Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986 13 Afli togaraflotans fyrstu átta mánuði ársins: 14,57% meðaltalsaukníng afla miðað við úthaldsdag AFLI tog’araflotans miðað við úthaldsdag hefur aukist um 14,57% að meðaltali fyrstu átta mánuði þessa árs, samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Skiptaverðmæti aflans hefur vaxið að meðaltali um 44.14% á sama tíma. Þetta kemur meðal annars fram í skýrsiu Landssam- bands íslenskra útvegsmanna yfir aflaverðmæti og úthalds- daga togara fyrstu átta mánuði þessa árs. Á minni skuttogurunum var aukningin á skiptaverðmæti miðað við úthaldsdag minnst á Vestfjörð- um 39,01%, en mest á Norðurlandi 51,13%. Afli V estfj arðatogarana jókst um 12,51% miðað við úthalds- dag og meðalskiptaverðmæti miðað við kíló af fiski jókst um 23,36%. Afli Austfjarðatogara jókst hins vegar mest ef miðað er við úthalds- dag eða um 24,74% og meðalskipta- verðmæti miðað við kíló af fiski jókst mest hjá togurum af Suður- landi eða um 28,55%. Heildarafli togaraflotans fyrstu átta mánuði ársins var 226.711 lestir. Þar af öfluðu minni skuttog- arar 179.216 lesta, frystitogarar samtals 16.953 lesta og stærri tog- arar samtals 30.542 lesta. Afla- hæstur stærri skuttogara var Harðbakur EA 303 með 3.926 tonn, en Guðbjörg ÍS 46 var aflahæst minni skuttogara með 3.861 tonn og með hæst brúttóaflaverðmæti tæpar 126 milljónir. Hins vegar kom Karlsefni RE 24 með mest aflaverðmæti stærri skuttogara að landi rúmar 85 milljónir, en hann seldi meirihluta afla síns erlendis. Aflahæst frystitogara var Akur- eyrin EIA 10 með 3.633 tonn. Brúttóaflaverðmæti hennar var einnig mest, tæpar 179 milljónir króna. Hoffell SU 80 er með hæstan afla á hvem úthaldsdag 22,2 tonn, en Guðbjörgin er næst með 18,4 tonn. Hún er með hæst skiptaverð miðað við úthaldsdag, tæplega 385 þúsund krónur, en næst er Hoffell- ið með rúmar 355 þúsund krónur. Hæstu togarar miðað við brúttó aflaverðmæti YFIRLIT yfir aflaverðmæti og úthaldsdaga togara 1/1—31/8 1986. Minni skuttogarar: Vestmannaeyjar Suðurland: Aflamagn Meðalafli Skipta- Meðal Brúttó- tonn pr. úth.d. verð pr.kg. verðm. pr. úth.dag. verð MarSH 127 2067 11.1 25.1 278600.9 84557099 Ýmir HF343 1645 7.7 23.6 181268.2 71453473 Breki VE61 3186 14.4 14.2 205258.4 71153329 Meðaltölur. Meðalskiptaverðmæti pr.kg 15.04. Meðalafli pr. úthaldsdag. kg 11559.92. Meðalskiptaverðmæti pr. úthaldsdag. kr. 173902.79. Vestfirðir: Aflamagn Meðalafli Skipta- Meðal Brúttó- tonn pr. úth.d. verð pr.kg. verðm. pr. úth.dag. verð GuðbjörglS 46 3861 18.4 20.9 384487.7 125091118 Páll Pálsson IS 102 3311 15.5 21.0 326016.1 98775095 BessiIS410 2686 13.2 22.7 299988.5 95150758 Júlíus Geirm. IS 270 2509 12.6 24.7 311498.3 91760599 Dagrún IS 9 3228 13.7 18.7 255855.7 90953551 Sléttanes IS 808 3114 14.5 18.3 265541.8 86603445 Meðaltölur: Meðalskiptaverðmæti pr.kg 19.91. Meðalafli pr. úthaldsdag kg 12504.70. Meðalskiptaverðmæti pr. úthaldsdag kr. 249025.43. Norðurland: Aflamagn Meðalafli Skipta- Meðal Brúttó- tonn pr. úth.d. verð pr.kg. verðm. pr. úth.dag. verð Stakfell ÞH 360 2611 13.2 20.3 267477.7 69704557 Kolbeinsey ÞH 10 2692 13.1 16.9 221385.2 64161258 Björgúlfur EA 312 2541 13.0 17.4 225214.8 63398881 Meðaltölur: Meðalskiptaverðmæti pr.kg 17.59. Meðalafli pr. úthaldsdag kg 10801.84. Meðalskiptaverðmæti pr. úthaldsdag kr. 190056.11. • • „Oflug námskynning er rétta leiðin til að fækka læknanemum“ - segir formaður Félags læknanema HELGI H. Sigurðsson, formaður Félags Iæknanema, telur að efla beri námskynningar innan framhaldsskólanna, þannig að stúdentum séu Ijósari atvinnuhorfur innan þeirra starfsgreina sem þeir hyggj- ast hefja nám í. Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðismálaráðherra tekur í sama streng og Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra segist tilbúinn að ræða við lækna hvenær sem er til að ræða vanda- mál vegna offjölgunar innan iæknastéttarinnar. Helgi sagði það skoðun sína að æskilegast væri að kynna nemend- um framhaldsskólanna framtíðar- horfur í störfum tengdum hinum ýmsu námsbrautum áður en þeir hæfu háskólanám. Hann sagðist mótfallinn því að loka læknadeild- inni, en augljóst væri að læknanem- ar væru nú of margir og eflaust erfitt að koma öllum í gegnum kandidatsskylduna. Læknanemar gerðu sér grein fyrir erfíðum at- vinnumöguleikum innan lækna- stéttarinnar, en þó væru nokkrar sérgreinar betur settar en aðrar, t.d. sérmenntaðir heilsugæslulækn- ar, og jafnframt kallaði þessi þróun á nýjar starfsgreinar innan læknis- fræðinnar. „Þar má t.d. nefna að meiri áherslu er hægt að leggja á fyrirbyggjandi læknisfræði, farald- ursfræðilegar rannsóknir á út- breiðslu og orsökum sjúkdóma og annað þessháttar.“ -Læknastúdentar hafa yfírleitt verið mótfallnir fjöldatakmörkun- um eins og fram kom hjá formanni Læknafélagsins og varaforseta læknadeildarinnar í blaðinu í síðustu viku. Hvaða áhrif hefur fyr- irsjáanlegt atvinnuleysi á viðhorf stúdenta? „Þetta er mjög viðkvæmt mál. Það er erfítt að velja úr þá stúd- enta sem eiga rétt á námi í læknis- fræði. Stúdentar hafa verið mótfallnir fjöldatakmörkunum eins og þær hafa tíðkast, en við höfum bent á takmörkun nemendafjölda á faglegum grunni, með ákveðinni lágmarkseinkunn á prófum. En það er auðvitað stjómmála- manna að ákveða hversu marga lækna á að hafa í landinu og stjórn- völd eiga einnig að beina fólki inn á námsleiðir sem eru þjóðfélagslega hagstæðar og er öflug námskynn- ing í framhaldsskólunum rétta leiðin til þess,“ sagði Helgi H. Sig- urðsson. „Ég er tilbúinn að ræða málin hvenær sem er, en vil fá að vita hvaða ráð læknar leggja til“ sagði Sverrir Hermannsson menntamála- ráðherra, er hann var beðinn um að segja álit sitt á ofíjölgun í lækna- stéttinni. „Málið hefur aldrei verið á mínu borði og get ég því ekki stært mig af neinum niðurbrotum á málefnum deildarforseta lækna- deildarinnar, enda er ég ekki búinn að vera í þessu embætti nema tæpa 14 mánuði.“ Sverrir sagðist ekki kunna að meta þá fullyrðingu að offjölgun lækna væri alfarið á ábyrgð stjórnvalda og vísaði málinu frá sér. Ragnhildur Helgadóttir heil- brigðisráðherra sagðist ekki geta fellt sig við hugmyndir um að loka læknadeildinni í ákveðinn árafjölda, því þar með væri komið í veg fyrir að fjölmargt hæfíleikafólk ynni við læknastörf. Eðlilegra væri að veita stúdentum sem gleggstar upplýs- ingar um atvinnuástand innan læknastéttarinnar og þeir ættu það svo við sig hvort þeir leggðu út á námsbraut þar sem atvinnuhorfur væru lélegar. Þeim sem hefðu áhuga á að vinna innan heilbrigðis- kerfisins væri hinsvegar bent á skort á hjúkrunarfræðingum. „Sumar þjóðir hafa fækkað vinnu- stundum starfandi lækna til að fleiri læknar fái vinnu en það hefur ekkert verið rætt hér hjá okkur. Ég vona að þetta ástand lagist mest af sjálfu sér án þess að það þurfi að beita meiri takmörkunum en þeim sem þegar eru fyrir hendi.