Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
41
en móðir mín, sem var sunnlensk
prestsdóttir og átti allar ættarrætur
fyrir sunnan, elskaði Akureyri.
Margir lögðu orð í belg og sýndist
sitt hveijum. Það var orðið heitt í
kolunum þegar pabbi drap umræð-
unum skemmtilega á dreif með því
að slá endapunktinn í rifrildið með
eftirfarandi setningu: „Það er að-
eins tvennt fallegt hér um slóðir;
Kaldbakur og konan mín."
Foreldrar Gústa voru Agúst
Jónsson, útvegsbóndi og vitavörður
í Ystabæ í Hrísey, og kona hans,
Rósa Jónsdóttir, bæði svarfdælskra
ætta. Tvö systkini Gústafs eru enn
á lífi. Þau eru: Svanfríður María,
búsett á Akureyri, ógift, og Oddur
kaupmaður á Akureyri, fyrrum
vitavörður og útgerðarmaður í
Ystabæ í Hrísey, kempulegur harð-
kvæntur karl, sem sker sig úr
fjöldanum.
Eftir heimkomu frá námi gerðist
Gústaf kennari við Menntaskólann
á Akureyri og prófdómari, endur-
skoðandi í stjórna.rráðinu og yfir-
endurskoðandi SÍS. Þá var hann
líka um skeið framkvæmdastjóri
útgerðarfélagsins Oturs. Síðustu
aidursárin vann hann sem fulltrúi
Reykjavíkurborgar. Því starfi
gegndi hann fram á síðustu ár.
Hann missti fyrri konuna fyrir
aldarfjórðungi frá fimm afbragðs-
börnum. Hún var einstök mann-
kostamanneskja. Hún hét Karitas
Jochumsdóttir skipstjóra Þórðar-
sonar frá Móum á Kjalamesi, sem
hvarf í hafi á fyrri stríðsárum. Hún
var þremenningur við móður mína
og bar Karitasamafn langömmu
minnar. Föðurbróðir hennar, dr.
juris Bjöm Þórðarson, forsætisráð-
herra, ól hana að mestu leyti upp.
Böm Gústafs og Karitasar eru:
Guðmundur bankafulltrúi, Sigurður
forstöðumaður, Oddur deildarstjóri
hjá Sjónvarpinu, Sigrún dreifingar-
stjóri í Ohio, Bandaríkjunum og
Diljá, sem ber hið dularfulla Diljár-
nafn ættar okkar. Öll eiga þau
maka og böm. Síðari kona Gústafs
hét Nanna Káradóttir úr Vest-
mannaeyjum og var líka afbragðs-
kona og Gústafi mikils virði. Hún
lést eftir tólf ára sambúð.
Á Endurskoðandaskrifstofunni
miklu á Heilags-anda-stræti við
Milljón-synda-torg, fyrir austan
tungl og sunnan sól, á Gústaf
ábyggilega miklar innistæður fyrir
allt það góða og elskulega, sem frá
hjartalagi hans hefir stafað hér á
jarðríki í tæp áttatíu ár. Nú er þessi
góði drengur og eyfirski eyjar-
skeggi svifinn á brott á englavængj-
um þöndum, eins og þegar gaf hvað
bestan byr á ægifögrum Eyjafirði
forðum. Vitaskuld var stefnan tekin
á sjálft Gullna hliðið, þar sem útsýn-
ið er hvað fegurst til Hríseyjar, þar
sem ijúpan og krían eiga sér grið-
land og Hríseyjarviti mannlífsins
heldur áfram að lýsa og vísa leiðina
gegnum móðu og mistur á sjálfri
lífssiglingunni.
Örlygur Sigurðsson
Prentþjónusta
Vegna fjölmargra óska hefur Tölvufræðslan
ákveðið að veita félagasamtökum, einstakling-
um og fyrirtækjum aðstoð við að gefa út
fréttabréf og tilkynningar. Starfsemin fer
þannig fram að viðskiptavinir koma með texta
í handriti eða á disklingi en Tölvufræðslan sér
um prófarkalestur og alla útlitshönnun.
Nánari upplýsingar í síma 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 2B
MACINTOSH
MACINTOSH-tölvan markar tímamót í tölvu-
hönnun. Á námskeiðinu er farið rækilega í þá
stórkostlegu möguleika sem tölvan býður uppá.
Dagskrá:
★ MACINTOSH, stórkostleg framför í tölvu-
hönnun.
★ Teikniforritið MACPAINT
★ Ritvinnslukerfið MACWRITE
★ Ritvinnslukerfið WORD
★ Töflureiknirinn MULTIPLAN
★ Gagnasafnskerfið OMNIS 3
★ Ýmis hugbúnaður á MACINTOSH
★ Útprentun á laserprentara
★ Umræður og fyrirspurnir.
