Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 46
4$ MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR ,7. NÓVEMBER 1986 Tapið gegn Southamton gerði útslagið: Ron Atkinson rekinn í gær Frá Bob Honnessy, fróttamanni Morgunbladsins á Englandi. RON Atkinson, framkvæmda- stjóri Manchester United, og Mick Brown, aðstoðarmaður hans, voru reknir í gær eftir fimm og hálft ár hjá fólaginu. Ástæðan lélegur árangur liðsins var Alan Irvine fyrir Rush? Frá Bob Hennessy, fráttamannl Morgunblaðsins á Engiandi. LIVERPOOL hefur áhuga á að kaupa Alan Irvine frá Falkirk í Skotlandi fyrir 200 þúsund pund. Sem kunnugt er fer lan Rush til Árshátíð Víkings Árshátíð knattspyrnufélagsins Víkings verður haldin í Skíðaskál- anum Hveradölum á morgun, laugardaginn 8. nóvember. Hátíðin hefst í Víkingsheimilinu klukkan 17.30 og farið verður í Hveradali klukkustund síðar. Nán- ari upplýsingar í síma 36448 og hjá formönnum deilda. Juventus næsta ár og þá vantar Liverpool tilfinnanlega framherja. Margir hafa verið tilnefndir og hef- ur Liverpool augastað á nokkrum leikmönnum, en einn þeirra er Ir- vine, sem var í Liverpool um helgina. Souness með slitna hásin Graeme Souness, fram- kvæmdastjóri og leikmaður Rangers, verður frá næsta mánuð- inn, en hann var með slitna hásin og var skorinn upp í gær. Souness hefur átt við meiðsli að stríða und- anfarnar fimm vikur og hefur aðeins leikið í samtals 37 mínútur á því tímabili. Rangers byrjaði vel í haust og síðustu 12 mánuði og útslagið gerði 1:4 tap gegn Southampton i Littlewoods bikarkeppninni á þriðjudagskvöldið. Atkinson og Brown komu til Manchester United frá WBA í júní 1981 og þrátt fyrir að hafa greitt um 7 milljón pund fyrir nýja leik- menn, hefur liðinu ekki vegnað sérlega vel í deildinni. Byrjun liðsins á þessu tímabili hefur verið afleit, en Martin Ed- wards, formanni Manchester United, sem hefur stutt Atkinson í gegnum súrt og sætt, var nóg boðið, þegar liðið féll út úr Littlewoods bikarkeppninni á þriðjudagskvöldið, og tilkynnti í gær að búið væri að reka Atkin- son. Edwards fór í gær til Aberdeen í Skotlandi til að ræða við Alex Ferguson, framkvæmdastjóra Aberdeen, um að taka við stjórn- inni hjá United, en þar til eftirmað- ur verður ráðinn, mun Brian Whitehouse, aðalþjálfari liðsins, stjórna liðinu. • Ron Atkinson er sigurhrósandi á myndlnni, en víst er að hann er ekki eins ánægður núna eftir að hafa verið rekinn frá Manchester United í gær. hefur liðið styrkst mikið með til- komu nýrra leikmanna, en meiðsli hafa sett strik í reikninginn og segir Souness, að hann verði að kaupa fleiri leikmenn, ef liðið á að halda áfram að vera með í topp- baráttunni. Sigi Held hafði milligöngu um dvöl Gunnars hjá Schalke Ákvörðun um tilboð tekin um helgina Frá Siguröi Björnssyni fróttaritara í nýjasta tölublaði Kicker, hins virta knattspyrnutímarits í V- Þýskalandi, er fjallað um dvöl Gunnars Gíslasonar hjá fyrstu- deildarliðinu Schalke. Þar kemur fram að Sigi Held, landsliðsþjálf- ari hafði milligöngu um að Gunnarfór til æfinga hjá félaginu. Gunnar hóf æfingar hjá Schalke á þriðjudaginn og mun dvelja hjá félaginu út vikuna að minnsta kosti. Sigi Held var aðalþjálfari Schalke í um eitt og hálft ár fyrir nokkrum árum, og að sögn Kicker Morgunblaftsins I Vestur-Þýskalandi: var það hann sem benti félaginu á Gunnar. Schalke er nú um miðja deild, en vararleikur liðsins hefur verið afar slakur að undanförnu. Aðalframkvæmdastjóri Schalke, Asseuer að nafni, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að tekin yrði ákvörðun um það eftir leikinn gegn Borussia Mönchenghlad- bach á laugardaginn hvort liðið gerði Gunnari tilboð. Asseuer sagði að þeir væru ánægðir með það sem þeir hefðu séð til Gunn- ars. Sprengivika hjá Getraunum Potturinn fer yfir 3 milljónir NÚ um helgina verður fyrsta sprengivikan hjá íslenskum get- raunum og er reiknað með að potturinn fari vel yfir þrjár millj- ónir króna að þessu sinni. Sprengivikurnar á þessu starfsári getrauna verða fjórar og er þetta sú fyrsta. Sprengivikan ber nafn af því að trúléga verða öll met sleginn í þessari viku. Potturinn verður stærri en nokkru sinni fyrr og ef einhver verður reglulega heppinn þá fær hann trúlega mun meira en nokkur annar hefur fengið í sögu getrauna hér á landi. Það er tvennt sem gerir það að verkum að potturinn verður stærri en áður. I fyrsta lagi hefur 2% verið haldið eftir af sölunni í þeim 11 leikvikum sem búnar eru og í öðru lagi verður gert sérstakt söluátak og ef vel tekst til má jafn- vel búast við að potturinn fari yfir fjórar milljónir. Það yrði ekki amar- leg búbót í jólamánuðinum að hreppa þann stóra! Þess má að lokum geta að einn leikur á seðlinum er úr vestur- þýsku knattspyrnunni en það er viðureign Stuttgart og Werder Bremen og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpinu þannig að fólk getur fylgst með hvort það hefur fyrsta leikinn réttann á seðlinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.