Morgunblaðið - 18.09.1986, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
Aðalfundur sveitarfélaga á Áusturlandi
Samband sveitarfélaga á Austurlandi:
Stjórnarkjör og
stefnumörkun
Samband sveitarfélaga á Austurlandi hélt aðalfund sinn
að Egilsstöðum dagana 28. og 29. ágúst sl. Stjórn sambands-
ins skipa nú: Björn Hafþór Guðmundsson, Stöðvarfirði,
Sigfús Guðlaugsson, Reyðarfirði, Smári Geirsson, Neskaup-
stað, Aðalbjörn Björnsson, Vopnafirði, Birgir Hallvarðsson,
Seyðisfirði, Ólafur Ragnarsson, Búlandshreppi, Þórketill
Sigurðsson, Nesjahreppi, Þráinn Jónsson, Fellahreppi og
Hrafnkell A. Jónsson, Eskifrði.
Ályktanir fundarins fólu m.a.
í ser:
Austurland:
„Sérstakt
trygginga-
félag“
— eða samningar við
eitt félag
Samband sveitarfélaga á
Austurlandi hefur ákveðið
að kanna, „hvort hag-
kvæmt kynni að vera að
stofna sérstakt tryggingar-
félag til að annast trygg-
ingar fasteigna, skipa og
lausafjármuna á svæði
sambandsins. Ef ekki reyn-
ist hafkvæmt að stofna
sérstakt tryggingafélag,
verði athugða, hvort hægt
væri að semja fyrir heild-
ina við eitt tryggingarfé-
lag“.
Tillaga þessa efnis var fram
borin á aðalfundi SSA á Egil-
stöðum, sem haldin var
síðsumars.
1) Ákvörðun um að afla heim-
ilda er varða sögu sambandsins
og í frmahaldi af því að rita
sögu þess.
2) Áskorun um að tekjur
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
verði ákveðinn hundraðshluti af
heildartekjum ríkissjóðs.
3) Stefnumörkun um bætt
heilbrigðiseftirlit í fjórðugnum
og að ráðningu „fullmenntaðs
heilbrigðisfulltrúa til starfa í
fjórðugnum árið 1988“.
4) Áskorun um að teknir
verði á fjárlög „styrkir til meg-
unarvarna við fískimjölsverk-
smiðjur".
Aðalfundur Sambands sveit-
arfélaga á Austurlandi, sem
haldinn var síðsumars, fól
stjórn sambandsins að „tiln-
efna sem fyrst fimm menn I
nefnd til þess að gera tillögur
um skipulegan niðurskurð
allra riðuhjarða á sambands-
5) Áskorun til sveitarstjóma
á Austurlandi, þessefnis, „að þau
beiti sér af alefli fyrir því að
hafnar verði framkvæmdir til
þess að koma frárennslismálum
í það horf að ekki hljótist af
mengun".
6) Áskorun til Vegagerðar
ríkisins um heilsársveg milli
Vopnafjarðar og Héraðs.
7) Áskorun til heilbrigðisráð-
herra um sérfræðiþjónustu á
sviði tann- og augnlækninga á
Austurlandi.
8) Áskorun til Pósts og síma
um að Nesradío verði rekið allan
sólarhringinn með fastri vakt í
stöðinni sjálfri en fjarstýring um
Gufunesradíó lögð niður.
9) Mótmæli við „hugmyndum
menntamálaráðherra um stór-
kostlegan niðurskurð á framlög-
um ríkisins til skólaaksturs,
heimavistargæzlu og skólamötu-
neyta“.
svæðinu“.
Jafnframt skoraði fundurinn
á þingmenn Austurlandskjör-
dæmis að vinna að því „að
nauðsynleg fjárframlög fáist til
þess að hrinda í framkvæmd
slíkri áætlun, sem samstaða
næst um“.
SSA:
„Niðurskurð-
ur riðuhjarða“
Vegabætur á Hesthálsi
Borgarfirði.
Um þessar mundir er vegavinnuflokkur við vinnu á Hesthálsi.
Er vegurinn hækkaður verulega og slæmar beygjur teknar af.
Þegar farið er úr uppsveitum Borgarfjarðar til Reykjavíkur
er um 20 km styttra að fara yfir Hestháls og Geldingadraga i
stað þess að fara út fyrir Hafnarfjall. Ætti Hestháls að vera
mun lengur fær á veturna eftir þessar lagfæringar.
- PÞ
Foreldrasamtökin vímulaus æska:
Stofnfundur á
laugardaginn
STOFNFUNDUR Foreldrasam-
takanna vímulaus æska verður
haldinn í Háskólabíói á laugar-
daginn:
Húsið verður opnað kl. 13.00.
