Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986 25 Sovétmenn ögra Svíum Talsmenn sænska sjóhersins skýrðu frá því í fyrradag, að sovéskur tundurspillir af Kashin-gerð hefði haft frammi alvarlegar ögranir við Orion, eftirlitsskip sænska sjóhersins. Gerðist þessi atburður 6. október sl. á alþjóðlegri siglingaleið í Eystrasalti. Orion lenti í árekstri við sovéskt herskip 25. október fyrir ári og sökuðu þá Svíar Sovétmennina um að hafa siglt vísvitandi á skipið. Efri myndin er af sovéska tundurspillinum en sú neðri af Orion. Bandarísku gíslarnir í Líbanon: Bandaríkj astj órn sögð hafa heitið Irönum hergögnum TALSMAÐUR Bandaríkjafor- seta ítrekaði í gær bann stjórn- valda við vopnasölu til Iran. Orðrómur hefur verið á kreiki um að Bandaríkjastjórn hafi lof- að írönum hergögnum gegn því að þeir aðstoðuðu við lausn gisla- málsins í Beirút. Fréttir herma að Robert McFarlane, fyrrum öryggismálaráðgjafi Bandaríkja- forseta, hafi farið til íran fyrir tveimur mánuðum. Bandaríska stórblaðið The Washington Post hafði í gær eftir ónefndum bandarískum embættis- mönnum að íranir hefðu fengið loforð um hergögn gegn því að þeir veittu Bandaríkjamönnum lið í baráttu þeirra gegn hryðjuverkum. Ríkisútvarpið í Israel skýrði frá því í gær að Israelsstjórn hefði boðist til að veita Bandaríkjastjórn aðstoð við lausn málsins. Sagði í fréttum útvarpsins að Israelar hefðu að undanförnu selt írönum varahluti í bandarískan vopnabúnað með sam- þykki Bandaríkjastjórnar. Larry Speakes, talsmaður Bandaríkjafor- seta, bar þessar fréttir til baka og sagði vopnasölubannið vera í fullu gildi þar til íranir létu af stuðningi við hermdarverkamenn. Jimmy Carter, fyrrum Banda- ríkjaforseti, setti vopnasölubannið í nóvembermánuði árið 1979 eftir að íranskir hermenn höfðu ráðist inn í bandaríska sendiráðið í Teheran og tekið starfsfólk þess sem gísla. Reagan Bandaríkjaforseti hefur staðfest bannið á hveiju ári frá því hann komst til valda. IRNA, hin opinbera fréttastofa írana, skýrði frá því í gær að Robert McFarlane, fyrrum öryggis málaráðgjafi Bandaríkjaforseta, hefði komið til landsins í því skyni að bæta samskipti stjórnarinnar í Teheran og Bandaríkjamanna. Fréttastofan hafði eftir t.alsmanna íranska þingsins að McFarlane hefði verið handtekinn og rekinn úr landi fimm dögum síðar. Sagði talsmaðurinn McFarlane hafa kom- ið til landsins ásamt ijórum öðrum Bandaríkjamönnum í flugvél með hergögn innanborðs. Robert McFarlane hefur ekki viljað tjá sig um þetta mál. Talsmaður Bandaríkjaforseta ítrekar vopnasölubann Washington, Nicosia, Tel Aviv, AP. Vinningsfé fljótt að fara Pittsfiold, Massachusetts.AP. MAÐUR er vann 1 milljón dollara í happadrætti fyrir 7 árum, drap sjálfan sig og hundana sína fimm síðastliðinn sunnudag, þar sem hann sá ekki fram á að geta unnið sig út úr alvarleg- um fjárhagsvanda. Earl C. Thompson og hundam- vana. Hann hætti vinnu sinni sem ir fundust í bílskúr Thompson og öryggisvörður er hann fékk vinn- höfðu látist úr kolsýringseitrun. inginn og það fyrsta sem hann Happadrættisvinningurinn hafði keypti sér voru nokkrir hundar ekki fært Thompson hamingju, og voru þeir nánast það eina sem því hann dó vinasnauður og fé- hann átti er hann lést. Iran: Khomeini sagður alvarlega veikur Beirút, Líbanon, AP. LÍBANSKT tímarit skýrði frá því i gær að Ayatollah Ruhollah Khomeini, Ieiðtogi írana, hefði nýlega fengið alvarlegt hjartaá- fall. í grein í tímaritinu „A1 Shiraa" sagði að hófsamir meðlimir stjórnar Khomeinis og harðlínumenn ættu nú í mikilli valdabaráttu og að trú- arleiðtoginn gæti ekkert. aðhafst sökum veikinda. Tímaritið hafði eftir ónefndum írönskum embættis- manna að Khomeini væri rúmliggj- andi og gæti ekki sinnt skyldustörf- um sínum þar eð hann hefði nýlega fengið alvarlegt hjartaáfall. Ayatollah Khomeini er 86 ára gamall. Á undanförnum árum hefur hann oftlega dregið sig í hlé til hvíldar og andlegrar hressingar og hafa þá iðulega komist á kreik sögusagnir um að hann væri alvar- lega veikur eða látinn. SAMBANO ISLENSKRA KRISTNIEiOOSFELAGA TAKIÐ EFTIR Þarftu að rýma til í gullakassa barnanna eða geymsl- unni. Leyfðu okkur þá að njóta þess, því flóamarkaður okkar til ágóða fyrir kristniboð og líknarstarf í Eþíópíu og Kenya verður haldinn í kristniboðshúsinu Betaníu, Laufásvegi 13, laugardaginn 8. nóvember frá kl. 14.00. Tekið á móti góðum munum föstudaginn 7. nóvember kl. 17.00—20.00 á sama stað. Nánari upplýsingar gefnar í síma 17536. Mundu i kristniboðshúsinu Betaníu, Laufásvegi 13. Framkvæmdanefndin. Stórkostleg nýjung sém sparar pláss staklega vél þa húsrými er lítið þarft d. að þvo íbaðherberginu YMSAR :astíllingar, þar af ein fyrir 15 mismunandi þvoi Tekur inn á sig heit jllarþvott snunmgá vind. velja tvenns ki \ þurrktinartím við þurrkunina þannig að ráða HAFNARSTRÆT 1l3-20|455-SÆTÚN(8- S: ^7500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.