Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
Sjávarútvegsráðherra:
Vill framlengja
lög um sljórn
fiskveiða í 3 ár
Sjávarútvegsráðherra telur að
framlengja beri ákvæði laga um
stjórn fiskveiða, þannig að þau
verði í meginatriðum óbreytt til
þriggja ára hið skemmsta. Gert
var ráð fyrir í ákvæði til bráða-
birgða að lögin skyldu endur-
skoðuð fyrir 1. nóvember 1986.
í fréttatilkynningu frá sjávarút-
vegsráðuneytinu kemur meðal
annars fram, að lög um stjórn fisk-
veiða hafi að undanförnu verið til
umræðu og endurskoðunar í sjávar-
útvegsráðuneytinu og á grundvelii
þeirra umræðna sé niðurstaðan sú,
að ekki sé ástæða til að breyta
neinu í ákvæðum laga um stjórn
fiskveiða á næsta ári. Telur sjávar-
útvegsráðuneytið að þar með sé
lokið þeirri endurskoðun á ákvæð-
um laganna, sem ráðuneytinu var
falin.
I fréttatilkynningu ráðuneytisins
kemur ennfremur fram, að hagur
útgerðar hafi batnað verulega að
undanfömu. Þótt bætt ytri skilyrði
eigi þai- verulegan þátt sé enginn
vafi á að sú stefna sem fylgt hefur
verið við stjóm fiskveiða, hafi þar
einnig haft vemleg áhrif, að því er
segir í fréttatilkynningunni. I ljósi
fenginnar reynslu telji sjávarút-
vegsráðherra því, að áður en
umrædd lög verði felld úr gildi í lok
næsta árs, beri að framlengja
ákvæði þeirra í meginatriðum
óbreytt tii þriggja ára hið
skemmsta.
Formaður BSRB um samning og verkfallsaf sal tollvarða:
Yfirlýsingar um afsal verk-
fallsréttar er markleysa
Ekki hægt að semja af sér rétt sem lands-
lög gera ráð fyrir
„Á MEÐAN landslög gilda um kjarasamninga opinberra starfsmanna
eru viljayfirJýsingar um afsal verkfallsréttar marklausar. Það getur
enginn samið af sér landslög og því lít ég svo á, að bókanir um
afsal verkfallsréttar með samningum lögreglumanna og tollvarða
séu ekki annað en skoðanakannanir af hálfu ríkisvaldsins," sagði
Kristján Thorlacius, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
(BSRB) í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær um nýjan kjarasamn-
ing Tollvarðafélags íslands og fjármálaráðuneytisins. Tollvarðafé-
lagið á aðild að BSRB.
samninga BSRB fer samninganefnd
sambandsins með rétt til að gera
aðalkjarasamning og jafnframt með
verkfallsréttinn fyrir öll aðildarfé-
lögin, með vissum takmörkunum
þó,“ sagði hann. „Kjarasamningun-
um frá í febrúar fylgdi bókun
beggja samningsaðila um að þeir
setji á laggirnar sameiginlega nefnd
til að endurskoða lög um kjarar
samninga BSRB.“
Hann minnti á, að samskonar
bókun hefði fylgt samningum
BHMR og Bandalags kennarafé-
laga. „Vegna framkomu ríkisvalds-
ins í þessu máli - og sífelldra
Eins og fram kom í frétt í blað-
inu í gær er í samningnum gert ráð
fyrir svipuðum kjarabótum til
handa tollvörðum og fólust í nýleg-
um samningi Landssambands
lögreglumanna og ríkisins. Jafn-
framt fylgir honum sameiginleg
bókun um að tollverðir skuldbindi
sig til að fara ekki í verkfall.
Kristján Thorlacius kvaðst telja
það „fjarstæðu af hálfu ríkisvalds-
ins að ætla að semja af mönnum
rétt, sem þeir hafa samkvæmt
landslögum," eins og hann orðaði
það. „Samkvæmt lögum um kjara-
tilrauna til að kljúfa samtök opin-
berra starfsmanna niður í litlar
einingar - höfum við ákveðið að
koma sameiginlega fram gagnvart
samninganefnd fjármálaráðherra
viðræðum um samnings- og verk
fallsrétt okkar,“ sagði Kristjá
Thorlacius.
Norski sjávarút-
útveg'sráðherrann í
opinberri heimsókn
SJÁVARÚTVEGARÁÐHERRA Noregs, Bjarne Mörk Eidem, kom til
landsins síðdegis £ gær í opinbera heimsókn, í boði Halldórs Ás-
grímssonar, sjávarútvegsráðherra.
„Þessar tvær fiskveiðiþjóðir eiga mun auk þess, meðan á heimsókn
hans stendur, heimsækja fisk-
vinnslustöðvar í Vestmannaeyjum,
fiskeldisstöð á Reykjanesi, Haf-
rannsóknastofnun og Rannsókna-
stofnun fískiðnaðarins og kynna sér
starfsemi þeirra.
Ráðherrann heldur utan aftur á
sunnudagsmorgun.
gamalt og rótgróið samstarf á þessu
sviði,“ sagði Ami Kolbeinsson,
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu, í samtali við Morgunblaðið.
„Ráðherramir munu fyrst og fremst
eiga viðræður um sameiginleg
hagsmunamál á sviði sjávarútvegs
á meðan á heimsókninni stendur."
Norski sjávarútvegsráðherrann
Tveir nýir lektorar
við Háskóla Islands
Menntamálaráðherra hefur
skipað Mikael Karlsson í stöðu
Iektors við heimspekideild Há-
skóla íslands, frá 15. september
að telja.
