Morgunblaðið - 27.07.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1986
IÞINGHLÉI
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
BLÁA LÓNIÐ
Tæplega 30% af nýtingu jarðvarma í veröldinni tengjast heilsu- samþykkti sl. vor o g fjallað verður stuttlega um „I þinghléi“ í
rækt, baðlækningum og ferðaútvegi. Island geymir margháttaða dag. Myndin sýnir Bláa lónið í Svartsengi, einn af þeim heilsu-
möguleika í þessu efni að dómi flutningsmanna tillögu til þings- brunnum, sem gæti orðið segull á erlenda ferðamenn tU landsins.
ályktunar um nýtingu jarðvarma í heilsubótarskyni, sem Alþingi
Nýting jarðhita í heilsubótarskyni;
30% af nýttum jarð-
varma tengist heilsurækt
Baðlækningar með jarðhita, hveravatni og hveraleir
Iaprílmánuði síðastliðnum
var samþykkt þingsálykt-
un um nýtingu jarðhita í
heilsubótarskyni: „Al-
þingi skorar á ríkisstjórn-
ina að láta gera áætlun
um það á hvem hátt jarð-
hiti og hveravatn verði
bezt nýtt hér á landi í heilsubótar-
skyni. Jafnframt verði kannað á
hvaða stöðum helzt komi til greina
að reisa heilsubótarstöðvar er byggi
starfsemi sína á jarðhita og hver
sé rekstrargrundvöllur slíkra
stöðva."
Þingsályktun þessi, sem var sam-
þykkt með 39 samhljóða atkvæðum
(af 60), var flutt af íjórum þing-
mönnum Sjálfstæðisflokks: Gunn-
ari G. Schram, Birgi ísl.
Gunnarssyni, Eggert Haukdal og
Friðjóni Þórðarsyni.
Skýrsla dr. Maurice
Lamarche
Fýrir hálfum öðrum áratug, eða
þar um bil, fóru íslenzk stjómvöld
fram á aðstoð Sameinuðu þjóðanna
við úttekt á framtíðarmöguleikum
Islands sem ferðamannalands.
Bandarísku ráðgjafarfýrirtæki,
í Checchi and Company, var falið að
annast verkið í samráði við íslenzk-
an ferðaútveg. Fyrirtækið skilaði
Qölþættri skýrslu, sem geymir
margvíslegan fróðleik.
Sérstök skýrsla fjallaði um nýt-
ingu jarðvarma til heilsubótar, en
hún var unnin af dr. Maurice La-
marche, prófessor við læknadeild
háskólans f Nancy f Frakklandi.
Tveir íslendingar unnu að þessu
verkefni: dr. Gunnar Bjömsson,
sem fjallaði um íslenzk jarðhita-
svæði, og Sigurður R. Guðmunds-
son, efnafræðingur, sem vann
skýrslu um efnasamsetningu
varmavatns og jarðhitasvæði.
Dr. Lamarch segir m.a. f skýrslu
sinni að lindarvatn og hveravatn
hér á landi sé víða gætt sömu
heilsubótareiginleikum og vatn það
sem notað er við ýmsar kunnustu
heilsubótarstöðvar Evrópu. Gerir
hann tillögur um, segir í greinar-
gerð með framangreindri ályktun,
„að komið verði á stofn baðlækning-
arstöðvum hér á landi, sem ætla
mætti að sóttar yrðu, ekki sízt frá
öðmm löndum. Jafnframt rekur
hann læknisfræðileg atriði sem lúta
að meðferð við ýmsum sjúkdómum
f miðað við eiginieika íslenzka lindar-
vatnsins, hveravatnsins og leir-
baða.“
Forysta í nýtingn jarðhita
Islendingar hafa gegnt vissu for-
ystuhlutverki í nýtingu jarðvarma,
svo sem kunnugt er, m.a. til hús-
hitunar. Einn þáttur hefur þó verið
homreka, að minnsta kosti til
skamms tíma, það er nýting jarð-
hita, hveravatns og hveraleirs til
heilsuræktar og baðlækninga. Ýms-
ar aðrar þjóðir hafa um langan
aldur nýtt þessa kosti, sem og öl-
kelduvatn, til heilsubótar, ekki sízt
í Þýzkalandi, Frakklandi, Tékkó-
slóvakíu og Ungverjalandi. Heilsu-
bótarvinjar af þessu tagi hafa laðað
erlenda ferðamenn til þessara landa
til hressingar og afþreyingar.
í greinargerð með þessu máli
segja flutningsmenn m.a.:
„Þáttur jarðhitans í heilsurækt á
slíkum stöðum hefur um langan
aldur verið allstór. Farið hefur í
vöxt á undanfömum ámm að
heilsuræktarstöðvar séu byggðar
við heitar lindir, m.a. í Ungveija-
landi og Japan. Er það ekki sízt
með móttöku erlendra gesta í huga.
Tæplega 30% af nýtingu jarðvarma
í heiminum em tengd heilsurækt
og ferðamálum. Á þessu sviði er
verðmætasköpunin langmest eða
rúmlega 50% af heildarverðmæta-
sköpun í öllum jarðvarmaiðnaði í
i
Nu er tilvaliö aö kíkja mn hjá kaupmanninum og
krœkja sér í bita af ljúffengu fjallalambi — eöa kaupa
þaö í heilum og hálíum skrokkum á ótrúlega hagstœöu
veröi.
Verðlœkkunin gUdir í takmarkaðan tíma