Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 251. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins AP/Símamynd Fiskiskip og þyrlur leita mannanna sem saknað er eftir þyrluslysið við Hjaltlandseyjar í gær. Skyggni var lélegt á þessum slóðum og torveldaði það mjög starf björgunarmanna. 45 farast í þyrlu- slysi á Norðursjó Sumburgh, Hjaltlandseyjum, Reuter. ÞYRLA með 47 manns innanborðs hrapaði í hafið skammt undan Hjaltlandseyjum í gær. Tveir menn komust lífs af úr slysinu. Um borð i þyrlunni voru verkamenn sem störfuðu við olíuvinnslu á svonefndu Brent-svæði í Norðursjó um 135 kílómetra norðaustur af Hjaltlandseyjum. Þetta er mesta þyrluslys í flugsögu Bretlands. Þyrlan, sem var af gerðinni „Chinook", var í leiguflugi fyrir Shell-olíufyrirtækið og voru 44 menn um borð auk þriggja manna áhafnar. Mennimir voru á leið til Aberdeen og hugðust flugmenn- imir millilenda í Sumburgh og taka þar eldsneyti. Vélin lenti í sjónum um þrjá kílómetra undan Sumburgh-höfða, sem er syðsti oddi Hjaltlandseyja, og sökk sam- stundis í hafið. Þyrla frá Sum- burgh var fyrir tilviljun stödd í æfíngaflugi á þessum slóðum og tóku flugmenn hennar eftir olíu- brák á sjónum. Flugmennimir komu auga á tvo menn sem börð- ust við að halda sér á floti og tókst að bjarga þeim úr ísköldum sjónum um borð í þyrluna. Flogið var með þá í sjúkrahús í Leirvík og er líðan þeirra sögð vera góð. Talsmenn Shell sögðu í gærkvöldi að 19 lík hefðu fundist og 26 manna væri enn saknað. Ýmislegt þykir benda til þess að þyrlan hafí skyndilega steypst í hafið. Hún var búin flotholtum og hefði flugmaðurinn því átt að geta nauðlent henni hefði hann orðið bilunar var. Ovenjulega lítið brak var á reki á slysstaðnum sem bendir til þess að þyrlan hafi ver- ið á mikilli ferð þegar hún skall niður á haffletinum. Fiskiskip og þyrlur hófu þegar leit en talið er ólíklegt að fleiri hafi komist lífs af úr slysinu. Vonskuveður var á þessum slóð- um og torveldaði það mjög allar aðgerðir. Leit úr lofti var hætt í gærkvöldi. Þetta er mesta þyrluslys sem orðið hefur á Bretlandi. 20 manns fórust árið 1983 þegar þyrla hrap- aði í Atlantshafíð skammt undan Scilly-eyjum Bandaríski demókrataflokkurinn: Vilja hætta stuðningi við Contra-skæruliða Washington, Reuter, AP. SÉRFRÆÐINGAR um bandarísk stjórnmál telja að demókrata- flokkurinn muni ekki nýta sér meirihluta sinn í báðum deildum þingsins til að koma í veg fyrir fjárveitingar til geimvarnaáætl- unar stjórnar Reagans forseta. A hinn bóginn er talið líklegt að demókratar muni beita sér gegn stuðningi við Contra-skæruliða í Nicaragua. Demókratar hafa heitið að vinna með Ronald Reagan Bandaríkjafor- seta þau tvö ár sem eftir lifa af kjörtímabili hans. Ýmsir talsmenn demókrata hafa lýst sig andvíga stuðningi Bandaríkjastjórnar við Contra-skæruliða og telja að beita megi öðrum aðferðum til að hafa áhrif á þróun mála í Mið-Ameríku. Robert Byrd, sem er talinn líklegur leiðtogi demókrata í öldungadeild- inni, sagðist í gær vera andvígur „leynilegum stuðningi bandarísku leyniþjónustunnar" við Contra- skæruliða. Stjómmálaskýrendur telja að demókratar muni ekki beita sér gegn fjárveitingum til geimvama- áætlunarinnar þó svo þeir muni gera athugasemdir við stefnu for- setans í vígbúnaðarmálum. Líklegt er að þeir muni bíða eftir niðurstöð- um af fundum fulltrúa stórveldanna í Genf. Robert Byrd sagði í gær að demókratar myndu leggja höfuð- áherslu á að stórveldin næðu samkomulagi á sviði afvopnunar- mála. Niðurstöður kosninganna em taldar veikja stöðu repúblikana- flokksins með tilliti til forsetakosn- inganna árið 1988. Vitað er að þeir Bob Dole og Jack Kemp, sem báðir eru repúblikanar, hafa áhuga á þvi embætti og er almennt litið svo á Fundur Shultz og Shevardnadse í Vín: Sovétmenn höfnuðu tillögu um sameiginlegra yfirlýsingu Vín frá Önnn RinrnaHótfnr. frptlnritnra MnroninhlnðsinB ^ ^ Vín, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsins. FYRSTU