Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
35
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag ætla ég að fjalla um
Sporðdrekamerkið (23.
okt.—21. nóv.) og leggja
áherslu á ástarlífíð. Athygli
er vakin á því að einungis
er fjallað um hið dæmigerða
fyrir sólarmerkið og lesendur
minntir á að hver maður á
sér önnur merki sem einnig
hafa áhrif.
Frægur elskhugi
Sporðdrekar eru frægir fyrir
sterka kynorku og ástríður.
Sagt er t.d. að hann sé öðrum
merkjum fremri og skemmti-
legri sem ástarfélagi. Þetta
álit á við töluvert að styðj-
ast, ekki síst vegna þess að
Sporðdrekar eru tilfinninga-
miklir og ástnðuheitir og
hafa áhuga á samböndum og
því að ná djúpum tengslum
við annað fólk. Á hinn bóginn
er það persónulegt hvað hver
og einn vill í ást og vináttu.
Því er Sporðdrekinn ekki
allra.
Erótik
Þegar talað er um kynlíf og
Sporðdrekann verðum við að
taka eitt fram. Sporðdrekinn
er tilfinningamerki og áhugi
hans beinist fyrst og fremst
að því að ná djúpu sálrænu
sambandi við aðra mannveru.
Hið líkamlega situr ekki í
fyrsta sæti. Það er t.d. frekar
Nautið sem leggur áherslu á
hreina líkamlega ást. Sporð-
drekinn hefur áhuga á því
sem við getum kallað erótík.
Á dulúð, á sálrænum straum-
um, tálbrögðum og því að ást
leiði til umbreytingar. Hann
vill tapa sjálfinu í ástinni og
umbreytast.
Hulinn eldur
Þó það sé rétt að Sporðdrek-
ar geti verið heitir í návígi,
eru þeir jafnframt dulir og
oft á tíðum bældir. Það getur
því verið erfitt að komast
niður á eldfjallið sem kraum-
ar undir jökulbreiðunni.
Sporðdrekinn hleypir öðrum
ekki nálægt sér nema hann
geti treyst viðkomandi og til-
finningalegt andrúmsloft sé
rétt. Það þarf því oft ákveðn-
ar tilfæringar til að kveikja
í honum. Erótísk föt, dulúð,
rétt augnatillit og hálfkveðn-
ar vísur gera þar sitt gagn.
Allt sem höfðar til áhuga
hans á því dularfulla er hvetj-
andi.
Elskhuginn
Sem elskhugi er Sporðdreki
næmur og djúpur, skilnings-
ríkur og oft á tíðum ofsafeng-
inn. Sumir drekar hafa
gaman af því að tefla með
vald og undirgefni í ástar-
leikjum og oft er ákveðin
grimmd og jafnvel kvalalosti
ekki langt undan. Sporðdrek-
ar ganga jú oft í svörtu.
Trygglyndur
í ást er Sporðdrekinn traust-
ur og trygglyndur. Ef hann
elskar er hann reiðubúinn að
vaða eld og brennistein.
Hann er lítið fyrir hálfvelgju.
Vandamál hans, og ástvina
hans, er fólgið í stjómsemi
og afbrýðisemi. Hann vill oft
eiga og ráða öllu. Hann er
síðan oft ósamkvæmur sjálf-
um sér, það sem hann má
gera það má makinn ekki.
Sporðdrekinn á einnig til að
vera mislyndur og tortrygg-
inn og í sumum tilvikum
hefnigjarn og langrækinn.
Eitt helsta vandamál hans
er fólgið í því að bæla niður
skap sitt og safna upp reiði.
Því eiga sambönd við Sporð-
dreka til að einkennast af
löngum þögnum, tilfínninga-
stormum og valdatogstreitu.
Ljós og myrkur
Þeir sem lenda í 'langvarandi
ástarsambandi við Sporð-
dreka, þurfa jafnt að takast
á við ljós og myrkur. Lifssýn
þeirra dýpkar því og breytist.
