Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986 Hugvit IStikluþætti Ómars Ragnarsson- ar var að þessu sinni minnst á slysið mikla við Mýrar, en þar fórst fyrir réttum 50 árum franska haf- annsóknaskipið Pourquoi pas?. Ómar fór á slysstað og ræddi við Ingibjörgu Friðgeirsdóttur er kom einna fyrst á slysstað. Frásögn Ingi- bjargar var einkar áhrifamikil þar sem hún stóð við hvítfextan brim- garðinn og táraðist við minningam- ar. Þá var sýnd í Stiklunum mynd Lofts Guðmundssonar af jarðarför skipveijanna á Pourquoi pas? en þessi kvikmynd barst nýverið frá Frakklandi. Yfir þessari jarðarför hvíldi mikil tign og sagði Ingibjörg Friðgeirsdóttir frá því að ekki hefði heyrst nema skóhljóð göngumanna þá stund er líkfylgdin fór um Reykjavík. í ys og þys bílasam- félagsins næst ekki slík stemmning er þama ríkti. SjómaÖurinn Ég hef að undanfomu boðað þá kenningu hér í dálki að íslenska ríkis- sjónvarpið sé kjörinn vettvangur fijórrar þjóðmálaumræðu og hef ég gjaman vísað til Morgunblaðsins sem fyrirmyndar því þar er að mínu mati tekist á um þjóðmálin og dægurmálin af fullri einurð eins og merkja má af aðsendum greinum blaðsins er streyma til lesenda úr öllum áttum. Ég óttast dálítið að þegar sjónvarps- rás 2 hefur starfsemi þá beinist athygli sjónvarpsmanna að „léttu skemmtiefni" öðm fremur og sam- félag vort glati þar með kjömum umræðuvettvangi. Persónulega er ég þeirrar skoðunar að opin og frjálsleg umræða í fjölmiðlunum sé nánast lífsnauðsyn samfélagi á mörkum Upp- lýsingaaldar. Því slík umræða miðlar hugmyndum og greiðir götu fmm- kvöðlanna sem fleyta samfélagi vom fram á veginn. Hugsið ykkur til dæm- is flotgjama gerviagnið hans Gutt- orms P. Einarssonar er sá dagsins ljós nú á sýningunni Hugviti '86. Guttormur segir hér í blaðinu í gær: 1978—79 var þetta svo orðið fullmót- að (gerviagnið) þó enn ætti eftir að sannprófa að fullu. Á þessum tíma vantaði þá vemd sem felst í einkarétt- inum ... Það er ekki fyrr en nú, í sambandi við Hugvit 86, sem sú leið opnast að hið opinbera tryggi einka- réttinn á auðveldan hátt. Þannig, kæm lesendur, hefír mörg- um góðum hugmyndum verið stungið undir stól en svo er efnt til sýningar á verkum hugvitsmanna og Guttorm- ur hlýtur verðlaun og kemst í fjölmiðl- ana. Hugmyndin verður ekki frá honum tekin. En það fengu fleiri hug- vitsmenn verðlaun á þessari sýningu. í blaðinu í gær er viðtal við einn slíkan, Ragnar Þór Bóasson sjómann, er fundið hefur upp nýja tegund af keðjulás er nefnist Snari. Ragnar Þór segir ... Ég hef reyndar fengið styrk, bæði frá Iðnlánasjóði og Fiskimála- sjóði, en það vom varla upphæðir til að tala um . . . Eins og staðan er í dag er óvíst með fjöldaframleiðslu á Snara. Það er þó enginn vafí á því, að framleiðsla sem þessi gæti verið mjög hagstæð til fjöldaframleiðslu og út- flutnings. Er ég las þessi ummæli hugvits- mannsins Ragnars Þórs varð mér hugsað til viðtals er ég las nýlega við hinn stórmerka fmmkvöðul Davíð Scheving Thorsteinsson í Heimsmynd en Davíð er nú að byggja verksmiðju í Þverholtinu er „á engan sinn líka i veröldinni... Meira að segja Jóhann- es Nordal, sem formaður Iðnþróunar- sjóðs sem lánar okkur um 40 milljónir, veit ekki hvers konar verksmiðju er um að ræða." Davíð Scheving á skilið sínar milljónir úr Iðnþróunarsjóði en líka Ragnar Þór sem fékk fyrstu verð- laun á Hugviti ’86. Reyndar hefír Ragnar lítinn tíma til að sinna Snara því hann er áfram á sjónum. Kannski vantar hann bara réttu samböndin og prófín. Slíkt gengur ekki á Upplýs- ingaöld. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNVARP Rás 2: Vinsælda- listi með nýju sniði I kvöld verður spilaður fyrsti vinsældalisti rásar 2 eftir að í gildi gengu nýjar reglur um val á honum. Þegar listinn var valinn í gær var sú regla viðhöfð að hringingar frá Reykjavík og Akureyri vega 50%, úrtak af öllu landinu sem starfsmenn rásarinnar hringja í 25% og val dagskrárgerðar- manna 25%. Og nú er bara að sjá hvaða áhrif þetta hefur. