Morgunblaðið - 07.11.1986, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986
Slepak-hjón-
in látin laus?
New York, Reuter.
ALEXANDER Slepak, sonur so-
véska andófsmannsins og gyð-
ingsins Vladimirs Slepak, sagði
eftir fund bandariskra og sové-
skra embættismanna í Vín í gær
að faðir sinn myndi ef til vill fá
brottflutningsleyfi innan
skamms.
Alexander Slepak hafði eftir
Gennady Gerasimov, talsmanni so-
véska utanríkisráðuneytisins, að
útlit væri fyrir að stefna Sovét-
manna í málum útflytjenda myndi
Beljavskí
nú efstur
breytast til batnaðar og hvað föður
hans varðaði væri ástæða til bjart-
sýni.
Alexander er nú kominn til New
York eftir þriggja daga dvöl í Vín.
Að sögn Alexanders Slepak ætl-
aði Eduard Shevardnadze, utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna, að fjalla
um mál Vladimirs á fundi með
starfsbróður sínum, George P.
Shultz, í Vín.
Hann sagði að Gerasimov hefði
gefið í skyn að það ylti á samkomu-
lagi við Bandaríkjastjóm hvort faðir
hans fengi að fara.
„Ég er þess nú fullviss að foreldr-
ar mínir fá að fara," sagði Alexand-
er. Maria og Vladimir Slepak sóttu
fyrst um leyfi til að flytja frá Sov-
étríkjunum fyrir sautján árum.
Henrietta Orlovsky reis upp á blaðamannafundi með Sovétmönnum á Hótel Sögu meðan á Reykjavíkur-
fundinum stóð til að vekja athygli á málstað systur sinnar Mariu Slepak og eiginmanns hennar, Vladimir.
í Hollandi
Pakistan:
Sovétmenn aðstoða Indveija
við framleiðslu á kjamorku
Tilburg, Hollandi.
ÚRSLIT í 13. umferð skákmótins
í Hollandi urðu þau, að Timman
vann Korchnoi og Ljubojevic
vann HUbner, en jafntefli varð
hjá Beljavskí og Portisch og
Karpov og Miles.
Úrslit biðskáka úr 12. umferð
urðu þau, að Miles vann Ljubojevic,
en jafntefli varð hjá Portisch og
Húbner og Timman og Karpov.
Áður hafði Beljavskí unnið Korc-
hnoi.
Eftir 13 umferðir var staðan í
mótinu þannig, að Beljavskí var
efstur með 8 vinninga, næstur kom
Ljubojevic með 7 1/2 vinning, þá
Karpov með 7 vinninga, í fjórða til
fímmta sæti voru Portisch og Tim-
man með 6 1/2 vinning hvor og í
sjötta og sjöunda sæti voru þeir
Húbner og Miles með 6 vinninga
hvor. Korchnoi rak svo lestina með
4 1/2 vinning.
Islamabad.AP.
RÍKISSTJÓRN Pakistan hefur
leyft sovéskum flugvélum er
flutt hafa efni til framleiðslu á
kjarnorku, að fljúga í lofthelgi
sinni og nota flugvelli þar í landi,
að því er talsmaður stjómarinnar
sagði á miðvikudag.
Talsmaðurinn, er ekki vildi láta
nafns síns getið, sagði fréttamönn-
um að sovésku flugvélamar hefðu
verið að flytja þungt vatn o.fl. til
Indlands og nú væri í athugun hjá
yfirvöldum í Pakistan beiðni frá
Sovétstjóminni um frekari flutn-
inga af þessu tagi. Yfirlýsingin kom
fram er fréttamenn vom að spyija
hvort bandarískar kafbátaleitar-
flugvélar notuðu flugvelli í nágrenni
höfuðborgarinnar, Karachi. Sagði
talsmaðurinn að ríkisstjóm Pakist-
an áliti það hluta af eðlilegum
samskiptum þjóða að leyfa flugvél-
um og skipum afnot af flugvöllum
og höfnum landsins.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins í Pakistan sagði á miðvikudag,
að staðhæfingar um að Pakistanir
væm að smíða kjamorkuvopn væm
tilhæfulausar með öllu. Sagði hann
að rannsóknir þeirra beindust ein-
göngu að friðsamlegri notkun
kjamorku og nær væri fyrir þá er
um þessi mál fjölluðu, að beina sjón-
um að ríki einu í nágrenni Pakistan,
þar sem sprengd hefur verið kjam-
orkusprengja og yfirvöld hafa
viðurkennt að þekking sé þar fyrir
hendi til þess að smíða kjamorku-
vopn. Talsmaðurinn nefndi Indland
ekki á nafn, en það er eina ríkið á
þessu svæði, þar sem sprengd hefur
verið kjamorkusprengja og var það
gert árið 1974. Ríkisstjóm Pakistan
segist styðja Iq'amorkuvopnalaust
svæði í Suður-Ásíu.
