Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986 Föst laun starfsmanna ráðuneyta: Tæpur helmingur heildarlauna í stjómarráðinu, þ.e. hjá ráðu- neytum, Hagstofu, Ríkisendur- skoðun og Fjárlaga- og hagsýslustofnun, starfa 378 manns. Dagvinnulaun eru 48,35% heildarlauna starfsfólksins. Yfir- vinnulaun 32%, önnur laun 17% og aðrar greiðslur 2,7%. Þetta kemur fram í svari fjármálaráð- herra við fyrirspum frá Guðr- únu Agnarsdóttur (Kl.-Rvk.), sem lagt var fram á Alþingi í gær. Stöðugildi á dagvinnulaunum í stjómarráðinu eru 378,3. Stöðu- gildin skiptast þannig á einstök ráðuneyti: forsætisráðuneytið, 14,4, menntamálaráðuneyti 44,5, ut- anríkisráðuneyti 32,5, landbúnað- arráðuneyti 12,7, sjávarútvegs- ráðuneyti 15,2, dómsmálaráðuneyti 21,2, félagsmálaráðuneyti 13,9, heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti 18,6, samgönguráðuneyti 10,9, iðn- aðarráðuneyti 14,1, viðskiptaráðu- neyti 12,3, Hagstofa Islands 38,1, Ríkisendurskoðun 35,5 og Fjárlaga og hagsýslustofnun 12,6. í svarinu kemur ennfremur fram að föst yfírvinna er aðeins greidd í forsætisráðuneytinu. í liðnum „öðrum launum" eru nefndagreiðsl- ur ráðuneytanna meðtaldar en þær ganga að meiri hluta til annarra en starfsmanna í stjómarráðinu. Þetta skekkir framangreind hlutföil fastra launa og annarra launa. Fyrirspurnir: Iimheimtuaðgerðir og söluskattsskil Hver er hlutur ríkisins í Sjóefnavinnslu Nokkrar fyrirspurair vóm lagðar fram á Alþingi í gær: * Kjartan Jóhannsson (A.-Rn.) spyr fjármálaráðherra, hvort dæmi séu þess að fjármálaráðuneytið hafi ákveðið að fresta innheimtuaðgerð- um vegna söluskattsskila lengur en um tvo mánuði hjá einstökum aðil- um. Ef svo er óskast tilgreint hversu oft svo hafi verið árlega 1980-1986 og sömuleiðis birt skrá yfir hvaða aðila sé um að ræða á árunum 1984-1986. Ennfremur er spurt hvort dæmi séu um að ráðuneytið hafi heimilað greiðslu á tolli og sölu- skatti við innflutning með skulda- bréfum. Loks hvort ráðuneytið hafi heimilað greiðslu skattsekta með skuldabréfum. * Guðni Agústsson (F.-Sl.) spyr iðnaðarráðherra, hversu stóran hlut ríkið eigi í Sjóefnavinnslunni á Reykjanesi. Hann vil og fá að vita hversu mikla peninga ríkið hafí lagt í verksmiðjuna og hvort þátttaka ríkisins í fyrirtækinu stangist ekki á við stefnu ríkisstjómarinnar um að selja ríkisfyrirtæki og draga úr ríkisumsvifum. * Þórarinn Siguijónsson (F.- Sl.) spyr menntamaálaráðhherra, hver stefna hans sé í hússtjómar- fræðslu. Hefur ráðuneytið undirbúið eða unnið að endurskoðun laga um hússtjómarskóla? Hefur verið samin eða er verið að semja reglugerð um hússtjómarfræðslu? Hvenær má vænta þess að skipaður verði náms- stjóri eða námsstjórar fyrir heimilis- fræðslu á öllum skólastigum? * Haraldur Ólafsson (F.-Rvk.) spjr heilbrigðisráðherra: Eru í undir- búningi ráðstafanir af hálfu heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- isins til að lækka lyfjakostnað í landinu, t.d. með lækkun álagningar á lyf eða öðrum aðgerðum? Forsetar þjóðþinga Norðurlanda þinga hér ÞINGFORSETAR þjóðþinga Norðurlanda halda sameiginleg- an fund í Alþingishúsinu i dag og hefst hann kl. 10. Er þetta í fyrsta sinn sem þingforsetamir halda slíkan fund hérlendis en þeir hafa áður haldið sameigin- lega fundi með nokkurra ára millibili á hinum Norðurlöndun- um. Fund þennan sitja ásamt þingforsetum skrifstofustjórar þjóðþinganna. Að loknum fundinum er fundar- mönnum boðið í móttöku til forseta íslands að Bessastöðum. Alþingi býður þeim síðán til kvöldverðar í Þingholti. A fundinum verða meðal annars til umræðu málefni varðandi þing- sköp þjóðþinganna og fundarstjóm, öryggi þingmanna, tölvuvæðingu og norrænt samstarf þingmanna. Þingforsetar halda heimleiðis ásamt skrifstofustjórum þinganna að morgni laugardags 8. nóvember. Hinir erlendu þátttakendur eru: Svend Jakobsen forseti danska þingsins ásamt skrifstofustjóra þess, Helge Hjortdal, Erkki Pystyn- en, forseti finnska þingsins, ásamt skrifstofustjóra þess, Erkki Ketola, forseti norska þingsins, Jo Benkow, ásamt skrifstofustjóra þess, Erik Mo, og forseti sænska þingsins, Ingemund