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð ■■■■ Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur íslensk kórlög. Stjómandi kórsins 2 J 45 er Þorgerður Ingólfsdóttir Fimmtudagsumræðan: Ný viðhorf í samningsréttarmálum 00 20 Fimmtudags- AiAí umræðan í kvöld snýst um ný viðhorf í samningsréttarmálum op- inberra starfsmanna. Nú standa yfír viðræður um þessi mál milli fjármála- ráðuneytisins og helstu samtaka opinberra starfs- manna og munu þessir aðilar reifa málin í þættin- um. Þátttakendur í umræðunni verða Geir H. Haarde, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, Kristján Thorlacius, formaður BSRB, Valgeir Gestsson, formaður Kennarasam- bands íslands, og einnig kemur fulltrúi frá launa- málaráði BHMR. „Þetta eru mál sem eru mjög í brennidepli núna, sérstak- lega eftir samninga lög- reglumanna og nú síðast tollvarða, þar sem verið er að fóma verkfallsréttinum fyrir kjarabætur," sagði Elías Snæland Jónsson, umsjónarmaður þáttarins, í samtali við Morgunblaðið. „Einnig verður eflaust í þættinum rætt um hluti eins og þá vaxandi tilhneig- ingu meðal opinberra starfsmanna, til dæmis í heilbrigðis- og kennara- stéttum, að líta á hópupp- sagnir sem áhrifaríkustu leiðina til að ná fram kjara- bótum." Vökulok á Bylgjunni ■■■■ Elín Hirst OQOO fréttamaður sér " O um þáttinn Vökulok á Bylgjunni í kvöld. Þetta er þáttur hugsaður fyrir þá sem eru að fara í háttinn og er létt tónlist fléttuð fréttatengdu efni. Elín Hirst UTVARP FIMMTUDAGUR 18. september 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Baen. 7.15 Morgunvaktin 7.30 Fréttir. Tilkynningar 8.00 Fréttir. Tilkynningar 8.15 Veðurfregnir 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barn- anna: „Hús 60 feðra" eftir Meindert Dejong. Guðrún Jónsdóttir les þýðingu sina (16). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. 10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir 10.30 Ég man þá tið Hermann Ragnar Stefáns- son kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Söngleikir á Broadway 1986 Sjötti þáttur: „La Cage aux Folles". Árni Blandon kynn- ir. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 I dagsins önn - Efri ár- in. Umsjón: Ásdis Skúla- dóttir. 14.00 Miödegissagan: „Ma- hatma Gandhi og lærisvein- ar hans” eftir Ved Mehta. Haukur Sigurðsson les þýð- ingu sina (16). 14.30 í lagasmiðju Jónaians Ólafssonar. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn Frá svæðisútvarpi Reykjavíkur og nágrennis. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Strengjakvartettar eftir Dmitri Sjostakovitsj. Kvart- ett nr. 11 í fis-moll op. 108. Borodin-kvartettinn leikur. Umsjón: Sigurður Einars- son. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpiö. Umsjón: Vernharður Linnet og Sigur- laug M. Jónasdóttir. 17.45 Torgiö — Tómstunda- iðja Umsjón: Óðinn Jónsson. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.60 Daglegt mál. Guðmund- ur Sæmundsson flytur þáttinn. 20.00 Ég man Þáttur í umsjá Jónasar Jón- assonar. 20.50 Tónlist eftir Þórarin Jónsson a. „Sólarljóð", tónverk fyrir sópran, fiðlu og píanó. Elisabet Erlingsdóttir syng- ur, Guðný Guðmundsdóttir leikur á fiðlu og Kristinn Gestsson á píanó. b. Orgelsónata Marteinn H. Friðriksson leik- ur. 21.20 „Heimboö", smásaga eftir Svein Einarsson. Höf- undur les. 21.45 Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur íslensk kórlög. Þorgerður Ingólfs- dóttir stjórnar. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Fimmtudagsumræöan. — Ný viðhorf í samningsrétt- armálum opinberra starfs- manna. Stjórnandi: Elías Snæland Jónsson. 23.20 Kammertónlist Strengjakvartett í G-dúr op. 106 eftir Antonín Dvorák. Vlach-kvartettinn leikur. