Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986 Prestastefna ’86 Borgarnesi. STÆRÐAR listaverki skaut nýlega upp við þjóðveginn hjá bænum Brennistöðum í Borgar- hreppi. í fyrstu var almennt ekki vitað hver ætti heiðurinn af uppsetningu þessa verks, sem er kröftug höggmynd úr áli. Nú er það hins vegar ljóst að það var listvinurinn Hall- steinn Sveinsson, 83 ára vist- maður á Dvalarheimilinu í Borgarnesi, sem keypti lista- verkið og lét selja það þarna upp. Til að forvitnast nánar um þetta mál hafði fréttaritari Morgun- blaðsins í Borgamesi tal af Hallsteini Sveinssyni, þar sem Borgarfj örður: Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Hallsteinn Sveinsson við verkið „Tvíhöfða“ sem hann lét setja upp við þjóðveginn hjá Brennistöðum í Borgarhreppi. „Tvíhöfði“ skýtur upp kollinum í Borgarhreppi Hallsteinn Sveinsson gaf verkið sem er eftir Hallstein Sigurðsson hann var við trésmíðar í kjallara dvalarheimilisins, innan um aska og aðra muni sem hann hefur smíðað og skorið út. Aðspurður um höggmyndina sagði Hallsteinn að hún héti „Tvíhöfði" og væri eftir Hallstein Sigurðsson mynd- höggvara sem væri bróðursonur sinn. Kvaðst Hallsteinn hafa keypt verkið af nafna sínum og látið setja það upp í landi Brenni- staða, en þar byggju frændur sínir. „Ég ætla nú að gefa Borgar- hreppi verkið, en það hefur ekki orðið formlega af því enn þá,“ sagði Hallsteinn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hallsteinn auðgar þetta hérað með listaverkum. Á sínum tíma gaf Hallsteinn Listasafni Borgar- fjarðar Qölda málverka sem urðu uppistaða í þvi safni. Og utan við Dvalarheimilið em tvær högg- myndir, önnur framan við húsið og heitir hún „Forsetinn", en hin er á hól handan við götuna og heitir „Hyminga", bæði verkin em eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggv ara. Hallsteinn Sveinsson var bróðir Ásmundar heitins Sveinssonar myndhöggv- ara og kvaðst Hallsteinn hafa stuðlað mjög að því að verkið „Sonatorrek" eftir Ásmund kæm- ist á áfangastað á Borg á Mýmm. Sagði Hallsteinn að jiað hefði allt- af verið ætlun Ásmundar að verkið færi að Borg. Sagði Hall- steinn að í seinni tíð væri hann hrifnari af höggmyndum en mái- verki, ekki síst vegna þeirra breytinga sem yrðu með tímanum á þeim höggmyndum sem væm úti og væm unnar úr góðmálmum s.s. kopar og áli. TKÞ Hallsteinn í kjallara Dvalarheimilisins í Bor- gamesi með ask sem hann hefur gert. Stuðningur við Kvennaathvarf meðal margra ályktana sem voru samþykktar EIN fjölmennasta prestastefna sem komið hefur saman hérlend- is lauk fundum sínum á þriðjudag í síðustu viku. Um 120 prestar sátu stefnuna enda tengdist hún vígslu Hallgrímskirkju. Aðalefni stefnunnar var: Boðun kirkjunn- ar i lok 20 aldar. Var fjallað um efnið i framsöguerindum, hóp- starfi og almennum umræðum. Fram kom að aldamót eru eðlileg skil, tilefni til uppgjörs og því við hæfí að kirkjan geri úttekt á starfí sínu og skipulagi, ekki síst með það í huga að árið 2000 minnist kirkjan 1000 ára kristni hérlendis. Er þess því að vænta að kirkjan fjalli um þetta efni frá ýmsum sjónarhomum næstu árin. Það kom fram hjá öllum fram- sögumönnum að kirkjan hlýtur að starfa með tvennum hætti. Annars vegar meðal fjöldans og hafi þar áhrif á viðhorf og skoðanir þjóð- félagsins og nýti sér þar fjölmiðla, mannamót, fræðslustarf og stofn- anir sínar. En kirkjan hlýtur líka að starfa í litlum hópum og virðist fólk líka hafa æ meiri þörf fyrir að heyra til lítils hóps, þar sem það á sér griðland og nýtur sín. Fram kom á prestastefnu að starf kirkjunnar hlyti í vaxandi mæli að fara fram innan litla hópsins, jafnframt því sem hún lætur rödd sína heyrast í þjóðfélaginu með þann boðskap sem hún hefur að flytja frá Herra sínum. Prestastefna verður í Borgamesi í júní 1987. Meðal ályktana prestastefnunnar 1986 em: Ferlimál fatlaðra Prestastefna íslands, haldin í Hallgrímskirkju 26.