Morgunblaðið - 07.11.1986, Page 21
í .
c$cr tftfiyi?v . r /i )A - V íT'^cv ,‘í iíí s?ufyjfotfí
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986
KOSNINGARNAR I BANDARIKJUNUM
AP/Símamynd
Robert Byrd, öldungardeildarþingmaður frá Vestur-Virginíu, og
Robert Dole, öldungadeildarþingmaður frá Kansas, ræddu við
blaðamenn í gær áður en þeir svöruðu spurningum sjónvarps-
áhorfenda.
Byrd og Wnght lik-
legir deildarforsetar
Washington, AP.
NÝIR forsetar öidunga- og fulltrúardeildar Bandaríkjaþings verða
ekki kjörnir fyrr en i janúar, en tveir þingmenn hafa þegar gert
tilkall til starfans. Jim Wright er talinn vel að embætti forseta full-
trúadeildarinnar kominn og þess
forseti öldungadeildarinnar.
Meirihluti demókrata í fulltrúa-
deildinni var aldrei í hættu enda
bættu þeir við sig nokkrum sætum.
Ólíklegt er að til átaka komi þegar
Wright tekur við af Thomas P.
O’Neill, sem lætur af störfum for-
seta deildarinnar.
Byrd mun aftur á móti taka við
gerbreyttri öldungadeild. Demó-
kratar náðu meirihluta í deildinni í
kosningunum á mánudag og sagði
Byrd á miðvikudag að búist mætti
við miklum breytingum á stefnu og
í starfsmannahaldi.
Wright og Byrd eru jafn ólíkir og
fráfarandi deildarforsetar, O’Neill
og Robert Dole. O’Neill er frá Bost-
on og tyggur á vindlum sínum meðan
hann gerir samninga í bakherbergj-
um, en Dole er orðhvass og baráttu-
glaður.
Wright komst fyrst á þing 1954.
Hann er félagslyndur eins og O’Neill,
en gefinn fyrir orðskrúð í ræðum
og augu sjónvarpsvélanna. Wright
er íhaldssamari en O’Neill, en hann
er vænst að Robert C. Byrd verði
hefur ætíð fylgt forseta fulltrúa-
deildarinnar að málum og á það
þátt í þvi að O’Neill styður hann sem
arftaka sinn.
Byrd var fyrst kjörinn á þing
1958. Hann er hógværari en bæði
Wright og Dole og hann er greini-
lega ekki í essinu sínu fyrir framan
sjónvarpsvélar.
Búist er við að Dole taki nú við
af Wright sem leiðtogi minnihlutans
í öldungadeildinni: „Eg vildi fremur
vera leiðtogi meirihlutans, en hinn
starfínn gefur manni fijálsari hend-
ur hvað öll smáatriði varðar," sagði
Dole.
Dole mun einnig hafa fijálsari
hendur til að sækjast eftir útnefn-
ingu sem forsetaefni repúblikana
fyrir kosningamar 1988. „Það á í
raun fremur við um demókrata en
okkur á sfðasta þingi að þeir hafi
starfhæfan meirihluta. Nú verður
forsetinn að koma til þingsins,"
sagði Dole.
Kosningarnar ósigur
fyrir Ronald Reagan
New York, AP.
í UMFJÖLLUN fjölmiðla utan Bandaríkjanna var því yfirleitt haldið
fram að ávinningur demókrata í kosningunum á mánudag væri áfall
fyrir Ronald Reagan Bandaríkjaforseta. Var jafnvel látið að þvi
liggja að hann þyrfti að beijast fyrir ýmsum helstu áætlunum sínum
heima fyrir og væri geimvamaráætlunin þar með talin.
Dagblöð í ýmsum löndum sögðu
að hagsmunum þeirra væri stefnt í
hættu vegna úrslita kosninganna.
Demókratar náðu meirihluta í öld-
ungadeildinni í kosningunum og
styrktu meirihluta sinn í fulltrúa-
deildinnni.
Fréttaskýrandi sovésku frétta-
stofunnar Novosti sagði að úrslit
kosningamar bæru með sér að tíma-
bil Reagans væri að renna sitt skeið
á enda. Hann sagði að repúblikanar
hefðu ekki efnt loforð sín um að
efla efnahag Bandaríkjanna og auka
velmegun. Þetta ásamt niðurskurði
í félagsmálum og „neikvæðs við-
horfs" til utanríkismála hefði vegið
þungt á metunum í kosningunum.