Bengtson, ásamt skrif- stofustjóra þess, Sune K. Johans- son. Jóni H. Stefánssyni, eðlisve'rkfræð- ingi hjá ísal. Þau eiga 3 böm. Ámi, verkfræðingur og arkitekt á Höfn, kvæntur Kristbjörgu Guð- mundsdóttur, húsmóður. Þau eiga 3 böm. Anna, líffræðingur og læknakandidat, gift Þórarni Guð- mundssyni læknakandidat. Þau eiga 2 böm. Sigbjöm, jarðeðlis- fræðingur, sem stundar nám í arkitektur í Osló. Ragna missti Kjartan sviplega vorið 1978 og má segja að hún bæri aldrei sitt barr eftir það þótt hún bæri harm sinn í hljóði. Þau voru mjög samhent og samrýnd og skópu börnum sínum fagurt og frið- sælt heimili. Ur heimaranni fengu systkinin gott og ómælt veganesti. Ragna vann sitt aðalævistarf inn- an veggja heimilis síns. Hún var mikil húsmóðir og þar kom menntun hennar að góðum notum. Hún var sívakandi yfir velferð eiginmanns og bama. Heimilið bar vott um smekkvísi, vandvirkni og natni. Oftast var vinnudagurinn langur, því á læknisheimilinu var löngum erilsamt áður en heilsugæslustöð var byggð á Höfn. Án efa hefur Rögfnu oft orðið svefns vant meðan flestar ár voru óbrúaðar í A-Skafta- fellssýslu, er hún beið Kjartans þegar hann var kallaður til sjúkra jafnt á nóttu sem á degi og þurfti oft að berjast við óblíð náttúruöfl. Ragna og Kjartan vom samtaka um að fegra og vernda umhverfi sitt og ber sumarbústaðarland þeirra í Lóninu þess gleggstan vott. Þangað leituðu þau oft er stundir gáfust til að njóta friðar og hvíldar og þar gróðursettu þau tré og hlúðu að viðkvæmum gróðri. Fáir, sem séð hafa blómaskrúðið í blómaskál- anum og garðinum á Hrísbraut, gleyma því. Ragna og Kjartan vom mjög gestrisin og stóð heimili þeirra opið öllum vinum og vandamönnum. Þar vom allir bornir á höndum og um- vafðir hlýju og velvilja. Urðum við mörg þess aðnjótandi að verður það seint fullþakkað. Að Kjartani látnum fór Ragna að vinna við heilsugæslustöðina á Höfn. Þar sem annars staðar kom samviskusemi og vandvirkni hennar í ljós og mun hennar án efa saknað af samstarfsmönnum. Á þessari skilnaðarstundu, þegar við hrygg í huga kveðjum vinkonu okkar, minnumst við með söknuði allra þeirra góðu stunda sem við áttum með henni. Við fæmm bömum hennar, tengdabörnum og öllum öðmm sem henni vom kærir innilegar samúð- arkveðjur í sorg okkar allra. Blessuð sé minning hennar. „Sízt vil ég tala um svefn við þig. Þreyttum anda er þægt að blunda og þannig bíða sælli funda. Það kemur ekki mál við mig. Flýt þér, vinur, í fegra heim. Kijúptu að fótum friðarboðans, og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim.“ (Jónas Hallgrímsson.) Stúdentar MR 1943 Komið til mín allir þeir, sem erf- iði og þunga em hlaðnir, og ég mun veitayður hvíld. (Mattheus 11, 28.) Eg átti því láni að fagna að fá tækifæri til að kynnast Ranghildi þegar við unnum saman um nokk- urt skeið á Heilsugæslustöðinni á Höfn. Tókust strax með okkur góð kynni sem héldust þó ég flyttist búferlum. Ragnhildur tók mér í upphafi mjög vel og var mér mikil stoð og stytta þegar ég hóf störf þar sem læknaritari. Það var margs að spyija í nýju starfi og varð ég þess fljótlega vör að Ragnhildur var heil fróðleiksnáma á ýmsum svið- um. En hæst fannst mér bera frábæra íslenskukunnáttu, en þar hafði hún allar stafsetningar- og málfræðireglur á hreinu að ógleymdri setningarfræðinni. Stundum líkti ég henni við alfræði- orðabók sem hægt var að fletta upp í eftir þörfum. Margs er að minnast um góðan vinnufélaga og minningarnar sækja að huga mínum. En efst stendur minning um myndarlega og góða konu sem mikil reisn var yfir, hún var hógvær og lítillát, en lá þó ekki á skoðunum sínum ef svo bar við. Með afbrigðum vel greind, geðgóð og hláturmild í góðra vina hópi. Þó fannst mér alltaf skyggja á gleði hennar hversu mjög hún syrgði eig- inmann sinn, Kjartan Ámason, héraðslækni, er lést árið 1978. Aðstandendum Ragnhildar sem nú eiga um sárt að binda votta ég mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning hennar. Valborg Einarsdóttir M CEVINTYRALECIR KULDASKOR ÚR MJÚKU LEÐRI, . •• v>V- ,.1* ALLIR . ^O/ LOÐFÓÐRAÐIR * oJ°j ' ^ • ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.