Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986 AKUREYRI Ingvar Gíslason í opnu bréf i í Degi: „ Að sameinast með því að sundra sér“ UNDIRSKRIFTARLISTAR, þar sem Stefán Valgeirsson alþingismaður er hvattur til að gefa. kost á sér í sérframboð til næstu alþingiskosn- inga, eru nú komnir í umferð á Akureyri. Að sögn Haraldar M. Sigurðsson- ar, sem sér um að dreifa listunum á Akureyri, fara þeir til nokkurra flokksbundinna manna sem síðan bjóða Framsóknarmönnum að vera þátttakendur í því að hvetja Stefán til að gefa kost á sér. Umræddir undirskriftarlistar fóru í umferð fyrr í vikunni í Norður- Þingeyjarsýslu, á Raufarhöfn, Þórshöfn, Kópaskeri og í nágranna- byggðum. Ekki hafa verið gefnar upp neinar tölur um hve margir hafi ritað nafn sitt á listana, „en þetta gengur mjög vel. Miklu betur en menn bjug- gust við,“ sagði framsóknarmaður í samtali við Morgunblaðið í gær. Um fátt er rætt jafn mikið hér nyrðra þessa dagana, en úrslit próf- kjörs Framsóknarmanna á Húsavík um síðustu helgi og sýnist sitt hveij- um. Guðmundur Bjamasonar, efsti maður á lista Framsóknarflokksins, segir í samtali við Dag í gær: „Ég lít svo á að með hugsanlegu sérfram- boði og þeirri undirskriftarsöfnun sem nú er í gangi sé andstæðingunum helst skemmt." Einn stuðningsam- anna Stefáns sem Morgunblaðið hafði tal af í gær sagði: „Dagur er farinn að segja okkur hvað við eigum að gera. Það er allt okkur að kenna hvemig fór!“ Þetta sagði hann í til- eftii ummæla Guðmundar, svo og Svalbakur á veiðar SVALBAKUR, einn togara Út- gerðarfélags Akureyringa, er farinn aftur á veiðar eftir þriggja mánaða inniveru. Svalbakur hefur verið í viðgerð hjá Slippstöðinni hf. en fór aftur út síðastliðinn laugardag. opins bréfs til framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra, sem Ingvai- Gíslason alþingismaður, ritaði í blaðið í gær. Bréf Ingvars hefst á þessum orðum: „Kæru samheijar. Ýmsir atburðir síðustu daga vekja hjá mér allt í senn: furðu, sárindi og óhug. Fámennur hópur manna með prívatskoðanir á því hvað sé hetju- skapur og hreystimannlegt framferði býst nú til þess að kljúfa Framsóknar- flokkinn í Norðurlandskjördæmi eystra í því skyni (og takið nú eftir!) „að sameina flokksmenn" - eins og haft er eftir forsprökkunum." Ingvar segir þessa „vitlegu fram- takssemi" eiga upptök sín í huga eins manns, Þórólfs Gíslasonar, en hann tapaði einmitt í kosningu um annað sætið á lista flokksins fýrir Valgerði Sverrisdóttur. Síðar segir Ingvan „Athafnasemi Þórólfs Gíslasonar í „sameiningarmálum Framsóknar- flokksins á Norðurlandi er mál út af fyrir sig. Hann um það. En það vek- ur furðu mína, eftir meira en 25 ára kynni af Norður-Þingeyingum, ef svo reynist að þar fínnist menn sem hirði um þess háttar manndáð og kempu- skap.“ Þá segir hann það vekja sér „sárindi" eftir 35 ára vinskap (með frændsemi) að Stefán Valgeirsson skuli láta hafa sig til þess að leggja nafn sitt við slíkan hégóma og spilla með því rykti sínu. En mestu varðar þó hjá mér að það setur að mér óhug að horfa upp á afleiðingaman Klofn- ing Framsóknarflokksins í Norður- landslqördæmi eystra, þar sem við blasir að höfuðvígi flokksins á öllu íslandi verði lagt í rúst í tilefhi 70 ára afmælis flokksins." Ingvar segir í lok bréfsins: „Enn lifí ég í þeirri von að samstaðan hald- ist, að enginn trúi þeirri fírru að hægt sé að sameinast með því að sundra sér.