“ Aflamagn Meðal- Skipta- Meðal- Brúttó- tonn; afli verð skipta- verð pr. pr.kg verðm. pr. Samtals uth.d. uth.dag Snæfugl SU 20 2302 11.7 18.3 214371.7 68652193 Bjartur NK 121 2766 15.5 17.2 267963.6 68014284 Barði NK 120 2403 12.3 17.9 219924.1 66519987 Stærri skuttogarar: Akureyri: Aflamagn Meðal- Skipta- Meðal- Brúttó- tonn: afli verð skipta- verð pr. pr.kg verðm. pr. samtals uth.d. uth.d. Harðbakur EA 303 3926 17.0 13.1 222276.4 69965712 KaldbakurEA 301 3224 14.0 13.6 190438.1 59692348 Sléttbakur EA 304 2743 12.4 13.1 162944.2 48684671 Svalbakur EA 302 2849 14.3 13.3 190355.7 51289274 Alls 12742 229632005 Austurland: Meðaltölur: Meðalskiptaverðmæti pr. kg. 13.27 Meðalafli pr. úthaldsdag — kg 14463.07 Meðalskiptaverðmæti pr. úthaldsdag — kr. 191870.68 Hafnarfjörður og Reykjavík: Aflamagn Meðal- Skipta- Meðal- Brúttó- tonn: afli verð skipta- verð pr. pr.kg verðm. pr. samtals uth.d. uth.dag Dagstjaman KE 3 2017 10.1 16.5 166555.6 46705222 Engey RE 1 1345 10.7 19.5 207692.5 42203372 fíarlsefni RE 24 3020 14.0 17.8 249452.2 85265230 Snorri Sturlus. RE 219 1827 8.6 27.3 234215.1 77402667 Viðey RE 6 VíðirHF 201/ 1416 10.7 16.7 179647.6 37309880 EXApríl HF 347 3071 15.3 14.2 216742.4 56194873 Vigri RE 71 2104 12.0 20.7 247457.8 69894882 Ögri RE 72 3000 13.3 17.4 232391.0 81532230 Alls 17800 496508356 Meðaltölur: Meðalskiptaverðmæti pr. kg 18.34 Meðalafli pr. úthaldsdag — kg 11954.32 Meðalskiptaverðmæti pr. úthaldsdag — kr. 219186.76 Frystiskip Akureyri EA 10 Arinbjöm RE 54 Freri RE 73 Hólmadrangur ST 70 Siglfirðingur SI150 SigurbjörgOF 1 ÖrvarHU 21 Aflamagn Meðal- Skipta- Meðal Brúttó- tonn: afli verð skipta- verð pr. uth.d. pr.kg verðm. pr. uth.dag samtals 3633 17.1 32.0 545963.1 178879380 1886 10.4 22.8 235968.7 94057433 2376 12.2 28.7 350098.5 103386202 2338 12.6 32.6 412115.9 117223818 767 9.0 31.2 281490.8 37887009 2604 15.0 30.2 451653.8 118846454 3348 17.3 32.9 570503.2 163546245 Alls 16953 813826541 Meðaltölur: Meðalskiptaverðmæti pr. kg 31.92 meðalafli pr. úthaldsdag — kg. 14930.44 Meðalskiptaverðmæti pr. úthaldsdag — kr. 476650.80 Samanburður við sama tímabil á síðastliðnu ári: Meðalskipta- breyt- meðalafli Breyt- Meðalskipta- Breyt- verðmæti ing pr. úth. ing verðm. pr. ing pr.kg milli dag: milli úthaldsdag: milli ára ára ára i. Minni skuttogarar: 1986(1985) % 86: (85) % 1986: (1985) % 1.1 Vestm.-Snæfellsnes 15.04 (11.70) 28.55 11.6(10.5) 10.48 173.903(122.541) 41.92 1.2 Vestfírðir 19.91 (16.14) 23.36 12.6(11.2) 12.51 249.026(179.144) 39.01 1.3 Norðurland 17.59(14.19) 23.97 10.9 ( 8.9) 22.48 190.057(125.758) 51.13 1.4 Austurland 17.37(14.66) 18.49 11.6 ( 9.3). 24.74 200.206 (136.054) 47.16 1.5 Meðaltal allra 17.06(13.73) 24.26 11.6(10.0) 16.00 197.403(136.993) 44.10 minni skuttogara 2. Stærri skuttogarar: 2.1 Hafnarfjörður og Reykjavík 18.34 (13.56) 35.26 12.0(10.7) 12.15 219.187(144.275) 51.93 2.2 Akureyri 13.27(10.60) 201.14 15.0(13.7) 9.49 476.651 (144.919) 228.91 2.3. Meðaltal allra 16.22(12.30) 31.87 12.9(11.8) 9.33 209.032(144.510) 44.65 stærri togara 2.3. Meðaltal allra 31.92 15.0 476.650 frystiskipa 3. Allir togarar: 3.1. Meðaltal ailt landið 16.94(13.50) 25.49 11.8(10.3) 14.57 198.946(138.027) 44.14 (Tölur innan sviga eru frá 1/1-31/8 1985)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.