Morgunblaðið - 18.09.1986, Page 34

Morgunblaðið - 18.09.1986, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986 Síldarsaltendur með aðalfund í gær: Rússar áskilja sér einhliða rétt til að úrskurða í deilumálum Landshlutar deildu um hvert hlutfall síldarkvóti skuli verða af veiðunum FÉLÖG síldarsaltenda á Norður-, Austur- og Suðurlandi héldu aðaifundi sína á Hótel Sögu i gær og að hluta til var um sameig- inlega aðalfundi félaganna tveggja að ræða. Gunnar Flovenz, framkvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar flutti fundarmönnum helstu fregnir af markaðsmálum. M.a. greindi hann frá því að undirbúningsviðræður við Svía og Finna hefðu farið fram um síldarsölu, og væri niðurstaðna þeirra viðræðna að vænta á næst- unni. Þessi Iönd eru stærstu markaðirnir fyrir saltsild, að Rússlandsmarkaði undanskildum. Er Gunnar kom að viðræðunum við Sovétmenn, sagði hann m.a.: „Okkar vandamál er afstaða Sov- étmanna og fráleit skilyrði sem þeir setja.“ Er Gunnar gerði grein fyrir þeim viðbótarskilyrðum sem bor- ist hefðu frá Prodintorg, þann 8. þessa mánaðar, sagði hann m.a. að Rússar gerðu það að skilyrði að engir hringormar væru í salt- síldinni, en það skilyrði sagði hann útilokað að uppfylla, þar sem sfldin væri heilsöltuð fyrir Rúss- landsmarkað. Jafnvel þó að svo væri ekki, myndi Sfldarútvegs- nefnd aldrei fallast á slíkt skilyrði, því það myndi kosta gegnumlýs- ingu á hverri sfld. Þá sagði hann að ein viðbótarkrafa Rússanna hljóðaði upp á að endanleg yfir- taka Rússa á sfldinni færi fram í móttökuhöfn eða endanlegum ákvörðunarstað. Loks vakti Gunnar máls á því skilyrði sem hvað flestir fundar- manna lýstu sig óánægða með og töldu með öllu óaðgengilegt, í samtölum við blaðamann Morgun- blaðsins. Skilyrði Rússa var þess efnis, að ef upp kæmi ágreiningur hvað varðaði efndir á samningum, eða gæði sfldar, þá væri það ein- hliða hlutverk Rússa að skera úr um þann ágreining. Kom fram á fundinum að fundarmenn voru Gunnari sammála um að útilokað væri að ganga að þessum skilyrð- um. „Við munum alltaf neita slíkum skilyrðum og aldrei gang- ast inn á slík ákvæði. Við látum þá heldur eiga sig að semja,“ sagði Gunnar. Gunnar greindi frá því að svör Síldarútvegsnefndar hefðu verið í samræmi við skoðanir sfldarsalt- enda, þ.e. að ekki kæmi til greina að fallast á mörg þessara nýju skilyrða, auk þess sem skilyrðin frá því í sumar, um hálf-trétunnu- umbúðir, og það sem Rússar nefna „markaðsverð" væru einnig fráleit. Er Gunnar kom inn á fyrir- hugaða aukningu síldveiða hér á landi, sagði hann að Síldarútvegs- nefnd væri orðin langþreytt á ósanngjömum kröfum þess efnis að nefndin yrði að tryggja aukna sfldarsöltun í hlutfalli við auknar sfldveiðar. Hann sagði þessar kröfur vera gerðar hér, á meðan að önnur lönd gætu vegna mark- aðsskorts aðeins saltað brot af því sem veiddist. „Vaxandi sfldveiðar hér hljóta, eins og ann- ars staðar, að byggjast að veru- legu leyti á annarri vinnslu en söltun," sagði Gunnar. Frestur til að stað- festa