Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 52
J5TERKT EDRT
SEGÐU
[RnARHÓLL
ÞEGAR
£>í7 FERÐ ÚTAÐ BORÐA
SÍMI18833------
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Saltsíldarsamningar takast í Moskvu um sölu á 200 þúsund tunmim:
Verðið um 18% lægra í
dölum en á síðasta ári
Strax og fregnir bárust um að
samningar um sUdarsölu tU Sov-
étríkjanna hefðu tekist urðu
símalinurnar hjá SUdarútvegs-
nefnd rauðglóandi. Verksljórar
víða um land vUdu fá fregnina
staðfesta og upplýsingar um
hvernig standa bæri að söltun-
inni. Myndin var tekin í
Grindavik í gær eftir að fregn-
inrar bárust.
SAMNINGAR tókust um fyrir-
framsölu á 200 þúsund tunnum
af heilsaltaðri sUd tíl Sovétríkj-
anna í Moskvu í gær fyrir sama
verð í Bandaríkjadölum og fékkst
fyrir heilsaltaða sUd þangað f
fyrra. 84 dalir fengust þá að
meðaltali fyrir tunnuna, en hluti
sUdarinnar var þá hausskorin og
Metsala
hjá Kamba-
röstínni
Á fiskmarkaði erlendis.
^KAMBARÖST SU frá Stöðvarfírði
seldi í gær tæp 126 tonn í Hull.
Megnið af aflanum var þorskur.
Heildarverð var 9,4 milljónur, með-
alverð 73,70 krónur á kíló. Þetta
er hæsta meðalverð sem fískiskip
hefiir fengið á mörkuðum í Bret-
landi til þessa, bæði í pundum og
krónum talið. Fýrra met átti Álsey
VE þegar hún seldi 23 lestir fyrir
skömmu. Metið þar áður átti togar-
inn Már frá Ólafsvík og var það
sett fyrir um það bil ári síðan.
slógdreginn. Það er dýrari afurð
og því má búast við að verðið
lækki og verði rúmir 70 dalir.
Eftir þessi tíðindi má búast við
mikilli söltun.
Þorhallur Ásgeirsson, ráðuneytis-
stjóri í viðkiptaráðuneytinu, sagði í
samtali við Morgunblaðið að ekkert
væri lengur því til fyrirstöðu að
ganga frá samningi við Sovétríkin
um olíukaup á næsta ári, en sá samn-
ingur hefur legið fyrir tilbúinn til
undirritunar.
í þessum nýja síldarsölusamningi
eru strangari ákvæði en áður um
lágmarksfitumagn sildarinnar og
bannað er að taka til söltunar síld
með átu. í fyrra voru 140 þúsund
tunnur af heilsaltaðri sfld seldar til
Sovétríkjanna og 60 þúsund tunnur
af hausskorinni síld.
Gunnar Flóvenz, framkvæmda-
stjóri Síldarútvegsnefndar, vildi ekki
tjá sig um hagkvæmni samningsins
f gærkveldi. Hann sagði að samn-
ingaviðræður hefðu verið mjög
erfíðar og staðið frá morgni til
kvölds. Það sem einkum hefði gert
samningamönnum erfítt fyrir væru
undirboð Norðmanna og Kanada-
manna á saltsíld til Sovétríkjanna.
Fjórir spari-
sjóðir gerast
hluthafar í
Kaupþingi
FJÓRIR sparisjóðir hafa
keypt 49% hlutafjár i Kaup-
þingi hf. af dr. Pétri H.
Blöndal, sem er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins verður meirihluti
stjómar Kaupþings hf. skipður
fulltrúum sparísjóðanna.
Kaupþing hf. sem er annað
helsta verðbréfafyrirtæki
landsins var stofnað árið 1982
og var Pétur einn átta stofn-
enda þess. Hann keypti í
síðasta mánuði allt hlutafé
fyrirtækisins.
Að sögn eins síldarsaltenda er
verðið á síldinni til Sovétríkjanna
óhagstæðara en á síld til Finnlands
og Svíþjóðar. Stafar það af þróun-
inni á alþjóðagjaldeyrismörkuðum.
Samkvæmt upplýsingum Sveins
Finnssonar, framkvæmdastjóra
Verðlagsráðs sjávarútvegsins, hefur
samningum um síldarverð ekki verið
sagt upp, en aðilar geta gert það
með nokkurra daga fyrirvara. Verð
á síld 30 sentímetra og stærri er nú
6 krónur kílóið og 3 krónur fyrir
kílóið af minni síld. Kílóið af síldinni
kostaði upp úr bát að meðaltali um
8 krónur á síðasta ári.
Skilorðsbund-
inn dómur fyr-
ir manndráp
KVEÐINN hefur verið upp dómur
i sakadómi Reykjavíkur yfir ung-
um pilti sem banaði jafnaldra
sínum með hnífsstungu við veit-
ingahúsið Villta tryllta Villa við
Skúlagötu í september i fyrra.
Pilturinn var dæmdur í fjögurra
ára skilorðisbundið fangelsi og sér-
stakt umsjónarskilorð í tvö ár fyrir
manndráp. Dæmt var samkvæmt
211 gr. hegningarlaganna. Engin
ákvörðun hefur verið tekin um áfrýj-
un af hendi ákæruvaldsins.
