Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986 Norrænum verka- lýðs leiðtogum mein- uð för til S-Afríku VERKALÝÐSLEIÐTOGUM frá ölluin Norðurlöndunum hefur verið meinuð vegabréfsáritun til Suður-Afríku. Norræna verka- lýðssambandinu (NFS) barst í gær skrifleg orðsending, þar sem frá því var skýrt að formönnum verkalýðssambanda á Norður- löndunum hefði verið synjað um vegabréfsáritun til Iandsins. Kristján Einar Bragason. Lést í vinnuslysi MAÐURINN sem lést í vinnuslysi í Kópavogi á þriðjudag hét Kristján Einar Bragason, til heimilis að Artúni við Suður- landsbraut. Hann starfaði sem bifreiðarstjóri. Kristján heitinn fæddist 13. nóv- ember 1932. Hann var ókvæntur, en lætur eftir sig móður og systkini. Forsaga málsins er sú að sam- bandið fékk boð frá verkalýðssam- tökum í Suður-Afríku um að heimsækja landið og ræða samstarf verkalýðssamtaka þessara landa. NFS þekktist þetta boð og ákveðið var að á þess vegum færu til S-Afríku þeir Asmundur Stefáns- son, formaður Alþýðusambands íslands, Tor Halvorsen, formaður Norska alþýðusambandsins, Stig Malm, formaður Sænska alþýðu- sambandsins, Knud Christiansen, formaður Danska alþýðusambands- ins, Per-Erik Lund, formaður Finnska málmiðnaðarsambandsins og Sune Ahlén, framkvæmdastjóri NFS. Ætlunin var að sendinefndin yrði komin til S-Afríku þann 2. desember og myndi meðal annarra hitta að máli Desmond Tutu, erki- biskup, séra Alan Boesak, Winnie Mandela og fjölda verkalýðsleið- toga. í fréttatilkynningu frá Norræna verkalýðssambandinu segir að þessi viðbrögð sýni vel hið rétta andlit aðskilnaðarstjómarinnar í S-Afríku og ótta stjómarinnar við að menn kynnist af eigin raun ástandinu í landinu. Með þessu hafi þarlend stjómvöld stigið enn eitt skref til þess að einangra landið frá lýðræð- isríkjum. Morgunblaðið/Þorkell Ný stjórn og varastjórn Kaupþings hf. Frá vinstri eru Olafur Haraldsson skrifstofustjóri SPRON, Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri SPRON, Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri í Keflavík, Þorvaldur Gylfason prófessor, Pétur Blöndal framkvæmdastjóri, Þorkell Helgason prófessor, Magnús Magnússon varamaður í stjórn fvrir Sparisjóð Keflavikur, Jónas Reynisson varamaður í stjórn fyrir Sparisjóð Hafnarfjarðar og Olafur Stefán Sigurðsson sparisjóðsstjóri Kópavogs. Fjórir sparisjóðir kaupa hlut í Kaupþingi: „Erum fyrst og fremst að kaupa okkur þekkingu“ segir Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri SPRON FJÓRIR sparisjóðir hafa keypt 49% hlutabréfa i Kaupþingi hf. fyrir 4,9 milljónir króna eða rúm- lega tólffalt nafnverð. Pétur Blöndal, sem áður var einn eig- andi Kaupþings, mun áfram eiga 51% hlutabréfa og verður hann áfram framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. í kaupsamningi er gert ráð fyrir að á næstu sex mánuðum geti fleiri sparisjóðir gengið inn i kaupin ef þeir óska. Ný stjórn Kaupþings er skipuð þrem spari- sjóðsstjórum og tveim háskólapró- fessorum. Kaupþing hf. hefur starfað í 4 ár að fasteigna- og verðbréfamiðlun, fjármálaráðgjöf og öðru tengdu og er annað helsta fyrirtæki landsins á því sviði. Fyrirtækið hefur aðallega haslað sér völl á sviði verðbréfamiðl- unar og komið fram með margar Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjaneskjördæmi: Yfirlýsing frá kjörnefnd Á FUNDI kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi 16. október 1986 var samþykkt að fella úr gildi ákvörðun um prófkjör, sem áður hafði verið samþykkt. Á sama fundi var samþykkt að fela kjörnefnd að hafa skoðanakönnun meðal ákveðinna flokksmanna og tekið fram að hún væri ekki bindandi fyrir nefndina né kjördæmisráð. Jafnframt var samþykkt á kjördæmisráðsfundinum að skoðanakönnunin ætti að vera trúnaðarmál. í leiðara Mbl. 4. þ.m. segir, að kjömefnd hafi tekið þá vanhugsuðu ákvörðun að gefa ekki út niðurstöðu skoðanakönnunarinnar. Það er leitt að leiðarahöfundur Mbl. hafi ekki