Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986 VEÐUR IDAGkl. 12.00: Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16 15 j gær) I/EÐURHORFUR IDAG: YFIRUT á hádegi f g»r: Á Grænlandshafi er víðáttumikil og vax- andi lægð á hreyfingu austnorðaustur. Yfir Norður-Grænlandi er 1023 millibara hæð. SPÁ: Með morgninum lítur út fyrir norðaustan hvassviðri og snjó- komu á Vestfjörðum, en á suðausturlandi verður vindur hægur af suðvestan með skúrum. Norðaustanáttin breiðist síðan smám sam- an suðaustur yfir landið og með kvöidinu verður hvöss norðaustan- og norðanátt um allt land og kólnandi veður. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: LAUGARDAGUR og SUNNUDAGUR: Allhvöss eða hvöss (7-8 vind- stig) norðanátt um land allt, bjartviðri um sunnanvert landið en annars staðar él. Hiti á bilinu -7 til -4 stig. TÁKN: <(^^)> Heiðskírt V \Æk. Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * # •JO' Hftastig: 10 gráður á Celsíus V Skúrir * V El = Þoka — Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik Bergen Helsinkl ian Mayen Kaupmannah. Narssarssuaq Nuuk Osló Stokkhólmur Þórshöfn Algarve Amsterdam AÞena Barcelona Beriín Chicago Glasgow Feneyjar Frankfurt Hamborg LasPalmas London Los Angefes Lúxemborg Madrld Malaga Mallorca Montreal Nlce NewYork Paris Róm Vfn Washington Winnlpeg veöur skýjaö skýjað skýjað slydda alskýjað skýjað heiðskfrt þoka lóttskýjað súld alskýjað hálfskýjað skýjað skýjað skýjað skúr þokumóða skýjað þokumóða skýjað skúr vantar lóttskýjað alskýjað þokumóða mistur léttskýjað léttskýjað súld lóttskýjað súld súld skýjað skýjað lóttskýjað alskýjað Flugfélög hafa áhyggjur af öryggi flugfarþega: Skora á ríkis- stjórnir að herða öryggisgæslu - Samdrætti mætt með aukinni samvinnu f élaganna FLUGFÉLÖG um allan heim hafa nú miklar áhyggjur af ör- yggismálum flugfarþega og flugvalla í kjölfar aukinnar hryðjuverkastarfsemi, sérsak- lega á flugvöllum í Evrópu, og á síðasta aðalfundi alþjóðasamtaka flugfélaga, IATA, sem haldinn var í Montreux í Sviss um síðustu helgi, voru samþykkt tilmæli til ríkisstjórna og flugvallaryfir- valda aðildarlandanna að styrkja öryggi flugfarþega. Þetta kom fram í samtali við Sigurð Helga- son forstjóra Flugleiða sem sat fundinn fyrir hönd Flugleiða Hryðjuverkastarfsemin og óttinn við hana, og kjarnorkuslysið í Chemobyl í sumar, hafa orðið til þess að mjög hefur dregið úr ferða- lögum til Evrópu og þar af leiðandi er gert ráð fyrir að tap verði á heildarrekstri IATA árið 1986. Sig- urður Helgason sagði þó að Flug- leiðir stæðu vel þetta ár miðað við önnur flugfélög þar sem sætanýting hjá félaginu hefur hækkað. Olíuverðslækkunin hefur ekki nýst flugfélögum sem ætla mætti vegna þess að mörg þeirra eru að endurnýja flugflota sinn og kaupa vélar sem eyða minna eldsneyti. Félögin eru því með háan fjár- magnskostnað auk þess sem ýmsar kostnaðarhækkanir hafa orðið í rekstrinum. Þetta hefur orðið til þess að flugfélög eru að taka upp samvinnu í æ rikara mæli. Þannig hafa flugfélögin British Caledonian og SABENA tekið upp sameiginlegt flug til Atlanda til að ná betri nýt- ingu, og SAS, Finnair og SABENA eiga nú í viðræðum um samnýtingu áætlunarleiða A aðalfundi IATA var að sögn Sigurðar Helgasonar mikið rætt um aukna samvinnu flugfélaga í Evr- ópu í fargjaldaflokkun og farskrán- ingu en