tunnupöntun rennur út á laugardag Einar Benediktsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Sfldarútvegs- nefndar, gerði fundarmönnum grein fyrir stöðu tunnumála. Hann sagði m.a. að Sfldarútvegsnefnd hefði í sumar tryggt sér forkaups- rétt á 95 þúsund tunnum, og auk þess möguleikanum á allt að 70 þúsund tunnum til viðbótar. Hins vegar rynni fresturinn til þess að staðfesta pöntunina út nú á laug- ardag, þann 20. september. Síldarútvegsnefnd hefði því á fundi sínum í fyrradag að fara fram á frest til þess að staðfesta pöntunina, við tunnuframleiðend- urna, þar til niðurstaða úr viðræð- um við Rússa fengjust. Einar gerði einnig grein fýrir viðræðum sínum við pólsk stjórn- völd í Póllandi í sl. viku, þar sem hann hefði rætt möguleikana á sölu saltsfldar til Póllands. Enn væri ekkert komið á hreint í þessu efni, þar sem möguleg síldarkaup Pólvetja væru háð eins konar vöruskiptaverslun landanna þ.e.a.s. að Pólveijar smíði fiski- báta fyrir fslendinga og íslending- ar fái að greiða fyrir bátana með saltsfld, allt að 50% af andvirði bátanna, þegar erlendur útlagður kostnaður Pólverja er frátalinn. Sagði hann að sér sýndist sem þetta gæti þýtt 6 til 7 þúsund tunnur saltsíldar fýrir hvem fiski- bát, þar sem Pólveijar krefðust þess að fá ákveðið magn gjaldeyr- is fyrir fiskibátana einnig. Einar sagði að sér hefði komið mest á óvart í viðræðunum við Pólveija, áhugi þeirra á kaupum á frystri síld. Þeim hefði verið boðin fryst síld til kaups af Norð- mönnum, Kanadamönnum og Hollendingum á mjög hagstæðu verði. Hefðu þeir beðið íslendinga um tilboð upp á 2.000 tonn sfldar úr sjó. Kvótamálið mikið hitamál milli landshluta Hefðbundin aðalfundarstörf fé- laganna tveggja fóru síðan fram sitt í hvoru lagi og að þeim lokn- um fundaði hvort félag um sig um tillögfu stjórna beggja félag- anna þess efnis að saltsíldarstöðv- akvótinn, sem hefur verið 20% miðað við söltun sl. 6 ára, breyt- ist þannig að hann verði 40% miðað við söltun stöðvanna und- anfarin 8 ár. Voru síldarsaltendur í Félagi sídlarsaltenda á Suður- landi mjög einhuga um þessa tillögu, en á fundi Félags síldar- saltenda á Norður- og Austurlandi kom fram mjög eindregin and- staða við þessa tillögu. Sögðust Austfírðingarnir vera mjög andvígir kvóta yfír höfuð, en buðu sem málamiðlun 20% kvóta, mið- að við sl. 8 ár. Sunnlendingar höfnuðu þessu alfarið og kröfðust 30% kvóta og bentu Austfirðing- um á í allri vinsemd, að bátarnir sem veiddu síldina væru jú flestir að sunnan. Það lægi þvi í augum uppi að hægt væri að láta það vera að senda þá á miðin fýrir austan. Skilaboðin gengu á milli fund- arsala og hittust þeir Ólafur Bl. Ólafsson, formaður Félags síldar- saltenda á Suðurlandi og Her- mann Hansson, formaður Félags síldarsaltenda á Norður- og Aust- urlandi á göngum og báru skila- boð á milli. Var talsverður hiti í mönnum þegar Hermann bar Sunnlendingum það sem hann nefndi lokatilboð Austfirðinga, 25% kvóti, miðað við söltun stöðva sl. 8 ár. Sunnlendingar hugsuðu sig ekki