Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 6. NÓVEMBER 1986
33
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilkynningar
mmmm t!""~ '
Bændur
Skv. síðustu málsgrein 17. gr. reglugerðar
nr. 339 frá 22. júlí sl. um fullvirðisrétt í sauð-
fjárafurðum á yfirstandandi verðlagsári skulu
þeir framleiðendur, sem ætla að slátra sauð-
fé á tímabilinu 1. nóvember og til loka
verðlagsársins, gera um það samkomulag
við einhvern sláturleyfishafa og tilkynna það
til Framleiðsluráðs fyrir 20. þ.m.
Að öðrum kosti fá framleiðendur enga verð-
ábyrgð á það kjöt.
Reykjavík, 3. nóvember 1986,
Framleiðsluráð landbúnaðarins.
Útgerðarmenn
— skipstjórar
Nýbyggingar — úrfelling
Forráðamenn skipasmíðastöðvarinnar
Cochrane Shipbuilders Ltd., Selby, Eng-
landi, koma til landsins miðvikudaginn 5.
nóv. nk. og verða hér í nokkra daga til við-
tals um nýbyggingar. Opnast geta möguleik-
ar að taka eldri skip uppí.
Hringið og pantið tíma. Símar 26280-26204.
Sjávarvörur hf.,
Skúlagötu 26, Reykjavík.
tilboö — útboö
Laugarneshverfi
Aðalfundur
Aðalfundur Félags sjálfstæðlsmanna i Laugarneshverfi verður hald-
inn miðvikudaginn 12. nóvember nk. kl. 20.30 í sjálfstæöishúsinu
Valhöll. Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Skóga- og Seljahverfi
Aðalfundur
Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Skólga- og Seljahverfi verður
haldinn miðvikudaginn 12. nóvember nk. kl. 20.30 i sjálfstæöis-
húsinu Valhöll. Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjómin.
Bændur
Athygli er vakin á 19. gr. reglugerðar nr. 339
frá 22. júlí sl. um fullvirðisrétt í sauðfjárafurð-
um í haust.
Umsóknir um undanþágu frá verðskerðingu
skv. ákvæðum greinarinnar skulu hafa
borist búnaðarsamböndunum fyrir 15. þ.m.
Búnaðarsamböndunum ber síðan að skila
afgreiðslu umsóknanna til Framreiðsluráðs
fyrir 30. þ.m.
Reykjavík, 3. nóvember 1986,
Framleiðsluráð landbúnaðarins.
Sláturleyfishafar!
Vegna útreiknings á fullvirðisrétti í sauðfjár-
afurðum í haust er nauðsynlegt að fá eins
fljótt og kostur er á innleggsskýrslur sauð-
fjárafurða.
Innlegginu skal skipt á milli bænda á lög-
býlum og einstaklinga í þéttbýli eins og venja
er. Æskilegt er að fá upplýsingar á tölvudiskl-
ingum.
Skilafrestur er til 25. þ.m.
Reykjavík, 3. nóv. 1986,
Framleiðsluráð landbúnaðarins.
Háhyrningatalning
dagana 1.-14. nóv. 1986
Eins og undanfarin ár mun Hafrannsókna-
stofnunin gangast fyrir skipulegum talning-
um á háhyrningum í tengslum við aðrar
athuganir á stofninum hér við land.
Sjómenn á fiskiskipum og aðrir þeir, sem tök
hafa á að veita upplýsingar um ferðir háhyrn-
inga (fjölda hvala, staðsetningu og hvenær
þeir sjást) á tímabilinu 1.-14. nóvember nk.,
eru vinsamlegast beðnir að hafa samband
við starfsmenn stofnunarinnar um borð í
rannsóknaskipunum Dröfn RE 35, sími 985-
22574 og Mími RE 3, sími 985-20733 (einnig
um Nesradíó) eða hafa samband við stofnun-
ina í síma 91-20240.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagata 4, Pósthólf 1390,
121 Reykjavík.
Útboð
Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkur-
flugvelli býður út húsgögn í nýja flugstöð á
Keflavíkurflugvelli.
