Morgunblaðið - 06.11.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
23
Repúblikanar bættu
injög sinn hlut í ríkis-
stjórakosningunum en
demókratar hafa þó enn
vinninginn. Demó-
kratinn Mario Cuomo,
ríkisstjóri í New York,
var endurkjörinn með
miklum mun og þykir
það nú enn líklegra en
áður, að hann sækist
eftir að vera í framboði
fyrir flokkinn í forseta-
kosningunum 1988. Hér
fagnar Cuomo sigrinum
með Matildu, konu sinni.
AP/Sfmamynd.
Ríkisstjórakosningarnar:
Repúblikönum vegnaði vel
Washington, AP.
REPÚBLIKAN AR töpuðu meiri-
hluta sínum í öldungadeildinni
en það er þeim huggun harmi
gegn, að þeim vegnaði vel í ríkis-
stjórakosningunum. Hafa þeir nú
átta fleiri ríkissljóra en áður, þar
á meðal í Texas og Florida.
Repúblikanar binda vonir við, að
ríkisstjórar þeirra í Vestur- og Suð-
urríkjunum, þar sem demókratar
hafa löngum verið sterkir, muni
gagnast þeim vel í forsetakosning-
unum 1988. Staðan er nú sú, að
ríkisstjórar repúblikana eru 24 en
demókrata 26. Áður höfðu demó-
kratar 34 en repúblikanar 16.
Repúblikanar unnu 11 ríkisstjóra-
embætti af demókrötum, í Wiscons-
in, Suður-Karólínu, Oklahoma,
Nýju Mexikó, Kansas, Texas, Ne-
braska, Maine, Florida, Alabama
og Arizona, en töpuðu Pennsylva-
niu, Tennessee og Oregon.
Konurnar áttu mikinn
þátt í sigri demókrata
Washinpton, AP.
GOÐUR meirihluti bandariskra kvenna studdi Demókrataflokkinn í
kosningunum í fyrradag og átti það mikinn þátt í að hann vann
öldungadeildina af Repúblikanaflokknum. Kom þetta fram í skoðana-
könnun, sem ABC-sjónvarpsstöðin gerði. Aldrei fyrr hafa jafn
margar konur verið í framboði en hlutur þeirra á þingi og i öðrum
ábyrgðarstöðum óx þó ekki.
í þessari sömu könnun kom í ljós,
að Reagan, forseti, nýtur mikils
stuðnings meðal þjóðarinnar, 64%
á móti 36%, en fólk gerði hins veg-
ar skýran greinarmun á forsetanum
og frambjóðendum Repúblikana-
flokksins. I kosningunum til full-
trúadeildarinnar höfðu demókratar
t.d. meirihluta meðal allra aldurs-
hópa, einnig ungra kjósenda, sem
fylktu sér að baki Reagan árið
1984.
I kosningum til öldungadeildar-
innar nutu repúblikanar meirihluta-
fylgis meðal karlmanna, 52% á
móti 47%, en meirihluti kvenna
studdi demókrata eða 53-45. Líkur
munur var á afstöðu kynjanna í
ríkisstjórakosningunum. Yfirgnæf-
andi meirihluti svartra kjósenda
studdi demókrata, 89-10, og þeir
nutu meira fylgis meðal allra þjóð-
félagshópa þar sem fjölskyldutekj-
urnar eru 40.000 dollarar (um 1,6
millj. ísl. kr.) eða minna. Repúblik-
anar höfðu óverulegan meirihluta
þeirra, sem eru á tekjubilinu 1,6-2
millj., en verulega meira fylgi með-
al þeirra, sem eru þar fyrir ofan.
I skoðanakönnun NBC-sjón-
varpsstöðvarinnar kom fram, að
langflestir töldu, að ekki væri verið
að kjósa um stefnumál Reagans í
kosningunum. Kváðust kjósendur
fyrst og fremst hafa haft í huga
mennina sjálfa, heilindi þeirra og
heiðarleika.
I kosningum til fulltrúadeildar-
innar voru 64 konur helstu fram-
bjóðendur flokkanna og sex konur
börðust um fímm sæti í öldunga-
deildinni. Til ríkisþinganna buðu sig
nú fram um 1800 konur en 1756
árið 1984. Lítil breyting varð þó á
hlutfalli kvenna á þingi og í öðrum
ábyrgðarstöðum. Það var þó kona,
Barbara Mikulski, sem vann einn
glæsilegasta kosningasigurinn. Er
hún öldungadeildarþingmaður fyrir
Maryland og sigraði áskoranda
repúblikana, Lindu Chavez, fékk
61% atkvæða á móti 39%.
Eduard George P.
Shevardnadze Shultz
upplýsingar, menntun og menningu
yrði haldinn í Moskvu í framhaldi
af ráðstefnunni í Vín. Fyrstu við-
brögð vestrænna fulltrúa voru þau,
að tillagan væri fáránleg en að yfir-
veguðu máli var talið, að rétt væri
að taka hana til athugunar.
