Morgunblaðið - 07.11.1986, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986
Kvenna-
byltingin
Ný kynslóð er óðum að festa
rætur á öldum ljósvakans. Tök-
um sem dæmi þáttinn: í takt við
tímann, sem er á dagskrá ríkissjón-
varpsins rétt eftir kvöldfréttir á
miðvikudögum. Síðasti þáttur var al-
farið í höndum fjögurra ungmenna,
þeirra Ásdísar Loftsdóttur, Elínar
Hirst, Karítasar Gunnarsdóttur og
haninn í hópnum var hinn góðkunni
Jón Gústafsson.
Ég er persónulega mjög ánægður
með þá ákvörðun forráðamanna sjón-
varps að fela þessu unga fólki hið
vandasama verk að stýra sjónvarps-
þætti í beinni útsendingu. Jón
Gústafsson er að vísu vanur sjón-
varpsmaður en það er ekki auðvelt
fyrir stúlkurnar að stökkva inní slíkan
þátt sem: í takt við tímann er. En
enginn verður óbarinn biskup og mik-
ilvægt er að leggja af djörfung þann
grunn er sjónvarpið byggir á starf-
semi sína á næstu árum og áratugum.
Þá er að mínu viti ekki síður mikil-
vægt að sjónvarpið nýti sér reynslu
og þekkingu þeirra sem eldri eru.
Væri óskandi að kynslóðabilið ill-
ræmda fyrirfyndist ekki á starfsvett-
vangi íslensks sjónvarps í framtíðinni.
Þátturínn
Ég flallaði nýlega um þáttinn: í
takt við tímann og hef fáu við að
bæta nema því að mér fannst tækni-
stjómin á þætti númer 2 ekki jafn
styrk og þá Jón Hákon Magnússon
mætti með sjónvarpsbflinn uppí Há-
skóla. Vorkenndi ég hálfpartinn
Ásdísi Loftsdóttur þá hún lenti í raf-
magnsstólnum. Hvað varðar við-
fangsefni þáttarins þá var þar vikið
að ýmsum áhugaverðum hlutum svo
sem tískunni er tveir reykvískir tísku-
kóngar kynntu, þá var borgarstjóra-
frúin okkar, hún Ástríður Thoraren-
sen, sótt heim og varð Davíð að láta
sér nægja að sitja stilltur og prúður
í skugga húsfreyju, þá upplýsti Kjart-
an Gunnarsson, formaður útvarps-
réttamefndar, landsmenn um
flölmiðlabyltinguna en senn er von á
fjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva
og loks ræddi Jón við tvo islenska
hljómplötuútgefendur er lýstu
ástandinu á hljómplötumarkaðinum.
Efni þáttarins var sum sé í takt við
tímann. Væri betur að þessi þáttur
færðist svolítið aftar í dagskránni til
dæmis til kl. 8.45.
Sigurveig
Stöð 2 rændi tveimur ágætis
fréttamönnum frá ríkissjónvarpinu
þeim Páli Magnússyni og Sigurveigu,
Jónsdóttur. í gærdagsgrein minntist
ég á Pál fréttastjóra og nú er komið
að Sigurveigu. í miðvikudagsfréttum
Stöðvar 2 hreyfði Sigurveig við máli
sem ekki má liggja í þagnargildi.
Neyð þeirra mörgu einstaklinga er
bíða eftir öruggu húsnæði hjá Borg-
inni. Hér er gjaman um að ræða
fullorðið fólk er hrekst á milli leigu-
herbergja og hefir sumt ekki nema
7.000 krónur til að lifa af yfir mánuð-
inn þegar leigan hefir verið greidd.
