Morgunblaðið - 27.07.1986, Qupperneq 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1986
38
SILUNGUR
Þeir sem stunda silungsveiðar hafa margar sögur að segja frá veiðiferðum sínum.
Ekki eru allar sögurnar um þann stóra sem þeir misstu.
Utan i Skarðsheiðinni eru þijú vötn samtengd, sem raða sér eftir dalverpi. Eitt
þeirra er Þórisstaðavatn. Þar sem afrennsli úr Geitabergsvatni kemur í Þórisstaða-
vatn veiðist oft vel. Byrjað er að veiða kl. 7 á morgnana og verið að til kl. 10. Á
morgnana er veiði oft best og þegar rigning eða úði er, er hann i tökustuði.
Nokkrir félagar höfðu komið snemma morguns úr bænum, sett fram bátinn og keyrt út á
vatn. Til þess að rýmra yrði um þá í bátnum, höfðu þeir geymt nesti sitt, sem var í plast-
pokum, undir sprekum sem voru á vatnsbakkanum. Alltaf mætti skjótast í land þegar hungrið
segði til sin. Þórisstaðavatn er 14,5 m þar sem það er dýpst. Það var 10 punda lína í spúninum,
því hún er mjög þjái og góð fyrir bátsveiði, ef krækist í botni, eins og oft gerist þegar komið er
af dýpra vatni yfir á grynnra. Þeir höfðu haft mikla yfirferð en enga veiði, og þegar silungur-
inn sem reynt er að veiða er orðinn minni en spúnninn, er kominn timi til að hala inn og huga
að nestinu. Það var annars skrítið með manninn á vatnsbakkanum, sem ekki færði sig úr stað,
en dró hvern fiskinn eftir annan, og það enga titti. Þetta var víst það sem kallað er að þekkja
vatnið sitt.
Þegar kom upp undir land, þar sem nestið var geymt, flaug upp svartur fugl með gargi miklu.
Krummi var búinn að opna plastpokana og gæða sér á samlokunum með skinkunni og aspasin-
um, en hann hafði alveg sneitt hjá þeim sem voru með tómötum og gúrku.
Hafði ekki enn lært að meta
grænmetið sem skyldi. Upp-
takarann réð hann ekki við,
en það sást á flöskunum að
hann hefði viljað skola góð-
gætinu niður með kóki.
Mörgum finnst þægilegt að
hafa siiunginn flakaðan og
auðvelt er að matreiða hann
þannig. Þegar þið flakið sil-
ung, leggið þið hann á bretti.
Skerið hausinn af, skerið
síðan upp kviðinn og slægið
sUunginn. Látið sporðinn snúa
til vinstri og kviðinn frá ykk-
ur. Skerið niður með hryggn-
um í gegn og áttina að
sporðinum. Snúið síðan sil-
ungnum við og látið sporðinn
snúa til hægri og hafið sama
hátt á. Skerið niður með
hryggnum í gegn og áttina
að sporðinum. Snúið síðan sil-
ungnum við og látið sporðinn
snúa til hægri og hafið sama
hátt á. Skerið síðan bein úr
flökunum og fjarlægið ugga.
Svolítið erfitt er að finna bein
í silungsflökum, en þau liggja
niður eftir miðju flakinu. Best
er að stijúka með fingrinum
niður eftir flakinu, og tína
síðan hvert bein úr með góm-
unum. Skafið síðan roðið vel.
Gott getur verið að láta heitt
vatn renna augnablik á roðið,
það losar slímið. Sjálfsagt er
að borða roð af silungi ef
hann er ekki því stærri. Sil-
ungurinn verður mun bragð-
betri sé það gert.
Silungur með rjóma-
osti og dilli
Handa 4
2 silungar, 800-1000 g hvor
safi úr 1 sítrónu
2 tsk. salt
‘A tsk. pipar
2 msk rjómaostur án bragðefna
væn grein ferskt dill eða 1 msk.
þurrkað
“Ttf
10 g smjör
1. Flakið silunginn eins og segir
hér að framan. Skafið roðið.
