Morgunblaðið - 18.09.1986, Side 12

Morgunblaðið - 18.09.1986, Side 12
T7?r~ 12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 18. SEPTEMBER 1986 Fullkomin ísverk- smiðja tekur til starfa í Eyjum Vestmannaeyjum. NÝLEGA var hafin framleiðsla á is í nýrri og fullkominni isverk- smiðju sem hlutafélagið Eyjaís í Vestmannaeyjum hefur látið reisa í Friðarhöfn. Verksmiðjan framleiðir 60 tonn af ís á sólar- hring og kostar fullbúin um 35 milljónir króna. Verksmiðjan hefur risið með undraskjótum hætti. Undirbún- ingsfundur að stofnun félagsins var haldinn 25. janúar sl. og rétt- um sjö mánuðum síðar, eða 27. ágúst, féllu fyrstu ísmolamir út úr verksmiðjunni. Þetta var aðeins þremur mánuðum eftir að verk- takar hófust handa við byggingu verksmiðjunnar. Leitað var tilboða í verksmiðj- una og bárust sex tilboð. Eftir Fyrsta ísnum dælt um borð í mb. Sæfaxa VE. Þórarinn skip- stjóri átti leið um bryggjuna þegar byrjað var að grafa fyrir verksmiðjunni og spurði hvað til stæði. Hann pantaði þegar is um leið og verksmiðjan yrði tilbúin og fékk fyrstu bununa úr ísdælunni. Verksmiðja Eyjaíss í Vestmannaeyjum. Morgunbiaðið/Guðiaugur sjávarútvegi í Vestmannaeyjum. Hlutafé er 9,2 milljónir og nær allt þegar innborgað. Stjómar- formaður er Hilmar Rósmundsson og aðrir í stjóm Magnús Kristins- son, Sigurður Óskarsson, Óskar Þórarinsson og Jóhannes Kristins- son. Forstöðumaður verksmiðj- unnar er Guðmundur Jóhannsson rafvirki og með honum starfar Theódór Olafsson. Páll Zophoní- asson tæknifræðingur var ráð- gjafi stjómarinnar við útboð og framkvæmdir og annaðist um hönnun. Helstu verktakar vom Tvö tonn af ís, takk, segir PáU Zophoníasson, bæjarstjóri og tæknilegur ráðgjafi við uppsetningu verksmiðjunnar. vandlega athugun á tilboðunum var ákveðið að taka tilboði norska fyrirtækisins Finsam í Grimstad, en það fyrirtæki framleiddi einnig tækjabúnað ísverksmiðjanna í Grindavík og Þorlákshöfn. Verk- smiðjan í Eyjum er þó nokkm stærri. Verksmiðjan er þrískipt, vélasalur, afgreiðslurými og geymslurými. Þrír afgreiðslustað- ir em á Friðarhafnarbryggju þar sem ísnum er sprautað beint um borð í fiskiskipin. Er það til mik- ils hagræðis fyrir sjómennina. Einnig er sérstakur afgreiðslu- staður þar sem ís er dælt á bfla. Innan tíðar verður lögð sérstök leiðsla í Hraðfrystistöð Vest- mannaeyja sem þama er skammt frá með starfsemi sína. Verksmiðjan framleiðir 60 tonn af ís á sólarhring og hefur geymslurými fyrir 600 tonn. Byrj- að var að afgreiða ís frá verk- smiðjunni 3. sept. sl. og fyrstu 10 dagana vom seld 450 tonn. Hvert tonn kostar 1.200 krónur. Verksmiðjan er opin alla daga frá 8-19 nema á gámadögum, þá er opið frameftir án útkalls. Eyjaís hf. er hlutafélag 23 fyr- irtækja og yfir 40 einstaklinga í Steingrímur E. Snorrason og Ár- sæll Sveinsson, Geisli hf., Mið- stöðin sf. og Vélaverkstæðið Þór. ísverksmiðjan í Friðarhöfn verður almenningi til sýnis nk. sunnudag milli klukkan 16 og 19. - hkj. FASTEIGIM AS ALA Suðurlándsbraut 10 s.: 21870—687808—687828 Ábyrgð — Reynsla — Öryggi Skipasund Ca 55 fm kjíb. Verð 1400 þús. Hraunbær 2ja herb. ca 65 fm íb. á 1. hæð. Verð 1800 þús. Álfhólsvegur Kóp. Ca 60 fm 2ja herb. íb. á jarð- hæð. Verð 1850-1900 þús. Kleppsvegur 2ja-3ja herb. ca 70 fm góð kjíb. Verð 1400 þús. Skólabraut Seltj. Ca 90 fm 4ra herb. risíb. Suð- ursv. Seljavegur 3ja herb. ca 55 fm íb. á 3. hæð. Verð 1700 þús. Álfheimar Ca 110 fm 4ra herb. íb. á 4. hæð. Verð 2,5 millj. Bergþórugata Ca 105 fm 4ra herb. íb. á 2. hæð. Verð 2,4-2,5 millj. Álfaskeið Hf. 115 fm 4ra herb. íb. á 2. hæð. Bílsk. Verð 2,7 millj. Akurholt Mos. Einbhús á einni hæð ca 138 fm. 30 fm bílsk. Verð 4,9-5 millj. Akrasel Einbhús með lítilli íb. á jarð- hæð. Verð 7,5 millj. Birkigrund Kóp. 200 fm einbhús. Innb. bílsk. í smíðum Lúxusíbúðir i Suðurhlíðum Kóp. Sex íbúðir eftir í átta íbúöa húsasamstæðu við Álfa- heiði. Sumar af íb. eru með sérinng. og bílsk. Afh. tilb. undir trév. og máln. í maí 1987. Ennfremur 190 fm einbýli v/Sjávargötu. Áfftan. 