Góðærið margfræga sneiðir sennilega
fram hjá þessu fólki. Þá tjáði Sigur-
veig sjónvarpsáhorfendum að hér
væru einstæðar konur I meirihluta
og heimsótti hún tvær slíkar. Heim-
sókn Sigurveigar leiddi hugann að
Málfríði Sigurðardóttur alþingis-
manni er mætti fyrr um kveldið fyrir
framan sjónvarpsvélamar en Málfríð-
ur hefir lagt fram frumvarp á Alþingi
er veitir heimavinnandi húsmæðrum
Iífeyrisréttindi og raunar fleiri aJ-
menn mannréttindi. Þegar Málfríð-
ur var spurð hvað hún héldi að
frumvarpíð kosti landsmenn þá spurði
hún á móti: Hafiði hugleitt þær fjár-
hæðir sem heimavinnandi húsmaeður
spara samfélaginu? Góð spuming
handa körlunum að glíma við á næstu
spástefnu.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / SJÓNVARP
Stöð tvö:
Klassapíur
Á dagskrá
1030 Stöðvar tvö í
1U kvöld er banda-
ríski gamanþátturinn
Klassapíur, eða „The Gold-
en Girls" eins og hann
nefnist á frummálinu.
Þátturinn fjallar um
fjórar rosknar konur, sem
ákveða að fara til Flórída,
til þess að eyða þvi sem
eftir er lífsins þar. Þær
Ieggjast þó síður en svo í
kör þama því ætíð er nóg
RÚV Sjónvarp:
Bolinn frá Bronx
■■■■ Á dagskrá sjón-
0040 varpsins í kvöld
er myndin Rag-
ing Bull, eðá „Bolinn frá
Bronx“, eins og hún nefnist
í íslenskri þýðingu. Mynd-
inni, sem Robert De Niro
fer með aðalhlutverkið í,
er leikstýrt af Martin
Scorcese. Hún fjallar um
æfi hnefaleikamannsins
Jake LaMotta, bolans frá
Bronx.
Hið fyrsta sem LaMotta
lærði í þessu lífi, var að
stela og fljúgast á — hvem-
ig vera skyldi harðari af
sér en næsti maður. Þar
sem LaMotta var einstæð-
ingur í eðli sínu og treysti
engum, notaði hann barátt-
una í hringnum til þess að
fá útrás fyrir innbyrgða
vanlíðan.
En sömu hæfíleikar og
gerðu LaMotta að hnefa-
leikameistara komu honum
á kné í einkalífinu. Hann
fómar öllu fyrir heims-
meistaratitilinn og auð-
ævum þeim, er honum
áskotnuðust, eyddi hann í
vín og villtar meyjar.
Svo fer þó að lokum að
langþreytt og lúbarin eig-
inkona hans yfirgefur og
bróðir hans snýr við honum
baki.
Myndin er svart/hvít og
er 128 mínútur að lengd.
fyrir stafni og ekki verður
sagt að þær séu sammála
um alla hluti.
Dorothy er fráskilinn
kennari, sem veit sínu viti
og lætur ekki bjóða sér
hvað sem er. Áttræð móðir
hennar, Sophia, er með í
för og þrátt fyrir háan ald-
ur og heilsuleysi er hún
kjamyrtust og ákveðnust
þeirra kvenna. Rose er hins
vegar ekki sérlega vel gef-
in, en vill öllum vel og tekur
hveiju sem hendir með
pollýönnsku hugarfari.
Blanche, sú sem á húsið,
sem þær búa í, er ekta
Suðurríkjadama; en auk
þess sjálfselsk ekkja í ver-
gjamara lagi.
Þættir þessir hafa fengið
mikið hrós gagnrýnenda
blaða s.s. Variety, People
Magazine og National En-
quirer.
UTVARP
FOSTUDAGUR
7. nóvember
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin
— Páll Benedíktsson,
Þorgrímur Gestsson og
Lára Marteinsdóttir. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
7.20 Daglegt mál
Hrlingur Siguröarson flytur
þáttinn. (Frá Akureyri.)
