Morgunblaðið - 18.09.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
BÖRN SEM STAMA
I flestum tilfellum er óþarfi
að hafa af því áhyggjur
Mörg börn — sérstaklega strákar — ganga í gegnum „stemi-skeið“
á fjögurra eða fimm ára aldri, stundum síðar. Oft veldur þetta áhyggj-
um hjá foreldrunum, en í flestum tilfellum er ekkert að óttast. Oftast
er hér um a ræða það sem sumir nefna „þroska-stam“, sem á lítið
skylt við sjaldgæfari afbrigði af stami er stafa af vandamálum í upp-
vexti barnsins eða umhverfi. Þroska-stamið stafar af því að bamið
býr yfir mun meiri málþekkingu en orðaforðinn segir til um. Þegar
svo bamið ætlar að yfirfæra hugsanir sínar í orð verður það oft að
hika til að hnjóta ekki um orðin í ákafa sínum. Það væri réttara að
tala um að barnið ræki í vörðumar en að það stamaði.
Danskur sérfræðingur skrifði nýlega grein í þarlent tímarit um
þessi mál. Þar segir hann meðal annars: „Beztu viðbrögðin em að
láta sem ekkert sé. Sé barninu sjálfu ekki ljóst að það rekur í vörðum-
ar, eða því er sama þótt svo sé, er heppilegast að láta á engu bera.
En verði bamið hnuggið eða leitt vegna málheltinnar er réttast að
reyna að draga úr áhyggjum þess og biðja bamið jafnframt að tala
hægar og anda djúpt áður en það talar. Sjálfir ættu foreldramir að
reyna að tala rólega og nota einföld orð, alls ekki að grípa fram í
fýrir baminu, og ekki ljúka við setningar þess. Áríðandi er að baminu
finnist á engan hátt verið að reka á eftir sér, og að sjálfsögðu má
ekki gagnrýna bamið eða gera grín að staminu. Sé farið að þessum
ráðum má fullvíst telja að stamið hverfí smám saman," segir danski
sérfræðingurinn.
„Framleiðslu-
stjórnun er til-
raun til einokunar“
segir í bréf i Guðmundar Einarssonar þing
manns til landbúnaðarráðherra
GUÐMUNDUR Einarsson al-
þingismaður hefur skrifað Jóni
Helgasyni landbúnaðarráðherra
bréf þar sem varað er við fram-
leiðslustjórnun í eggja-, kjúkl-
inga- og svínakjötsframleiðslu.
Jafnframt biður hann ráðherra
að svara nokkrum spurningum
um þetta mál.
í bréfi Guðmundar segir meðal
annars: „Framleiðslustjómun er til-
raun til einokunar og gildir þar einu
hvort stjórnunin verður í höndum
bænda eða einhvers opinbers fram-
leiðsluráðs. Það er óþolandi að láta
neytendur bera brúsann af offjár-
festingu í fugla- og svínarækt, með
því að mynda einokunarsamtök til
að halda uppi verði.“
Biður hann ráðherra að svara
eftirfarandi spurningum: 1. Telur
ráðherra þörf á framleiðslustjórnun
í þessum greinum? 2. Hefur ráðu-
neytið átt frumkvæði að þessum
viðræðum? 3. Em þær með vilja
og vitund ríkisstjórnarinnar? 4.
Hvaða tillögur hafa viðræðuaðilar
lagt fram? 5. Hafa þessar viðræður
verið með þátttöku fulltrúa neyt-
endasamtaka? 6. Hvaða aðgerðum
er ráðuneytið tilbúið að beita sér
fyrir?
39
UTGERÐARMENN
- FISKVERKENDUR
RÆKJUFRYSTING
- L(®NUFRYSTING
Útvegum með stuttum
fyrirvara:
Hraðfrystitæki — lárétt — lóðrétt, margar
stærðir.
Frystivélar — skrúfuþjöppur — stimpil-
þjöppur.
Frystiblásara — allar stærðir.
Stýritæki fyrir frystikerfi.
Útvegum: kompl. frystikerfi, fyrir rækju-
frystingu.
Framleiðum: allar stærðir af lausfrysti-
tækjum.
Höfum á lager:
Frystivélar — frystiblásara — kondensa
— loftkælda — vatnskælda. Vatnskæld-
an kondens fyrir ammoniak.
Eigum til afhendingar strax:
12 stöðva lárétt hraðfrystitæki, ásamt
frystivél.
Önnumst: Uppsetningu — viðgerðir á öll-
um frystitækjum.
Leitið tilboða — verslið við fagmenn.
Kœling hf.
Réttarhálsi 2.
Símar: 32150 — 33838.
ÓDÝR
HALOGEN
AUKALIÓS
• Fást á bensínstöðvum og
varahlutaverslunum um allt land
• Verð frá 1.450 kr. (settið)
• Halogen perur innifaldar
• Auðveld ásetning
• Leiðbeiningar á íslensku
• Hvít (ökuljós) eða gul (þokuljós)
• Passa á alla bíla
• Viðurkennd vara