Morgunblaðið - 18.09.1986, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
Jarðhitaráðstefna Sameinuðu þjóðanna
Uppeldismálaþing-
KSÍ í Reykjavík
19. og 20. sept.
Kennarasamband íslands hef-
ur uppeldismálaþing í samvinnu
við Kennarafélag Reykjavikur
dagana 19. og 20. sept. nk., í
Borgartúni 6. Rætt verður um
stefnu KÍ i skólamálum. Flutt
verða erindi, umræðuliópar
starfa og loks verða pallborðs-
umræður.
í umræðuhópum verða rædd fjöl-
mörg mál er snerta skólastarf, s.s.
samfelldur skóladagur, einsetinn
skóli, námsgögn og námsgagna-
gerð, kennaramenntun o.fl.
Uppeldismálaþingið verður sett
föstudag 19. sept. kl. 13.00 og er
öllum opið. Kennarar í Reykjavík
eru sérstaklega hvattir til þátttöku.
IIMNLENT
UM ÞESSAR mundir er haldin á Hótel Loftleiðum jarðhitaráðstefna Sameinuðu þjóðanna og eru
þátttakendur á ráðstefnunni frá ýmsum löndum, aðallega þróunarlöndum. Ráðstefnan er haldin á
vegum utanríkisráðuneytisins íslenska og Orkustofnunar, i samvinnu við „Landsvirkjun" Ítalíu.
Morgunblaðið ræddi stuttlega við tvo þátttakendur í ráðstefnunni.
„Eþíópía stefnir að stór-
felldri nýtingujarðvarma,“
„Miklir möguleikar í nýtíngu
jarðvarma í rómönsku Ameríku“
HAUSTBEIT í HREPPUM
§im ' " ■
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Nýtt verðlagsár byijaði þann 1. september siðastliðinn og mjólkurkvóti síðasta árs því úr sög-
unni. Búast má við að margir bændur, sem reyndu að halda framleiðslunni niðri síðustu vikur og
mánuði verðlagsársins, reyni nú að bæta sér það upp með góðri haustbeit og tiltölulega mikil
mjólkurframleiðsla verði á næstunni. Myndin var tekin á bænum Núpstúni í Hrunamannahreppi
fyrir skömmu.
- sagði Meseret
Teklemariam, einn
fulltrúa Eþíópíu á
jarðhitaráðstefnunni
MESERET Teklemariam er
einn þriggja fulltrúa Eþíópíu á
jarðhitaráðstefnunni á Hótel
Loftleiðum. Hún er steinda-
fræðingur að mennt og starfar
við rannsóknarverkefni á sviði
jarðhita í heimalandi sínu.
Að sögn Meseret er Eþíópía
skammt á veg komin í nýtingu
jarðvarma, en hins vegar hefði
stjómin uppi áætlanir um nýtingu
Morgunblaðið/Bjami
Meseret Teklamariam.
hans. Þar eru um 8 lindir og þar
af 5 sem unnt er að nýta. „Nú
höfum við rétt nýlega lokið við
boranir og sýna þær að þessar
fimm holur geta framleitt u.þ.b.
2,5 megavött hver.“
Á síðasta ári stundaði Meseret
nám við Jarðhitaskóla Sameinuðu
þjóðanna og kvaðst hún hafa lært
mjög mikið á þeim tíma. Hún kom
aftur til landsins í ágúst og tók
þátt í ráðstefnu vatnafræðinga,
þar sem fjallað var um vatnsrof.
I framhaldi af henni stundaði hún
ýmsar rannsóknir hérlendis. „Ég
fagna því að vera komin aftur til
íslands og ég er viss um að ráð-
stefnur þessar eiga eftir að
reynast traustur grundvöllur und-
ir starfi mínu í framtíðinni."
sagði Cuellar að Mexíkó, Nic-
araqua og E1 Salvador væru
komin lengst á þessari braut;
væru starfandi orkuver í þeim
löndum. Í Guatemala og Costa
Rica væru hins vegar að rísa orku-
ver og Ecuador væri einnig mjög
langt komið í nýtingu jarðvarma.
„í þeim löndum rómönsku
Ameríku, er liggja að Kyrrahafí,
eru möguleikarnir miklir í nýtingu
jarðhita, sérstaklega í Mið-
Ameríku, og fer nýtingin vax-
andi."
Um jarðhitaráðstefnuna sagði
Cuellar að ráðstefna sem þessi
væri mjög gagnleg og í raun nauð-
synleg, enda skiptust menn þar á
upplýsingum og hugmyndum.
Einnig væri það mjög mikilsvert
að ráðstefnan færi fram á ís-
landi, sem væri komið einna
lengst í heiminum í nýtingu jarð-
varma.
Erla Þórarinsdóttir fyrir framan nokkur verka sinna.
Kaupmannahöf n:
Sýndi málverk
sín á Vesturbru
Jónshúsl.
