Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
19
Altarisdúkur gefinn Reykhólakirkju
Miðhúsum, Reykhólasveit.
VIÐ barnaguðsþjónustu í Reyk-
hólakirkju sunnudaginn 2.
nóvember færði Guðrún
Valdimarsdóttir ljósmóðir, sem
er fædd 1897 að Strandseljum í
Ogurhreppi, Reykhólakirkju og
söfnuði hennar, að gjöf fagran
altarisdúk. Altarisdúkurinn er
gefinn til minningar um frænku
hennar og systur sóknarprests-
ins, Braga Benediktssonar, Elínu
Sigp-íði Benediktsdóttur, sem var
fædd 20. október 1938 að Hvanná
í Jökuldal.
Guðrún dó 23. febrúar 1972, að-
eins 33 ára gömul, frá eiginmanni
sínum, Óla Stefánssyni í Merki í
Jökuldal og fimm börnum þeirra.
Guðrún dvelur nú á heimili fyrir aldr-
aða að Dalbraut í Reykjavík og
afhenti hún dúkinn sjálf. Þessi altar-
isdúkur er hinn þriðji sem hún
saumar. Einn gaf hún kapellu dval-
arheimilisins að Dalbraut og annan
gaf hún Árbæjarkirkju í Reykjavík. presturinn Bragi Benediktsson
Guðrún var einn mánuð að sauma þakkaði gefanda fyrir hönd sóknar-
þennan fallega altarisdúk með Harð- nefndar og safnaðar.
angurs- og Klaustursaumi. Sóknar- Sveinn.
REDOXON
Mundir þú
C-vítamíninu í mo
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Sagt er þú mátt vantreysta öllum
nema sjálfum þér,
—jafnvel guðirnir geta ekki hjáipað
þeim
er sleppir tækifærinu.
— reynsia kynslóðanna —
Eg sleppti sannarlega ekki
tækifærinu þegar meðfylgjandi
fiskuppskrift lá fyrir.
Þetta eru að sjálfsögðu hinar
ágætustu
Fisksteikur,
marineraðar
og glóðar-
steiktar
800 gr ýsa eða lúða
25 gr smjörlíki brætt
3 matsk. rifinn laukur
'/i tsk. paprikuduft
salt og pipar eftir smekk
1. Fiskflök eru roðflett og skorin
í hæfilega stór stykki. Þau eru síðan
sett í eldfast mót.
2. Smjörlíkið er brætt, síðan eru
paprikan, sítrónusafinn og rifinn
laukur sett saman við brædda feitina
og blandað vel. Þessu marinaði er
síðan hellt yfir fiskstykkin og þau
marineruð í 30 mínútur.
3. Fiskurinn er síðan glóðarsteikt-
ur í 5 mínútur á hvorri hlið, marinaði
er ausið yfir fiskinn öðru hvoru á
meðan hann er að steikjast. Salt (og
pipar) er stráð á fiskinn eftir steik-
ingu.
4. Fiskurinn er borinn strax á
borð með soðnum kartöflum og
fersku grænmeti.
Grænmetisdiskur:
Raðað á disk:
Tómatar skomir í báta,
hluti af agúrku skorin í þunnar
sneiðar og
gulrætur skornar eftir endilöngu í
strimla.
Einnig má rífa niður gulrætumar og
skera papriku niður í bita
og bera salatsósuna fram í sérstakri
skál.
Getur þá hver og einn blandað sitt
eigið hrásalat.
Grænmetið í hrásalat á alltaf að
vera ferskt og nýskorið. Því er hald-
ið fram að skorið grænmeti hafí eftir
6 klukkustundir þegar misst helming
C-vítamíninnihalds. Því er vafasamt
næringargildi grænmetis sem legið
hefur í feitum sósum innpakkað á
hillum matvöruverslana dögum sam-
an.
Verð á hráefni
Ýsa 800 g ........ kr. 148
1 sítróna ....... kr. 15
'/2 kg kartöflur .. kr. 21
Kr. 184
Hinnýja,
almenna
- I ENN HÆRRI VEXTI LOTUSPARNAÐAR
1. LOTA: 18 mánuðir 16,04% ársávöxtun
2. LOTA: 24 tt 16,59% n
3. LOTA: 30 ti 17,15% n
4. LOTA: 36 íi 17,71% íi
Innlánsreikningur með Abót
15,49% ársávöxtun
Eigir þú fé á Innlánsreikningi með Ábót og takir þú það ekki út í 18 mánuði
samfleytt, þá hefurðu náð 1. LOTU og 16,04% ársávöxtun.
Þetta gildir um inneignir frá og með 1. nóvember 1986.
6 mánuðir í viðbót án úttektar spanna 2. LOTU sem færir þér
16,59% ársávöxtun og svo koll af kolli, þar til 4. LOTA er að baki
og 17,71% ársávöxtun er náð.
EINFALT
Eina skilyrðið til þátttöku er að þú eigir fé á Inn-
lánsreikningi með Ábót. Framhaldið ræðst alger-
lega af því hvað þér hentar hverju sinni.
a) Þú nýtur fullra Ábótarvaxta hvern þann mánuð sem þú
tekur ekki út af reikningnum.
Og nú reiknast þeir frá innleggsdegi!
b) Um leið getur þú verið að reyna við 1. LOTU án nokkurra
skuldbindinga og þarft ekki að tilkynna það neinum.
Liggi fé óhreyft á Innlánsreikningi með Ábót í 18 mánuði,
þá hækkar ársávöxtun úr 15,49% í 16,04%.
Hækkunin gildir fyrir allt tímabilið sem féð
ÖRYGGI ÞITT
Öryggi þitt felst í þessum einfaldleika. Þú sleppir
aldrei umráðarétti yfir þínu fé, bindur það aldrei
með neinum samningi. Daginn sem þú telur þig
hafa meiri not fyrir spariféð í öðru en að safna á
það Lotuvöxtum, — þann dag sækirðu það í
bankann. Jafnframt nýtur þú ávöxtunar þeirrar
lotu sem þú laukst, en Ábótarávöxtunar, hafirðu
ekki lokið þeirri fyrstu. Að sjálfsögðu nýturðu
verðtryggingar Innlánsreiknings með Ábót allan
tímann.
stóð óhreyft eftir 1. nóvember sl.
Hér er um almenna sparnaðaraðferð að ræða vegna þess að engu er hætt til,
ALLT AÐ VINNA, ENGU AÐ TAPA.
ILIOITIU
SPARNAÐUR
HIN NÝJA, ALMENNA SPARNAÐARAÐFERÐ
GYLMIR/SlA