Morgunblaðið - 18.09.1986, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDÁGUk 18. SEPTEMBER 1986
57
Leikur kattarins
ad músinni í Torino
Morgunblaðiö/Símamynd
Briachi skorar mark sitt ígærkvöldi. Guðmundur Hreiðarsson kemur engum vörnum við íValsmarkinu.
Morgunblaöiö/Símamynd
• Michel Platini átti fjölda
snilldarsendinga gegn Val og hér
er ein slík í uppsiglingu.
Michei Platini:
Hlakka til
sýningar-
innar á
íslandi
„VALSMENN byrjuðu vel en
síðan áttum við leikinn. Ég hlakka
til að spila seinni leikinn í
Reykjavík, en veðráttan gæti sett
strik í reikninginn þar. Ég vona
að sem flestir komi til að sjá
knattspyrnusýningu okkar,“
sagði Michael Platini eftir leikinn.
Platini sagði að Sigurjón Kristj-
ánsson hafi verið besti leikmaður
Vals. Hann var ánægöur með
frammistööu Juventus og sagðist
vona að leikurinn á íslandi yrði á
sama plani.
„ÉG ER ánægður með þessi úr-
slit, Juventus-liðið lék vel í kvöld.
Það slakaði aldrei á og allir leik-
mennirnir gáfu sig i leikinn,"
sagði Marchesi, þjálfari Juvent-
us, eftir leikinn í gærkvöldi.
Marchesi sagði að þessi úrslit
hefðu ekki komið honum á óvart
ef haft er i huga að annarsvegar
er um að ræða atvinnumenn og
Frá Val Jónatanssyni blaðamanni Morgun-
blaðsins í Torino, Ítalíu.
„JUVENTUS er eitt besta félags-
lið i heimi í dag og því ekki skömm
að því hjá áhugamannaliði að
tapa með 7 mörkum.
Þó svo að mér fynnist mörkin
hafa verið óþarflega mörg. Vals-
menn spiluðu eins og þeir gera
best og þrátt fyrir það er þessi
munur á liðunum," sagði lan Ross
þjálfari Vals eftir leikinn við Ju-
ventus í Evrópukeppni meistara-
liða í Torino í gærkvöldi. Þetta
var leikur kattarins að músinni,
enda kannski engin furða þar
sem áhugamannalið og eitt besta
lið heims áttust við.
Fyrstu mínútur leiksins héldu
Valsmenn í við fyrrum Evrópu-
meistarana Juventus. Valsmenn
fengu fyrsta umtalsverða og besta
marktækifæri sitt í fyrri hálfleik
strax á sjöundu mínútu. Ámundi
fékk þá sendingu upp í hægra
hornið frá Magna, gaf siðan góðan
bolta fyrir og þar kom Hilmar á
fullri ferð og skallaði rétt yfir. Leik-
menn Juventus tóku síðan öll völd
á vellinum og var eins og þeir
hefðu skynjað að þeir þyrftu að
hafa fyrir þessu.
Danski landsliðsmaðurinn Mic-
hael Laudrup gaf tóninn fyrir
Juventus með því að skora
stórglæsilegt mark og sagði hann
eftir leikinn að þetta mark væri
hans næstfallegasta á ferlinum,
hinsvegar menn sem leika knatt-
spyrnu fyrir ánægjuna eina saman.
„Ég hef aldrei vanmetið Val eða
aðra andstæðinga okkar. Þeir léku
eins og ég átti von á. Þessi byrjun
í Evrópukeppninni er sérstaklega
ánægjuleg og sýndi Laudrup að
hann er sífellt í framför, hann var
frábær íleiknum," sagði Marchesi.
og segir það meira en nokkur orð.
Hann skoraði með þrumuskoti
með snúningi af 30 metra færi
utan við vítateigshornið hægra
megin, sláin inn. „Þetta var ótrú-
legt skot, ég held bara að boltinn
hafi skipt þrisvar um stefnu í leið-
inni í markið. Skotin hjá þessum
snillingum eru engum lík og erfitt
við þau að eiga,“ sagði Guðmund-
ur Hreiðarsson markvörður um
mark Laudrups.
Það var mikil stemmning meðal
18.000 áhangenda Juventus eftir
þetta glæsilega mark og kölluðu
þeir stöðugt Laudrup, Laudrup
sem ómaði um leikvanginn. Ekki
minnkaði hávaðinn þegar hann
bætti öðru markinu við þremur
mínútum síðar, hann lék þá
skemmtilega á Ársæl sem hrein-
lega varð eftir er hann brunaði
með einni „fitt"-hreyfingu fram hjá
honum og skoraði á stuttu færi.
Þriðja markið kom svo tveimur
mínútum fyrir leikhlé og átti Platini
heiðurinn af því. Hann gaf laglega
stungusendingu inn á Serena sem
lék síðan á Guðmund markvörð
og skoraði örugglega.
Síðari hálfleikur var nánast end-
Michael Laudrup:
Næst
falleg-
asta
markið
„ÉG HEF einu sinni skorað fal-
legra mark en fyrsta mark mitt í
þessum leik,“ sagði hinn 22 ára
gamli teikmaður Michael Laud-
rup.
Laudrup sagði að fallegasta
markið hefði hann skorað á móti
Verona í fyrra. Honum fannst Vals-
liðið leika vel fyrstu 20 mínúturnar
og voru alls ekki auðveldir þann
tíma, eftir það hafi þeir náð tökum
á leiknum.