9.00 Fréttir
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Maddit" eftir Astrid
Lindgren. Sigrún Árnadóttir
þýddi. Þórey Aðalsteins-
dóttir les (10).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Ljáðu mér eyra
Umsjón. Málmfríður Sigurð-
ardóttir. (Frá Akureyri.)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur
Umsjón: Sigurður Einars-
son.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Ör-
lagasteinninn" eftir Sigbjörn
Hölmebakk. Sigurður Gunn-
arsson les þýðingu sína (4).
14.30 Nýtt undir nálinni
Elin Kristinsdóttir kynnir lög
af nýjum hljómplötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn
Lesið úr forustugreinum
landsmálablaöa.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir
16.20 Barnaútvarpið
Stjórnendur: Kristín Helga-
dóttir og Vernharður Linnet.
17.00 Fréttir
17.03 Siödegistónleikar
a. Hátíöarforleikur eftir
Hugo Alfvén. Fílharmoníu-
sveitin I Stokkhólmi leikur;
Stig Westarberg stjórnar.
b. Þrír sænskir þjóðdansar.
Þjóðdansahljómsveit Gunn-
ars Hahns leikur.
c. Tvö rússnesk þjóðlög,
Riddaramars og Stenka
Rasin. Dom kósakkakórinn
syngur; Serge Jaroff stjórn-
ar.
d. Þrír tékkneskir danskar
eftir Bedrich Smetana.
Rikisfílharmoníusveitin í
Brno leikur; Frantisek Jilek
stjórnar.
17.40 Torgiö — Menningar-
mál
Umsjón: Óðinn Jónsson.
18.00 Þingmál
Atli Rúnar Halldórsson sér
um þáttinn.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál
Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Erlingur Sigurð-
arson flytur. (Frá Akureyri)
19.40 Létt tónlist
20.00 Lög unga fólksins
Valtýr Björn Valtýsson kynn-
ir.
20.40 Kvöldvaka
a. Rauðamyrkur
Hannes Pétursson lýkur
lestri söguþáttar síns.
/Z
SJÓNVARP
FOSTUDAGUR
7. nóvember
17.55 Fréttaágrip á táknmáli
18.00 Litlu prúðuleikararnir
(Muppet Babies). 16. þáttur.
Teiknimyndaflokkur eftir Jim
Henson. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
18.25 Stundin okkar
Endursýndur þáttur frá 2.
nóvember.
18.55 Auglýsingarogdagskrá
19.00 Spítalalif
(M*A*S*H). Sjötti þáttur.
Bandariskur gamanmynda-
flokkur sem gerist á neyöar-
sjúkrastöð bandariska
hersins í Kóreustríðinu. Að-
alhlutverk: Alan Alda.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.30 Fréttir og veður
20.00 Auglýsingar
20.10 Sá gamli
(Der Alte). 21. Garöyrkju-
maðurinn. Þýskur saka-
málamyndaflokkur.
Aöalhlutverk Siegfried Low-
itz. Þýðandi Veturliði
Guðnason.
21.10 Unglingarnir í frumskóg-
inum
Umsjón: Vilhjálmur Hjálm-
arsson. Stjórn upptöku:
Gunnlaugur Jónasson.
21.40 Þingsjá
Umsjónarmaöur Ólafur Sig-
urösson.
21.55 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
22.25 Á döfinni
22.35 Seinni fréttir
22.40 Bolinn frá Bronx
(Raging Bull). Bandarísk
verðlaunamynd frá 1980.
Leikstjóri Martin Scorsese.
Aðalhlutverk: Robert De
Niro, Cathy Moriarty, Joe
Pesci og Frank Vincent.
Saga hnefaleikamannsins
Jakes La Motta sem kallaö-
ur var Bolinn frá Bronx. Jake
ólst upp í hörðum skóla og
var vægðarlaus í hringnum.
Hann hlaut mikinn og skjót-
an frama en þoldi illa
meðlætið enda sneri gæfan
við honum bakinu. Þýðandi
Kristmann Eiðsson. Atriði í
myndinni eru ekki við barna
hæfi.
