Morgunblaðið - 07.11.1986, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ, PÖÖTUÐAGUR 7. NÓVEMBER 1986
Þorbjöm Broddason
sendir félagsmála-
ráðherra kærubréf
ÞORBJÖRN Broddason, vara-
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins og fulltrúi þess í skólamála-
og fræðsluráði hefur sent félags-
málaráðherra bréf þar sem hann
fer fram á að ráðherra hlutist
til um að „farið verði að lögum
við framkvæmd fræðslumála í
Reykjavík". Jafnframt lýsir hann
því yfir að hann muni víkja úr
sæti í báðum ráðunum þar til
úrskurður ráðherra berst og að
varamaður muni ekki koma í
hans stað.
í bréfi sínu fer Þorbjöm fram á
að ráðherra úrskurði um að formað-
ur fræðsluráðs, Ragnar Júlíusson,
verði „knúinn til að halda fundi í
fræðsluráði í samræmi við lagaá-
kvæði", að skorið verði úr um rétt
kennarafulltrúa til setu í skólamála-
ráði og loks að skorið verði úr um
rétt fræðslustjóra til setu í skóla-
málaráði.
Nokkrar umræður urðu um þetta
mál í borgarstjórn Reykjavíkur í
gærkvöldi. Össur Skarphéðinsson
(Abl.) sagði hér vera um að ræða
„örþrifaráð" af hálfu Þorbjöms þar
sem Ijóst væri að ekkert yrði gert
í þessum málum af hálfu fræðs-
luráðs.
Sigurjón Pjeldsted sagði fundi
vera haldna í fræðsluráði og væra
fundargerðir til vitnis um það. Um
rétt kennarafulltrúa sagði hann að
kennarar hefðu rétt á tveimur full-
trúum í skólamálaráð en hefðu
„þráast við að skipa þá“. Þar að
auki hefðu skólastjórar og SAM-
FOK hvor sinn fulltrúann. Sigurjón
sagði einnig að hann teldi „furðu-
legt“ ef fræðslustjóri, embættis-
maður ríkisins, fengi að „sitja alla
fundi þar sem verið er að ræða
málefni sveitarfélagsins".
Davíð Oddson, borgarstjóri, sagði
að ekkert hefði verið gert til að
meina Þorbimi að sinna þeim mál-
um sem hann hefði verið kosinn til
að gegna. Taldi hann Þorbjöm vera
með „sérkennilega tilburði" í þessu
máli. Það væri ekki á valdsviði fé-
lagsmálaráðherra að úrskurða um
þetta heldur menntamálaráðherra.
Fulltrúar Alþýðuflokks, Fram-
sóknarflokks og Kvennaframboðs
lýstu yfir stuðningi við bréf Þor-
bjöms.
Sjúkrahus Keflavíkur hefur hætt öllum
viðskiptum við Þvottahús Keflavíkur:
Kostnaður við þvott
allt að fimm sinnum
hærn en a
Keflavík.
SJÚKRAHÚSIÐI Keflavík hefur
hætt öllum viðskiptum við
Þvottahús Keflavíkur vegna
grunns um misferli. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum Morg-
unblaðsins hefur þetta meinta
misferli átt sér stað síðan 1983
og leikur grunur á að um veru-
legar upphæðir sé að ræða.
„Við eram að skoða viss gögn,
þetta er viðkvæmt mál og engin
ákvörðun hefur verið tekin. Við
hugsum fyrst og fremst um hags-
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
Akranesi
muni sjúkrahússins," sagði Ólafur
Bjömsson, formaður sjúkrahús-
stjómar, í samtali við Morgunblað-
ið. Ólafur vildi ekki tjá sig nánar
um mál þetta á þessu stigi.
Að undanfömu hafa farið fram
athuganir á rekstri sjúkrahússins
vegna mikils rekstrarkostnaðar.
Gerði Guðjón Magnússon, aðstoðar-
landlæknir, meðal annars álitsgerð
um Sjúkrahúsið í Keflavík fyrir árið
1984. I umræddri álitsgerð kemur
fram að miðað við Sjúkrahúsið á
Akranesi er kostnaður hærri fyrir
alla þætti rekstrarins nema fyrir
rafmagn og hita. Þar kemur meðal
annars fram að kostnaður við þvott
er allt að fimm sinnum hærri 1
Keflavík. Allur þvottur frá Sjúkra-
húsinu í Keflavík er nú fluttur til
Reykjavíkur.
Þess má geta að mál þetta hefur
ekki verið kært til lögreglunnar í
Keflavík.
BB
I fERTU MNN
EIGINN HERRA
Tvær stöðvar verða ekkert vandamál
á þínu heimili með PHILIPS myndbandstæki.
Þú horfir á eina stöð en tekur upp af hinni.
Við erum mjög sveigjanlegir í samningum.
Athugaðu það.
Ef þú kaupir myndlykil að Stöð 2
Þá færðu 5% AUKAAFSLÁTT af öllum
myndbandstækjum hjá okkur.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8, SÍMI 27500 — HAFNARSTRÆTI 3 SÍMI 20455
HLLT
S Gardínubrautir
Tjarnargölu 17, 230 Keflavík, s. 2061
Siðumúla 22, 108 Reykjavik, s. 31870
Hallveigarslig 1, 101 Reykjavik, s. 22235
Skemmuvegi 10 Kóp. s.77900
ÖRKIN/SlA