Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986 51 Miklir yfirburðir gegn ísrael — ungu leikmennirnir stóðu sig vel Frá Jóni Ólafssyni, fróttaritara Morgunblaðsins í Hollandi. „ÉG er mjög ánægður með þenn- an leik, liðið var samhent og stemmningin góð, en ég átti alls ekki von á svona stórum sigri,“ sagði Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliöi íslenska landsliðsins í handknattleik, eftir stórsigur ís- lands gegn ísrael, 27:16, á al- þjóðlega mótinu, sem hófst í Hollandi í gærkvöldi. Leikur íslenska liðsins var mjög góður, allir fengu að spreyta sig og er greinilegt að framtíðin er björt, því ungu strákarnir stóðu sig mjög vel. Árni Friðleifsson er fæddur leikstjórnandi, Héðinn Gilsson síógnandi og Blikabræð- urnir, Björn og Aðalsteinn Jónssyn- ir, léku vel í sínum fyrsta landsleik og voru mjög óeigingjarnir eins og reyndar allir leikmenn íslenska liðsins. Fyrri hálfleikur var frekar jafn, en íslenska liðið skoraði fyrsta markið og hélt forystunni út leik- inn. Vörnin var sein í gang, en Brynjar Kvaran var vel á verði og varði 10 skot í hálfleiknum. Hann var besti maður liðsins ásamt Bjarna Guðmundssyni, sem var eini íslenski atvinnumaðurinn í leiknum, Þorgils Óttari og Árna. í fyrri hálfleik skoraði íslenska liðið mörg mörk eftir hraðaupp- hlaup og oftar en ekki var það Bjarni, sem rak endahnútinn á sóknirnar, en þetta var hans 186. landsleikur. Staðan í hálfleik var 13:9, en seinni háifleikur var enn betri hjá íslenska liðinu. Bogdan lét þá ungu mennina leika, en það kom ekki að sök, því strákarnir léku ákaflega vel saman og leikkerfin gengu upp aftur og aftur. Þrátt fyrir að fjögur vítaköst færu forgörðum var 11 marka sigur staðreynd þegar upp var staðið. Mótspyrnan var ekki mikil, en eigi að síður ber að fagna þeim aga, er einkenndi leik íslenska liðs- ins, því strákunum hefur oft gengið illa að einbeita sér gegn lakari lið- um. Bjarni Guðmundsson skoraði 7 mörk i leiknum, Steinar Birgisson lék vel og skoraði 5 mörk, Þorgils Óttar Mathiesen 4, Árni Friðleifs- son 3, Björn JÓnsson 3, Héðinn Gilsson 2, Júlíus Jónasson, Geir Sveinsson og Guðmundur Guð- mundsson eitt mark hver. Hjá ísrael var landflótta Sovétmaður- inn Kushnir atkvæðamestur með 4 mörk. í kvö|d verður leikið gegn Bandaríkjamönnum og verður sá róður mun erfiðari ef að líkum lætur. • Bjarni Guðmundsson stóð sig vel gegn ísrael f gærkvöldi og skor- aði 7 mörk. Kvennahandbolt: Evrópuúrslit Evrópukeppni meistaraliða: Fyrri leikur Samtals Juventus — Real Madrid, vitak. (1:3) 1:0 0:1 2:4 (Cabrini) FC Porto — Vitkovice Ostrava 3:0 0:1 3:1 JAndre, Celso, Futre) Rauða stjarnan — Rosenborg 4:1 3:0 7:1 (Cavekovic 2, Mrkola 2 — Serioth) 0:2 1:3 Austria Wien — Bayern MUnchen (Toni Polster — Roland Wohlfarth) Stpua Riikflrest — Anderlecht 1:1 1:0 3:1 0:3 1:3 Dynamo Kiev — Celtic (Blokhin, Yakavenko, Yevtushenko — McGhee) Dynamo Berlin — Bröndby 1:1 1:2 4:2 2:3 . 