Er formsatriði fyrir ykkur að
leika seinni leikinn á íslandi?
„Allir leikir eru mikilvægir og
maður má aldrei slaka á kröfunum
ég kem því til með að sýna mitt
besta í Reykjavík eins og ég geri
alltaf," sagði Laudrup og brosti út
í annað.
urtekning á þeim fyrri og mikill
munur á þessum tveimur liðum,
enda kannski ekki saman að jafna.
Valsmenn fengu þó nokkur þokka-
leg marktækifæri í byrjun seinni
hálfleiks og var þá nokkurt jafn-
ræði með liðunum. Varnarmaður-
inn sterki Cabrini tók sig þá til og
skellti sér í sóknina þar sem ekk-
ert hafði gengið hjá félögum hans.
Hann skoraði fjórða markið á 60.
mínútu með lúmsku skoti rétt utan
vítateigs neðst í bláhornið, óverj-
andi fyrir Guðmund markvörð.
Laudrup innsiglaði síðan þrennu
sína er hann skoraði fimmta mark-
ið stuttu síðar. Þetta var í fyrsta
sinn sem hann skorar þrennu fyrir
Juventus. Hann lék á tvo varnar-
menn og hreinlega splundraði
vörninni og skoraði af stuttu færi.
Vignola sem nýlega hafði komið
inná sem varamaður skoraði sjötta
markið á 78. mínútu. Briaschi lék
þá upp að endamörkum og gaf háa
sendingu fyrir markið og þar var
Vignola sem skoraði af öryggi með
skalla yfir Guðmund.
Sjöunda markið kom aðeins 5
mínútum síðar. Platini sendi þá
eina af sínum snilldarsendingum
inn fyrir vörn Vals og lagði boltann
beint fyrir fætur Briaschi sem skor-
aði af stuttu færi. Leikmenn
Juventus virtust taka því rólega
sem eftir var leiksins og hæstán-
ægðir með þessi sjö mörk. Við
þetta fengu Valsmenn meiri tíma
og tókst Ámunda tvívegis að skapa
sér marktækifæri. Fyrst átti hann
lúmskt skot eftir aukaspyrnu Sig-
urjóns sem markvörður Juventus
Tacconi mátti hafa sig allan við
að verja, síðan skaut hann hátt
yfir í ákjósanlegu færi rétt innan
vítateigs.
Þetta var leikur kattarins að
músinni. Þarna sýndi Juventus leik
eins og hann gerist bestur. í liðinu
eru hreint frábærir knattspyrnu-
menn og tækni þeirra er með
ólíkindum. Þeir finna alltaf með-
herja og er oft eins og þeir sjái
með hnakkanum, sérstaklega eru
sendingar Platinis stórkostlegar.
Þeir nota breidd vallarins til hins
ýtrasta, leika rólega og yfirvegað
þegar þeir byggja upp sóknir sínar,
setja siðan á fullt þannig að fáir
standast þeim snúning. Flest mörk
þeirra komu eftir skyndisóknir þar
sem þeir splundruðu vörn Vals
gjörsamlega með þversendingum
yfir vítateiginn. Platini og Laudrup
stóðu nokkuð uppúr í þessum leik
það er að segja ef einhver hefur
staðið upp úr i þessu frábæra
knattspyrnuliði. íslenskur knatt-
spyrnuunnendur geta farið að
hlakka til að sjá þessa snillinga,
það verður enginn svikinn af leik
þeirra.
Morgunblaðið/Símamynd
• Michael Laudrup lék Valsvörnina oft grátt í leiknum í Torino en
hér hefur Þorgrfmur Þráinsson séð við honum.
Versta útreið
íslenskra liða
ALDREI hafa íslensk félags-
lið fengið aðra eins útreið í
Evrópukeppni eins og í þess-
um fyrri leikjum fyrstu
umferðar að þessu sinni.
íslensku liðin skoruðu ekk-
ert mark en fengu á sig
hvorki fleiri né færri en 19 í
leikjunum þremur.
Það verður að fara 14 ár
aftur í tímann til að finna aðr-
ar eins tölur og þær í
gærkvöldi. Árið 1972 tapaði
Víkingur 0:9 fyrir pólska liðinu
Legia FC á útivelli. Stærsti
ósigur íslensks liðs í Evrópu-
keppni var hins vegar 2:12
tap KR gegn Feyenoord árið
1969. Annar stór ósigur var
svo 10:0-tap KR fyrir Aber-
deen tveimur árum áður. ÍA
hefur einu sinni áður tapað
9:0 í Evrópukeppni. Það var
fyrir 16 árum í leik gegn
Spörtu í Hollandi. ÍBK tapaði
fyrir Tottenham með sömu
markatölu i Englandi ári síðar.
Á undanförnum tíu árum
hefur hins vegar enginn leikur
tapast með meira en sex
marka mun og á síðustu 5
árum hefur aðeins einn leikur
tapast með fimm marka mun,
það var tap ÍA í Beveren í
Belgíu árið 1984.
Til samanburðar má geta
þess að í fyrstu leikjunum í
Evrópukeppni á síðasta ári
skoruðu sömu lið og nú léku
sex mörk en fengu á sig fimm
— unnu tvo leiki en töpuðu
einum. En það er að vísu
besti árangur sem íslensk lið
hafa náð í Evrópukeppni.
Eins og ég
átti von á
— sagði Marchesi þjálfari