Á VESTURBRÚ í Kaupmanna-
höfn við litla hliðargötu út frá
Vesterbrogade er Gallerí
World’s End. Þar, á „Heims-
enda“, sýndi fyrir nokkru Erla
Þórarinsdóttir málverk og teikn-
ingar. Nefndi hún sýninguna
„nden er lös“ og var þetta fyrsta
sýning hennar í Danmörku.
Erla fæddist í Reykjavík 1955
og stundaði nám við Konstfackskól-
ann í Stokkhólmi 1976—81 og
einnig við Rietweld Akademie í
Amsterdam. Síðan hefur hún haldið
margar einkasýningar og tekið þátt
í fjölda samsýninga í Stokkhólmi,
Reykjavík, New York, Norrköping,
Lundi, París, Tókýó og Helsinki.
I sýningarskrá ritar listakonan
hugleiðingar sína á frjálslegan og
skemmtilegan hátt og segir þar
m.a.: Utanlands þráði ég ísland, á
íslandi þráði ég að komast utan.
Ég hef ekki áhyggjur af því Ieng-
ur, ég held það sé einn og sami
hlutur. Nú sýni ég málverk, máluð
í Reykjavík. Ég hef líka tekið með
teikningar frá Manhattan og Brook-
lyn. Neonijósin á Manhattan eru
eins og norðurljósin. Þau lýsa upp
himininn."
Sýningu Erlu Þórarinsdóttur
lauk 13. september. G.L. Ásg.
Vesturland:
Undirbúningiir að næstu
alþingiskosningum hafinn
Stykkishólmi.
Framkvæmdastjóri sjálfstæð- í haust og þá verða teknar fullnað-
isflokksins og þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins, þeir Kjartan
Gunnarsson og Sigurbjörn Magn-
ússon, hafa undanfarið haldið
fundi á Vesturlandi með trúnað-
armönnum flokksins. Með þeim
í förinni hefir verið Hörður Páls-
son formaður Kjördæmisráðs
flokksins í Vesturlandskjör-
dæmi.
•* Tilgangur fundarins var að ræða
um væntanlegar alþingiskosningar
og hvaða leið skyldi fara til uppstill-
ingar á lista í næstu kosningum.
Þingmennimir Friðjón Þórðarson
og Valdemar Indriðason voru einnig
mættir á fundum þessum.
í Stykkishólmi var vel mætt og
urðu miklar og skemmtilegar um-
ræður um starf í næstu kosningum
og mun kjördæmisráð koma saman
arákvarðanir um alla tilhögun.
Þessi fundur var mjög gagnlegur
bæði til skoðanaskipta og ákvarð-
ana og er þegar kominn baráttu-
hugur í flokksliðið og menn
ákveðnir að gera hlut flokksins sem
bestan í næstu kosningum.
Það er ekki vafi á því að þessi
fundur var árangursríkur og svo
munu aðrir fundir hafa verið.
— Arni
Námskeið í
listmeðferð
ALMENNT námskeið i listmeð-
ferð verður haldið í Bjarkarási,
Stjörnugróf 9, nk. laugardag, 20.
september. Leiðbeinandi er
Ragnhildur Ingadóttir. Nám-
skeiðið verður haldið milli 10.00
og 16.00 og er ætlað áhugafólki
um Iistmeðferð og starfsfólki
innan heilbrigðiskerfisins.
Þátttakendum gefst kostur á að
kynnast virkum aðferðum í listmeð-
ferð með æfingum í myndsköpun
og umræðum þar að lútandi. Von-
ast er til að námskeiðið kynni
mikilvægi listmeðferðar og þann
árangur sem hún getur borið. Fyrir-
hugað er að halda fleiri námskeið
ef næg þátttaka fæst. Fjöldi þátt-
takenda er takmarkaður við 15
manns og er þátttökugjald 1.500
krónur.
Innritun er í síma 24381 milli
10.00 og 12.00 á morgnana svo og
1 nánari upplýsingar um námskeiðið.
- sagði Gustavo Cullar
frá E1 Salvador
EINN fyrirlesaranna á jarð-
hitaráðstefnunni er Gustavo
Cuellar frá E1 Salvador. Cuell-
ar var um skeið forstöðumaður
orkubúskaparáætlunar róm-
önsku Ameríku, en er nú
ráðgjafi bandarísku rannsókn-
arstofnunarinnar i Los Alamos
og sérlegur ráðgjafi orkustofn-
unar E1 Salvador.
Að sögn Cuellar er jarðhiti mik-
ill í E1 Salvador og er starfandi
95 megawatta orkuver í Ahvac-
hapan. Getur orkuver þetta
framleitt einn þriðja af allri orku-
þörf landsins og gat hann þess
að íslenskir sérfræðingar hefðu
veitt ráðgjöf við byggingu versins.
Aðspurður um stöðu ríkja róm-
önsku Ameríku í jarðhitamálum,
Morgunblaðið/Bjami
Gustavo Guellar