um lengi: Ólafur kom fram á ganginn og sagði „Sá vægir sem vitið hefur meira. Við samþykkjum." Ljóst var á tali sunnlenskra saltenda eftir að þessi niðurstaða var fengin, að þeir töldu sig hafa beðið lægri hlut í þessu máli og sökuðu þeir Austfírðinga um að geta litið á málið í víðara sam- hengi. Þ.e. aðstæður kynnu að breytast á þann veg á nýjan leik, að síldin færi suður fyrir land, þannig að styttra yrði fyrir Sunn- lendinga að sækja á miðin, en Austfirðinga. Niðurstaðan stend- ur þó óbreytt - 25% kvóti, miðað við sl. 8 ár. Heimsmeistaraeinvígið í skák: Heimavinnan færði Karpov auðveldan sigur Skák Bragi Kristjánsson SAUTJÁNDA skákin í heims- meistaraeinvíginu var tefld í gær í Leningrad. Byijunin var Griin- feldsvörn, eins og svo oft áður í einvíginu. Keppendur tefldu þrettán fyrstu leikina hratt, enda þeir sömu og í fimmtándu skák- inni. í fjórtánda leik kom Karpov með endurbót á fyrrnefndri skák og náði yfirburðastöðu. í fram- haldinu fann heimsmeistarinn enga vörn, og mátti gefast upp eftir 31 leik. Karpov náði með þessum sigri að minnka muninn í tvo vinninga, og á því enn einhveija möguleika á að ná aftur heimsmeistaratitilinum. Þessi skák verður heimsmeistaran- um, Kasparov, þörf áminning um, að einvíginu er ekki lokið. Hann æddi hugsunarlaust út í heima- bruggað afbrigði Karpovs og tapaði mótspymulaust. Staðan í einvíginu er sú, að Kasp- arov hefur 9'/2 vinning, en Karpov Vh v., en sjö skákum er ólokið. Næsta skák verður tefld á föstudag. 17. skákin: Hvítt: Karpov. Svart: Kasparov. Griinfelds-vörn. 1. d4 - Rf6, 2. c4 - g€, 3. Rc3 - d5, 4. Rf3 - Bg7, 5. Db3 - dxc4, 6. Dxc4 0—0, 7. e4 — Bg4, 8. Be3 - Rfd7, 9. Hdl - Rc6, 10. Be2 - Rb6, 11. Dc5 - Dd6, 12. e5 Karpov teflir eins og í 15. skák- inni, þótt honum hafi ekki tekist að ná betra tafli í henni. 12. — Dxc5, 13. dxc5 — Rc8?! Kasparov endurtekur einnig leiki 15. skákarinnar án umhugsunar. Síðasti leikur hans lítur ekki vel út, þótt hann hafl gefist vel í áður- nefndri skák. Þekkt framhald er í þessari stöðu 13. — Rd7, 14. e6 — Bxe6, 15. Rg5 - Hfd8, 16. Rxe6 - fxe6,17. 0—0 og hvítur hefur sterka stöðu fyrir peðið, sem hann fómaði. 14. h3! Endurbót Karpovs. í 15. skákinni lék hann 14. Rb5, en komst ekkert áleiðis eftir 14. — Hb8, 15. Rxc7 — e6, 16. Rb5 — R8e7 og nokkmm leikjum síðar féll peðið á e5. 14. - Bxf3 Ekki er að sjá, að svartur eigi betri leik. Svartur getur ekki tekið á sig tvípeð á e-línunni með riddar- ann lokaðan inni á c8. 15. Bxf3 - Bxe5 Eftir 15. — Rxe5, 16. Bxb7 — Hb8, 17. c6 verður svarta staðan ekki glæsileg. 16. Bxc6 — bxc6 Nú er Ijóst, að góð heimavinna Karpovs og aðstoðarmanna hans hefur fært hvit yfirburðastöðu. Hviti hrókurinn kemst inn á d7 og svarti riddarinn á c8 stendur í vegi svörtu hrókanna. Hvítur hefur fómað peði til að ná þessari stöðu, en í fram- haldinu nær hann því aftur með vaxtavöxtum. 17. Bd4! Svarti biskupinn valdar peðið á c7, og því er sjálfsagt að skipta á honum, og að auki gæti Hb8 orðið óþægilegur leikur í óbreyttri stöðu. 