrí fyrir skömmu. Frjáls-
íþróttadeild ÍBV fjölmennti á
Klaustur og var keppt í fjölda
greina svo sem stökkum, hlaup-
um og köstum. Verið er að
byggja upp mjög góöa íþróttaaö-
stöðu skammt frá Klaustri og var
keppt þar, en heimsókn Eyja-
manna var liður ÍBV í aö koma
meira lífi í frjálsiþróttirnar í Eyj-
um. Þær hafa legið nokkuð niöri
þar um árabil, en fyrr á árum
komu margir bestu frjálsíþrótta-
menn landsins frá Vestmanna-
eyjum, m.a. Torfi Bryngeirsson
Evrópumethafi með meiru. Unga
fólkið úr Eyjum fékk mjög góðar
móttökur á ferð sinni til Klaust-
jurs og þótti ferðin heppnast meö
ágætum.