Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
23
Fulltrúaráð KÍ:
Varar við minnkun ríkis-
hluta í rekstri skóla
sem ekki eru lengur innan launa-
töflu BHM er röng og væri fróðlegt
að vita, hvaðan þær upplýsingar
hafa komið. Þar sem ráðherra ætl-
aði sér skv. eigin orðum að nota
óvegið meðaltal 10 efstu flokkanna,
ætti að vera auðvelt að leiðrétta
þennan misskilning.
Það er rétt, að ráðherra og tann-
læknar mættust á miðri leið, þegar
ákveðið var að taka í notkun ný
reikningseyðublöð og hefja endur-
greiðslur að nýju. En varla telst það
til slökunaraðgerða að láta þá tann-
lækna, sem lokið hafa sérnámi í
faginu, halda þeim réttindum sem
þeir hafa haft undanfarin 10 ár, á
meðan þessi deila stendur.
Tannlæknar fagna því af heilum
hug að nú skuli kominn skriður á
þá hugmynd að lækka opinber gjöld
á aðföng til tannlækninga, en það
er fyrst nú, sex vikum eftir að slitn-
aði upp úr samningum, að nefnd í
þessu máli er fullskipuð af hálfu
ráðuneytanna og er að halda sína
fyrstu fundi.
Ráðherra segir í 11. lið frá til-
raunum sínum til að endurvekja
samningaviðræður.
20. ágúst hittust samninganefnd-
ir deiluaðila og lá þá frammi plagg
frá samninganeftid Trygginga-
stofnunar ríkisins. Þar var sett það
skilyrði fyrir áframhaldandi viðræð-
um, að tannlæknar ynnu eftir hinni
rangreiknuðu gjaldskrá ráðuneytis-
ins. Þessu var hafnað.
Þegar sú hugmynd kom fram hjá
fulltrúum samninganefndar Trygg-
ingastofnunar ríkisins að rétt væri
að efna til hópferðar um hin Norð-
urlöndin til að kanna kostnað vegna
tannlækninga, virtist hvarfla að
þeim að tannlæknar ættu þar einn-
ig hlut að máli.
Ekki hafði fengist nein staðfest-
ing á þessu tilboði og taldi stjórn
TFÍ að það hefði verið dregið til
baka eins og önnur tilboð stofnun-
arinnar. Nú upplýsir ráðherra, að
við það skuli staðið og er það vel.
Og þá er það sæmdin.
Það má skilja á orðum ráðherra,
að ég hafi í grein minni vegið að
æru hennar. Þetta kom mér ákaf-
lega á óvart, því slíkt var ekki ætlun
mín.
Eg tel víst, að orðið siðblinda
hafi fyrst og fremst valdið þessum
sárindum og eftir á að hyggja sé
ég að þar var of fast að orði kveð-
ið og biðst afsökunar á því.
Það slys, sem varð við útreikning
á gjaldskrá ráðherra og það að fella
niður launahækkun 1. sept. kenndi
ég slæmri ráðgjöf, en í þessum
málum sem öðrum hlýtur að gilda
sú gamla viska, að skylt er að hafa
það sem sannara reynist.
Höfundur er tannlæknir í
Reykjavík og formaðurgjald-
skrámefndar Tannlæknafélags
íslands.
Á FUNDI fulltrúaráðs Kennara-
sambands íslands, sem haldinn
var þann 26. ágúst sl., var sam-
þykkt samhljóða eftirfarandi
ályktun: „FuIItrúaráð Kennara-
sambands Islands varar alvar-
lega við hugmyndum um að
sveitarfélög taki á sig stærri
hluta i rekstrarkostnaði grunn-
skóla en nú er.“
í ályktuninni kom síðan fram að
þessi hugmynd komi mjög illa niðui'
á minni sveitarfélögum, einkum í
dreifbýli, sem eiga fjárhagslega erf-
itt með að reka grunnskóla.
Hugmynd þessi gangi því þveit á
megintilgang laga um skólakerfi
og grunnskóla, sem er að nemendur
hafí sem jafnasta aðstöðu til náms
án tillits til efnahags og búsetu.
KI skorar einnig á menntamála1
ráðherra að beita sér fyrir hækkun
fjárveitinga til stuðnings- og sér-
kennslu, þannig að grunnskólanum
verði gert kleift að sjá öllum nem-
endum fyrir þeirri kennslu sem ráð
er fyrir gert í lögum um grunn-
skóla og reglugerð um sérkennslu.
Fulltrúaráðið mótmælir einnig
skerðingu á fjárveitingu til Náms-
gagnastofnunar. Bent var á mikil-
vægi stofnunarinnar í menntakerfi
landsins og lögð áhersla á að vel
sé búið að henni, svo hún fái sem
best sinnt hlutverki sínu.
Stykkishólmur:
Léleg berjaspretta
Stykkishólini.
BERJASPRETTA hér í nágrenn-
inu er sáralítil miðað við það sem
áður hefir þekkst.
Hér hefir oft á r.æstu grösum
verið urmull beija, bæði blábetja
og krækibeija, en nú sjást þau
varla. Yfirleitt hefir beijaspretta
verið góð og árviss.
Fólk hefir verið að leita og helst
hefir eitthvað verið að hafa þegar
lengra er farið, svo sem í Múlasveit-
ina, þar sem enginn býr í dag og
sauðfé þar af leiðandi ekki teljandi.
Einnig mun vera nokkuð undir Jökli
en sem sagt við hér í Hólminum
getum í dag ekki talað um ber á
næstu grösum.
•ÆGURS
DUNIILP
IM » ■ aBATT. blatt
ggSíSoU --------------
»hummel^r
SPORTBÚÐIN
ARMULA 40 REYKJAVIK S:835 55
Hvar þarftu
að dæla?
Hverju þarftu
að dæla?
Fjölbreyttar, öflug-
ar dælur til flestra
verka.
Réttu dælurnar frá
FLYGT
= HEÐINN =
VELAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
Sérhæfó þjónusta.
Aöstoöum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
RADIAL
stimpildælur
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA