Morgunblaðið - 06.11.1986, Side 4

Morgunblaðið - 06.11.1986, Side 4
MORGUNBLABI&, FIMMTUDAGUR &. NÓVEMBER 1986 4 VEÐUR Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gaer) VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær *ð ísl. tíma hlti veður Akureyri -2 snjóél Reykjavík -2 snjóél Bergen 8 rigning Helsinki 2 skýjað Jan Mayen 0 snjókoma Kaupmannah. 8 rignlng Narssarssuaq -11 léttskýjað Nuuk -5 snjóél Osló 3 rignlng Stokkhólmur 4 léttskýjað Þórshöfn 4 snjóél Algarve 19 heiðskfrt Amsterdam 12 skýjað Aþena 17 skýjað Barcelona 18 heiðskfrt Beriín 9 skur Chicago 6 alskýjað Glasgow 12 skýjað Feneyjar 10 léttskýjað Frankfurt 7 þokumóða Hamborg 8 rigning Las Palmas 23 skýjað London 11 alskýjað LosAngeles 14 þoka Lúxemborg 6 skýjað Madríd 14 léttskýjað Malaga 21 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Miami vantar Montreal -6 iéttskýjað Nice 17 léttskýjað NewYork 4 alskýjað Parfs 8 skýjað Róm 16 léttskýjað Vín 8 skýjað Washington 6 rigning „ÞAÐ ER NÚ meira mál en það, að maður geri það upp við sig, svona í hita dagsins," sagði Stef- án Valgeirsson alþingismaður þegar blaðamaður Morgunblaðs- ins spurði hann hvort hann hefði ákveðið að fara út í sérframboð í Norðurlandskjördæmi eystra í næstu alþingiskosningum. Stefán sagði að það væri margt sem þyrfti að athuga í þessu sam- bandi, svo sem það hvað væri Framsóknarflokknum fyrir bestu. „Ef það er sýnilegur brestur í þessu, eins og mér er sagt, hvað á þá að gera?“ spurði Stefán og bætti við: „Það er líka spurning hvort það verður ég eða einhver annar, sem reynir að halda þessu saman. En mætustu flokksmenn segja að bresturinn sé það mikill, að versti kosturinn væri að vera ekki með sérframboð. Þetta er í dag, en hvað verður á morgun, það veit ég ekki.“ Stefán sagði að eina loforðið sem hann hefði gefið væri að loka eng- um dyrum. Reykjavík: •• Okumenn á hálum ís REYKVÍKINGAR urðu fyrir nokkrum skakkaföllum í um- ferðinni í gær, enda runnu bifreiðar þeirra um götur eins og beljur á svelli. Mikil hálka var í höfuðborginni, en ökumenn íóru varlega framan af degi. Aðeins urðu fimm árekstr- ar frá því í gærmorgun og þar til klukkan 16, en Reykvíkingar tóku þá heldur við sér og flýttu sér mun meira heim en til vinnu um morg- uninn. Því urðu 20 árekstrar á þremur tímum, frá klukkan 16-19. Hálkan var þá orðin enn meiri en um morguninn. Betur fór en á horfðist, því eng- in meiðsli urðu á fólki, en það er aldrei nægilega brýnt fyrir öku- mönnum að haga akstri eftir aðstæðum hverju sinni. Bifreiðam- ar hnrfa einnier að vera vel hiínar á góðum hjólbörðum og með ljósir í lagi. Loðnuaflinn: Tilkynnt um 12.000 tonn SAUTJÁN loðnubátar höfðu til- kynnt um samtals 12.000 tonna afla síðastliðinn sólahring, þegar blaðamaður leitaði fregna hjá Loðnunefnd í gær. Stormur var við landið sunnan- og vestanvert aðfaranótt miðviku- dags, en enginn bátanna lenti í vandræðum. Þeir voru flestir á sigl- ingu með aflann til hafna á Norður- og Austurlandi. Listasafn ASÍ, Lögberg og Ásgrímssafn: ekki með sérframboð“ Gefa út bok um Asgrím Jónsson Yfir 60 litmyndir í bókinni af lista- verkum Asgríms BÓK um Ásgrím Jónsson listmálara kom út í gær á vegum Listasafns ASI og bókaforlagsins Lögbergs í samvinnu við Ásgrímssafn. í bókinni eru litmyndir af rúmlega sextíu listaverkum Ásgríms sem eru í eigu Ás- grímssafns, Listasafns Islands , Listasafns ASÍ og ýmissa stofnana og