Tveir aðrir umsækjendur voru
um stöðuna, þeir dr. Erlendur Jóns-
son og dr. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson. Þá skipaði ráðherra
Hannes Hólmstein í lektorsstöðu í
rannsóknarsagnfræði við Háskóla
íslands, einnig frá og með 15. sept-
ember. Áður gegndi Þór Whitehead
þeirri stöðu.
Morgunblaöið/Þorkell
Gunnlaugur M. Sigmundsson (t.v.) stjórnarformaður Silfurbergs hf. og framkvæmdasljóri Þróunar-
félagsins ásamt Olafi Davíðssyni stjórnarformanni Þróunarfélagsins á fundi með blaðamönnum
þar sem hið nýja fyrirtæki var kynnt.
Silfurberg hf.:
Fyrirtæki í meiri-
hlutaeign útlendinga
Svíinn Peter Wallenberg aðaleigandi
AÐ FRUMKVÆÐI Þróunarfélags íslands hf. hefur verið stofnað
nýtt hlutafélag, er hlotið hefur nafnið Fjárfestingarfélagið Silfur-
berg hf. Tilgangur félagsins er að stuðla að eflingu íslensks
atvinnulífs með því að leggja fram hlutafé í nýjum fyrirtækjum
á Islandi.
Heildarhlutafé félagsins við
stofnun er 25 milljónir íslenskra
króna. Meirihluti hlutafjár, eða
15 milljónir króna, eru í eigu
sænska auðjöfursins Peters Wall-
enberg. Aðrir hluthafar auk
Þróunarfélagsins, sem leggur
fram 5 milljónir króna, eru Jón
Magnússon stjórnarformaður
Rönning hf., verktakafyrirtækið
Hagvirki hf. og Guðmundur Á.
Birgisson, bóndi á Núpum í Ölfusi.
I stjórn félagsins eru eftirfar-
andi aðilar:
Peter Wallenberg stjómarfor-
maður Enskilda banken, Curt
Nicolin stjórnarformaður ASEA í
Svíþjóð, Gunlaugur M. Sigmunds-
son framkvæmdastjóri Þróunarfé-
lagsins, sem jafnframt er
stjórnarformaður, Jóhann Berg-
þói-sson framkvæmdastjóri
Hagvirkis og Jón Magnússon
stjómarformaður Rönning hf.
Stofnsamningur félagsins var
undirritaður í höfuðstöðvum
Scandinaviska Enskilda bankans
í Stokkhólmi síðastliðinn föstudag
að viðstöddum sendiherra íslands
í Svíþjóð og ýmsum frammámönn-
um í sænsku atvinnulífi.
„Með stofnun þessa félags er
opnað fyrir erlent fjármagn á inn-
lendum markaði, sem vissulega
er skortur á í íslensku atvinnulífi.
Einnig stuðlar þetta að nánum
tengslum við athafnamenn og fyr-
irtæki í Evrópu, sem hafa yfir
þekkingu og reynslu að búa,“
sagði Olafur Davíðsson stjómar-
formaður Þróunarfélagsins á
fundi með blaðamönnum.
Aðdragandinn að þátttöku
þeirra Peters Wallenberg og Cui-ts
Nicolin í fyrirtækinu er sá, að
þeir hafa átt umtalsverð sam-
skipti við íslenska aðila. Curt
Nieolin er t.d. einn eiganda laxeld-
isstöðvarinnar Silfurlax að
Núpum í Ölfusi ásamt íslenskum
aðilum og fleiri Svíum.
Að sögn forsvarsmanna Þróun-
arfélagsins standa lagaákvæði
ekki í vegi fyrir stofnun fyrirtæk-
isins, þótt meirihluti fyrirtækisins
sé í eign erlendra aðila. Ýmis
dreifð lagaákvæði á ákveðnum
sviðum eins og í iðnlöggjöf og
bankalöggjöf kveða á um að er-
lendir aðilar megi ekki eiga
meirihluta í fyrirtækjum. „Þetta
nýja fyriitæki fellur ekki undir
nein af þessum liigum, þannig að
þetta fyrirtæki er fullkomlega lög-
íegt,“ sagði Gunnlaugur M.
Sigmundsson stjórnarformaður
hins nýja félags. Lögfræðilegur
undirbúningur að stofnun félags-
ins var í höndum Hjaitar Torfa-
sonar hæstaréttarlögmanns.
Mikael Karlsson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Þijú fiski-
skip seldu
erlendis
ÞRJÚ islensk fiskiskip hafa
selt á fiskmörkuðum erlendis
það sem af er þessari viku.
Meðalverð fyrir afla þessara
skipa var á bilinu 42 til 60
krónur. Meðalverð fyrir
gámafisk á mánudag og
þriðjudag, samtals 548 tonn,
var 67,24 krónur.
Otto Wathne NS seldi 135,5
tonn í Grimsby á mánudag fyrir
rúmlega 8,1 milljón króna. Með-
alverð fyrir aflann var 59,93
krónur. Af aflanum voru 95,5
tonn þorskur, sem seldist fyrir
67,61 krónur kílóið að meðal-
tali. Það varð til að lækka
meðalverðið nokkuð, að í aflan-
um voru 21,5 tonn af ufsa sem
fór á 25 krónur að meðaltali.
Erlingur SF seldi 54 tonn í
Hull á miðvikudag fyrir rúmlega
3.1 milljón króna eða 58.40
krónur að meðalverði. 23 tonn
aflans var þorskur og fékkst
fyrir hann tæplega 71 króna í
meðalverð.
Snorri Sturluson RE seldi í
Bremerhaven á miðvikudag 147
tonn fyrir 42.05 króna meðal-
verð.