X-9
fko. fess/ þyx/j
ÉKK/ fioG/í>/£//£/■
tfWVÓ/VU. <?£/&?'
I/£K&J/HA&
P4RA £AT/Æ 7&/LV-
4m/-7&/í~
3»e<2i/£sJ
GRETTIR
1-15
TOMMI OG JENNI
cjWP
* «■J r
LJÓSKA
HANN SJK.SU OF GÓEXJg
. ' FVRjR MIG
FERDINAND
SMÁFÓLK
UlHEN VOU LIVE ON
THE [7E5ERT, VOU HAVE
TO UJATCH OUT FOR
RATTLE5NAKES...
A TUÚO-PRON6EP
5TICK 15 A SREAT
PEFEN5IVE UUEAPON..
Þegar maður býr í eyði-
mörkinni verður maður að
vara sig á skröltormum ...
Þá er tvíforkur gott varn-
arvopn.
Auðvitað verður maður að
kunna að nota það.
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Bandarísku konumar Carol
Sanders og Judi Radin eru
tvímælalaust eitt sterkasta
kvennapar heims. Carol er gift
fyrrverandi forseta bandaríska
bridssambandsins og á það til
að spila með honum í sveit í
minni háttar mótum. Hér er spil
frá keppni í Peking í vor, sem
Sanders-hjónin þurftu ekki að
rífst út af:
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ ÁK853
VK7
♦ ÁK1052
♦ G
Vestur
Íádgio94||||||
♦ 63
♦ 874
Austur
♦ D6
♦ 52
♦ DG984
♦ D653
Suður
♦ G1097
♦ 863
♦ 7
♦ ÁK1092
Þar sem Carol og Judi sátu
með spil NS gengu sagnir þannig:
Vestur Nordur Austur Suður
_ — Pass Pass
2 hjörtu Dobl Pass 3 spaðar
Pass 4 grönd Pass 5 tíglar
Pass Pass 6 spaðar Pass Pass
Eftir opnun vesturs á tveimur
veikum hjörtum er slemman
ekki svo galin. Það verður að
teljast nokkuð víst að vestur á
hjartaásinn, svo slemman bygg-
ist á því einu að finna spaða-
drottninguna. Frú Sanders var
ekki í vandræðum með það og
vann sitt spil — 1430 í NS.
Á hinu borðinu hélt Tom
Sanders á spilum vesturs. Hann
hlustaði á austur og suður segjaí-
pass, og ákvað svo að nú væri
tími til kominn að skora vel —
og opnaði á tveimur spöðum!!
Samkvæmt kerfmu þýddi sú
opnun 6—10 punktar og sexlitur
í spaða. Norðri virðist hafa
brugðið svo mikið við þessa sögn
að hann passaði i skyndi. Og
það gerður austur og suður líka.
Sanders fékk einn slag, á
hjartaásinn. NS fengu 350 fýrir
að taka spilið 7 niður, en það
var lítið upp i slemmuna á hinu
borðinu.
Umsjón Margeir
Pétursson
í sveitakeppni landanna á Balkan-
skaga í haust kom þessi staða upp
í skák atþjóðlega meistarans Dim-
itrov, Búlgaríu, sem hafði hvítt
og átti leik, og Dedes, Grikklandi.
I
áM 11
111 ill
1
A % A -
Aö :A
■ 'sa
n &
17. Bxb6! - Dxb6, 18. Dxf7+ -
Kh8, 19. Hd6 - R8h7, 20. Hd7!
- Rxd7, 21. Hxd7 - Hg8, 22.^
Hxb7 (Hvíta staðan er nú orðin
léttunnin, svartur gaf eftir:) 22. —
Dc5, 23. Rh4 - Rf6, 24. Rg6+ -
Kh7, 25. Dxf6. Búlgarar sigruðu
í keppninni, hlutu 21'A v., Júgó-
slavar komu næstir með 20‘/2 v.,
þá Rúmenar með 17'A v. og
Grikkir ráku lestina með 12'/2 v.
Að þessu sinni sendu Albanir og
Tyrkir ekki lið til keppninnar.