slíkt er kleyft með aukinni tæknivæðingu flugfélaganna. Þá var einnig þeim tilmælum beint til ríkisstjórna að þau dragi úr skatt- heimtu af flugfélögum, sem einkum er tvennskonar, flugvallarskattur og yfirflugsskattur. Yfirflugsskatt- urinn er sérstaklega hár í Evrópu og leiðir af sér hærri fargjöld þang- að Missti sljórn á bíln- um og ók á annan MJÖG harður árekstur varð á Haf narfjarðarvegi snemma í gærmorgun. Tvær bifreiðar eru mikið skemmdar en engin meiðsli urðu. Áreksturinn varð með þeim hætti að bifreiðamar tvær voru báðar á suðurleið eftir veginum. Við syðri brú í Kópavogi missti ökumaður annarrar stjóm á farartækinu og leiku gmnur á að hann hafi verið ölvaður. Bifreiðin kastaðist upp á umferðareyju og síðan aftur út a veginn, í veg fyrir hina bifreiðina. Eins og áður sagði urðu meiðsli á mönnum lítil sem engin, en bifreið- amar eru báðar stórskemmdar eftir. Skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp: Fyrsti slíkur dóm- ur sem kveðinn er upp hérlendis SEXTÁN ára piltur hefur verið dæmdur í Sakadómi Reykjavíkur í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp. Hefur skilorðsbindingu ekki verið beitt til þessa hér á landi í málum þar sem dæmt er til fangelsisvistar i lengri tíma en 1 ár. Pilturinn stakk jafnaldra sinn með vasahníf fyrir utan skemmti- staðinn „Villta tryllta Villa“ við Skúlagötu í september í fyrra og lést hann skömmu síðar. Var brot piltsins talið varða við 211. grein almennra hegningarlaga þar sem segir: „Hver, sem sviptir annan mann lífí, skal sæta fangelsi, ekki skemur en 5 ár, eða ævilangt." Sakadómarinn, sem kvað upp dóm- inn, Haraldur Henrysson, taldi þó að aðstæður væru þannig að við ákvörðun refsingar bæri að taka tillit til 75. greinar hegningarlaga, þar sem segir m.a. að færa megi refsingu niður ef brot er framið í ákafri geðshræringu. Einnig bæri að líta á ungan aldur piltsins. Seg- ir svo í niðurstöðu dómara: „Mál þetta er mjög sérstætt og óvenju- legt. Kemur þar einkum til hinn ungi aldur ákærða annars vegar og hins vegar það samspil tilfínn- ingalegs ójafnvægis, sem rekja má til sjúkdóms hans, og óhappaatvika, sem leiddi til þess örlagaríka verkn- aðar, sem hér er fjallað um.“ Ríkissaksóknari hefur ákveðið að dóminum skuli áfrýjað til Hæsta- réttar. Veijandi piltsins var Guðmundur Ingvi Sigurðsson, en af ákæruvaldsins hálfu flutti Bragi Steinarsson, vararíkissaksóknari, málið. Fundargestir á aðalfundi LÍÚ í Vestmannaeyjum niðursokknir í Iestur fundarskjalannaM°rRUnblað'ð/SlfrUrí?t'r Aðalfundur LÍÚ: Tillaga felld um jöfnun afla- marks eftir landsvæðum I 8*» m Frá Hirti Gíslasyni, blaðamanm Morgunblaðsins: A aðalfundi LÍÚ í gær var felld það bil 600 tonna munur var á tillaga um jöfnun þorskafla- marks eftir landssvæðum. Um milli skipa eftir svæðum og sá munur var byggður á veiði- reynslu áranna áður en kvóta- kerfið var tekið upp Snarpar umræður urðu um þessa tillögu á fundinum en það sem mestu máli skipti í umræðunni var að með því að auka þorskaflamark hjá þeim sem minni skammt höfðu hlyti það að þýða að einhversstaðar yrðj tekið af öðrum. Á fundinum urðu einnig nokkrar umræður um fiskmarkað en niður- staða náðist ekki. í dag er von á Halldóri Ásgrímssyni sjávarútvegs- ráðherra til Vestmannaeyja og mun hann ávarpa þingið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.