2. Leggið flökin á roðhliðina,
kreistið safann úr sítróiiunni og
heliið yfír flökin. Stráið salti og
pipar á þau og látið bíða í 10
mínútur.
3. Klippið dillið, blandið saman
við rjómaostinn. Smyijið síðan
ijómaostinum á tvö flök, leggið
síðan hin tvö flökin yfír.
4. Leggið silunginn á smurt eld-
fast fat.
5. Hitið bakaraofninn í 180° C,
blástursofn í 150° C. Setjið fatið
í miðjan ofninn og bakið í 15
mínútur. Þegar helmingur af bök-
unartímanum er liðinn, penslið þið
flökin með bræddu smjöri.
Meðlæti: Soðnar kartöflur og
hrásalat.
Silungsflök með
tómötum og osti
Handa 4
4 silungar, 400 g hver
Chile:
Hermenn kveiktu í pari
og börðu með byssum
— að sögn lögfræðings fjölskyldna
f órnarlambanna
Santiago, AP.
LÖGFRÆÐINGUR sagði á
fimmtudag að hermenn í Chile
hefðu ekki aðeins kveikt í konu
og manni fyrr í þessum mánuði
heldur hefðu þeir barið þau með
byssuskeftum sínum til að koma
í veg fyrir að þeim tækist að
IRtæfa logana.
Hector Salazar, sem er lögfræð-
ingur fjölskyklna fómarlambanna,
gaf út fímm blaðsíðna yfírlýsingu
um atburðinn 2. júlí. Dómari dæmdi
á miðvikudag að útgáfa stjómvalda
á atburðinum væri rétt. Þar sagði
að hjónin hefðu sjálf lagt að sér eld.
Rodrigo Rojas de Negri, nítján
ára gamall ljósmyndari frá Wash-
ington, lést af brunasámm fjómm
dögum eftir atburðinn. Hann var
fæddur í Chile. Átján ára gömul
vinkona hans, Carmen Gloria Quint-
ana, liggur enn á sjúkrahúsi í
Santiago og er langt leidd af sámm
sínum.
Atvikið átti sér stað í fátækra-
hverfí í Santiago á fyrra degi
verkfalls, sem farið var í um allt
landið til að mótmæla þrettán ára
setu herstjórnar Augustos Pinoc-
hets, hershöfðingja.
Sjónarvottar, sem bæði em úr
röðum embættismanna ríkisins og
almennings, segja að herflokkur
hafi átt upptökin að atburðinum og
ráðist að hópi ungs fólks, sem var
í þann mund að kveikja eld á miðri
götu til að stöðva umferð.
safí úr >/2 sítrónu
lVt tsk. salt
>/s tsk. pipar
Vs tsk. rifín múskathneta eða til-
búið duft
8 litlir tómatar
50 g feitur mjólkurostur
8 málmpinnar eða stoppunálar
1. Flakið silunginn eins og segir
hér að framan. Skafið roðið.
2. Leggið flökin á roðhliðina,
kreistið safann úr sítrónunni og
penslið silungsflökinn með hon-
um. Stráið salti, pipar og múskati
á flökin og látið bíða í 10 mínútur.
3. Hellið sjóðandi vatni á tómat-
ana, látið standa í vatninu í 2
mínútur. Stingið þá gaffli í þá og
flettið húðinni af.
4. Vefjið hveiju flaki utan um
einn tómat. Festið saman með
nálunum.
5. Raðið rúllunum á eldfast fat.
6. Rífíð ostinn og stráið yfír rúll-
umar.
7. Hitið bakaraofninn í 180° C.
Blástursofn í 150° C, setjið fatið
í miðjan ofninn og bakið í 12-15
mínútur.
Meðlæti: Soðnar kartöflur og
blaðsalat með steinselju.