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson Vatn undir Leirubrúna í GÆR rann í fyrsta skipti vatn undir nýju Leirubrúna við Akureyri. Grafa mokaði þá uppfyllingunni undan henni til að hleypa vatninu i gegn. Unnið er af krafti við að fylla í átt að brúnni vestan megin og til að hægt sé að fylla þar upp er viss- ara að opna Eyjafjarðaránni aðra leið! Á myndinni, sem tekin var í j>ann mund er grafan rauf haftið, sést undir brúna út fjörð- inn. A brúnni standa nokkrir kuldalegir starfsmenn Norðurverks hf. Hyggja á morgnn- flug til Keflavíkur FERÐASKRIFSTOFA Akureyrar gekkst í vikunni fyrir beinu flugi til Keflavikur árla morguns með farþega sem voru á leið af landi brott. Þetta var gert til að við- komandi þyrftu ekki að fara til Reykjavíkur deginum áður. Að sögn Gísla Jónssonar, forstjóra FA, kemur til greina að áfram- hald verði á flugi sem þessu. Það er ekki óalgengt að fólk héð- an að norðan fari suður einum til tveimur dögum áður en halda skal til útlanda, sérstaklega á þessum árstíma þegar vissulega er allra veðra von og enginn vill víst missa af fluginu út. „Menn hafa verið hræddir við að bíða með að fara suður til síðasta dags en þegar vélin er staðsett hér eru möguleikamir á að komast miklu meiri," sagði Gísli Jónsson í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði Ferðaskrifstofuna hafa reynt áður að fljúga með farþega að morgni til Keflavíkur, „við höfum lent í basli með þetta en það hefur alltaf lánast,“ sagði hann. Og ætlið þið að bjóða upp á þetta áfram? “Já, því skyldi maður ekki reyna? Að minnsta kosti þegar við fáum hópa sem vilja ekki stoppa í Reykjavík, hafa ekkert þar að gera, er sjálfsagt að gera þetta.“ Gisli sagði að það væru aðallega menn úr viðskiptalífínu sem vildu sleppa því að stoppa í Reykjavík, og hefðu oft ekki tíma til þess. Að sögn Friðriks Adolfssonar hjá Flugfélagi Norðurlands, sem FA leigir vél hjá í þessum tilvikum, er það ekki mikið dýrara að hafa þenn- an háttinn á heldur en ef farið er einum eða tveimur dögum áður og reiknað með hótelkostnaði, fæði og öðru sem alltaf þarf að greiða. Nýtt fj árfestingafélag stofnað á Suðumesjum Heilsustöð við Svartsengi er f organgs verkefni Grindavík. ÞESSA dagana er verið að senda nokkur hundruð athafnamönn- um á Suðurnesjum bréf, þar sem kynnt er stofnun fyrirhugaðs fjárfestingarfélags sem hlotið hefur nafnið „Athöfn hf“, og þeim boðið að gerast hluthafar. Markmið þess er að efla atvinnuupp- byggingu á Suðurnesjum og eiga frumkvæði að stofnun nýrra fyrirtækja. Undirbúningsnefnd Athafnar hefur ákveðið að for- gangsverkefni félagsins verði bygging heilsustöðvar við Svarts- engi. Það er álit þeirra manna sem standa að stofhun þessa fjárfest- ingafélags að á Suðumesjum séu góðar aðstæður til uppbyggingar nýrra fyrirtælq'a. í bréfínu segir: „Þær auðlindir sem fínnast á há- hitasvæðinu á Suðumesjum tengjast fíölmörgum möguleikum til nýrra og arðbærra fyrirtækja. Að auki eru starfandi á Suðumesj- um Ijölmörg fyrirtæki sem hið nýja fjárfestingarfélag gæti fjár- fest í.“ Nú þegar hafa um 60 athafna- menn sem spila stórt hlutverk í atvinnulífi á Suðumesjum sýnt áhuga á því að gerast virkir þát- takendur í undirbúningi og stofn- un félagsins, eða samstarfshóp sem lýtur að þeim markmiðum sem Athöfn h.f. hefur. Sett hefur verið á laggimar undirbúnings- nefnd skipuð eftirtöldum aðiium: Einar S. Guðjónsson, Eiríkur Sig- urgeirsson, Eðvarð Júlíusson, Hjörtur Hjartar, Sigurbjöm Bjömsson, Jóhann Einvarðsson, Jon William Magnússon, Hregg- viður Hermansson, Arinbjöm Ólafsson, Eiríkur Alexandersson, Anton