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. /á SJÓNVARP 19.15 Á döfinni. Umsjónar- maður: Maríanna Friðjóns- dóttir. 19.25 Litlu Prúðuleikararnir. (Muppet Babies). Niundi þáttur. Teiknimyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dag- skrá. 20.40 Rokkarnir geta ekki þagnaö. Rokkhátið á Arnar- hóli. Svipmyndir frá fyrri hluta hljómleika á afmælis- hátið Reykjavikur. Hljóm- sveitirnar Bylur, Rauðir fletir og Prófessor X leika. Tækni- FOSTUDAGUR 19. september stjóri: Vilmar H. Pedersen. Umsjón og stjórn: Maríanna Friðjónsdóttir. 21.10 Kastljós. Þáttur um inn- lend málefni. 21.45 Bergerac. Niundi þátt- ur. Breskur sakamála- myndaflokkur í tiu þáttum. Aöalhlutverk: John Nettles. Þýðandi: Kristmann Eiös- son. 22.35 Seinni fréttir. 22.40 Úr framandi landi — Jó- hannes Páll II. páfi (From a Far Country). Bresk/itölsk/ pólsk kvikmynd frá 1981. Leikstjóri: Krzysztof Zan- ussi. Aðalhlutverk: Warren Clarke, Sam Neill, Christop- her Cazenove, Lisa Harrow, Maurice Denham og Jonat- han Blake. Þegar Karl Wojtyla, pólskur erkibiskup, settist í páfastól sem Jó- hannes Páll II. varð hann fyrst páfi i fjórar aldir sem ekki var af ítölsku bergi brot- inn. Atburöarásin snýst fyrst og fremst um nokkra vini og landa hins upprennandi páfa sem fylgjast með ferli hans. Myndin er um leið saga Póllands á tímum heimsstyrjaldar og stjórnar- farsbreytinga. Þýðandi: Bogi Arnar Finnbogason. 01.05 Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 18. september 9.Q0 Morgunþáttur í umsjá Ásgeirs Tómassonar, Gunnlaugs Helgasonar og Kolbrúnar Halldórsdóttur. Elisabet Brekkan sér um barnaefni kl. 10.05. 12.00 Hlé. 14.00 Andrá Stjórnandi: Ragnheiður Dav- iðsdóttir. 15.00 Djass og blús Vernharöur Linnet kynnir. 16.00 Hitt og þetta Stjórnandi: Andrea Guð- mundsdóttir. 17.00 Einu sinni áður var. Bertram Möller kynnir vinsæl rokklög frá árunum 1955—1962. 18.00 Hlé. 989 BYLGJAN FIMMTUDAGUR 18. september 6.00—7.00 Tónlist i morg- unsárið Fréttir kl. 7.00. 7.00—9.00 Á fætur með Sig- urði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður litur yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 8.00 og 9.00. 9.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur öll uppáhaldslögin og ræðir við hlustendur til há- degis. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Harðar- dóttur. Jóhanna leikur létta tónlist, spjallar um neyt- 20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö Leopold Sveinsson kynnir tiu vinsælustu lög vikunnar. 21.00 Um náttmál Gestur Einar Jónasson stjórn- ar þættinum. (Frá Akureyri.) 22.00 Rökkurtónar Stjórnandi: Svavar Gests. 23.00 Dyrnar að hinu óþekkta Fyrsti þáttur af þremur um Jim Morrison og hljómsveitina Doors. Umsjón: Berglind Gunnarsdóttir. 24.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00 10.00, 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR FRÁ MÁNU- DEGI TIL FÖSTUDAGS. 17.03—18.00 Svæðisútvarp fyr- ir Reykjavik og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyr ir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. endamál og stýrir flóamark- aði kl. 13.20. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00-lV.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Péturspil- ar og spjallar við hlustendur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00—19.00 Hallgrímur Thorsteinsson i Reykjavík siðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, litur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00 og 19.00. 19.00—20.00 Tónlist með léttum takti. 20.00—21.30 Jónína Leós- dóttir á fimmtudegi. Jónína tekur á móti kaffigestum og spilar tónlist eftir þeirra höfði. 21.30—23.00 Spurningaleik- ur. Bjarni Ó. Guðmundsson stýrir verölaunagetraun um popptónlist. 23.00-24.00 Vökulok. Frétta- menn Bylgjunnar Ijúka dagskránni með frétta- tengdu efni og Ijúfri tónlist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.