Þá kynna hljóðfæraleikarar lög af
hljómplötu sem gefín verður út í
haust til styrktar samtökunum.
Dagskrá fundarins: Formaður
undirbúningsnefndar býður fundar-
menn velkomna og tilnefnir fundar-
stjóra og fundarritara. fundarstjóri,
Magnús Bjarnfreðsson, tekur við
stjórn fundarins. Formaður undir-
búningsnefndar rekur í megindrátt-
um tildrög og undirbúning
stofnfundar. Kveðjur frá SÁÁ og
Lions. Lög samtakanna lögð fram
til umræðu og samþykktar. Kjörin
stjórn samtakanna, svo og vara-
menn og endurskoðendur. Ákveðið
félagsgjáld fyrir árið 1987. Hljóð-
færaleikarar leika 2-3 lög af
ofangreindri hljómplötu. Ávörp for-
eldris, unglings og læknis.
I fréttatilkynningu segir, að ís-
lendingum hafi verið boðin aðild að
„Norden mot narkotika“, samtök-
um foreldrafélaga á Norðurlöndum
sem hafa á stefnuskrá sinni að
vinna gegn vímuefnaneyslu barna
og unglinga. Fulltrúi undirbúnings-
nefndarinnar sat 150 manna
ráðstefnu NMN 5.-6. september sl.,
og mun formaður NMN, Leif Birg-
ander, verða gcstur stofnfundarins
í Háskólabíói.
I Gódan daginn!
raðauglýsingar — raðauglýsingar —
tilboö — útboö
..................... i i ii
Tilboð óskast
í M. Bens 190, árgerð 1986, skemmdan eft-
ir árekstur.
Bifreiðin er til sýnis hjá Réttingarþjón-
ustunni, Smiðjuvegi 40, Kópavogi, föstudag-
inn 19. september nk. Tilboði sé skilað fyrir
kl. 17.00 sama dag.
lryggingafélag bindindismanna
Lágmúla 5.
Útboð — jarðvinna
Olíubirgðastöðin á Keflavíkurflugvelli óskar
eftir tilboðum í jarðvinnu vegna byggingar
oiíubirgðastöðvar vestan nýju flugstöðvar-
innar á Keflavíkurflugvelli.
Útboðsgögn verða afhent á verkfræðistof-
unni FERLI HF., Suðurlandsbraut 4,
Reykjavík, frá og meðföstudeginum 19. sept.
nk. gegn 10.000 kr. skilatryggingu og verða
tilboð opnuð á sama stað þriðjudaginn 30.
sept. nk. kl. 14.00.
Verktími er frá 4. okt. nk. til 15. nóv. nk.
vinnuvélar
I I HAGVIRKI HF
| SÍMI 53999
Bílkrani óskast
Óskum eftir að kaupa bílkrana 30-35 tonna,
ekki eldri en árg. 1975. Upplýsingar gefur
Magnús Ingjaldsson í síma 53999.
| húsnæöi / boöi
Til leigu
Til leigu ca. 1800 fm iðnaðar-, skrifstofu- og
verslunarhúsnæði í miðbæ Seltjarnarness.
Hægt er að skipta eigninni upp í smærri ein-
ingar.
Tilboð sendist augld. Morgunblaðsins merkt:
„P - 1619“.
raðauglýsingar |
íbúðóskast
Rólegan og reglusaman forstjóra vantar ein-
staklings- eða tveggja herbergja íbúð til
leigu, má gjarnan vera með einhverjum hús-
gögnum. Vinsamlegast leggið inn nafn og
símanúmeráaugldeild Mbl. merkt: „B-1621“.
íbúð óskast til leigu
Við erum tvö, faðir og dóttir, og vantar litla
íbúð í nágrenni menntaskóla Kópavogs. Ef
þú hefur lausn þá vinsamlega leggðu inn
nafn og símanúmer inn á augldeild Mbl.
merkt: „F - 1626“ sem fyrst.
Nudd — leikfimi
Sérhæft húsnæði til leigu
Ef þú ert nuddari eða leikfimikennari getur
þú labbað þig inn í tilbúið húsnæði og orðið
sjálfstæður atvinnurekandi með það sama.
í boði er frábær aðstaða fyrir nuddstofu eða
leikfimikennslu stutt frá Hlemmtorgi. í hús-
næðinu er sauna og heitur pottur. Húsnæðið
er laust til afhendingar um næstu mánaðar-
mót. Upplýsingar í síma 25951 og 35322.