S. Jónsson, Gunnar G. Schram, Alfreð G. Alfreðsson, Ingólfur Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri, Júlíus Jónsson, fjármálastjóri, og Albert Alberts- son, yfírverkfræðingur. Starfs- stjóm skipa: Einar S. Guðjónsson, Eðvarð Júlíusson, Hjörtur Hjart- ar, Sigurbjöm Bjömsson, Jóhann Einvarðsson, og Alfreð G. Al- freðsson. Það sem snýr að Hitaveitu Suðumesja: Ingólfur Aðalsteinsson, Júlíus Jónsson, Albert Albertsson. Lögfræðilegur ráðunautur fyrir Athöfn hf. er Gunnar G. Schram. Undirbúningsnefnd hefur gengið frá uppkasti að stofnsamn- ingi og áskriftalisti fyrir hlutafé liggur frammi hjá nefndarmönn- um. Geta þeir sem áhuga hafa skrifað undir. Einnig er gerð grein fyrir væntanlegri starfsemi fé- lagsins í bréfínu og kemur þar fram m.a. að meginmarkmið fé- lagsins verði hagkvæmni ijárfest- inga við fjármögnun og þátttöku í fyrirtækjum. í samræmi við þennan tilgang mun félagið hafa frumkvæði að stofnun og endur- skipulagningu fyrirtækja og hafa milligöngu um annað í þessu sam- bandi. Þá mun félagið ábyrgjast lán, kaupa, eiga og selja hlutabréf og skuldabréf, taka þátt í rann- sóknum, reka fasteignir o.s.frv. Ráðgert er að hluthafar verði allt að 200. Hlutafé verður allt að 15 milljónum króna og skiptist í 300 jafna hluti, að nafhverði 50.000 krónur hver. Eitt atkvæði fylgir hveijum hlut, þó eru sett þau takmörk að enginn hluthafí geti farið með meira en 7% at- kvæða í félaginu, sem jafngildir 700.000 krónum að nafnvirði hlutafjár. Engar hömlur verða settar á sölu bréfana og veðsetn- ingu og er stefnt að því að félagið falli undir lög sem heimila að draga íjárfestinguna frá tekju- skattstofni. Að sögn Einars Guðjónssonar sem er aðalhvatamaðurinn að stofnun þessa félags, er kominn tími til að Suðumesjamenn taki höndum saman og hrindi þessu mikla ■ verkefni f framkvæmd. „Fjárfestingafélagið Athöfn er aðeins byijun og lykillinn að því að skapa velvilja meðal athafna- manna og einstaklinga í sveitarfé- lögunum sjö á Suðumesjum, auk þeirra fyrirtælq'a og athafna- manna sem hafa þar með atvinnu- rekstur að gera. I upphafí er ætlunin að einskorða þetta við Suðumesin og sjá hvort ekki sé til sá samtakamáttur hér á svæð- inu sem þarf til að hrinda svo stóru verkefni af stað sem skapa mun mörg hundmð manns at- vinnu. A fundi undirbúningsnefndar 8. september var það samdóma álit nefndarmanna að forgangs- verkefni í Athöfn hf. strax á eftir stofnun verði að hrinda í fram- kvæmd byggingu 100 herbergja heilsustöðvar á heimsmælikvarða á Svartsengissvæðinu í tengslum við lækningamátt Bláa lónsins sem þegar er þekktur víða um heim. í ljósi umræðna um fjárfest- ingarsjóð fyrir Norðurlöndin er búið að leggja drög að samvinnu aðila frá hinum Norðurlöndunum til að auðvelda fjármögnum heilsustöðvar og annarra verkefna á Suðumesjum í ffamtíðinni. Grunnurinn að þessum stórverk- eftium eru upplýsingar úr rann- sóknum sem fjölmargir vísinda- menn hafa staðið að á þessu svæði og ótalin era nefndarstörf margra fráfarandi og núverandi stjómar- manna sveitarfélaganna 7 á Suðumesjum í tengslum við upp- byggingu Hitaveitu Suðumesja. Stofnfundur íjárfestingarfé- lagsins Athafnar verður föstudag- inn 14. nóvember í samkomuhús- inu Festi kl. 14.00. Þeir sem hafa áhuga á að vera með í þessu verk- efni eru velkomnir þótt þeir hafí ekki fengið bréf,“ sagði Einar, og bætti við að í ráði væri að hleypa af stað hugmyndasamkeppni um byggingu heilsustöðvarinnar. Kr. Ben.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.