Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986 9 Sprengivika Stærrí pottur meirí möguleikar Stærri pottur meiri möguleikar getraunir —leikur fvrir alla! óskast í hluta eða fullt starf. Upplýsingar í síma 13010 kvöldsími 71669 HÁRGREIÐSLXISTOFAN KIAPPARSTÍG Fjárstreymi til Alþýðubandalagsins Alþýðubandalagið leitar eftir fjárstuðningi til fyrirtækja. For- stjóri stórs verzlunarfyrirtækis segist hafa lagt fjármuni til þess árum saman. Svavar Gestsson, flokksformaður, fer með veggj- um í frásögn um þetta fjárstreymi. Stingur höfði í sand og sér ekki gullið í lófa sér. Staksteinar velta vöngum í dag yfir við- brögðum hans. Framlagá framlag ofan Morgunblaðið hefur eftir Davið Scheving Thorsteinssyni, forstjóra Sólar hf., að hann hafí stutt Alþýðubandalagið með fjárframlögum árum saman. Orðrétt segir forstjórinn: „Það hefur komið til min mörgum sinnurn maður og borið mér kveðju félaga Svavars. Hann hefur spurt hvort ég gæti ekki hjálpað þeim alþýðubandalags- mönnum. Nú í vor kom hann t.d. fyrir bæjar- og sveitarstjómarkosning- amar og bað um styrk. Ég hefi veitt Alþýðu- bandalaginu slíka styrki og þessi maður hefur farið út með þá peninga. Ég er alveg sannfærður um að þessir peningar hafa runnið til Alþýðu- bandalagsins, svo vel þekki ég þennan mann.“ Vissulega vissihann Svavar Gestsson, flokksformaður, hefur sett á svið tilgerðarlegan feluleik, varðandi þenn- an og álíka fjárstuðning fyrirtækja við Alþýðu- bandalagið. Hann sagði t.d. í viðtali við Bylgjuna: „Ég held að það sé auðvitað [svoj alveg ljóst, að Alþýðubandalagið hefur ekki, sem stjóm- málaflokkur, tekið við peningum frá fyrirtækj- um í landinu ... Þannig að þetta er er nú bara ómerkilegt slúður hjá Davíð Scheving og hans nótum.“ Félagi flokksformaður er hógværari þegar hann ræðir við Morgunblaðið um gullstrenginn i gær. Þá segir hann: „Ég fer náttúrlega ekki með fjármál flokks- ins i einstökum atriðum, en mér finnst það afar ótrúlegt... Ég er ekki vanur að bera lygar á menn, þannig að ég skal ekkert um það segja hvemig á þessu stendur. Alþýðubandalagið hefur ekki tekið við peiningum frá fyrirtækjum. Hins- vegar er náttúrlega ljóst að fyrirtækin hafa aug- lýst i Þjóðviljanum og jafnvel dreifiblöðum, gefnum út á vegum flokksins_“ Davíð Scheving segist hinsvegar hafa rætt við milligöngumann um pen- ingalegan fjárstuðning við Alþýðubandalagið og gengið úr skugga um að framlögin hafi alltaf skil- að sér til Alþýðubanda- lagsins. Milligöngumað- urinn segi hinsvegar ekki á hreinu, hvort Svavar hafi vitað um þetta til- tekna framlag „en vissu- lega hafi hann vitað af því að fé var safnað frá nokkrum fyrirtækjum". Bylgjan sem bar hann uppi... Stjómmálamenn eiga að segja satt, ef Jjeir vilja eiga trúnað almennings. Draga verður í efa að Alþýðubandalagið geti, árum saman, leitað eftir fjárstuðningi hjá fyrir- tækjum án vitundar flokksformannsins. Það var þvi ekki hátt risið á formanni Alþýðbanda- lagsins þegar hann kom fram fyrir alþjóð í Bylgj- unni og segir gerðan hiut ógerðan. Orð og efndir eiga sjaldnast samleið þegar Alþýðubandalagið á í hlut. Flokkurinn minnir um margt á „rótlaust þangið, sem rekur um víðan sjá“. Alþýðubanda- lagið hefur, ítrekað, rekið inn í aðildarríkis- stjóra að NATÓ. Það rak fjórtán sinnum upp á sker lögskerðingar al- mennra launa á árum ráðherrasósialismans. Það rak í óðaverðbólgu til nánast daglegrar kaupmáttarskerðingar krónunnar, sem varð smásjármatur í höndum þess. Það getur allt eins reldð til fjárbeiðna hjá fyrirtækjum. Bylgjuviðtal flokks- formannsins telst vart til vegsauka. „Bylgja“ fjár- streymis, sem ber „bandalagið" uppi, segir sína sögu um flokk í hróplegri mótsögn við sjálfan sig. Segir ekki i kvæðinu um hið rótlausa þang [hér notað sem samliking við Alþýðu- bandalagið]: „bylgjan sem bar það uppi, var blóðrauð við sólarlag". Og „auðvitað" og „nátt- úrlega", svo notuð séu uppáhaldsorð flokks- formannsins, er margt sólsetur fegurra en það, sem nú er hlutskipti Al- þýðubandalagsins. Menn velta nú vöngum yfir gullstrengnum, sem ekki má tala um upphátt á höfuðbóli pólitískrar hræsni i landinu. FJALIALAMB í HÁLFUMMOKKUM. GÓÐUR MATUR OG ODYR!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.