Flugstöðin er um 6000 fm að grunnfleti á
tveimur hæðum auk um 230 m langs land-
gangs að flughlaði. Afhendingu húsgagn-
anna skal lokið 1. apríl 1987.
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verk-
fræðistofunni, Fellsmúla 26, Reykjavík, frá
og með miðvikudeginum 5. nóv 1986 gegn
20.000 kr. skilatryggingu.
Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skulu
berast Almennu verkfræðistofunni eigi síðar
en 21. nóv. 1986.
Tilboðum skal skilað til byggingarnefndar,
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins,
Skúlagötu 63, 105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00
föstudaginn 5. des. 1986.
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli.
Kópavogur — Kópavogur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Kópavogs
verður haldinn i Sjálfstæðishúsinu Hamra-
borg 1. 3ju hæð fimmtudaginn 13. nóv. kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ávarp formanns Sjálfstæðisflokksins
Þorsteins Pálssonar.
3. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjómin.
Almennur félagsfundur
Hvatar
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna i Reykjavík
heldur almennan félagsfund í kjalíarasal
Valhallar i dag fimmtudaginn 6. nóv. nk.
kl. 12.00.
Dagskrá:
1. Kosning uppstillingamefndar fyrir aðal-
fund félagsins 18. nóv. nk.
2. Gestur fundarins verður Sólveig Péturs-
dóttir lögfræðingur.
Léttur hádegisverður verður á boöstólum.
Sjálfstæðiskonur fjölmennið og takið meö
ykkur gesti.
Stjómin.
Útboð
Fjallalax hf. óskar eftir tilboðum í eldisker
fyrir seiðastöð.
Um er að ræða eftirfarandi kerjastærðir og
fjölda:
Ker 2x2 m. 120 stk.
Ker 4x4 m. 36 stk.
Ker 9m. íþvermál 20stk.
Útboðsgögn verða afhent frá og með 6.
nóvember á skrifstofu Fjallalax, Síðumúla 37,
Reykjavík, sími 688210 og Hallkelshólum,
Grímsneshreppi, sími 99-6415.
Útboðsgögn kosta kr. 8000 þús.
Tilboðum skal skilað 18. nóvember.
Aðalfundur
Aðalfundur fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfé-
laganna í A-Hún.
verður haldinn laug-
ardaginn 8. nóv. nk.
i félagsheimilinu á
Blönduósi og hefst
kl. 14.00.
Pálmi Jónsson al-
þingismaður og
Vilhjálmur Egilsson
hagfræðingur mæta
á fundinn.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Framboösmál.
3. Stjórnmálaviðhorfið.
Stjómin.
Mosfellssveit
— Viðtalstími
Hreppsnefndarfull-
trúarnir Helga
Richter og Óskar
Kjartansson verða
tií viðtals i Hlégaröi
fimmtudaginn 6.
nóvember kl.
17.00-19.00.
Sjálfstæóisfólag Mosfellinga.
Vestlendingar
Kjördæmisráð sjálfstæðisfélaganna í Vest-
urlandskjördæmi efnir til skoðanakönnunar
um skipan framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í kjördæminu fyrir næstu alþingiskosn-
ingar í Hótel Borgarnesi laugardaginn 8.
nóvember kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Kjörfundur settur, fyrri umferð.
2. Ráðstefna um landbúnaðarmál.
Frummælendur dr. Stefán Aöalsteins-
son og Óðinn Sigþórsson, bóndi Einars-
nesi.
3. Ráðstefna í öðrum sal um iönaöar- og
sjávarútvegsmál. Frummælendur Birgir
isleifur Gunnarsson alþingismaður og Björn Dagbjartsson al-
þingismaður.
4. Seinni kjörfundur settur kl. 18.00.
Að loknum fundi verður sameiginlegt boröhald fulltrúa ásamt mökum
þeirra. Að loknu þorðhaldi veröur stiginn dans. Hljómsveit leikur
fyrir dansi.
Undirbúningsnefnd.