í Parísarblaðinu Le Monde sagði
í leiðara á forsíðu: „Persónutöfrar
Reagans hrifu ekki að þessu sinni.
Vinsælasta forseta Bandarikjanna
um langt skeið tókst ekki að gera
kraftaverkið, sem flokkurinn bjóst
við af honum.“
í blaðinu sagði að demókratar
myndu líkast til nota meirihluta sinn
í báðum deildum þingsins til að
spyma fótum við geimvamaráætlun
Reagans. „Draumur Reagans um
útrýmingu kjamorkuvopna og geim-
vamir hefur fjarlægst."
f japönskum dagblöðum sagði að
sigur demókrata myndi leiða til auk-
innar vemdarhyggju af hálfu
Bandaríkjamanna. .ialdið var fram
að reynt yrði að þvinga Japana til
að opna markaði sína.
f helsta tímariti Japana um efna-
hagsmál, Nihon Keizai Shimbun,
sagði: „Demókratar hafa oft og
tíðum sakað stjóm Reagans um
stefnuleysi í viðskiptamálum þegar
mikill viðskiptahalli við Japan hefur
blasað við. Það er augljóst að nú
siglir í kjölfarið aukin gagnrýni á
Japana."
Minnsta
kjörsókn
síðan 1942
Washington, AP.
FYRSTU tölur í kosningunum i
Bandaríkjunum á mánudag gáfu
til kynna að aðeins 37,3% kjör-
gengra Bandaríkjamanna hefðu
neytt réttar síns til að greiða
atkvæði. Þetta er minnsta kosn-
ingaþátttaka í 44 ár, að þvi er
Curtis Gans, yfirmaður sjálf-
stæðrar nefndar, sem rannsakar
þátttöku i kosningum i Banda-
rikjunum.
Samkvæmt fyrstu tölum greiddu
66,24 milljónir manna atkvæði í
kosningunum, en rúmlega 112
milljónir manna, sem orðnir em
átján ára og hafa atkvæðisrétt sátu
heima, segir Gans.
Gans kvaðst hafa tekið eftir því
að kjörsókn hefði verið minni en
1978. Þá greiddu 37,7% kjósenda
atkvæði. Þátttakan hefði verið svip-
uð og í heimsstyijöldinni síðari. I
kosningunum 1942 hefðu t.d. rétt
rúmlega 30% kjósenda greitt at-
kvæði.
TISJÍUSYNJNG
I DAG I
Kjörgarði,
Laugavegi 59
Kl.17,2.HÆÐ
Kaffistofan
Lóuhreiður
AMADEUS
ÖLL
ALMENN HÁRSNYRTING
Pandóra
%Zlltima hf.
PIK#LÁ
hárgreiðslustofa
Storkurinn
boutique
m.rnan<2a
Góður afsláttur af öllum húsgögnum í versluninni.
ALLT AÐ 45% VERÐLÆKKUN
VEGNA BREYTINGA
Við færum okkur bráðlega um set í nýtt og
endurbætt húsnæði og bjóðum þess vegna húsgögn
á einstæðu tilboðsverði í nokkra daga.
Til að létta okkur flutningana, opnum við
húsgagnaútsölu í dag í núverandi húsakynnum
verslunarinnar. Útsalan stendur aðeins í nokkra
daga eða á meðan birgðir endast.
Eftir breytingarnar hefjum við framleiðslu á
þessum sömu vörutegundum á ný, en þá verða
þær aftur á fullu verði.
Á útsölunni býður Viðja sömu góðu greiðslu-
kjörin: 20% útborgun og mánaðarlegar afborgan-
ir til allt að 12 mánaða.
Það líður brátt að hátíðum og þá vilja margir
hressa upp á húsbúnaðinn með einhverju nýju.
Notið tækifærið og látið heimilið ekki fara í
jólaköttinn, - fáið falleg húsgögn á mikið
niðursettu verði.
Trésmiöjan
viðja
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
sími 44444
þar sem
góðu kaupin
gerast.