Morgunblaðið - 18.09.1986, Síða 48

Morgunblaðið - 18.09.1986, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986 l '' V fclk í fréttum Bobby Harrison brýtur ísinn Flestir sem eitthvað fylgjast með í poppheiminum munu kannast við Bobby Harrison, tónlistarmann- inn enska sem búsettur hefur verið hér á landi um árabil og víða kom- ið við á þeim tíma. Ekki var hann heldur aðgerðarlaus áður en hann settist að á íslandi, heldur er hann fyirverandi trymbill þeirrar frægu sveitar Procol Harum og höfundur að einu vinsælasta lagi þeirra, „A Whiter Shade of Pale“. Eftir að leiðir skildu með Bobby og félögum hans í Procol Harum gaf hann út hljómplötu í Bandaríkjunum einn og sér og gekk síðan í aðra hljóm- sveit, Snafu, sem naut talsverðra vinsælda beggja vegna Atlants- hafsins meðan hún var og hét á árunum 1972 til 1978. En allt um það, hér er ekki ætlun- in að rekja litríkan æviferil Harri- sons, heldur eiga við hann stutt spjall í tilefni af því að hann hefur nú gefíð út fyrstu hljómplötu sína á-íslenskum markaði. Isbrot heitir afkvæmið og það er Harrison sjálfur sem gefur það út, ásamt þeim Oskari F. Jónssyni og Má Óskarssyni. Titilinn segir Harrison þannig tilkominn að það hafí tekið sig langan tíma að brjóta ísinn á ýmsum vígstöðvum til þess að geta gefíð út þessa plötu. „En það tókst líka á endanum fyrir þrjósku mína og með góðra manna hjálp," segir hann. Og það er ekki ofsagt að hann njóti hjálpar góðra manna á þessum „ísbrjóti" sínum. Sjálfur sér hann um söng, bakraddir og útsetningar að hluta og semur texta. Flest lög- in eru hins vegar gerð í sameiningu af Bobby Harrison og Stefáni Stef- ánssyni. Hinir sem við sögu koma, eru auk Stefáns, þeir Bjöm Thor- oddsen, Eyþór Gunnarsson, Þórir Baldursson, Skúli Sverrisson, Pétur Grétarsson og Steingrimur Óli Sig- urðsson. Upptökunum stjómuðu Sigurður Bjóla og Gunnar Smári og útsetningar önnuðust, auk Harrisons, Stefán Stefánsson og Matthew Fisher. En sá síðastnefndi var einmitt meðlimur í hinni upp- runalegu útgáfu Procol Harum ásamt Bobby Harrison hér á árum áður. „Ég gat ekki hugsað mér að gera plötu nema hafa mér við hlið bestu tónlistarmennina sem völ var á og það hef ég svo sannarlega fengið," segir Harrison. „Þetta er einvala lið og það eru reyndar fleiri sem ég hef ástæðu til að vera afar þakklátur fyrir að veita aðstoð við þetta fyrirtæki, m.a. þeir Óskar og Már, sem hafa lagt mikið af mörk- um til að úr þessu gæti orðið." Tónlistina segir hann vera sam- bland af mörgum stefnum, jassi, rokki, blús og allra handa sveiflu, en það sem einkenni hana sé mikil tilfínning. Enda kemur á daginn að textarn- ir fjalla um ástina og eigin reynslu listamannsins af henni í ýmsum myndum. „Það er enginn ákveðinn boðskapur í þessum textum," segir Bobby, „heldur er ég þama að vinna úr mínum eigin tilfínningum og reynslu af samböndum um dag- ana.“ Eitthvað ætti maðurinn að hafa «>..rvar „Platan heitir ísbrot af því að það tók svo langan tima að brjóta ísinn,“ segir Bobby Harrison um nýj- asta framlag sitt til tónlistarlífsins. til málanna að leggja á þeim vett- vangi, því hann er þrígiftur. Best segist hann þó kunna því að vera ráðsettur fjölskyldumaður í Reykjavík, en hann er nú kvæntur Margréti Ólafsdóttur og eiga þau saman litla dóttur, Júlíu, á fýrsta ári. Lögin af „Isbrotinu" verða frum- flutt í veitingahúsinu Evrópu fímmtudagskvöldið 18. september. Vegna þess hve hljóðfæraleikaram- ir sem þátt tóku í gerð plötunnar em allir önnum kafnir menn kveðst Harrison því miður ekki geta haft þá alla með sér í kynningum þeim sem nú standa að sjálfsögðu fyrir dymm. A hinn bóginn segist hann hafa fengið í lið með sér þrjá leyni- gesti sem hann vænti þess að gefí góða raun, ásamt sér og segulband- inu. „ísland er heimili mitt núna,“ segir hann. „Og þó að margt sé hér ólíkt því sem ég átti að venjast í London og stundum erfíðara, þá fínn ég æ sjaldnar til löngunar til að fara þangað,“ bætir Bobby Harrison við um leið og hann snar- ast út úr dyrunum að sækja Júlíu litlu í leikskólann. 7'ölvurnar í Ý\ 1 ^ ^aa^r ^ að Fjölskylduhátíð hjá Eimskip í Sundahöfn að vill oft brenna við í nú- tímaþjóðfélagi að böm hafí litla hugmynd um þann heim sem foreldrar þeirra hrærast í utan heimilisins. Hvað pabbi eða mamma gera í vinnunni er þeim jafn framandi og hvað er að gerast hinum meg- in á hnettinum, þó að þau þekki kannski starfsheiti foreldranna. Þetta höfðu þeir hjá Eimskip í huga þegar efnt var til mikillar íjölskylduhátíðar í Sundahöfninni fyrir starfsfólk í öllum deildum fyrirtækisins og böm þess. „Einn tilgangurinn var að gefa bömun- um tækifæri til þess að kynnast því hvað foreldrar þeirra eru að gera dags daglega, það tókst. með ágætum og nú stendur til að halda svona §ölskyldudag árlega," sagði Tómas Möller hjá Eimskip. Hátt í 300 manns, starfsfólk af skrifstofum Eimskips, af skipum fyrirtækisins og úr Sundahöfninni ásamt börnum sínum, mætti í Sundahöfnina sl. laugardag og undi sér daglangt við ýmsa skemmtan. í mötuneyti starfsmanna höfðu verið settar upp tölvur svo hægt var að fara í tölvuleiki, sex bátar voru til ráðstöfunar við bryggju og var siglt um sundin blá og síðast en ekki síst var séð til þess að nú veit smáfólkið allt sem vert er að vita um fyrirbærið gáma. í einum gámi hafði verið útbúin aðstaða fyrir keiluspil, úr nokkr- um öðrum hafði verið gert mikið völundarhús og svo fengu bömin að mála einn gám í öllum regn- bogans litum. Það kom semsagt á daginn að af gámum má ekki aðeins hafa gagn heldur einnig gaman og voru böm Eimskips- fólks helst á því að það væri miklu skemmtilegra að hafa gáma í tólf litum en bara einum, eins og oft- ast er raunin. Lyftarar og gámakranar fengu líka að leika líka sín hlutverk í Sundahöfninni þennan dag og þegar upp var staðið hafa margir eflaust verið mun fróðari um það hvað pabbi og mamma eru að fást við í vinnunni á daginn. Einn gámurinn var hífður út i sjó og upp aftur, svo smáfólkið gæti gert sér grein fyrir því hvernig stóri gámakraninn í Sunda- höfninni er nú notaður. Það er eins gott að næra sig þegar verið er að gera viðamikla úttekt á starfsskilyrðum pabba og mömmu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.