200 fm einbýli v/Reykjafold. Fp Hilmar Valdimarsson s. 687225, Vilhjálmur Roe s. 76024, Hörður Rögnvakfsson s. 656599, Sigmundur Böðvarsson hdl. Alþjóðlega frímerkjasýningm í Svíþjóð: Islensku þátttakendurni r unnu allir til verðlauna ALÞJÓÐLEG frímerkjasýning var haldin á vegum Alþjóðasambands frímerkjasafnara, FIP, í Stokkhólmi fyrir stuttu, en nokkrir íslend- ingar tóku þátt í henni og unnu allir til verðlauna fyrir söfn sín. I tengslum við sýninguna fóru einnig fram tvö frímerkjauppboð, en eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu, var eitt íslenskt skildinga- merki úr sænsku dánarbúi, selt Bandaríkjamanni þar á 1,9 milljónir íslenskra króna. Var það hæsta verð sem greitt var fyrir frímerki á þessum uppboðum. Aðild að FIP eiga landssambönd 67 þjóðlanda og tóku 55 þeirra þátt í sýningunni í Stokkhólmi, sem fram fór dagana 28. ágúst til 8. september sl. Héðan fór hópur manna, bæði til að sýna söfn sín og einnig til að fylgjast með sýning- unni, uppboðunum og til að taka þátt í ráðstefnu, sem haldin var í lok sýningarinnar. Dómarar voru um 70 talsins og var einn íslending- ur, Hálfdán Helgason, tæknifræð- ingur, þeirra á meðal. „Þannig var að gestgjafamir, Svíar, áttu rétt á ákveðnum fjölda dómenda, en þeir nýttu sér ekki þann rétt til fullnustu og buðu því þremur erlendum dómurum að fylla flokkinn," sagði Hálfdán í samtali við Morgunblaðið. Sýningin skiptist niður í mörg sérsvið og skiptu því dómaramir einnig með sér verkum. Hálfdán sagði að fjórir einstakling- ar frá íslandi hefðu sýnt söfn sín á sýningunni og einn frímerkja- klúbbur, Askja frá Húsavík, sýndi í bókmenntadeild. • íslensku þátttakendumir hlutu allir verðlaun fyrir söfnin, en dóm- arar úthlutuðu verðlaunum fyrir hverja deild. Vom ýmis verðlauna- stig möguleg, allt frá bronsi upp í stór-gullverðlaun. Hjalti Jóhannes- son hlaut stór-silfurverðlaun fyrir safn sitt af íslenskum stimplum og Sigurður H. Þorsteinsson hlaut silf- urverðlaun fyrir flugsöfn sín og einnig silfruð-bronsverðlaun fyrir verðlista yfir íslensk frímerki, sem sýndur var í bókmenntadeild. Jón Halldórsson fékk silfmð-bronsverð- laun fyrir safn sitt af stimplum á Safnahúsið, Sigurður Þormar fékk silfmð-bronsverðlaun fyrir safii af brúarstimplum og loks hlaut frímerkjaklúbburinn Askja silfruð- bronsverðlaun fyrir póstsöguskrá, sem félagið lét gera. Hálfdán sagði að alþjóðlegar frímerkjasýningar væm yfírleitt haldnar tvisvar á ári, en þær væm að jafnaði ekki eins viðamiklar og sú sem nýafstaðin er. Frímerki em sýnd í svokölluðum „römmum", sem em um einn fermetri að stærð og væri algengt að á alþjóðlegum sýn- ingum væm sýndir á milli 3.000 og 4.500 rammar, en á þessari sýn- ingu vom um 6.000 rammar til sýnis. Er farið eftir ákveðnu punktakerfi þegar valið er hverjir sýna fyrir hönd sinnar þjóðar, en punktana vinna frímerkjasafnar- amir sér inn á bæði félaga- og landssýningum í sínum heimalönd- um. Ástæðan fyrir stærð sýningar- innar var að sænska