Morgunblaðið - 27.07.1986, Síða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1986
---.■ ■■■ -----------------------------------------------------------------------------------------
JT __ ÆT_____
IÞROTTIR UNGLINGA UMSJÓN/Vilmar Pétursson
Úrslit á
Pollamótinu
f úrslitakeppni Pollamóts-
ins kepptu alls 14 lid, 7 í
A-liðskeppninni og 7 f B-
liðskeppninni. Liðunum var
skipt í tvo riðla og kepptu
efstu liðin úr hvorum riðli
síðan til úrsiita um efsta
sætið en lið númer 2 kepptu
um 3—4 sætið. Úrslit leikj-
anna urðu þessi:
B-lið:
KR-Fram 2:2
Þór A-Bolungarvík 9:0
Fram-Bolunarvík 9:2
KR-Þór A 7:1
Þór A-Fram 2:2
FH-Fram 2:2
Sindri-FH 0:8
Valur-Sindri 12:0
Bolungarvík-KR 0:14
Leikur um 5. sæti
Þór A-Sindri 4:0
Leikur um 3. sæti
Fram-FH 4:1
Leikur um 1. sæti
Valur-KR 0:2
A-lið:
Valur-Sindri 5:0
FH-Völsungur 1:1
Sindri-Völsungur 3:6
Valur-FH 0:2
FH-Sindri 0:1
Víkingur-Bolungarvík 12:0
KR-Víkingur 1:2
Bolungarvík-KR 0:15
Völsungur-Valur 2:3
Leikur um 5. sæti
FH-Bolungarvík 4:0
Leikur um 3. sæti
Völsungar-KR 3:7
leikur um 1. sæti
Valur-Víkingur 0:5
• Sigurvegarar KR í B-llða keppninnl á Pollamótinu. Þeir eru í efri röð frá vinstri: Sigurður Fríðriksson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Kjartan
Björgvinsson, Óskar sigurgeirsson, Ólafur Jón Ormsson og Georg Lúðvíksson. í neðrí röð frá vinstri: Sverrír Þór Viðarsson, Benedikt Magn-
ússon, Kristinn Rúnar Victorsson, Hörður Gylfason, Arnar Sigurgeirsson og Haraldur Þorvarðarson.
Pollamót Eimskips og KSÍ:
Pollar um allt land
eltust við leðurtuðruna
Pollamót Eimskips og KSÍ er
mót þar sem knattspyrnumenn
10 ára og yngri fá útrás fyrir
fótboltaþörf sína. Því lauk um
síðustu helgi. 73 lið eða 730
pollar hófu þátttöku í þessari
keppni sem hófst með keppni í
ríðlum út um allt land.
Það var því mikið búið aö
ganga á áður en sjáif úrslita-
keppnin hófst en þar höfðu 14
liö tryggt sér þátttökurétt. Þau
voru:
A-lið; A-riðill: Valur, FH, Völsung-
ur og Sindri.
A-lið; B-riðill: KR, Víkingur og
Bolungarvík.
B-lið; B-riðill: KR, Þór A, Bolung-
arvík og Fram.
B-lið; B-riðill: Sindri, FH og Valur.
Sigurður með
m fc þrennu
Í flokki A-liða voru það Víking-
ar og Valsmenn sem unnu sína
riöla og kepptu því til úrslita um
efsta sætið. Víkingarnir mættu
mjög ákveðnir i þennan leik, spil-
uðu frábæran fótbolta og leik-
mennirnir spiluðu sem ein
liðsheild þar sem allir voru virkir
sama hvort þeir voru með bolt-
ann eða ekki. Árangurinn af
þessu lét ekki á sér standa því
fljótlega í leiknum náðu Víkingar
forystu með glæsilegu marki
sem Sigurður E. Sigurðsson
l> skoraði beint úr aukaspyrnu;
hann bókstaflega „smurði bolt-
anum i skeytin".
