Morgunblaðið - 07.11.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR l.< NÓVEMBER 1986
»23
Strauk úr fangelsi
í þyrlu samfanga
Pleasanton, Kalíforníu. AP.
ÞYRLU var flogið niður í
garð fangelsis suður af San
Francisco og tókst kvenfanga
að flýja með henni. Talið er
að flugmaðurinn hafi verið
fangi, sem strauk úr sama
fangelsi 28. október sl.
Þyrlunni var rænt og er talið
að þar hafí verið að verki Ronald
Mclntosh, sem strauk úr Pleasan-
ton-fangelsinu fyrir röskri viku.
Líbanon:
PLO menn
og shítar
berjast
Beirút,AP.
MÚHAMEÐSTRÚARMENN af
trúflokki shíta, gerðu harða árás
á stærstu flóttamannabúðir Pa-
lestinumanna í Beirút á miðviku-
dag og svöruðu Palestínumenn
skothríðinni, þannig að loka varð
hraðbraut þeirri er liggur til al-
þjóðaflugvallarins, flugumferð
stöðvaðist þó ekki. Lögregluyfir-
völd segja að 12 manns hafi látist
og 134 særst.
í Bouij el-Barajneh flóttamanna-
búðunum búa um 50.000 manns
og hafa átök staðið þar yfír í viku,
a.m.k. 35 hafa látist og 233 særst.
Skothríðin bergmálaði um borgina
í gær og sjúkrabílar voru á stöðug-
um þönum með sært fólk. Útvarp
múhameðstrúarmanna hvatti íbúa
borgarinnar til þess að halda sig
innan dyra og sjúkrahús báðu fólk
um að gefa blóð.
Átökin stóðu á milli Amalshíta
sem eru stuðningsmenn Nabih
Berri, dómsmálaráðherra Líbanons
og skæruliða Frelsisfylkingar Pa-
lestínu, PLO og saka báðir aðilar
hinn um að eiga upptökin. Einnig
kom til átaka milli sömu aðila við
flóttamannabúðimar í Rashidiyeh,
í hafnarborginni Týrus á miðviku-
dag, 3 létust og 5 særðust. Hafa
þá 36 látist og 185 særst síðan
Amalshítar settust um þær búðir
1. okt. sl. Þessir aðilar hafa eldað
grátt silfur um langt skeið, þar sem
Amalshítar amast við veru palestín-
sku flóttamannanna í Líbanon.
Hann leigði þyrluna í San Jose
undir því yfírskyni að þurfa að
skoða hugsanlegt byggingarsvæði.
Þegar komið var inn í óbyggðir lét
hann flugmanninn lenda, dró fram
byssu, neyddi hann út og flaúg
sjálfur á braut.
Kvenfanginn heitir Samantha
Dorinda Lopez og er 37 ára. Hún
afplánaði 50 ára fangelsisdóm fyr-
ir bankarán í Georgíu. Þyrlan lenti
á útivistarsvæði fangelsins og var
vopnaður vörður meðal fanganna,
sem þar voru, en skaut ekki á
þyrluna. í atviki af þessu tagi er
ekki skotið á þyrluna þegar ekki
er vitað hvort flugmaðurinn hafí
verið neyddur til verksins.
í gær hafði hvorki spurst til
þyrlunnar né fanganna tveggja.
Mál gegn þjónustu-
stúlku Nancy
Reagan fellt niður
AP/Símamynd
Anita Sanabria Castelo, þjón-
ustustúlka Nancy Reagan,
gengur fyrir utan réttarsalinn i
Richmond.
^ Richmond, AP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
hætta við málsókn gegn Anitu
Sanabria Castelo, þjónustu-
stúlku í Hvita húsinu. Castelo
var ákærð fyrir að reyna að
smygla skotfærum til Para-
guay frá Richmond í Banda-
ríkjunum og áttu réttarhöld í
máli hennar að hefjast á
mánudag.
Castelo er í starfsliði forsetafrú-
arinnar, Nancy Reagan. Hún
reyndi að koma skotfærunum um
borð í flutningaskip frá Paraguay.
Saksóknari ríkisins, Hemy Hud-
Einstæðum foreldrum
fjölgar í Bandaríkjunum
Washington.AP.
EINSTÆTT foreldri, yfirleitt
kona, er í fyrirsvari fyrir fjórðu
hverja bamafjölskyldu í Banda-
ríkjunum, að því er fram kemur
í nýlegri könnun er stofnun sú
er annast manntal þar í landi
hefur látið gera. Þar kemur einn-
ig fram, að meirihluti fjölskyldna
blakkra manna em á framfæri
einstæðs foreldris.
Hlutfall einstæðra foreldra með
bam eða böm undir 18 ára aldri
hefur vaxið um helming frá árinu
1970, úr 12.9% í 26% árið 1985.
Þróunin hefur hægt aðeins á sér
undanfarin 5 ár, en þeir sem unnu
að könnuninni telja að þetta hækk-
aða hlutfall sýni, að miklar breyting-
ar hafí orðið á fjölskyldumunstrinu
í Bandaríkjunum á undanfömum 15
árum. Skilnuðum hefur flölgað og
ógiftum mæðmm einnig, þannig að
stöðugt fleiri böm alast upp hjá að-
eins öðru foreldrinu.