1:1 ÍEmst - ViHort) Hapoel Nicosia — Besiktas ekki ieikið Besiktas áfram Evrópukeppni bikarhafa: FC Sion — GKS Katowice . 3:0 2:2 5:2 BSÆA'Sfög-R.pidWi.n . 2:1 1:1 3:2 (e. framl. ) (Richter, Leitzke — Kienast) Wrexham — Real Zaragosa . 2:2 0:0 2:2 (Massey, Buxton — Petricicio Yanez 21 VelezMostaar — Vitoscha Sofia (Stuce 2, Gudeli, Matisjevic — Sirarovz, Iskrenov) Stuttgart—Torpedo Moskva . 4:3 0:2 0:2 4:5 3:7 . 3:5 I (Klinsmann, Paalc, Ásgelr - Savttachav 2, Muschtruyev 2, Ptotnikov) Bordeaux — Benfica . 1:0 1:1 2:1 íyercruysse) Malmo Ff — Nentori Tirana . 0:0 3:0 3:0 Olympiakos — Ajax (Kapouranls — Wautere) . 1:1 0:4 1:5 Evrópukeppni fólagsiiða: Atletico Madrid — Guimares ,. 1:0 0:2 1:2 (Jorge da Silva) Bayer Uerdingen — Vidsev Lodz (Dziuba sjálfsm., Oliver Bierhoff) Xamas — Groningen . 2:0 ,. 1:1 0:0 0:0 2:0 1:1 (Sutter - Van Dljk) Atletico Bilbao — Beveren .. 2:1 1:3 3:4 (Argote, Femando — Fairclough) Boavista — Rangers .. 0:1 1:2 1:3 kporting Lissabon — Barcelona (Negrete, Meede - Roberto) Leverkusen — Dukla Prag .. 2:1 .. 1:1 0:1 0:0 2:2 1:1 (Göte - Vadura) Feyenoord — Monchengladbach .. 0:2 1:5 1:7 (Uenen og Uwe Rahn) Brandenburg — Gautaborg .. 1:1 0:2 1:3 (Voss - Rantanan) Ghent — Sporual Studentec .. 1:1 3:0 4:1 (Hinderyckx - lorgulescu) Inter Milano — Legia Varsja .. 1:0 2:3 3:3 (Pietro Fanna) Rahn Fto Torino .. 1:1 0:4 1:5 frakía'Provídiv — HadjukSplit (Mladenov, Paehev - Dayeric, Bureac) Standard Liege — Tyról .. 2:2 1:3 3:5 .. 3:2 1:2 4:4 Un. Craiova — Dundee Utd .. 1:0 0:3 1:3 Spartak Moskvu — Toulouse .. 5:1 1:3 6:4 (Rudakov 2, Novikov 2, Rodlonov — Jean Duran) Einstefna gegn Finnum — Guðríður Guðjónsdóttir hefur skorað 38 mörk í fjórum leikjum KVENNALANDSLIÐIÐ í handknattleik lók síðasta leikinn f riðlinum í C - keppninni á Spáni í gærkvöldi og burstaði finnsku stúlkurnar 35-14 eftir að staðan hafði verið 17:6 í hálfleik. Að sögn Hilmars Björnssonar, þjálfara íslenska liðsins, var um hreina einstefnu að ræða hjá íslensku stúlkunum og greinilegt Stuttgart fékk slæma útreið Ásgeir skoraði en meiddist Fré SigurAI BJömssyni, fróttaritara Morgunblaðsins i V-Þýskalandi. að sumarþjálfunin hefði skilað sér, því liðið héldi áfram að bæta sig með hverjum leik. Guðríður Guðjónsdóttir fór á kostum, skoraði 14 mörk og hefur því skorað 38 mörk í fjórum leikj- um. Erla Rafnsdóttir skoraði 8, mörk, Katrín Frederiksen 4, Ingunn Bernódusdóttir 3, Erna Lúðvíks- dóttir 2, Arna Steinsen 2, Guðný Gunnsteinsdóttir 1 og Guðrún Kristjánsdóttir eitt mark. Stúlkurnar leika gegn Sviss í kvöld um 5. sætið og sagði Hilm- ar, að mikill hugur væri í stúlkunum að sigra og bæta fyrir tapið gegn Sviss í fyrra. STUTTGART fókk slæman skell f seinni leiknum við Torpedo frá Moskvu í Evrópukeppni bikar- hafa. Þeir töpuðu á heimavelli, 3:5, Torpedo vann fyrri leikinn með tveimur mörkum gegn engu. Ásgeir Sigurvinsson skoraði þriðja mark Stuttgart en varð síðan að yfirgefa völlinn vegna meiðsla á öxl og er talið