Morgunblaðið - 07.11.1986, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986
mk
.*.* ’•.*.*•"• •.**• •,*.*•• •.*•*•• *.*•'• •.*.*•*•
ájráijwijjái
ájáM)piijajwM
mmMg®
Carina II er bíll sem býður upp á meira en glæsilegt
útlit, þægindi og langa endingu.
Hann hefur góða aksturseiginleika, enda framhjóla-
drifinn, kraftmikill og rennilegur með mjúkum ávölum
línum sem draga úr loftmótstöðu.
Carina II er bíll sem uppfyllir ströngustu
kröfur hvers og eins um fullkomna tækni,
mikil þægindi og vandaðan frágang.
TOYOTA
Framsókn í Reykj avík:
Þrír berjast
um efsta sætið
FRABOÐSFRESTUR vegna
prófkjörs framsóknarmanna í
Reykjavík, sem fram fer 29. og
30. þessa mánaðar, rann út á
miðnætti í fyrrakvöld. Þeir Har-
aldur Ólafsson alþingismaður,
Finnur Ingólfsson aðstoðarmað-
ur sjávarútvegsráðherra og
Guðmundur G. Þórarinsson,
fyrrum alþingismaður hafa ailir
tilkynnt framboð sitt og að þeir
stefni að fyrsta sæti listans.
Auk þeirra hafa tilkynnt framboð
sitt þau Valdimar K. Jónsson,
Sigríður Hjartar, Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, Finnbogi Marínós-
son, Þór Jakobsson og Helgi S.
Guðmundsson.
Þátt í prófkjörinu geta tekið
flokksbundnir framsóknarmenn,
svo og aðrir þeir sem sækja um að
fá að taka þátt í prófkjörinu eigi
síðar en 19. nóvember, samkvæmt
upplýsingum flokksskrifstofu
Framsóknarflokksins.
“Pro: Eitt stykki háskóli“
eftirBjörn Þ.
Guðmundsson
Einu sinni var verið að skegg-
ræða menntun alþingismanna og
stefndi í óefni um einn þegar heyrð-
ist hljóð úr horni: „Hann hefur þó
altént meiraprófið.“ Hver veit nema
hann hafi til þess notið kennslu á
háskólastigi.
Ég segi þessa sögu vegna þess
að á dögunum spurði ég Halldór
Blöndal, alþingismann, þessarar
spumingar: „Hvað er kennsla á
háskólastigi?" Hann skrifar mér
grein í Morgunblaðið á laugardag-
inn en svarar samt ekki spurning-
unni. Lái honum hver sem vill, ekki
geri ég það: Svarið er nefnilega
ekki til. Þess vegna átti ég allt eins
von á því að Halldór hringdi og
segði mér það í símann. En sem
betur fer gerði hann það ekki því
að þá lægi nú ekki fyrir skrifleg
yfirlýsing hans um það að hann
hyggst beita sér fyrir því að settur
verði á laggimar háskóli á Akur-
eyri sem sýnir mér og öðrum að
hann skilur hvers konar grundvall-
aratriði fólst í spumingu minni —
og mæli hann nú manna heilastur.
Loksins segir hann næstum því
það, sem laukrétt er, að stofnanirn-
ar, skólarnir, geta verið á háskóla-
stigi, tækniháskólar, kennarahá-
skólar o.s.frv. Þar fara fram
háskólarannsóknir, stundað er há-
skólanám og háskólakennsla látin
í té. Og láti nú guð á gott vita.
En vonandi fýrirgefst mér samt
að minnast á það, að vestur á Mel-
um í Reykjavík er ennþá vistfast
óskilgetið barn sem kom undir fyrir
fyrra stríð. Allt frá þeim getnaði
hefur gengið erfiðlega að fá ein-
hvern til þess að gangast við
faðeminu og því hafa meðlags-
skuldir hrannast upp. Þetta bless-
aða barn, óskabam þjóðarinnar,
Háskóli íslands, dregur þess vegna
enn fram lífið með því að selja happ-
drættismiða, orðið sjötíu og fímm
ára gamalt. En nú er fyrirmyndar-
faðirinn fundinn með ijársjóð í
hendi og einfalda lausn á fátæktar-
málunum: Hann ætlar bara að
barna aftur.
Einu sinni var svona reikningur
sendur suður frá Akureyri: „An:
Eitt stykki flugturn“. En nú kemur
væntanlega nóta að norðan sem
mark er takandi á: „Pro: „Eitt
stykki háskóli."
Einar Már Guðmundsson
Skáldsaga
eftir Einar Má
Guðmundsson
EFTIRMÁLI regndropanna heitir
skáldsaga eftir Einar Má Guð-
mundsson sem komin er út hjá
Almenna bókafélaginu. Þetta er
þriðja skáldsaga Einars Más.
í frétt frá AB segir m.a.: „And-
stætt fyrri skáldsögum höfundar
eru börn og unglingar ekki lengur
burðarás sögunnar í þessari bók,
heldur er það fullorðið fólk sem er
leiksoppar margs konar örlaga. Þar
er meðal annars sagt frá Daníel
presti, Sigríði konu hans, sagna-
glöðum söðlasmiði og Anton rakara.
í Eftirmála regndropanna er
fléttað saman nútíð og fortíð. í við-
bót við nútímann er efni sótt í
þjóðlegan arf, álfa- og draugasög-
ur. Frá öllu er sagt með hinni
hljóðlátu kímni Einars Más.
Fyrri verkum Einars Más hefur
vegnað vel erlendis. Báðar fyrri
skáldsögur hans hafa verið þýddar
á Norðurlandamál.og verið vel tek-
ið. Um þessar mundir koma verk
eftir hann út á fjórum tungumálum.
Eins og segir á bókarkápu: „Hann
er e.t.v. íslenskastur okkar ungu
höfunda en þær íslensku aðstæður
sem hann lýsir fá ævinlega almenna
skírskotun. Snerta alla heims-
byggðina.““
Eftirmáli regndropanna er 235
bls. að stærð prentuð í Prentsmiðju
Áma Valdemarssonar hf. en bók-
band annaðist Bókbandsstofan
Örkin.
Björn Þ. Guðmundsson
Og þá vildu víst allir Lilju kveðið
hafa — eða hvað?
Höfundur erprófessor við laga-
deild Háskóla íslands.
ÍHróðleikur og
A. skemmtun
fyrirháa semlága!
GLÆSILEG,
STÍLHREIN OG
ÞÆGILEG
CARINAII