Tími: 8. og 9. nóvember kl. ÍO—17
Ath. Endurmenntunarsjóðir BSRB og VR greiða
hluta af námskeiðsgjaldinu fyrir félaga sína.
Innritun í símum 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28, Reykjavík.
Borghildur Magnús
dóttir — Minning
Fædd 20. júní 1902
Dáin 26. október 1986
Eg vil hér með nokkrum orðum
minnast kærrar vinkonu sem nýlega
er látin. Hún andaðist í Kaup-
mannahöfn eftir margra mánaða
veikindi, þar hafði hún átt sitt heim-
ili á sjöunda áratug. Ung að árum
hélt hún til Danmerkur til hjúkr-
unamáms, sem síðar varð hennar
ævistarf, lengst af starfaði hún í
Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn.
Hún kunni vel við Dani og felldi
sig vel að siðum þeirra, eignaðist
hún þar marga góða vini sem hún
hélt ævilangri tryggð við.
Borghildur var borinn og bam-
fæddur Reykvíkingur, foreldrar
hennar vom hjónin Sigurveig Run-
ólfsdóttir frá Bakka hér í bæ og
Magnús Jónsson skipstjóri ættaður
frá Auðsholti í Ölfusi. Hún var að-
eins sex ára gömul þegar faðir
hennar drukknaði elst þriggja
systra. Foreldrar hennar höfðu þá
nokkm áður reist sér hús vestur í
bæ, þar sem hún ólst upp hjá móð-
ur sinni og systmnum tveimur þeim
Siguijónu og Jónínu og afa og
ömmu meðan þeirra naut við.
Þó Borga, en svo var hún jafnan
kölluð meðal ættingja og vina,
byggi lengst af erlendis gleymdi
hún aldrei ættingjum og vinum hér
heima, hún var svo minnug á alla
afmælis- og tyllidaga að undmn
sætti, hún minnti mann jafnvel
sjálfan á slíka daga og eftirminnan-
leg er hún systrabömum sínum sem
minnast þess enn frá því þau vom
ung þegar pakkamir frá Borgu
frænku vom að koma. Á seinni
ámm eftir að hún var komin á eftir-
laun kom hún hér oft og dvaldist
þá hjá syni sínum og tengdadóttur,
en hann hafði hún eignast ung, ólst
hann upp hjá ömmu sinni og móður-
systur Jónínu og manni hennar
Georg Guðmundssyni skipstjóra
sem síðar urðu hans kjörforeldrar.
Hjá Magnúsi syni sínum, Svein-
björgu konu hans og bömum undi
hún sér vel, hún kom að jafnaði
einu sinni á ári heim nú síðari árin
og var henni það ætíð mikið til-
hlökkunarefni.
Henni skal hér þökkuð áralöng
vinátta, ættingjum hennar sendi ég
hugheilar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu hennar. .
Vinkona
TÖLVUSKÓU
Stjórnunarfélag íslands hefur undanfarin þrjú misseri starfrækt
tölvuskóla, þar sem kennd er forritun og kerfisfræöi. Námið byggir aö
verulegu leyti á hönnunar- og forritunarverkefnum sem hafa það
markmiö að nemendur öólist færni í aö beita þeim aöferöum sem
kenndar eru. Sum verkefni eru tekin beint úr atvinnulífinu, önnur eru
tilbúin, en leitast er við aö láta þau endurspegla raunveruleikann.
Námstlmi er 280 klst., kennt er 4 klst. á dag, frá kl. 8 á morgnana til 12
á hádegi, alla virka daga í 14 vikur. Þessi tími dagsins er erfiöur fyrir
þá sem vilja stunda vinnu jafnhliða námi.
Þetta nám er nú hægt að stunda I áföngum á kvöldin. Sama náms-
efni er þá kennt I 7 áföngum. í forritunaráföngum geta nemendur
valið milli ýmissa forritunarmála, s. s. Pascal, C, Fortran eöa Cobol.
Einnig dBase III+ , sem kennt veröur í tengslum við gagnasafns-
fræöi. Ekki er nauósynlegt aö Ijúka náminu, hver og einn getur tekió
þá áfanga sem honum hentar. Fyrsti áfanginn hefst mánudaginn 27.
október.
grunnur
• •
FORRITUNIII
KERFISHONNUN
KLST
40
KLST
námskeiö.
1AKynningáe'nkatölvum.
__ stýrikerfiö MS-DOS.
__ Ritvinnslukerfiö Word.
__ Töflureiknirinn Muitip^am
__ Gagnasafnskerfið dBaseui +
FORR'TUN»
UNAR-OG
,fræðibraut
2__3 kvöld i viku, kl. 1»-*»
Ánanaust 15.
Stjórnunarfélag íslands
TÖLVUSKOLl
■!« t Ánanaustum 15 • Slmi: R210 66 PWWf'
Góðan daginn!