Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
21
Launin mín felast ekki í
bíla- og ferðakostnaði
eftir Gunnlaug
Stefánsson
I skýrslu nefndar, er kannaði
sérstaklega gagnrýnisverð atriði í
rekstri Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar, eru launamál mín og annars
starfsfólks stofnunarinnar gerð að
umræðuefni. Síðan hafa nokkrir
fjölmiðlar fjallað um þau mál og
gefið alranga mynd af því hver laun
okkar eru. Það hefur verið gert
með því að leggja saman föst laun,
yfirvinnu, ferðakostnað og bíla-
kostnað og fullyrt að þetta séu
heildarlaun. Hér er auðvitað um
grófa rangtúlkun að ræða.
Samkvæmt launasamningi
mínum við Hjálparstofnun kirkj-
unnar, sem miðaður er við launa-
taxta opinberra starfsmanna, var
ég 1. nóv. 1985 með 310 kr. á
hveija unna klukkustund í dag-
vinnu. A sama tíma voru stunda-
kennaralaun við framhaldsskóla kr.
320 fyrir hveija kennslustund. Þær
greiðslur er ég fékk í laun utan við
dagvinnu voru sannanlega unnar
yfirvinnustundir samkvæmt gild-
andi kjarasamningi. Bíla- og ferða-
kostnaður er ekki laun heldur
útlagður kostnaður.
Eg vil taka fram að samkvæmt
starfshefð hjá Hjálparstofnuninni,
þá er föstu starfsfólki meinað að
vinna önnur launuð störf.
A Hjálparstofnun kirkjunnar
starfar fámennt starfslið undir álagi
og mikilli ábyrgð. Þar gengur vinna
Gunnlaugur Stefánsson
Skýrslan gefur því
enga heildarmynd af
umfangsmiklu starfi
hjálparstof nunarinnar,
heldur fjallar fyrst og
fremst um gagnrýnis-
verð atriði.
fyrir fjölskyldu og tómstundum. En
launin eru miðuð við gildandi kjara-
samninga og ekki útaf þeim
Síðari bindin af ís-
lenzkum sögustöðum
HJÁ ERNI og Örlygi eru komin
út lokabindin í ritinu Islenskir
sögustaðir eftir Kristian Kálund
í þýðingu dr. Haraldar Matthías-
sonar.
Þessi tvö síðari bindi fjalla um
Norðlendingafjórðung og Austfirð-
ingafjórðung, en áður voru komin
út tvö bindi sem fjölluðu um Sunn-
lendingafjórðung og Vestfirðinga-
fjórðung. I lokabindinu er auk þess
kafli um Miðhálendið, Fjarðaskrá
frá því um 1300, íslenskar hafnir
á síðari hluta 16. aldar og Fjarða-
skráin í sérstöku víkkuðu formi.
Einnig eru í ritinu skrár yfir staða-
og mannanöfn, atriðisorðaskrá og
ritaskrá.
Dr. Haraldur Matthíasson ritar
eftirmála þýðanda og segir þar
m.a.: „Sögustaðalýsing Kálunds er
því í fullu gildi enn. Vart mun
nokkur fræðimaður fást svo við
staðfræði í Islendingasögum, að
hann vitni ekki til Kálunds, og ein-
att er það rit aðalheimildin, Sumir
vitna jafnvel í það í stað þess að
skoða sjálfir."
íslenskir sögustaðir er að öllu
leyti unnin í prentsmiðjunni Odda
hf.
Grensáskirkja:
Kvenfélagið með
basar og kökusölu
LAUGARDAGINN 8. nóvember
verður basar og kökusala Kven-
Miklaholtshreppur:
Fáskrúðar-
bakkakirkja
50ára
Borg, Miklaholtshrcppi.
SUNNUDAGINN 9. nóvember
næstkomandi verður við messu í
Fáskrúðarbakkakirkju minnst 50
ára afmælis kirkjunnar. Á henni
hafa verið gerðar verulegar end-
urbætur, bæði ytra og innra.
Að lokinni messu verða kaffiveit-
ingar í félagsheimilinu Breiðabliki.
Núverandi og fyrrverandi sóknar-
börnum, og öðrum velunnurum
kirkjunnar er boðið af þessu tilefni.
Messan hefst klukkan 14.
- Páll.
brugðið, nema ef vera skyldi að
starfsfólk legði af mörkum vinnu-
framlögn án launa.
I skýrslu nefndarinnar er sett
spurnarmerki við nauðsyn þess að
ferðast sé til Vesturlanda. Hér talar
nefndin af vanþekkingu. Hjálpar-
stofnunin verður að eiga náið
samband við systurstofnanir í ná-
grannalöndum, m.a. um sameigin-
leg hjálparverkefni, við öflun
áreiðanlegra upplýsinga í hjálpar-
starfinu, um mikil fjármálasam-
skipti, en stofnuninni var falin
ráðstöfun tíu og hálfrar milljónar
króna til hjálparverkefna árin ’84
og ’85 af systurstofnunum á Vest-
urlöndum. Án samskipta við systur-
stofnanir á Vesturlöndum væri
starfsemi Hjálparstofnunarinnar
kák eitt.
Skýrsla nefndarinnar er engin
heildarúttekt á starfí Hjálparstofn-
unar kirkjunnar. f erindisbréfí
kirkjumálaráðherra um verkefni
nefndarinnar segir að hún „eigi að
upplýsa staðreyndir um starfsemi
stofnunarinnar“. En í inngangsorð-
um sínum segir nefndin orðrétt:
„Nú verða rakin helstu atriði fram-
kominnar gagnrýni og niðurstöður
nefndarinnar á þeim gagnrýnisat-
riðum.“ Nefndin hnykkir á þessum
ásetningi sínum í skýrslunni þar
sem stendur „og er í því sambandi
ekki rætt um hjálparstarfsemi inn-
anlands, sem gagnrýni hefur ekki
beinst að“. Skýrslan gefur því enga
heildarmynd af umfangsmiklu
starfi hjálparstofnunarinnar, heldur
fjallar fyrst og fremst um gagnrýn-
isverð atriði. Það er hæpið að leggja
heildardóm á störf stofnunarinnar
út frá þessari skýrslu einni.