60,1% blakkra bamafjölskyldna
eru á framfæri annars foreldrisins
og 20,8% hvítra. í flestum tilfellum
er hið einstæða foreldri kona, eða
4,9 milljónir hjá hvíta kynstofninum
af 5,7 milljónum og 2,6 milljónir af
2,8 milljónum hjá svertingjum.
Meðal þess sem fram kom í könn-
uninni má nefna að meðalfjölskyldan
hefur minnkað lítillega; dregið hefur
úr því að fólk undir 25 ára aldri
stofni heimili; mest flölgaði heimilum
sem fólk 35-44 ára var í fyrirsvari
fyrir, eða um 25%, næst mest sem
fólk 75 ára og eldra stóð fyrir, eða
um 13,6% og stöðugt fleiri einstakl-
ingar búa einir, þó fjölgar þeim er
það lqósa ekki jafn hratt og á árun-
um 1970-1975.
son, sagði Robert R. Merhige
dómara að komist hefði verið að
þeirri niðurstöðu að það hefði ekki
verið ásetningur Castelo að brjóta
lög.
Castelo kvaðst vona að hún
fengi aftur vinnu í Hvíta húsinu.
Henni var veitt leyfí frá störfum
þegar hún var ákærð í ágúst.
Elaine Crispen, blaðafulltrúi
Nancy Reagan, sagði að forseta-
frúin vildi fá Castelo aftur til vinnu
sem fyrst.
Ég er mjög ánægð með það að
Anita var saklaus fundin," hafði
Crispen eftir Nancy.
Julio Cesar Baez Acosta, skipt-
stjóri flutningaskipsins, og Eug-
enio Silva, bílasali í Richmond,
voru einnig ákærðir í málinu. Þeir
játuðu báðir að hafa reynt að flytja
skotfæri án þess að hafa leyfí til
slíkra flutninga. Dæmt verður í
máli þeirra 5. desember. Þeim var
sleppt gegn tryggingu.
Að sögn Hudsons saksóknara
keypti Castelo 70 öskjur með skot-
færum í verslun í Richmond.
Skipstjórinn sagði að hún hefði
farið fyrir sig í verslunina. Castelo
hefði verið grunlaus um að hún
færi ekki að lögum.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til við-
tals í Valhöll Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá
kl. 10—12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrir-
spurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 8. nóvember veröa til viðtals Magnús
L. Sveinsson forseti borgarstjórnar og Hulda Valtýs-
dóttir formaöur menningarmálanefndar.
Bandaríkin:
Óttast aukið húð-
krabbamein vegna eyð-
ingar ósonlagsins
Washington, AP.
TALSMAÐUR Umhverfismála-
stofnunar Bandaríkjanna sagði
á þriðjudag, að hætta væri á,
að húðkrabbamein ykist um
helming á næstu 88 árum ef
ósonlagið, sem hylur og vemd-
ar jörðina fyrir útfjólubláum
geislum, heldur áfram að eyð-
ast.
Skýrsla stofnunarinnar verður
rædd á ráðstefnu vísindamanna í
Washington 24.-25. nóvember nk.
og verður þar hugsanlega lagt
til, að framleiðslu klórflúorkolefn-
is verði settar frekari skorður.
Telja vísindamenn, að það eigi
mestan þátt í, að ósonlagið yfír
Suðurskautinu hefur minnkað
mjög. Efnið hefur verið notað
mikið í úðabrúsa en í Banda-
rílqunum var það bannað að
mestu árið 1978.
Chris Rice, talsmaður umhverf-
ismálastofnunarinnar, sagði, að
bandarískum sendiráðum hefði
verið skýrt svo frá, að ríkisstjóm-
in ætlaði brátt að leggja fram
tillögu um algert bann við fram-
leiðslu efna, sem eyddu ósonlag-
inu. Yrði það líklega gert í Genf
snemma næsta mánaðar þegar
fulltrúar iðnríkjanna koma þar
saman til fundar um þessi mál.
Evrópubandalagsþjóðimar hafa
þegar samþykkt ákveðin takmörk
við framleiðslu klórflúorkolefnis
en þau em hins vegar allnokkuð
fyrir ofan núverandi framleiðslu.
Óson er skaðlegt efni í lítilli
lofthæð en í efri loftlögunum hlífír
það jörðinni við útfjólubláum
geislum sólarljóssins og er því ein
af undirstöðum lífsins. Breytingar
á ósonlaginu gætu ýtt undir svo-
kölluð „gróðurhúsaáhrif" en þá
er átt við, að hitastigið um allan
heim hækki smám saman. Aðal-
ástæðan fyrir því er þó samsöfnun
koltvísýrings í andrúmsloftinu.
SÉRVERSLUIM
YFIRSTÆRÐIR
Tískusýning í dag kl. 17.
Við eigum 1 árs afmæli
í dag. í tilefni dagsins
bjóðum við 10% afslátt
af öllum vörum.
bouliqut>
m.iraanda
2. hæð, Kjörgarði,
Laugavegi 59,
sími 622335.