Gerald Nagler, framkvæmda-
stjóri Helsinki-samtakanna um
mannréttindi, sagði, að allar tillögur
varðandi mannréttindi væru skref
í rétta átt. „Ef Sovétmenn ganga
að vissum skilyrðum í sambandi við
slíkan fund, er ekkert honum til
fyrirstöðu," sagði Nagler. „En þeir
verða að samþykkja, að aðildarríkin
ráði því sjálf hvaða fulltrúar sækja
fundinn fyrir þeirra hönd og að
þeir verði ekki eingöngu embættis-
menn.“
Matthías Á. Mathiesen sagði, að
tillaga Shevaerdnadze um Moskvu-
fundinn væri athyglisverð. „Það
þarf að fjalla mjög vandlega um
mannréttindamál og gæta þess, að
samþykktir um þau séu ekki aðeins
gerðar til að slá ryki í augu fólks.
Fundur í Moskvu kemur vel til
greina ef hann er ekki haldinn til
þess eins að tefja fyrir, að við mann-
réttindaákvæði Helsinki-sáttmálans
sé staðið."
Grænland:
Aform
um olíuleit
Frá fréttaritara Morgunbladsins, Nils
Jörgen Bruun.
DANSKI Grænlandsmálaráð-
herrann, Tom Höyem hefur að
undanförnu verið í Dallas i
Texas að semja við bandarísk
olíuráðgjafarfyrirtæki um að
áætlun verði gerð um olíuleit
úti fyrir Grænlandsströndum.
Frá þessu var sagt í danska
útvarpinu, þriðjudagsmorgun. Fyr-
irhugað er að, rannsóknir þessar
standi yfir í næstu sex ár og hefj-
ast þær með því að gerðar verða
hljóð- og skjálftamælingar á ýms-
um stöðum á meginlandshryggn-
um og skulu danskir sérfræðingar
mæla með ákveðnum stöðum. Nið-
urstaða rannsókna þessara á síðan
að leggja grundvöll að sameigin-
legum ákvörðunum Dana og
Grænlendinga um fríðindi til handa
olíufélögum, sem vilja leita að olíu
við Grænland.
Engar olíurannsóknir standa
yfír við Grænland nú. Könnun
þeirri sem bandaríska fyrirtækið
Arco hefur staðið fyrir á Jakobsl-
andi við Scoresbysund hefur verið
hætt vegna þess hve olíuverð hefur
verið lágt á heimsmarkaði. Undan-
farið hefur þó heyrzt, að Arco
hafi hug á, að taka upp athuganir
á nýjan leik.
GENGI
GJALDMIÐLA
GENGI dollarans lækkaði
verulega í gærmorgun en
hækkaði aftur þegar á
daginn leið nema gagnvart
breska pundinu og
kanadíska dollarnum.
Dollarinn lækkaði allmikið
þegar fréttir bárust um úrslit
kosninganna í Bandaríkjunum
en náði sér aftur á strik síðar
um daginn. Gjaldeyrissérfræð-
ingar búast við, að gengi hans
muni hækka nokkuð á næst-
unni. Gengi breska pundsins
hækkaði fjórða daginn í röð
og fengust í gærkvöldi fyrir
það 1,4210 dollarar en 1,4155
á þriðjudag. í Tókýó fengust
163,00 jen fyrir dollarann en
163,60 daginn áður. Fyrir doll-
arann fengust i gær: 2,0635 v-þýsk mörk
(2,0570). 1,7222 sv. frankar
(1,7135). 6,7325 fr. frankar
(6,7115). 2,3315 holl. gyii-
(2,3245). 1.425,50 ít. lír.
(1.420,50). 1,3880 kan. doll.
(1,3902).
Verð á gulli féll aðeins og
fengust í gær 406 dollarar fyr-
ir únsuna en 408 daginn áður.
Loðfóðraðir
kvenmanns-
kuldaskór
Teg. 4047
Litur: Svart.
Staerð: 36—40.
Verð: 2.995,-
5% staðgreiðsluafsláttur
21212
—
Við eigum afmæli um þessar mundir og í
tilefni þess bjóðum við sérstakan matseðil
helgina 7., 8. og 9. nóv.
MATSEÐILL Pom. Daupaine sósu
Hansen-hanastél Chasseur og græn-
Sjávarréttapaté með meti.
Rauigore-sósu Desert Pompadour.
og ristuðu brauði Hansens-kafifi.
Filets Mignons með Verð: 1.450 kr.
Verið velkomin til veislu
Okkar landsþekkti skemmti-
kraftur Haukur Morthens
skemmtir matargestum og
Jón Rafn verður í fjöri að
venju á loftinu.
SIEMENS
SlWAMAT 276
Góð og hagkvæm
þvottavél
#18þvottakerfi.
•Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval.
•Vinduhraði 600 og 800
sn./mín.
• íslenskur leiðarvísir.
•Gömlu góðu Siemens-
gæðin.
Komið íheimsókn til okkar:
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.