fundum utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna síðan leiðtogar landanna hittust i Reykjavík lauk i Vin í gærmorgun án þess að nokkur árangur næðist í afvopnunarmálum. Eduard Shevardnadse, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sagðist fara frá Vín með „óbragð í munninum" eftir fundina með Bandarikja- mönnum, þeir virtust annarrar skoðunar nú en i Reykjavík. George Shultz, utanríkisráðherra Bandarikjanna, sagði að þvert á vonir Bandaríkjamanna hefði ekkert áunnist á fundunum í Vín. Sovét- menn hefðu einblínt svo á ABM-sáttmálann og geimvarnaráætlunina. „En við erum þolinmóðir," sagði Shultz. Bandaríkjamenn vonuðust til að ná samkomulagi um sameiginlega yflrlýsingu á fímm stunda löngum fundum utanríkisráðherranna. Með Shultz voru helstu sérfræðingar Bandaríkjastjómar í afvopnunar- málum. Þeir lögðu fram uppkast að yflrlýsingu, þar sem annars veg- ar voru tíunduð þau atriði, sem samkomulag iiáðist um í Reykjavík, og hins vegar ágreiningsatriðin. “Við komum hingað til Vínar til að gera glögga grein fyrir afstöðu okkar og til að undirstrika vilja okkar að byggja á þeim grundvelli sem var lagður á Islandi,“ sagði Shultz. Sovétmenn vildu ekki gefa út sameiginlega yfirlýsingu, þar sem ágreiningsatriði í afvopnunarvið- ræðunum eru ótvírætt rakin. Þeir lögðu til, að yfirlýsing um sam- komulagsatriðin eingöngu yrði birt eftir fundi ráðherranna. Háttsettir embættismenn í bandaríska utan- ríkisráðuneytinu sögðu, að Sovét- menn hefðu komið til Vínar „til að að staða þeirra gagnvart George Bush, varaforseta, hafi styrkst mjög í kjölfar ósigurs repúblikana. Sjá nánar um þingkosningarn- ar á bls. 21. Finnland: Konur fá að taka vígslu Hclsinki, Reuter. LÚTERSKA kirkjuráðið í Finn- landi samþykkti í gær lagabreyt- ingu þess efnis að kvenfólki skuli hér eftir heimilt að taka vígslu. Nýju lögin voru samþykkt með 87 atkvæðum gegn 21 og taka þau þegar gildi. Þar með er bundinn endi á 30 ára gamalt deilumál í Finnlandi. Laga- breytingin var samþykkt þrátt fyrir ákall rúmlega 400 fyrrverandi og starfandi presta sem hvöttu kirkjur- áðsmenn til þess að hafna lagabreyt- ingunni þar eð það stæði skýrum stöfum í Heilagri ritningu að konur skyldu ekki gerast prestar. Sam- kvæmt nýju reglunum mega þeir biskupar sem neita að vígja kven- fólk til starfa búast við málshöfðun láti þeir ekki af andstöðu sinni. AP/Símamynd Eduard Shervardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og hinn bandaríski starfsbróðir hans George Shultz takast í hendur fyrir framan sovéska sendiráðið í Vínarborg við upphaf fundar þeirra í gær. Báðir aðilar voru sammála um að fundir þeirra í Vín hefðu verið árangurslausir. he§a nýja áróðursherferð," en ekki til að finna leið til að leysa deilu- mál stórveldanna um afvopnunar- mál. Grænland: Neitaði að fljúga með sjúklinga Frá N.J.Bruun, fréttaritara Morgun- blaðsins á Grænlandi. Miklar umræður hafa spunn- ist um öryggi grænlenskra borgara, sérstaklega hvað varðar sjúkraflug og störf flugmanna, í kjölfar þess, að tvö grænlensk börn létust úr heilahimnubólgu um síðustu helgi. Tafir urðu á því , að þau væru flutt í sjúkrahús. Flytja átti börnin með þyrlu til Godtháb, þar sem ekki var hægt að meðhöndla sjúkdóminn í bæjunum þar sem þau bjuggu. Veður var fremur slæmt og krafðist flugfélagið sem annað- ist sjúkraflugið þess, að flug- mennimir yrðu tveir, en annar þeirra neitaði að fljúga með bömin þar sem hann óttaðist að smitast af þeim. Eftir tveggja tíma fundarhöld sagðist hann myndu fara með þyrlunni, en er hún lenti í Godtháb var hann ekki um borð. Yflrlæknir landspítalans í Godtháb, Lars Sundholm, vildi ekki tjá sig um það, hvort sein k unin hafl valdið því að bömin létust. „Ég veit það eitt, að ef ég hefði neitað að meðhöndla sjúkling, eða hikað við það, af ótta við að smitast, þá hefði ég verið rekinn úr starfí og sætt mig við það“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.