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
Verð kr. 11.875,-
____________ HF
LAUGAVEGI 170 • 172 SÍMI: 695550
Qeát/I
KENWOODCw
Barn fæddist eftir
sjálfsvíg móður
Chicago, AP.
SLÖKKVILIÐSMENN tóku á móti stúlkubarni eftir að móðir
þess framdi sjálfsmorð með því að stökkva fram af 30 m háum
járnbrautarturni í Chicago.
Yfirvöld sögðu að bamið hefði
grátið hátt og snjallt og litaraft
þess hefði verið hraustlegt við
fæðinguna.
Bamið var 12 merkur að þyngd
við fæðingu og var við sæmilega
heilsu snemma í gær. Stúlkan var
flutt á bamaspítala við háskólann
í Chicago. Anthony Savino var
einn slökkviliðsmannanna og
hann tók á móti baminu á sunnu-
dag „Ég held að barnið hafi litið
mjög vel út miðað við allt sem
það mátti að þola.“
Móðir barnsins hét Connie Hor-
an og var hjúkrunarkona. Að sögn
lögreglu framdi hún sjálfsvíg
vegna þess að hún hélt að fóstrið
væri andvana.
Hún fór á sunnudag með manni
sínum í sjúkrahúsið, sem hún vann
við vegna þess að hún hélt að
komið væri að fæðingu.
Starfslið sjúkrahússins var þess
ekki umkomið að sannfæra
Connie Horan um að lífsmark
væri með fóstrinu. Dugði ekki til
að móðirin tilvonandi fékk að
hlýða á hjartslátt fóstursins í
hlustunarpípu.
Allt virtist ganga að óskum þar
til upp komst að Connie Horan
var horfin á braut. Skömmu síðar
barst tilkynning til lögreglu að
kona hefði klifrað upp á ljósatum
við jámbrautarteina skammt frá
sjúkrahúsinu. Að sögn lögreglu
stökk hún þegar fyrsti lögreglu-
þjónninn birtist við tuminn.
Framsóknarflokkurinn
stofnaður í Færeyjum
Þórshöfn. Frá Hilmari Jan Hansen, fréttaritara Morgunblaðsins.
ADOLF V. Hansen lýsti yfir því
á þriðjudag hann sæti nú á fær-
eyska lagaþinginu fyrir nýjan
flokk, Framsóknarflokkinn.
Hansen hefur hefur setið á þingi
síðan 1978. Þegar síðast var kosið
var nafni flokks hans breytt úr
Framfara- og fiskveiðiflokknum í
Kristilega þjóðarflokkinn - fram-
fara- og fískveiðiflokkinn. Nýir
menn höfðu gengið til liðs við flokk-
inn og vildu breyta nafni hans í
Kristilega flokkinn.
Þegar ný ríkisstjóm var mynduð
1985 átti flokkurinn kost á aðild
að stjóm, en deilur spruttu upp um
það hver þingmanna hans skyldi
sitja í henni. Hansen sagði sig úr
flokknum vegna þessa ágreinings
og hefur síðan verið utan flokka.
Böggull fylgdi skammrifí. Hans-
en gat ekki lagt fram ný mál vegna
sérstöðu sinnar á þinginu. Ákvað
hann því að stofna nýjan flokk og
nefndi hann Framsóknarflokkinn.