einstakl- inga og hafa mörg verkanna ekki verið prentuð áður. Einnig eru í bókinni ljós- myndir frá ævi Asgrims. Hrafnhildur Schram list- fræðingur og Hjörleifur Sigurðsson listmálari skrifa í bókina um málarann og einstaka þætti í list hans. í inngangi Hrafnhildar Schram að bókinni segir að Ásgrímur Jónsson sé einn af frumherjum nýrrar listgreinar sem honum ent- ist aldur til að sjá dafna og bera ríkulegan ávöxt. Áhrif hans á mótun íslenskrar myndlistar hafi verið sterk og áberandi og gæti enn, tæpum þrem áratugum eftir andlát hans.“Það má líta á hann sem músíkantinn í hópi frumherja íslenskrar málaralistar. Rök- hyggja Jóns Stefánssonar og hinn ólmi skáldandi Jóhannesar S. Kjarvals voru honum víðsfjarri Eins og tónlistarmaður , sem I/EÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi í gœr: Á Grænlandshafi er víðáttumikil 973 milli- bara djúp lægð sem þokast norðaustur. Önnur vaxandi 1000 millibara lægð, skammt norðaustur af Nýfundnalandi, fer allhratt noröaustur. SPÁ: Með morgninum er útlit fyrir suðvestan kalda (5 vindstig) með smáéljum á vestanverðu landinu en björtu veðri á austur- landi. Þegar líður á daginn þykknar upp suðvestanlands með vaxandi suðaustanátt, fyrst snjókoma en síöan rigning. Smá saman hlýnar í veðri. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR: Noröaustanátt og dálítil snjókoma á Vestfjörðum og líklega noröanlands, en vestan- og suövestanátt með smá éljum um sunnanvert landiö. Kólnandi veður. LAUGARDAGUR: Hvöss norðan- og norðaustanétt og él noröan- og vestanlands, en að mestu úrkomulaust á suður- og suðaustur- landi. Haida mun áfram að kólna. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað £3| Hálfskýjað 'ÓSL. Skýjað — Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma ■f Q Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V E1 — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður Morgunblaðið/Júlíus Aðstandendur bókarinnar um Ásgrim Jónsson. Frá vinstri eru Gunnar Ingimundarson starfsmaður Lögbergs, Sólveig Georgsdóttir forstöðumaður Listasafns ASÍ, Kristján Pétur Guðnason ljósmyndari, Hrafnhildur Schram listfræðingur, Guðmundur Benediktsson myndhöggvari, Sigrún Guðmundsdóttir stjómarmaður Ásgrímssafns, Sverrir Kristinsson forstjóri Lögbergs, Torfi Jónsson myndlistarmaður og Þorgeir Baldursson forstjóri Odda hf. Stefán Valgeirsson um sérframboð: „Margir segja að versti kosturinn sé að vera / DAG kl. 12.00: túlkar af öllu lífi og sál tónverkið sem liggur til grundvallar, túlkaði Ásgrímur landslagið, sem hann hafði fyrir framan sig, af full- komnun heilindum og lagði til tilfinningu og hugsun. í list sinni sóttist hann eftir sama hreinleika og hann fann hjá uppáhaldstón- skáldi sínu, Mozart", segir Hrafnhildur ennfremur Ásgrímur Jónsson er sjötta bindið í ritröðinni íslensk myndlist sem Lögberg og Listasafn ASI gefa út. Björg Þorsteinsdóttir myndlistarmaður, Guðmundur Benediktsson myndhöggvari og Hrafnhildur Schram listfræðingur og núverandi formaður Ásgríms- safns önnuðust val listaverka í bókina og þeim til ráðuneytis voru Hörður Agústsson listmálari og Torfi Jónsson myndlistarmaður. Ljósmyndun listaverka annaðist Kristján Pétur Guðnason, Torfi Jónsson sá um tilhögun bókarinn- ar en prentsmiðjan Oddi hf sá um litgreiningu, prentun og bókband. Bókin er 82 blaðsíður og kostar 2500 krónur. Ásgrímur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.