að hann verði frá keppni f 6 vikur. Mushtruyev skoraði fyrsta mark Torpedo á 10. mínútu. Yuri Savichv bætti öðru við tveimur mínútum síðar. Klinsmann minnkaði muninn fyrir Stuttgart á 16. mfnútu. Plodnikov skoraði þriðja mark Topedo, en Pasic minnkaði mun- inn fyrir Stuttgart með glæsilegu marki. Yuri bætti svo fjórða mark- inu við fyrir Sovétmenn og þannig var staðan í hálfleik. Stuttgart fékk aukaspyrnu á 55. mínútu sem Klinsmann tók. Hann renndi boltanum til Ásgeirs sem þrumaði honum uppundir þak- netið, 3:4. Fimm mínútum síðar var brotið gróflega á Ásgeiri þar sem hann óð upp kantinn. Hann kom illa niður á öxlina og varð að yfirgefa leikvöllinn. Læknir liðsins sagði eftir leikinn að Ásgeir yrði Guðmundur til Þórs GUÐMUNDUR Valur Sigurðsson, einn besti leikmaður Breiðabliks á síðasta keppnistímabili, hefur gengið til liðs við Þór frá Akur- eyri og mun leik með þeim í 1. deildinni næsta sumar. frá í minnst 6 vikur og væri það mikið áfall fyrir liðið. Taliö er að liðband í öxl hafi rifnað. Stuttgart varð því að leika einum leikmanni færri það sem eftir var, þar sem þeir höfðu skipt báðum varamönn- um sínum inná. Mushtruyev, sem skoraði fyrsta markiö, bætti því fimmta við á síðustu mínutu leiks- ins. Áhangendur Stuttgart voru mjög óhressir eftir leikinn og hróp- uðu „burt með Coordes þjálfara", en gengi Stuttgart hefur ekki verið eins og þeir hafa vænst. Bræður í landsliðinu Frá Jónl Ólafssyni, fréttsritara Morgun- blaöslns I Hollandi. TVEIR bræður lóku í íslenska landsliðinu f handknattleik í gærkvöldi, þeir Bjöm og Aðal- steinn Jónssynir. Slfkt er frekar fátftt, en sfðast lóku Alfreð og Gunnar Gfslason sama leikinn, áður Gunnar og Ólafur Einarssynir og enn fyrr Geir og Örn Hallsteinssynir. Meistararnir úr leik Arnór og Atli áfram EVRÓPU M EIST ARAR meistara- liða undanfarin tvö ár, Steaua Búkarest og Juventus, eru úr leik í Evrópukeppninni að þessu sinni og eiga misheppnaðar vftaspyrn- ur stóran þátt í þvf. Real Madrid vann Juventus 1:0 í fyrri leik liðanna og að framleng- ingu lokinni í gærkvöldi var staðan í opnum og góðum leik liðanna 1:0 Juventus i hag. Eins og margir ótt- uðust, stóðust leikmenn Juventus ekki álagið í vítaspyrnukeppninni, Vignola var sá eini sem skoraði, en Butragueno, Valdano og Gomez sáu um sigur Real Madrid. Steaua Búkarest tapaði fyrri leiknum 3:0 gegn Arnóri og félög- um hjá Anderlecht, en átti góða möguleika á að komast í 2:3 sam- anlagt í gærkvöldi. Staðan var 1:0 og tæplega 40 mínútur eftir, þegar Steaua misnotaði vítaspyrnu og þar með var draumurinn úti. Sovésku liðin stóðu sig vel í gærkvöldi. Dynamo Kiev átti ekki í erfiðleikum með Celtic í meistara- keppninni, Torpedo sigraði Stuttg- art léttilega í keppni bikarhafa og Spartak tók Toulouse í kennslu- stund í keppni félagsliða. Þrjú lið frá Vestur-Þýskalandi halda einnig áfram, þrjú frá Spáni og tvö sænsk svo dæmi séu tekin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.