póststjómin varð 350 ára á þessu ári og Lands- samband sænskra frímerkjasafnara varð 100 ára, svo við hæfi þótti að hafa sýninguna veglega. Þrír erlendir aðilar sýndu einnig íslensk söfn og vakti safn Norð- mannsins Harald Tysland mikla athygli, en fyrir safnið hlaut Tys- land stór-gullverðlaun. Tysland safnar aðallega bréfum frá því fyr- ir aldamót, áður en frímerki vom gefín út, og einnig frímerkjum, bæði skildinga og auramerkjum, allt til 1903. Fyrst vom gefin út frímerki á íslandi árið 1873. „Það var geysilega gaman að eiga þess kost að taka þátt í svona stórri sýningu og sjá hvemig Svíar náðu að skipuleggja svo viðamikla sýningu án þess að nokkuð færi úrskeiðis," sagði Hálfdán. „Ég held að allir, sem fylgdust með, hafi verið sammála um að þetta hafi verið í einu orði sagt stórkostleg sýning." Umboðsmaður Islands á sýning- unni var Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri, en fulltrúi ís- lands á þingi FIP var Finnur Kolbeinsson, lyfsali. Finnur sagði að hátt í 20 manns hafi farið utan frá íslandi til að sjá sýninguna, m.a. hafi þar verið sveit unglinga, sem tók þátt í norrænni keppni um að bera kennsl á svokölluð Nóbel- frímerki. Lenti íslenska sveitin, sem skipuð var unglingum 15 til 16 ára, í þriðja til fjórða sæti. Á þinginu, sem Finnur sat, vom mættir fulltrúar 55 aðildarlanda FIP og ræddu þeir ýmis málefni safnara. Engar breytingar vom þó ákveðnar á starfsemi sambandsins, að sögn Finns, en ákvörðunum um fjármálahlið sambandsins var frest- að fram til þingsins í október á næsta ári, sem fram fer í Kaup- mannahöfn. Frímerkjasöfnun er vinsælt tóm- stundagaman á Islandi, sem annars staðar, en ekki em þó allir safnarar félagsbundnir. Sagði Hálfdán að a.m.k. sex félög og klúbbar væm starfandi víðs vegar um landið og eiga þau aðild að Landssambandi frímerkjasafnara. Félagar em um 400 til 500, en Hálfdán sagði að um 4.000 manns væm áskrifendur að nýjum frímerkjum póst- og síma- málastjómar. Finnur og Hálfdán vom sammála um að frímerkjasöfnun þyrfti ekki að vera kostnaðarsöm; það væri mjög einstaklingsbundið hvað safn- aramir legðu mikla fjármuni í áhugamálið. Hálfdán sérhæfir sig að miklu leyti í söfnun bréfspjalda, en Finnur safnar helst notuðum frímerkjum. Sjálfstæðismenn á Vestfjörðum: 12.-13. október nk. Prófkjör IsaTirði. Kjördæmisráð sjálfstæðis- félaganna í Vestfjarðakjör- dæmi hefur gengið frá reglum um framkvæmd prófkjörs vegna væntanlegra Alþingis- kosninga. Níu aðilar hafa gefíð kost á sér til þátttöku í prófkjörinu, en þeir eru: Hildigunnur Lóa Högnadóttir Isafirðij Matthías Bjamason ísafirði’ Ólafur Kristjánsson Bol- ungarvík, Óli M. Lúðvíksson ísafirði, Þorvaldur Garðar Krist- jánsson Reykjavík, Einar Kristinn Guðfinnsson Bolungarvík, Guðjón A. Kristjánsson Isafqrði, Guð- mundur H. Ingólfsson ísafirði og Hallgrímur Sveinsson Hraftiseyri. Prófkjörið fer fram 11. og 12. október á 13 kjörstöðum víðsveg- ar í kjördæminu, en utankjörstað- aratkvæðagreiðsla hefst 23. september. Allir flokksbundnir sjálfstæðismenn 16 ára og eldri og þeir sem em orðnir 18 ára þegar prófkjörið fer fram og und- irrita stuðningsyfirlýsingu við Sjálfstæðisflokkinn mega taka þátt í prófkjörinu. Formaður fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Vestfjarðakjör- dæmi er Engilbert Ingvarsson bóndi á Tyrðilmýri við ísafjarðar- djúp, en formaður prófkjörsnefnd- ar er Einar Oddur Kristjánsson framkvæmdastjóri á Flateyri. Úlfar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.