Hinu ber að fagna að gagnrýnin
liggur fyrir og það fyrir opnum
tjöldum. Hjálparstofnunin óskaði
sjálf eftir þessari athugun og ákvað
sjálf að birta alla skýrsluna opin-
berlega til þess að deila gagnrýni
og vandamálum með almenningi,
svo byggja megi fordómalaust upp
enn öflugra hjálparstarf. Mættu
fleiri feta í þau fótspor.
En það sem athugunin leiddi
fyrst og síðast í ljós var að hjálp-
arfé kemst til skila og í raun er
aðstoðin meiri en framlög íslenskra
gefenda standa undir. Það finnst
mér bera vott um að starfsfólk
stofnunarinnar vinnur fýrir kaupinu
sínu og gott betur.
Höfundur er starfsmaður Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar.
félagfs Grensáskirkju. Verður
þar á boðstólum margt eigulegra
muna og gómsætar kökur.
Miklar framkvæmdir hafa átt sér
stað í Grensáskirkju, nýtt gólf í
anddýri, ný teppi og fleira er á
döfinni. Nýtt áklæði verður sett á
stólana og vonandi verður því lokið
fyrir jól. Þá höfum við hug á að
eignast nýja skírnarskál og altaris-
dúk og síðast en ekki síst stefnum
við að því, að kirkjan eignist nýtt
orgel.
Allt kostar þetta mikla fjármuni.
Kvenfélagið hefur dyggilega stutt
allar framkvæmdir í kirkjunni og
gefið henni marga góða muni og
ég veit að það mun gera það áfram
og það viljum við þakka.
Ein leið kvenfélagsins til fjár-
söfnunar er basar og kökusala. Ég
vil því skora á allt safnaðarfólk, svo
og aðra vini og velunnara Grensás-
kirkju, að styrkja þennan basar með
gjöfum og koma svo og versla vel
á laugardaginn kl. 14. Kvenfélags-
konur, hafið þökk fyrir gott starf.
Halldór S. Gröndal
SÉRFRÆÐIÞEKKING A SVIÐI
rFLirawGS-
OG \1ARK VDSMALA
12 mánaða skipulagt nám á sviði útfiutnings- og markaðsmála hefst 4. des-
ember 1986. Námið fer fram á ensku en er haldið með aóstoð Norska út-
flutningsskólans og njóta nemendur sömu viðurkenningar og um útskrift frá
þeim skóla væri að ræða.
Æskilegt er að nemendur tengi námið eins og unnt er daglegum störfum
sinum, vinni þeir við sölu- eða markaðsstörf. Skólinn getur aóstoöað þá sem
stunda önnur störf vió aó verða þeim úti um verkefni hjá útflutningsfyrir-
tækjum.
Að námi loknu geta þeir nemendur er þess óska komist I nokkurra mán-
aða starfsþjálfun á vegum skólans erlendis.
ÞAU ERU REYNSLUNNI RÍKARI:
Hafsteinn Vilhelms-
son: „Námskeiöin
hafa veitt mér
ómetanlega undir-
stöóu fyrir störf mín
hjá Útflutningsmið-
stöó iðnaðarins og
síðan Útflutningsráði
islands. “
Þröstur Lýðsson:
„Það er ekki spurn-
ing aö námskeiöið
hentar öllum peim
sem sinna markaðs-
málum, ekki ein-
göngu með útflutn-
ing I huga, heldur
einnig hér innan-
lands."
Elln Huld Arnadóttir:
„Námskeiðið hefur
komið mér að miklu
gagni I mlnu starfi
fyrir Vikurvörur hf.
og opnað mér fram-
tíðarmöguleika I
starfi.
Efni námskeiöa:
Námskeid 1 4.-6. des. 1986 kl. 9.00—17.00 • Hvað er útfiutningur • Hvað er markaössókn • Munurinn á sölu- starfi og markaðsstarfi • Stetnumótun fyrirtækja • Mótun fyrirtækja • Alþjóðlegar reglur um útflutning • Stofnanir 1 þágu útflutningsaóila • Söfnun markaósupplýsinga • Hagnýt verkefni • Heimaverkefni
Námskeiö 2 11,—13. mal 198 kl. 9.00—17.00 • Söluráðar (4p) • Val á mörkuðum • Val á vöru • Vöruaðlögun • Vöruþróun • Dreifileiðir • Verðstefna • Stjórnun og áætlanagerð útflutnings • Hagnýt verkefni • Heimaverkefni
Námskeid 3 24.-26. nóv. 1987 • Helstugreiðsluskilmálarm Greióslufyrirkomulag • Starf á vörusýn- ingum • Vöruflutningar • Útflutningsreglur • Útflutningslán • Sölu- og samningagerð • Hagnýt stýring á útflutningi • Skriflegt próf
ADALLEIÐBEINENDUR:
Lasse Tveit framkvæmdastjóri Norsk Kjedeforum og Arvid Sten Kása fram-
kvæmdastjóri Útflutningsskóla Noregs.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR ERU VEITTAR í SÍMUM 621063/621066.
o#
Svómunarféiag
islands
UTFLUTNINGSOG
MARKADSSKÓLI ÍSLANDS
Ánanaustum 15 ■ 101 Reykjavík • S 91 -621063 ■ Tlx2085
4*"
4"