Áfram hélt sókn Víkinga og
þeir bættu tveimur fallegum
mörkum við fyrir leikhlé. Það
fyrra gerði Sigurður eftir fallegt
gegnumbrot Þorbjarnar Sveins-
sonar en hið seinna Georg
Ómarsson eftir hornspyrnu.
Víkingar héldu áfram í síðari
hálfleik þar sem frá var horfið í
þeim fyrri. Tjörvi skoraði 4. mark
þeirra. Hann fékk boltann einn
og óvaldaður eftir að hjólhesta-
spyrna Þrastar Helgasonar hafði
skollið í slá Valsmarksins. Sig-
urður E. skoraði síðan síðasta
mark leiksins og sitt þriðja
skömmu fyrir leikslok.
Valsmenn, sem komu mjög á
óvart á þessu móti með mjög
góðri frammistöðu, mættu ofjörl-
um sínum í þessum leik en þeir
eiga þó góðu liði á að skipa. Lið
Víkinga blómstraði á mótinu og
eins og áður sagði sýndu þeir
frábæran leik í úrslitaleiknum og
kórónuðu þar með góða frammi-
stöðu sína á mótinu.
KR-ingar bestir
B-liða
f úrslitaleik B-liða áttust við
KR og Valur og var það mikill
barningsleikur. í fyrri hálfleik
tókst hvorugu liðinu að skora
mark en KR sótt öllu meira án
þess þó að skapa sér nein hættu-
leg marktækifæri.
KR-ingar höfðu undirtökin
áfram í síðari hálfleik en þaö var
ekki fyrr en um miöjan háifleikinn
sem fyrsta markið leit dagsins
Ijós. Hinn stórhættulegi sóknar-
leikmaður Sverrir Þór skoraði þá
fallegt mark með viðstöðulausu
vinstrifótar skoti og hafnaði
knötturinn efst í markhorninu,
óverjandi fyrir markvörð Vals.
Þremur mínútum fyrir leikslok
innsigluðu KR-ingar sigur sinn
með fallegu skallamarki Bene-
dikts Magnússonar.
Sigur KR var sanngjarn, þeir
hafa sýnt það á þessu og öðrum
mótum í sumar að lið þeirra er
harðsnúið. Valsmenn spiluðu
þennan leik skynsamlega, þeir
vörðust vel og fengu siðan nokkr-
ar skyndisóknir sem báru þó ekki
árangur en eins og í A-liðskeppn-
inni kom árangur þeirra skemmti-
lega á óvart.
Margskonar verð-
laun
og viðurkenningar
Það voru því Víkingar og KR-
ingar sem hömpuðu hinum
glæsilegu bikurnum sem Eim-
skipafélagið gaf og var það Ágúst
Jónsson fyrrverandi skipherra
sem afhenti sigurvegurunum þá
í mótslok. Allir þátttakendur fá
sfðan send heiðurs- og viður-
kenningarskjöl fyrir þátttöku sína
í drengilegri keppni. Einnig var
valinn besti sóknar- og varnar-
maður mótsins og fengu þeir
einnig bikara fra Eimskip. Þeir
sem þessi verðlaun hlutu voru:
Ingi Júlíusson, Fram, besti
varnarmaður B-liöa.
Sverrir Þ. Viðarsson, KR, besti
sóknarmaður B-liða.
Georg Ómarsson, Víkingi,
besti varnarmaður A-liöa.
Siguröur Elvar Sigurðsson,
Vikingi, besti sóknarmaður A-
liða.
Allir þátttakendur i þessu
skemmtilega móti fá því verðlaun
eða viöurkenningar til að gleðjast
yfir.
Morgunblaðlð/Börkur
• Benedikt Magnússon fyríriiði KR-B var að vonum ánægður þegar
hann hafði fengíð þessa fallegu bikara afhenta sem sigurlaun í Polla-
mótinu og lái honum hver sem vill.
I