17. - Bf4, 18. 0-0 - a5 Vandrasðalegur leikur, en eftir 18. - e5, 19. Be3 - Re7, 20. Hd7 er svarta staðan óglæsileg. 19. Hfel - a4, 20. He4 - Bh6, 21. Be5 - a3, 22. b3 - Ra7 Loksins er svarti riddarinn á leið- inni í spilið, en það er orðið of seint til að bjarga skákinni. 23. Hd7 - Bcl, 24. Hxc7 - Bb2, 25. Ra4 - Rb5, 26. Hxc6 Svörtu peðin falla eitt af öðru, án þess að svarti nái nokkru mótspili. 26. - Hfd8, 27. Hb6 - Hd5 Engu betra er 27. — Bxe5, 28. Hxe5 — Rd4, 29. Hxe7 o.s.frv. 28. Bg3 — RÍc3, 29. Rxc3 — Bxc3, 30. c6 — Bd4 Eða 30. — Hc5, 31. Hc4 — Hxc4, 32. bxc4 og peðið á c6 kemst upp í borð og verður að drottningu. 31. Hb7 og Kasparov gafst upp, því hann getur ekkert gert við hótuninni 32. c7 ásamt 33. Hb8 og c-peðið verður að drottningu, t.d. 31. — e5, 32. c7 - Hf8, 33. Hb8 - Hc5, 34. Kh2 - Hxc7 (34. - Kg7, 35. Hxf8 - Kxf8, 36. Hxd4 - exd4, 37. Bd6+ ásamt 38. Bxc5 og hvítur vinnur), 35. Hxf8+ - Kxf8, 36. Hxd4 og hvítur vinnur létt. Richard Neille Fyrirlestur um iðnhönnun í KVÖLD, fimmtudag, mun Ric- hard Neill, iðnhönnuður og einn aðalkennarinn í franska iðn- hönnunarskólanum Les Ateliers, ENSCI, í París halda fyrirlestur í Norræna húsinu. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 og fer fram á vegum Form Island. Fyrirlestur- inn verður fluttur á ensku með hjálp litskyggna og fjallar um hönnun í Frakklandi. Richard Neill er fransk-enskur að ættum og hlaut hann menntun sína í Englandi. Hann lærði m.a. við Royal College of Art í London og hefur unnið við iðnað, einnig sem ráðgjafi í þróunarlöndum á vegum UNICEF og UNESCO, en nú starf- ar hann einkum á sviði menntunar og við hönnun sýninga og safna. Neill er þeirrar skoðunar að menn- ingarlegt sem og Ijárhagslegt sjálfstæði megi öðlast með því að leggja áherslu á hönnun. (Fréttatilkynning.) Evrópusamtök einkaritara halda ráðstefnu í Reykjavík EVRÓPUSAMTÖK einkaritara, sem telja nú yfir 900 félagskonur í fimmtán löndum, halda árlega ráðstefnu sína í Reykjavík dag- ana 18.—20. september nk. Ráðstefnuna munu sækja liðlega 200 einkaritarar, þar af um 160 erlendir og rúmlega 40 íslenskir. Ragnar S. Halldórsson, forstjóri íslenska álfélagsins, setur ráðstefn- una föstudaginn 19. september. Þá mun Valgerður Bjarnadóttir, for- stöðumaður markaðsrannsókna hjá Flugleiðum hf., flytja erindi um gildi fjárhagsáætlana. Gæðahringar verða aðalefni ráðstefnunnar. Dr. Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri Álafoss hf. mur. fjalla um þá, gildi þeirra og markmið, og síðan verður starfað í vinnuhópum í anda gæða- hringanna. Þá mun Davíð Sch. Thorseinsson, forstjóri, stjóma hringborðsumræðum ásamt dr. Ingjaldi Hannibalssyni, Meriel Harris frá Bretlandi og Grethe Drusebjerg frá Danmörku. Ráðstefnugestum verður boðið í ferð til Þingvalla, að skoða virkjan- ir við Sog, Hitaveitu Suðumesja og fískvinnslufyrirtækið Granda hf. Þá munu forseti Islands og borgar- stjórinn í Reykjavík hafa móttökur fyrir ráðstefnugesti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.