Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986 Stiörnu Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kœri stjömuspekingur. Viltu segja mér eitthvað um mitt stjömukort og hvemig at- vinna myndi henta mér best. Maki minn er „Ljón“ (dæmi- gert Ljón) og mér finnst við eiga vel saman, Sporðdreki og Ljón. Ég er fædd 11. nóv. 1967 kl. 00.10 á ísafirði." Svar: >ú hefur Sól, Merkúr og Mars í Sporðdreka, Tungl t Tvíbura, Venus í Steingeit, Meyju Risandi og Naut á Miðhimni. Plánetur þínar em í 4 húsum. Sól og Merkúr eru I 4. húsi, Tungl I 11., Mars í 3. og Venus i 5. húsi. Dul og heimakœr Sól i Sporðdreka í 4. húsi táknar að þú ert dul i innsta eðli þínu, ert tilfínningarík og skapstór. Þú hefur þörf fyrir örugga undirstöðu i lff þitt og heimili þitt skiptir þig miklu. Félagslynd Tungl í Tvíbura táknar að þú hefur einnig félagslynda og opna hlið á persónuleika þínum. Þú getur því sveiflast á milli þess að vilja draga þig í hlé og vera heima við og þess að þurfa nauðsynlega á því að halda að hitta fólk. Þú getur því virst misjöfn og óútreiknanleg. Trygglynd Venus I Steingeit táknar að þú ert trygglynd og fhaldssöm f ást og vináttu. Þú ert varkár og sýnir tilfinningar þlnar ekki svo auðveldlega, vilt biða og sjá til hvort hinum sé treystandi. í stað þess að segja: „Ég elska þig“, vilt þú heldur gera eitthvað fyrir ást- vin þinn. Nákvœm Meyja Rísandi táknar að þú ert frekar varkár og hlédræg f fasi og framkomu. Þú ert einnig nákvæm og átt til að vera smámunasöm og gagn- rýnin. Varkár í heild má segja að þú sért frekar dul og varkár. Þú þarft öryggi og varanleika en jafn- framt fjölbreytileika f daglegt líf. Kennsla og börn Vegna Tungls i Tvíbura í 11. húsi og Venusar, stjómanda Nautsins á Miðhimni, I 5. húsi gæti hentað þér vel að vinna fyrir félög og stærri stofnanir. Kennsla gæti átt vel við þig svo og störf með böm. Sporðdrekinn er fæddur sálfræðingur og því væri gott ef þú gætir notað sálrænt og tilfinningalegt næmi þitt í starfi og tengt það við þörf Tvíburans fyrir félagslegt samstarf, tjáskipti og um- ræðu. Rannsóknir Auk framangreinds hefur þú rannsóknarhæfileika. Sporð- drekinn táknar að þú átt auðvelt með að komast til botns í viðfangsefnum þínum, Meyjan að þú getur verið ná- kvæm og skörp. Fög eins og meinatækni gætu því átt við þig- Gagnrýni og draumar Það sem getur háð þér er einkum tvennt. í fyrsta lagi þarft þú að varast að vera of neikvæð og gagnrýnin I eigin garð. þarft að varast að rífa og bæla sjálfa þig niður, út af litlu sem engu. í öðru lagi táknar Mars í samstöðu við Neptúnus að þú átt til að dreyma um að framkvæma ákveðin_verk en gleyma að framkvæma þau. Þú getur því þurft að taka þig á til að ná árangri. X-9 UOSKA FERDINAND !!!!!!!!!!!!!!!!?!!!!?!!”””???!!!!!!!!!!?!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?!?!!!!!!!?!!!!?!?!!!!!?!!»».»!!?!?■■ Stórir bræður eiga að Þá það, hvað langar þig Sýndu mér hvernig á að kenna yngri systnim að að búa til? búa til hatt úr dagblaði... búa til hluti. Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Austur á fallega vöm gegn íjórðum spöðum suðurs í spilinu hér að neðan. Kemurðu auga á hana? Suður gefur; allir á hættu. Norður 4 86 4 KD2 ♦ ÁK9743 ♦ 72 Austur 4103 4 ÁG1054 4 D10 4ÁK94 Vestur Norður Austur Suður — — — 2 spaðar Pass 2 grönd Pass 3 grönd Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Opnun suðurs á tveimur spöð- um sýndi 6—10 punkta og sexlit í spaða og þrjú grönd síðar lof- uðu þéttum lit. Af ótta við að laufið væri opið valdi norður svo réttilega að spila frekar fjóra spaða. Vestur spilar út laufgosa og austur tekur tvo fyrstu slagina á ás og kóng. Drottningin kemur frá suðri I seinna laufið. Hvað svo? Sagnir hafa upplýst að sagn- hafi gefur engan slag á tromp. Það er líka ljóst á þessu stigi að suður á fimm rauð spil. Ef hann á þijá tígla er engin leið að bana samningnum, því þá rennur liturinn upp. En ef hann er með þijú hjörtu og tvo tígla er hugsanlegt að vömin fái tvo hjartaslagi, svo fremi sem sagn- hafi getur ekki nýtt sér tígullit- inn í blindum. Norður 486 4 KD2 4 ÁK9743 472 Vestur 4 G54 4 96 4 G86 4 G10863 Austur 4103 4 ÁG1054 4 D10 4ÁK94 Suður 4ÁKD972 4873 4 52 4D5 Til að hindra það verður að taka hjartainnkomuna úr blind- um áður en tígullinn er fríaður með trompun. Og það getur austur gert með því að spila hjartagosa í þriðja slag. Umsjón Margeir Pétursson Á argentínska meistaramótinu í haust kom þessi staða upp í skák hins nýbakaða stórmeistara Dani- el8 Campora, sem hafði hvítt og átti leik og Paglilla. 30. Hxd5! - exdö, 31. e6 - Hg8, 32. exf7 og svartur gafst upp. Campora sigraði örugglega á mótinu, hlaut IOV2 v. af 14 mögulegum. t öðru sæti með 9V2 v. varð áður óþekktur skákmaður, Casafus að nafni, en þriðja sætinu deildu gamla kempan Miguel Najdorf, Luis Bronstein og Ric- ardi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.