lesið sitt eigið blað, en á bls. 5 er skýrt frá því að kjördæmisráðið, ekki kjömefnd hafi tekið þessa ákvörðun. Frá því talningu lauk sl. laugardag ræddi nefndin málið í 2>/2 tíma og samþykkti síðan að gera tillögu til kjördæmisráðs um skipan sex_ efstu sæti listans: Matthías Á. Mathiesen, ráðherra, Ólafur G. Einarsson, alþm., Salome Þorkelsdóttir, alþm., Ellert Eiríksson, sveitarstj., Gunnar G. Schram, alþm. og Víglundur Þorsteinsson, framkvstj. Ljóst er að trúnaðarbrot hefur átt sér stað og tölur verið birtar úr skoðanakönnuninni eftir harða aðför fréttamanna. Þykir kjömefnd því rétt að birta þær tölur úr skoð- anakönnuninni varðandi þau sex sæti, sem nefndin hefur gengið frá tillögu um: Matthías Á. Mathiesen 442, Olafur G. Einarsson 425, Salome Þorkelsdóttir 420, EUert Eiríksson 319, Gunnar G. Schram 256 og Víglundur Þorsteinsson 259. Alls barst 481 seðill og á þeim komu fram 86 nöfti. Verkefni kjömefndar er að gera tillögu til kjördæmis- ráðs um lista, sem nefndin telur sterkastan fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Kjördæmisráð tekur síðan loka- ákvörðun um skipan listans. Hafnarfirði, 4. nóv. 1986 Gísli Ólafsson, formaður, Bragi Michaelsson, varaform., Þorvaldur Ó. Karlsson, ritari. nýjungar á því sviði. Með eignaraðild sinni að Kaupþingi hyggjast spari- sjóðimir koma inn á vaxandi verð- bréfamarkað hér á landi „Við emm með þessu að kaupa okkur þekkingu" sagði Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Reykjavíkur, sem eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær, er einn kaupendanna, ásamt Sparisjóðinum í Keflavík, Sparisjóði Kópavogs og Sparisjóði Hafnarfjarðar. „Við emm að veita okkar viðskiptavinum betri þjónustu og um leið að taka ríkari þátt í peningamarkaðnum. Með nýj- um bankalögum fengu sparisjóðimir auknar heimildir til starfa , nánast til jafns við viðskiptabankana, og með þessu emm við að koma okkur upp verðbréfamarkaði, eins og sumir bankanna hafa stofnað, en emm að fara styttri leið“, sagði Baldvin. Á fundinum kom fram að fyrst um sinn verður samstarf sparisjóð- anna og Kaupþings fólgið í að sparisjóðimir munu veita viðskipta- vinum sínum ráðgjöf um ávöxtunar- leiðir og verður fyrsta skrefið að stofna samstarfsnefnd sem mun miðla þekkingu í báðar áttir. Nýja stjóm Kaupþings hf. skipa dr. Þorvaldur Gylfason prófessor, sem er formaður, dr. Þorkell Helga- son prófessor sem er varaformaður, Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri, Gu'ðmundur Hauksson sparisjóðs- stjóri og Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri. Aðspurður sagði Pétur Blöndal á blaðamannafundin- um að með þessari stjóm væri reynt að ná fram samspili fræðilegrar hugsunar og framkvæmda. Edda Björgvinsdóttir, Kjartan Bjargmundsson og Eggert Þor- leifsson í hlutverkum sínum í kvikmyndinni „Stella í orlofi“. Yfir 30 þúsund hafa séð Stellu YFIR 30 þúsund manns hafa nú séð kvikmyndina „Stella í orlofi", samkvæmt upplýsingum frá kvikmyndafélaginu Umba h.f., sem framleiðir myndina. Telja forráðamenn félagsins að hér sé um að ræða metaðsókn miðað við þær tæpu þijár vikur sem liðnar eru frá því myndin var frumsýnd. Yfír 25 þúsund manns hafa séð myndina í Reykjavík og hefur verið jöfn og góð aðsókn síðan myndin var frumsýnd í höfuðborginni. Myndin var frumsýnd samhliða í Keflavík og þar sáu hana 1.725 manns, sem er aðsóknarmet í Fé- lagsbíói. Myndin hefur nú verið sýnd í rúma viku á Akureyri og þar eru sýningargestir nú orðnir á milli 3.000 og 4.000. Rowenla raftæki í úrvali 10 bolla kaffikönnur frá kr. 2.525.- Brauðristar frá kr. 2.215.- Vöfflujárn frá kr. 4.173.- Straujárn með gufu frá kr. 3.203.- án gufu frá kr. 1.273.- Krullujárn frá kr. 1.059.- Grillofnar frá kr. 4.943.- Opið mánud.-fimmtud. 9.00-19.00. Föstudaga 9.00-20.00. Laugardaga 10.00-16.00. VörumarkaðDrínn hl. Eiðistorgi 11 - sími 622200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.