-28. okt., fagn- ar því að hreyfihamlaðir skuli komast hindmnarlaust inn í hina nývígðu Hallgrímskirkju og lýsir ánægju sinni yfír því að nú skuli unnið að því að gera þeim kleift að komast af eigin rammleik að altari kirkjunnar. Prestastefnan beinir því til annarra safnaða að gjöra slíkt hið sama. Aukin þjóð- félagsumræða Prestastefna íslands haldin í Hallgrímskirkju 26.-28. október 1986 telur brýnt að kirkjan verði virkari aðili í mótun þjóðfélagsum- ræðnanna og fagnar því fram komnum hugmyndum um þjóð- málahreyfingu kirkjunnar. Hallgrímskirkja verði opin alla daga Prestastefnan haldin í Hallgríms- kirkju 26.-28. október árið 1986 fagnar þeim áfanga sem náðst hef- ur með vígslu Hallgrímskirkju í Reykjavík og lýsir þeirri ósk, að hægt verði að hafa kirkjuna opna alla daga ársins með lifandi boðun heilags orðs og tóna. Leitað verði leiða til að standa straum af þeim kostnaði, er af því leiðir hjá opin- berum aðilum og héraðssjóðum. Stuðningur við kvennaathvarf Prestastefna íslands, haldin í Reykjavík 26.-28. október, þakkar starfsemi Samtaka um kvennaat- hvarf. Prestastefnan hvetur til stuðnings við þessa starfsemi og aðrar aðgerðir til hjálpar þeirri mannlegu neyð, sem kvennaat- hvörfin hafa átt þátt í að vekja athygli á. Endurskoðun laga um prestskosningar fagnað Prestastefna íslands 1986 haldin í Hallgrímskirkju í Reykjavík fagn- ar ákvörðun kirkjumálaráðherra Jóns Helgasonar um að taka til endurskoðunar lög um veitingu prestsembætta og visar til fyrri samþykkta prestastefna og kirkju- þinga. Prestastefnan fagnar þeim stuðningi sem aðrir alþingismenn hafa veitt þessari lagabreytingu. Biskupi þakkað fram- lag til baráttu gegn vímuefnum Prestastefna íslands haldin í Reykjavík 26.-28. okt. 1986 flytur biskupi sínum, herra Pétri Sigur- geirssyni þakkir fyrir framlag hans í baráttu gegn fíkniefnavandanum á íslandi. Skipulagt starf að mál- efnum fjölskyldunnar og sálgæslu Prestastefnan samþykkti og að tekið verði upp skipulagt starf að málefnum ijölskyldunnar, þannig að einstaklingum og fjölskyldum verði veittur stuðningur með margskonar fræðslu. Einnig að söfnuðir geti fengið bákhjarl við sitt starf að sama efni. Borgarráð: Tillaga um stofn- un f iskmarkaðar Á fundi borgarráðs á þriðjudag var samþykkt tillaga frá Bjarni P. Magnússyni, varðandi stofnun fiskmarkaðar í Reykjavík. Lagt er til að borgarráð feli borg- arstjóra og hafnarstjóra að hefja viðraeður við Eimskipafélag íslands um undibúning að stofnun fisk- markaðar í Reykjavík. Borgarstjóra er falið að ákveða hvaða varaaðila hann kveði til viðræðnanna vegna undirbúningsins, sem og hvort og hvenær auglýsa beri stofnfund hlutafélags um fískmarkað. í Mothercare henta börnum allt frá fæðingu fram undir 12 ára aldur. Við erum nýbúin að taka upp mikið úrval af hlýjum, mjúkum, þykkum, þægilegum og fallegum vetrarfötum í skærum og skemmtilegum litum. Mothercare myndalistinn fyrir 1967erlíka kominn og fæst fyrir lítið á Laugavegi 13. Síminn er (91)26560. nothercare 8A R WA- gAP/VA-'gAPM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.