Glóðarsteiktur silungur
Handa 4
2 silungar, 800—1000 g hvor
safi úr 1 sítrónu
2 tsk. salt
'/< tsk pipar
15 g smjör
1 msk. sólblómafræ eða saxaðar
hnetur
væn grein fersk steinselja
1. Dýfíð silungnum eldsnöggt í
sjóðandi vatn og skafíð síðan vel.
Hafíð hausinn á honum.
2. Hreinsið síðan allt blóð úr
kviðnum og skerið frá ugga.
3. Nuddið salti og pipar í silung-
inn að utan og innan, hellið einnig
á hann sítrónusafa að utan og
innan.
4. Hitið glóðarristina, setjið sil-
unginn á smurt fat. Bræðið
smjörið og penslið hann með því.
Glóðið á fyrri hliðinni í 7 mínút-
ur, snúið þá við, penslið seinni
hliðina með bræddu smjöri, stráið
sólblómafræi eða söxuðum hnet-
um yfír og glóðið í aðrar 7
mínútur.
5. Klippið steinseljuna og stráið
yfír. Berið á borð.
Meðlæti: Soðnar kartöflur, tómat-
ar, gúrkur, blaðsalat og sítrónu-
bátar.
Silungur á útigrilli
Handa 4
4 silungar, u.þ.b. 400—500 ghver
2 tsk. salt
’/< tsk. pipar
xh dl matarolfa + safí úr 1 stórri
sítrónu
Mörg blöð tún- eða Ólafssúra
1. Slægið fískinn, skerið síðan
upp í hann kviðmegin, og losið
hrygginn frá. Látið fískinn hanga
saman að aftan.
2. Stráið salti og pipar inn í sil-
unginn, leggið síðan mikið af
þvegnum súrublöðum inn í silung-
inn.
3. Leggið silunginn á grind, eða
setjið í grindur, sem ætlaðar eru
til að glóðarsteikja fisk í.
4. Penslið silunginn með leginum.
5. Hitið útigrillið. Glóðið silung-
inn á hvorri hlið í 7—10 mínútur.
Berið eftirfarandi
brauð með:
200 g heilhveiti
100 g hveiti
1 tsk. salt
2 tsk. sykur
1 msk. þurrger
V2 flaska pilsner eða maltöl
6. Velgið innihald flöskunnar í
35° C. Hægt er að gera það
meðan kolin eru að hitna. Hella
því í ílát og setja ofan á grindina.
7. Blandið öllu hinu saman, hrær-
ið síðan ölið út í.
8. Mótið aflöng mjó brauð, vefjið
þau lauslega í álpappír. Leggið
þannig að þau fái velgju frá kolun-
um meðan þau eru að hitna. Þá
ættu brauðin að lyfta sér á 20
mínútum.
9. Stingið síðan brauðunum í ál-
pappímum milli kolanna, þegar
þau eru orðin heit og bakið um
leið og silungurinn er að glóðast.
Brauðin þurfa þó heldur lengri
tíma en silungurinn.
Salazar segir að hermennimir
hafí þá neytt Rojas og Quintana til
að leggjast í götuna, hellt yfír þau
eldsneyti og lagt að þeim eld og
vísar til vitnisframburðar.
„Þegar logarnir blossuðu upp um
allan líkama hans stökk Rodrigo á
fætur og gerði örvæntingarfullar
tilraunir til að kæfa þá. Carmen
Gloria reyndi að slökkva eldinn með
berum höndum þar sem hún lá á
jörðunni. Hermaður stöðvaði til-
raunir Rodrigos með því að beija
hann í hnakkann með byssuskefti.
Carmen Gloria reyndi þá að rísa á
fætur, en var þá lamin í andlitið
með byssuskeftinu með þeim afleið-
ingunt að hún missti nokkrar
tennur," sagði í yfirlýsingu lög-
fræðingsins.
Rojas og Quintana fundust síðar
um tíu km utan við bæinn þar sem
mótmælin áttu sér stað.
Rojas er sonur félagsráðgjafa frá
Chile, sem nú lifir í útlegð í Los
Angeles. Móðir hans sagði að hann
hefði farið til Chile að leita uppruna
síns.
Vuærkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!