Morgunblaðið - 18.09.1986, Side 3
MORGUNBEAÐTÐ/ FIMMTUDAGUR' 18. SEPTEMBER 1986 '
3
Hópurínn kominn á ieiðarenda, þreyttur en sœll. Aftari röð t.f.v.: Arnbergur, Björn, Bergur, Halld-
ór, Snorri, Reynir, Markús, Signý, Erlingur og Leifur. Fremri röð f.v.: Baldvin, Baldur, Jóhannes,
Edda og Jón.
Fatlaðir í ævintýra-
ferð niður Hvítá
í þetta sinn alíslenskur hópur á ferð
LEIÐANGURSMENN úr Nýja
ferðakiúbbnum fóru um síðustu
helgi með átta fatlaða ofur-
huga niður Hvítá í tveimur
gúmbátum, en hugmyndin að
þessari för á rætur sínar að
rekja tii ferðar Iceland Break-
through-hópsins breska fyrr í
sumar.
Félagar úr Nýja ferðakúbbnum
áttu stóran þátt í að skipuleggja
ferð Iceland Breakthrough-hóps-
ins í júlí í sumar, en þá fóru
leiðangursmenn niður Hvítá á
kajökum og gúmbátum og voru
nokkrir fatlaðir ofurhugar með í
förinni. Erlingur Thoroddsen,
stjórnarformaður Nýja ferða-
klúbbsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að eftir ferð Bret-
anna niður Hvítá hefði þeim
félögum dottið í hug að bjóða
íþróttafélagi fatlaðra í svipaða
ævintýraferð.
„Við sendum þeim formlegt boð
sem þeir þáðu og úr varð að átta
fatlaðir tóku þátt í ferðinni," sagði
Erlingur. Hann sagði að leiðang-
ursmennirnir hefðu komið saman
sl. miðvikudag og hafi hópurinn
verið mjög áhugasamur um ferð-
ina. Fjórir voru hjólastólanotendur
og þrír þeirra meira eða minna
lamaðir upp að höndum. Tveir
leiðangursmanna voni spelkaðir á
fótum og loks voru tveir þroska-
heftir. Erlingur sagði að þrátt
fyrir mikla fötlun sumi-a ferða-
langanna hafí ferðin gengið
ákaflega vel.
Þeir sem tóku þátt í ferðinni
voru Edda Bergman, Reýnir
Knstófersson, Baldvin Isaksson,
Baldur Guðnason, Jón Siggeirs-
son, Jóhannes Vilhjálmsson,
Bergur Ingi Guðmundsson og
Halldór Bjami Pálmarsson. Að-
stoðarmenn og leiðangursstjórar
voru þau Markús Einarsson, frá
íþróttafélagi fatlaðra, Snorri
Magnússon, Signý Ósk Ólafsdótt-
ir, sem var bílstjóri í fei-ðinni,
Björn Gíslason, Arnbergur Þor-
valdsson, Leifur Svavarsson og
loks Erlingur Thoroddsen.
„Við lögðum af stað frá
Reykjavík um kl. 9 á laugardags-
morgun og ókum inn í Nautavík
í landi Jaðars. Þar lagði leiðangur-
inn út um kl. 1:30 og var siglt
um 13 km leið niður Hvítá, fyrir
neðan Gullfoss,“ sagði Erlingur.
„Siglingin sjálf tók ekki lengri
tíma en vanalega, en nokkurn
tíma tók að undirbúa hana og
koma öllum í bátana. Siglt var í
gegnum Brúarhlöð og tókum við
land við Drumboddsstaði um kl.
5:30 um eftirmiðdaginn," sagði
Erlingur. Þá þáði hópurinn veit-
ingar hjá heimilisfólki að Drumb-
oddsstöðum og hélt þar næst
áleiðis í bæinn aftur.
„Þrír ferðamannanna gátu ekki
setið uppréttir í bátunum og því
úrðum við að útbúa sérstök sæti
fyrir þá úr plastbrúsum og láta
þá liggja meðfram slöngunum á
gúmbátnum. Þeir héldu samt
fínum takti með árunum," sagði
Erlingur.
Hann sagði að fötluðu leiðang-
ursmennirnir hefðu ekki verið
verri „sjómenn" en margir aðrir
sem í bátana hefðu komið.
„Það er ótrúlegt hvað þau eru
fær um að bjarga sér sjálf og
hvað þau hafa mikið hugrekki og
kraft,“ sagði Erlingur.
Nýi ferðaklúbburinn er búinn
að bjóða félögum í Iþróttafélagi
fatlaði'a aftur í ævintýrafei-ð niður
Hvíta næsta sumar og sagði Erl-
ingur að nokkrir þeirra sem fóru
núna virtust staðráðnir í að koma
aftur.
Hann sagði að hópurinn 'nefði
verið þreyttur en ákaflega sæll
þegar heim var snúið á laugardag-
inn, en þó ekki þreyttari en svo
að nokkrir þein-a ætluðu að taka
þátt í hjólastólarallýinu í Laugar-
dalshöll daginn eftir. Meðal þeirra
var Reynir Kristófersson, sem ein-
mitt kom fyrstur í mark í rallýinu.
Samhentur hópur sýnir tilþrif við róðurinn. Myndin er tekin úr
hinuni gúmbátnum í fiúðum neðan við Jaðar.
Þarko
Hver var
ad tala um
kjara-
kaup?
Tveir klassakassar á
vægast sagt ótrúlega
góðu verði.
KJOTMIÐSTÖÐIN Simi 686511
SENDUM UM LAND ALLT.