00.50 Dagskrárlok
STÖDTVÖ
FÖSTUDAGUR
7. nóvember
17.30 Myndrokk.
18.30 Teiknimyndir.
19.00 Ástarhreiörið
(Let There Be Love).
Þegar tengdamóðir Tim-
othys kemur í heimsókn
finnst honum hún bera hann
saman við fyrrum eigin-
mann Judy.
19.30 Klassapiur
(The Golden Girls).
Þættir þessir fjalla um fjórar
konur á miöjum aldri sem
ætla að eyða hinum gullnu
árum ævi sinnar á Florida
20.00 Fréttir.
20.30 Undirheimar Miami
(Miami Vice). Bandariskur
sakamálaþáttur.
21.30 Venjulegt fólk
(Ordinary People).
Bandarísk fjölskyldumynd
með Donald Sutherland og
Mary Tyler Moore i aðal-
hlutverkum. Mynd þessi
fjallar um þá breytingu og
sálfræðilegu röskun er verð-
ur innan fjölskyldunnar
þegar einn meölimur henn-
ar fellur frá. Leikstjóri:
Robert Redford.QL 23.
30 Benny Hill. Breskur
gamanþáttur.
24.00 Morðingjarnir
(The Killers).
Bandarísk kvikmynd með
Lee Marvin, Angie Dickins-
son og Ronald Reagan í
aöalhlutverkum.
Mynd þessi er sýnd í tilefni
komu Reagans hingað til
lands.
01.30 Myndrokk.
05.00 Dagskrárlok.
b. Ljóðarabb
Sveinn Skorri Höskuldsson
flytur.
c. Rímur eftir Sigurð Breið-
fjörð. Sveinbjörn Beinteins-
son kveður.
21.35 Sígild dægurlög
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hljómplöturabb
Þorsteins Hannessonar.
23.00 Frjálsar hendur
Þáttur í umsjá llluga Jökuls-
sonar.
24.00 Fréttir
00.05 Næturstund I dúr og
moll
með Knúti R. Magnússyni.
1.00 Dagskrárlok
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
FOSTUDAGUR
7. nóvember
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur og Kristjáns Sigurjóns-
sonar.
12.00 Hádegisútvarp
með fréttum og léttri tónlist í
umsjá Gunnlaugs Sigfússon-
ar.
13.00 Bót f máli
Margrét Blöndal les bréf frá
hlustendum og kynnir óskalög
þeirra.
15.00 Allt á hreinu
Stjórnandi: Bertram Möller.
16.00 Endasprettur
Þorsteinn G. Gunnarsson
kynnir tónlist úr ýmsum áttum
og kannar hvað er á seyöi um
helgina.
18.00 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin
Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir.
23.00 Á næturvakt
með Ásgeiri Tómassyni og
Vigni Sveinssyni.
3.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
RJEYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30—18.30 Svæöisútvarp fyr-
ir Reykjavík og nágrenni — FM
90,1 MHz.
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæöisútvarp fyr-
ir Akureyri og nágrenni — FM
96,5 MHz.
98*9
msmm
FOSTUDAGUR
7. nóvember
06.00—07.00 Tónlist í morg-
unsáriö.
Fréttir kl. 7.00.
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 8.00 og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslögin og
ræðir við hlustendur til há-
degis.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur.
Jóhanna leikur létta tónlist,
spjallar um neytendamál og
stýrirflóamarkaði kl. 13.20.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar og spjallar viö hlustendur
og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykjavík
síðdegis. Hallgrímur leikur
tónlist, lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00 og 19.00.
19.00—22.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson. Þorsteinn leikur
tónlist og kannar hvað næt-
urtífiö hefur upp á að bjóða.
22.00—04.00 Jón Axel Ólafs-
son. Nátthrafn Bylgjunnar
leikur létta tónlist úr ýmsum
áttum og spjallar við hlust-
endur.
04.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist fyrir þá
sem fara seint í háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.