Morgnublaðið/KrBen.
Davíð Oddsson um könnun á Borgarspítalanum:
Alvaileg- áminning
til stiómar spítalans
„Þetta eru mjög alvarleg áminnig
til stjórnar Borgarspítalans, sem
þarna kemur fram i skýrslunni,"
sagði Davíð Oddsson borgarstjóri
í samtali við Morgunblaðið um
skýrslu um athugun á rekstri
Borgarspítalans sem Björn Frið-
finnsson framkvæmdastjóri
lögfræði- og stjórnsýsludeildar og
Eggert Jónsson borgarhagfræð-
ingur tóku saman
Upphaf málsins má rekja til 205
milljóna halla á rekstir Borgarspítal-
ans á árinu 1985 og voru þeir Bjöm
og Eggert fengnir til að kanna rekst-
ur spítians og fínna skýringu á
Stefnu Egilssonhjónanna á hendur Útflutningsmiðstö ð iðnaðarins vísað frá:
Hafa ekki rétt til að lögsækja
þessa aðila í Bandarikjunum
DÓMSTÓLL í Los Angeles vísaði
í fyrradag frá stefnu Dorette og
Árna Egilsson á hendur Útflutn-
ingsmiðstöðvar iðnaðarins og
fyrrverandi framkvæmdastjóra
's Sigurmundssonar og fyrr-
verandi aðstoðarframkvæmda-
stjóra Jens Péturs Hjaltested, á
þeim forsendum að Egilssonhjón-
in hefðu ekki rétt til þess að
lögsækja þessa aðila í Banda-
ríkjunum.
„Dómstóllinn úrskurðaði að Egils-
sonhjónin hefðu ekki rétt til þess að
—f.ögsækja Útflutningsmiðstöð iðnað-
arins og fyrrverandi starfsmenn
hennar, samkvæmt bandarískum
lögum og vísaði þar með stefnu
þeirra og öllum kæruatriðum frá,“
sagði Randolph M. Hammock lög-
maður Útflutningsmiðstöðvarinnar,
Úlfs og Jens, í samtali við Morgun-
blaðið.„því samkvæmt úrskurði
dómstólsins vann Útflutningsmið-
stöðin sem umboðsaðili fyrir íslenska
lýðveldið. Þvf var ekki hægt að lög-
sækja þessa aðila.“
Hammock sagði að það væri mjög
merkilegt við þennan úrskurð dóm-
stólsins (The American Central
Court) að í úrskurðinum hefði verið
látið í veðri vaka að þetta mál og
úrskurður í því væri fordæmisgef-
andi, og þar með yrði það skráð í
lögfræðibækur Bandaríkjanna.
Hammock sagði að skjólstæðingar
sínir væru mjög ánægðir með þenn-
an úrskurð, en þrátt fyrir það
neituðu þeir öllum sakargiftum Eg-
ilssonhjónanna og kvæðust í engu
hafa brotið gegn þeim. Hann sagði
þá trúa því að ásakanir Egilsson-
hjónanna á hendur þeim, svo og
gegn Hildu, Pólarprjón og Paul S.
Johnson væru með öllu ósannar, en
dómstóllinn hefur ekki fjallað um
ákæruatriði Egilssonhjónanna á
hendur þriggja síðastnefndu aðil-
anna. Hammock kvaðst ekki í
nokkrum vafa um að Hilda, Pólar-
pijón og Paul S. Johnson lögfræð-
ingur í Chicago myndu einnig vinna
sitt mál, en það yrði á öðrum for-
sendum, þar sem um starfandi
fyrirtæki væri að ræða, en ekki
hálfopinbera stofnun, eins og Út-
flutningsmiðstöð iðnaðarins hefði
verið.
þessum mikla halla. „Það sem mér
finnst vera alvarlegast, er að þama
kemur fram að sami starfsmanna
fyöldi hjúkrar færri sjúklingum árið
1985 heldur en 1983, sem staðfestir
það sem við höfðum grun um að
nýting spítalans væri ekki eins og
hún ætti að vera og að staðhæfingar
um að hörgull væri á starfsfólki
væri ekki heldur réttur í þeim mæli
sem sagt var,“ sagði Davíð. Hann
sagðist þess fullviss að rekstur Borg-
arspítlans væri ekki verri en hirina
spítalanna, þar mætti færa margt
til betri vegar.
Skýrslan verður lögð fyrir stjóm
spítalans áður en hún er tekin til
umræðu á ný í borgarráði í byrjun
desember. FVam til þess tíma fá
þeir sem málið varða, starfsfólk og
stjómendur spítalans tækifæri til að
tjá sig um málið áður en gripið er
til þeirra róttæku tillagna til úrbóta
sem framkoma í niðurstöðum skýrsl-
unnar.
Haft var samband við Ólaf Þ.
Jónsson lækni, formann læknaráðs
Borgarspítalans og sagðist hann
vera sammála ýmsu sem kæmi fram
í skýrslunni. Margt væri þó óljóst
og hefur læknaráðið áskilið sér rétt
til að gera athugasemdir við skýrsl-
una eftir að hafa kannað hana nánar.
Sjá bls. 20: Endurskoða þarf
stjómsýslu, skipulag og starfs-
hætti.